Þjóðviljinn - 19.12.1981, Page 3
1*9.* ,05—.t*
Helgin 19.— 20. desember 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
ÓLAFUR
THORS
MATTHIAS JOHANNESSEM
Olafur Thors
Kr. 592,80.
„hinn pólitiski sjarmör14 í minningu margra,
ekki siöur andstæöinga en samherja, og
ýmsir töldu hann snjallasta stjórnmálafor-
ingjann á Noröurlöndum um sina daga.
Hann var mjög ákveöinn og haröur baráttu-
maöur þegar því var aö skipta, og samtimis
dáöur langt út fyrir raöir eigin flokks og átti
nána vini í hópi þeirra sem hann þurfti mest
viö aö kljást. Ólafur Thors var í forustusveit
íslenskra stjórnmála þann aldrþriöjung sem
viöburöaríkastur hefur oröiö í íslandssög-
unni. Bókin byggir mjög á heimildum frá
honum sjálfum, þ.e. einkabréfum og minnis-
blööum hans sjálfs og hefur fæst af þvi
komiö fyrir almenningssjónir.
JÓHANNES HELGl
LÖGREGLUSTJÖRI
Á STRÍÐSÁRUNUM
Lögreglustjóri
á stríðsárunum
Kr. 345.80.
Rekur minningar Agnars Kofoed-Hansens
um striösárin og jafnframt sögu lögreglunn-
ar í Reykjavik, erfiöasta timabiliö.
Bókin er framhald minningabókarinnar Á
brattann 1979. Hún hefst meö Þýskalands-
dvöl Agnars sumariö 1939, þegar veldi nas-
istanna stóö sem hæst. Agnar var þar í boöi
sjálfs Himmlers til aö búa sig undir lögreglu-
stjórastarfiö. Eftir aö Agnar haföi veriö lög-
reglustjóri í nokkra mánuöi er landiö her-
numiö, og vandamálin hrannast upp.
Árekstrar viö herstjórnina út af lögbrotum
hermanna; átök viö hermennina sjálfa, oft
vopnaöa; vandmál út af vændi stúlkubarna i
herbúöunum, og þannig mætti lengi telja.
Þar verpir
hvítur örn
Kr. 234,65.
Ný skáldsaga eftir Guömund Hagalín
Fjörleg frásögn, snilldarleg samtöl og um-
fram allt kimni eru einkenni þessarar bókar.
Hagalín bætir enn viö þann fjölskrúöuga
persónugrúa em hann er búinn aö lýsa á 60
ára ritferli. Hér er þaö Hreggviöur sóknar-
nefndarformaöur, kona hans Arnkatla og
skozki presturinn sem risa upp af blaösiöun-
um i fullu fjöri, og auk þess margar auka-
persónur. Sagan gerist á stríösárunum, fólk-
iö er fariö aö hugsa nokkuö nútímalega.
ck
Ljóðakorn
Kr. 123,50.
31 nýtt sönglag eftir Atla Heimi Sveinsson
komin út á nótum hjá almenna bókafélag-
inu
Höfundur annaöist sjálfur nótna- og textarit-
un, káputeikningu o.fl. Öll eru þessi 31 lög
samin viö islenska texta eftir kunna og
ókunna höfunda. Bókin skiptist i fjóra kafla
sem nefnast: 1. Barnagælur, 2. Nútímaljóö,
3. Gamansögur, 4. Aukalög.
TyEqqjA
bAkkA
yEÐUR
Tveggja bakka
veður
Kr. 179.
Ný Ijóöabók eftir Matthías Johannessen
Litrik, fjölbreytt og fögur.
Matthías ber hátt i hópi islenskra Ijóðskálda.
Þó hefur hann aldrei veriö betri en nú.
SVKNl) OTTO S
Risafiskurinn
Risafiskurinn
Kr. 59,30.
eftir Svend Otto S
Svend Otto S. er i hópi kunnustu teiknara
og barnabókahöfunda á Noröurlöndum.
