Þjóðviljinn - 19.12.1981, Page 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 19 — 20. desember 1981
merer spurn
Andrea Jónsdóttir svarar Elíasi Mar:
Hver verða varanleg
áhrif poppsins?
Kæri Elias.
Spurning(ar) þin(ar) er(u)
margþátta nokkuð og ég vart
rétta manneskjan til aö svara,
„fórnarlamb” bitlaæðis og af
hippakynslóðinni sem nii fer að
komast á valdastóla i þjóðfélög-
um heimsins. Þannig að það er
ekki séð fyrir endann á örlögum
minnar kynslóðar á næstunni (ef
við erum bjartsýn og sleppum
heimsendisvangaveltum). Og um
leið og ég reyni að svara þér er ég
komin út á hálan is, þar sem þjóð-
félagsfræðingar og sálfræðingar
mundu fóta sig öllu betur, og svo
náttúrulega Dixon og aðrar nú-
tíma véfréttir. En skittmeð það...
og hafa veröurðu þótt þessi til-
raun til svars byggist fremur á
fortið en nú-eða hvaö þá framtið.
Ef til vill liggur beinna við að
spyrja: Hvers vegna varð til
hippahreyfing og hvers vegna
verður til pönkarahreyfing? Eru
þessi viðbrögð ungs fólks ekki
bein (og eðlileg) afleiðing af þjóð-
félagslegum aðstæðum hverju
sinni?
Allir eru börn sins tíma og mis-
gamlar kynslóðir eiga erfitt með
að skilja — og þærgera þar með
litiö úr — mikilvægi æskuupplif-
unar hver annarrar. Hinir eldri
lita á hegðun hinna yngri frá
öfugum enda, með vissa li'fs-
reynslu sem þeir fengu sjálfir á
sinni unglingstið hvort sem það
var á timum þjóðfrelsisskálda,
bitnikka eða hippa. Hinir yngri
hugsa vart út i að mamma og
pabbi, og þvi siður afi og amma,
hafi einhverntimann verið ,,ung-
lingavandamál” enda eðlilegt
vegna viðbragða hinna eldri.
Ég held að allir verði að lokum
sammála um þótt það verði ekki
fyrr en á elliheimilinu, að ung-
lingsárin eru er sá ti'mi sem við
byrjum að taka afstöðu gagnvart
umheiminum, með öllum þeim
vonbrigðum sem þvi' fylgir, og
samfélagið gagnvart okkur.
Arekstrar hljóta að veröa.
Nú er ódælasti hluti ungs fólks
kallaöur pönkarar, sem segja
„neikvæða” lifsskoðun sina stafa
af mistökum hippanna til að
koma ábetra bióðfélagimeö friði
og ást. (Hvað segir ekki Biblian
um syndir feðranna?)
Um varanleg áhrif hinna ým su
hreyfinga ungs fólks er erfitt að
spá enda reyna tiskufrömuðir og
alls kyns sölumenn aö notfæra sér
allar nýjungar til fjár, og verður
þá tiskan til að gera ýkta mynd af
áhrifunum hverju sinni.
Auðvitaö voru hipparnir gerðir
að féþúfu eins og pönkið núna,
bæði á sviði hljómlistar og fata-
tisku. Samt sem áður hefur lifs-
skoðun hippanna haft ótrúlega
mikil áhrif i frjálslyndisátt i
heiminum, og sjást þess viða
merki enn.
Ég veit að ég slæ þessu hér
fram órökstuddu, en mér segir
svo hugur um að stór hópur þess
fólks, sem nú andæfir gegn kjarn-
orkuvopnum og hernaðarbrölti
viða um heim, sé af hippakyn-
slóðinni. Og fleiri mál sem ný
kynslóð á ekki litinn þátt i' eru t.d.
umh verfisvemd, áhugi og virðing
fyrir þjóðflokkum sem hafa haft
viðurnefnið „frumstæðir”. Eins
hefur fólk af þessari kynslóð m jög
breytt viðhorfum og aðferðum i
sálarfræði og félagsráðgjöf
ýmisskonar en ég held að allir
viðurkenni að heldur hafi þokast i
mannúðaráttá þeim sviöum þótt
margur ósóminn viðgangist enn.
En viö erum nú ekki nema i
kringum þritugt ennþá...
Með því að benda á lifsseiglu
„hippismans” hræði ég kannski
liftóruna úr þeim sem lengi eru
búnir aðvelta fyrir sér afdrifum
hinnar islensku þjóðar, þegar
Hallærisplaniö kemst loks undir
þak í Alþingishúsinu handan
helgarvigvallarins við fætur Jóns
forseta. Enþá er lika að minnast
þess aö ekki þóttum viö hippar
sómi tslands, sverð né skjöldur,
heldur lauslátir og óábyrgir
skýjaglópar. Að visu var ásjóna
okkar friðsemdarlegri en pönkar-
anna, en þó held ég að flest okkar
hafi fljótt orðið þreytt á að rétta
fram hina kinnina, þótt árásar-
stefna hafiað.visu ekki verið tek-
in upp. En yfirbragö pönkaranna
er óneitanlega „töff” og timinn
einn getur leitt i Ijós hvort á
Andrea Jónsdóttir
stærra hlut i þeim töffheitum,
réttlát reiði út i þjóðfélagið eða
tískan.
Elias, þetta veröur að duga um
lifsafstöðu, ákvarðanatöku og al-
hliöa þroska tilfinningalifs, sem
unglingsárallra hljóta aðhafa af-
gerandi áhrif á. Jafnframt held
ég að hver þau áhrif verða, fari
ekki eftir þvi, hvort viö köllum
ungt fólk bitnikka, hippa eða
pönkara, heldur þvi við hvernig
aðstæður fólk elst upp hverju
sinni.
Viö verðum að muna að ungt
fólk er einstaklingar, en ekki
múgur pönkara o.s.frv. eins og
fjölmiðlar afgreiða „unglinga-
vandamál” hvers tima.
Hvað varöar samfélagsþroska
vitum við að á hann getur skort
hjá „venjulegasta” fólki þegar á
reynir. Og við hvers konar sam-
félag er sá þroski lika miðaöur?
Það hlýtur að skipta máli hvort
þú vilt vera partur af þessu sam-
félagi —eða kannski
frekar — hvort það vill yfir höfuð
vita af þér, taka tillit til þin.
Þáerkomið að þjóðerniskennd-
inni og móðurmálstilfinningunni,
og mér segir svo hugur um að þar
sé komin þungamiðja spurn-
ingarinnar. Óneitanlega koma
upp i hugann langvinn skrif um
texta Bubba Morthens hér i'
Þjóöviljanum. Ekki ætla ég að
'fara að koma af stað annarri eins
skriðu að þessu sinni, enda þótt ég
leyfi mér að halda þvi fram að
með sinum harðorðu textum hafi
Bubbi haft áhrif i þá átt að
margur pönk- eða nýbylgju-
hljómsveitir af yngri kynslóð
semja si'na texta á íslensku. Slikt
stuðlar að þvi að reka það slyðru-
orð af islenskunni að ekki sé hægt
að nota hana við rokkmúsik, en sú
skoðun heyrist enn hjá þeim
hljómlistarmönnum sem vilja
frekar raula i friði á ensku heldur
en að eiga á hættu að verða frýað
hæfileika á andlega sviðinu. En ef
fólk hefur ekki tök á sinu eigin
máli gengur þvi vart betur með
útlenskur.
Ef árásirnar á Bubba áttu að
sýna þjóðerniskennd, er sú merk-
ing lögð i það sem ég óttað-
ist — þjóðernishroki. Og ég held
að slikatlaga sé siður en svo væn-
leg til að vemda tungumál okkar
gegn óæskilegum áhrifum utan úr
hinum stóra heimi.
Ef tala á um versnandi móður-
málstilfinningu, sem berlega sjá-
ist i textasmiðum poppsins, þá er
þarum afleiðinguað ræða en ekki
orsök. Þar sem ég hef grun um
orsökina, beini ég spurningu
minni þangað sem ég vona að hún
upplýsist.
Að lokum, Elias, fyrirgeföu
þetta svar út i hött og ræðum mál-
in betur undir færri augum.
Hafa menntskælingar minni máltilfinningu
og mælfræðikunnáttu nú en t.d. fyrir 10 árum?
Ef svo er, hver heldur þú að ástæðan sé?
ritstjórnargrein
í nafni sósialismans
Fólskir verkfallsmenn.
Það er dimmt myrkrið sem
grúfir yfir Póllandi þessa
skam mdegisdaga.
Um landið allt á vopnlaust
fólk i höggi við her og lögreglu
þeirrar ofbeldisstjórnar sem
kýs að byssurnar einar hafi
málfrelsi, að orðum sé svarað
með skothri'ð. Vopnlaust og alls-
lauststendurfólkiðframmi fyr-
ir byssukjöftunum á strætum
úti, i verksmiðjum og á vinnu-
stöðum. Þúsundum saman er
þeimsem liklegir töldust til for-
ystu sópað inn i' fangelsin, öllum
öðrum til viðvörunar, og þar
sem menn leyfa sér að sýna
mótþróa eru byssumar ekki að-
eins sýndar, heldur látnar taka
til máls. t Slésiu voru 7 námu-
verkamenn skotnir til bana,
segir útvarp herstjórnarinnar i
Varsjá og greinir einnig frá
blóðugum óeiröum á Eystra-
saltsströndinni og viðar. Hundr-
uð manna hafa særst, og þó fá-
um við sjálfsagt ekki aö frétta
nema um örlitið brot af þvi sem
gerist, þvi landiö er lokaö öllum
erlendum fréttamönnum.