Hann er oröinn vel þekktur hér af bókunum
Mads og Milalik og Helgi fer i göngur.
i þetta sinn snýr Svend Otto S. sér aö Fær-
eyjum. Sagan Risafiskurinn fjallar um tvo
drengi sem lenda í ævintýrum bæöi á sjó og
landi.
Gísii Þór Gunnars,son
KÆRLEIKSBLÓMID
Haustljóð
Kr. 284,05.
ný Ijóðabók eftir Kristmann Guðmundsson
I tilefni af áttæöisafmæli Kristmanns Guö-
mundssonar gefur Almenna bókafélagiö út
nýja Ijóöabók eftir hann. Nefnist hún
Haustljóö og er gefin út í 300 eintökum sem
öll eru tölusett.
Haustljóð eru alls 42 aö tölu um margs kon-
ar efni og í margs konar formi — allt frá
lausavísum til prósaljóöa.
Don Kíkóti
Kr. 247.
eftir Cervantes komin út á íslensku í þýö-
ingu Guóbergs Bergssonar
Don Kikóti er eins og kunnugt er eitt af
dýrgripum heimsbókmenntanna — sagan
um vindmylluriddarann sem geröi sér heim
bókanna aö veruleika og lagöi út i sina ridd-
araleiöangra á hinum ágæta reiöhrossi Ros-
inant ásamt hestasveininu Sansjó Pansa til
þess aö frelsa smælkingja úr nauöum, —
leita sinnar ástmeyjar og eyjarinnar fyrir-
heitnu.
Flýgur fiskisaga
Kr. 185,25.
eftir Hrafn Gunnlaugsson
„Flýgur fiskisaga** sver sig um margt i ætt
viö fyrri verk höfundarins, bæöi fyrri
skáldskap hans og kvikmyndir. Efniviöurinn
er oftast hversdagslegur veruleiki, sem höf-
undur blæs lifi i meö sínu sérkennilega
hugmyndaflugi og skopskyni, stundum
sannkölluöum gálgahúmor.
-V
JÓHANNES R SNORRASON
Skrifað í skýin
Kr. 296,40.
Æsku- og flugsaga Jóhannesar R. Snorra-
sonar flugstjóra, rituö af honum sjálfum
Jóhannes R. Snorrason býöur okkur fram í
flugstjórnarklefa. Og þaö er ekki einn flug-
stjórnarklefi, heldur margir, og viö fljúgum
ýmist i sólskini eöa kolsvörtum skýjum og
illviörum. Nú er flugtæknin háþróuö, en í
upphafi flugferils Jóhannesar var hún þaö
ekki. Þá var flugiö ævintýri líkast.
Fimmtán gírar áfram
Kr. 271,70.
Saga af Pétri á Hallgilsstöðum og öörum
brautryöjendum eftir Indriöa G. Þor-
steinsson
Þaö var á þeim árum, þegar bílstjórarnir
voru hálfgeröar þjóöhetjur, gengu meö
svartar gljáskyggnishúfur meö gylltum
boröa og hölluöu þeim glannalega út i hægri
vangann. En þrátt fyrir sjálfsöryggi á ytra
boröi áttu þeir verstu trúnaöarmál viö bíla
sina búna lélegum teinabremsum, harla viö-
sjárveröum á mjóum og snarbröttum mal-
arvegum og vegleysum.
Spellvirki
Kr. 197,60.
Ný skáldsaga eftir Jón Dan
Ný skáldsaga eftir Jón Dan, raunsönn,
spennandi, um eitt af brýnustu vandamálum
samtimans.
Unglingur viö erfiöar aöstæöur og misrétti
beittur lendir i hræöilegum vanda þegar
hann missir stjórn á sjálfum sér á örlaga-
stund — og fremur spellvirki. En hvaö er til
ráöa?
Kærleiksblómið
Kr. 185,25.
skáldsaga eftir nýjan höfund, Gísla Þór
Gunnarsson
Sagan fjallar um jafnaldra höfundarins,
unglinga, fyrst hér á íslandi og siöan vestur
í Bandarikjunum. islenskur drengur dvelst
nokkrra afdrifaríka mánuöi
vestur í Bandarikjunum. Hann kynnist mörg-
um unglingum, sem hver hefur sin sórkenni
og sín vandmál. Einn þeirra er María. Hún
vill allra vandræöi leysa og þá þó sjálf viö
margt aö stríöa.