Pólska herforingjastjómin
byggir vald sitt allt á bakstuðn-
ingi þess her- og lögregiuvalds,
sem stjórnað er af öldungaveld-
inu i Kreml. Sá sem þar situr i
forsæti hefur nýskeð verið út-
nefndur sem „Sól frelsisins” af
leppum sinum í'Afganistan, og
sjálfsagt má hann á næstunni
vænta æðsta heiðursmerkis
pólsku herforingjastjórnarinn-
ar, — jafnvel strax i dag.
Þeir segjast vera aö bjarga
„sósialismanum” i Póllandi.
Mættum við, íslenskir jafnaðar-
menn, frábiðja okkur þann
„sósialisma” sem öldungaveld-
ið i Kremlbýður þegnum sinum
og kúgar með vopnavaldi upp á
aðrar þjóðir.
Vi'etnömum gekk á sinum
tima iUa að læra aö meta það
„lýðræði”, sem Bandarikja-
menn vildu ólmir kenna þeim
með sprengjuregni og dauða. Sú
lexia var hörð. Og það er hörð
lexia i „sósialisma”, sem Pól-
verjum er boöin þessi jólin.
Sósialismi og demókrati, sem
á islensku heita jafnaðarstefna
og lýðræði eru fagrar hugsjónir.
En orðin ein sér segja ekki
margt. Það auðhringa„lýð-
ræöi”, sem Bandarikjamenn
standa fyrir i Suður-Ameriku og
viða um heim, og sá gerræðis-
„sósialismi” sem Kremlverjar
bjóða uppá hafa i báðum tilvik-
um snúist i' andstæðu sina.
Við skulum horfa á veruleik-
ann og veröldina eins og hún er,
þá aðeins kann að reynast
mögulegt að breyta henni. Orð
eru til alls fyrst, en ef orð og
verk stangast á, þá eru það
verkin ein sem tala. Og verkin
tala alltaf. Þau hafa gert það i
Póllandi nú, m.a. i námunum i
Katowice.
Við spyrjum ekki Pólverja
hvort hann kalli sig sósialista.
Við spyrjum hvort hann sé á
móti valdstjórninni. Við spyrj-
um ekki Argentinumann hvað
hann hugsi um lýöræði, heldur
um hitt, hvorthann sémeð eða á
móti valdstjórninni.
Við spy rjum fyrst um tjáning-
arfrelsi og samtakafrelsi allrar
alþýðu, en siðar um sósialisma.
Við spyrjum fyrst um brauð
handa hungrandi börnum, en
siðar um lýðræði. Samt eru bæði
sósialisminn og lýðræðiö merki-
leg.
Þótt við köllum okkur lýðræð-
issinna og jafnaðarmenn, þá
skulum við ætiðvera við þvi bú-
in, að hörðustu andstæðingar
okkar nefni sig einnig svo. Hafa
ekki kristnir barist við kristna
gegnum aldimar? Orðin segja
svolitið. Við skulumspyrja okk-
ur s jálf, — hvaö við meinum . Ef
sósialisminn gerir þá krSu til
okkar að við stöndum með
pólsku herforingjunum, þá skul-
um við brenna sósialismann. Ef
lýðræðið gerir þá kröfu til okkar
að við stöndum með herfor-
Kjartan_________________
Olafsson
skrifar
ingjastjórninni i E1 Salvador, þá
skulum við drekkja lýðræðinu.
Svo einfalt er það.Ný orð má æ-
tið finna en unnin verk verða
ekki aftur tekin. Það þurfa allir
að skilja.
Ofurvald þeirrar gerræðis-
stjórnar sem situr i Kreml er
erfiðasti þröskuldurinn á vegi
þeirra sem berjast fyrir þjóðfé-
lagi jafnaðarstefnunnar hvar
sem er i heiminum.
Ofurvald hinna alþjóðlegu
auðhringa, sem öllu ráða i
Bandarikjunum er erfiðasti
þröskuldurinn á vegi þeirra sem
berjast fyrir lýðræði um allan
heim.
Við sigmm ekki annan risann
með þvi' að vingast við hinn,
heldur meö þvi eina nótt aö
safna liði gegn þeim báðum, hér
og um allan heim.
Við björgum ekki Pólverjum
með matgjöfum, en e.t.v. geta
þeir bjargað okkur. Ef til vill
getur uppreisn Solidarnosc gegn
kúgunarvaldinu, — mynd
verkamannanna frammi fyrir
byssukjöftunum rétt úr okkur.
Má vera að sú mynd dugi til að
minna okkur enn einu sinni á
skyldur við striðandi mannkyn,
á sæmd hinskúgaða sem ri's upp
með lifið að veði, á smán kúgar-
ans, sem ekkert hefur að bjóða
nema valdið nakið. A okkar eig-
in sæmd, á okkar eigin smán.
Sú áminning er öðrum þarf-
ari. - k.