Almenna
Bókafélagið
Austurstræti 18,
sími 25544.
Skemmuvegi 36,
Kópavogi,
sími 73055.
SÉRHVER ÞJÓÐ HEFUR ÞÁ STJÓRN
SEM HÚN VERÐSKULDAR.; ,
SASEM GETUR FRAMKVÆMIR
SÁ SEM EKKERT GETUR.KENNIR.,
Kristallar
Kr. 284,05.
Tilvitnanir og fleyg orö í samantekt séra
Gunnars Árnasonar
Kristallar — tilvitnanir og fleyg orö er safn
snjallyröa og frægra ummæla frá ýmsum
timum og viösvegar aö úr heiminum. Bókina
munu sumir vilja lesa i einni lotu. Aðrir munu
vilja nota hana sem uppflettirit og er efninu
þannig skipaö aö hún er hentug til þeirra
nota.
LJÓÐ
IIANDA HINÚM OG ÞESSUM
SVEINBJÖRN I. B.ALDVLNSSON
Ljóð handa
hinum og þessum
Kr. 135,85.
eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson
Sveinbjörn er sérstætt skáld, yrkisefni hans
fjölbreytt, Ijóöin hnitmiöuö og allt tekiö föst-
um tökum. Þessi Ijóö eru ort bæöi hérlendis
og erlendis, fjalla um þaö sem fyrir augun
ber, en eru siöur en svo nein naflaskoöun.
Yfirbragö þeirra er fjöiegt og um þau hrísl-
ast glitrandi kimni.
Náttúra íslands
Kr. 345,80.
er heildarlýsing á náttúru landsins. Hún fjall-
ar um myndun landsins og jaröfræöi þess,
jaröeldasvæöi á nútima, jaröhita, hagnýt
jaröefni i landinu, veöurfar, vatnsorku, jarö-
veg tandsins og gróöur, dýralif á landi og
lifiö i sjónum.
Höfundar ritsins eru eftirfarandi visinda-
menn:
Bjarni Helgason, jarövegsfræöingur,
Eyþór Einarsson. grasafræöingur,
Freysteinn Sigursson, jaröfræöingur,
Guömundur Kjartansson, jaröfraaöingur
Helgi Björnsson, jöklafræðingur,
Hlynur Sigtryggsson, veöurfræöingur,
Ingimar Óskarsson. grasafræöingur,
Ingvar Hallgrímsson, fiskifræðingur,
Ingvi Þorsteinsson, náttúrfræöingur,
Jón Eyþórsson, veöurfræöingur,
Jón Jónsson, jaröfræöingur,
Leifur Á. Símonarson, jaröfræöingur,
Páll Einarsson, jaröeölisfræöingur,
Siguröur Steinþórsson, jaröfræöingur,
Siguröur Þórarinsson, jaröfræöingur,
Sigurjón Rist, vatnamælingamaöur,
Sveinjörn Björnsson. eölisfræöingur,
Tómas Tryggvason. jaröfræöingur,
Trausti Einarsson, jaröeölisfræðingur,.
Unnsteinn Stefánsson. haffræöingur.
Fyrsta útgáfa Náttúru íslands kom út fyrir 20
árum. Siöan hefur fjölmargt gerst i þessum
fræöum og nýjar rannsóknir leitt nýja vitn-
esku i Ijós. Af þeim ástæöum er þessi önnur
útgáfa bókarinnar mjög breytt og aukin frá
fyrri útgáfu, og hafa sumir höfundar skrifaö
ritgeröir sinar aö nýju, aörir bætt viö fyrri
ritgeröir, og auk þess eru hér nýjar ritgeröir
um efni, sem ekki var fjallaö um i fyrri útgáf-
unni, svo sem flekakenninguna, jaröskjálfta
á Islandi og eyöingu gróöurs og endurheimt.
Fæst hjá næsta bóksala