Þjóðviljinn - 19.12.1981, Síða 27
Helgin 19 — 20. desember 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍDA 27
Ný vísitala
byggingar-
kostnaðar
Hagstofan hefur reiknað visi-
tölu byggingarkostnaðar eftir
verðlagi i fyrri hluta desember
1981 og reyndist hún vera 909,12
stig, sem lækkar i 909 stig
(október 1975= 100). Giidir þessi
visitala á tlmabiiinu
jánúar—mars 1982. Samsvarandi
vísitaia miðuö viö eldri grunn er
18052 stig, og gildir hún einnig á
timabilinu janúar—mars 1982,
þ.e. til viðmiöunar við vlsitölur á
eldri grunni (1. október
1955= 100).
Samsvarandi vísitölur
reiknaöar eftir verðlagi í fyrri
hluta september 1981 og meö
gildistima október—desember
1981 voru 811 stig og 16103 stig.
Hækkun frá september til desem-
ber 1981 er 12,1%.
Síðustu
forvöð að
fnnheimta
í H.Þ.
Nú minnum við menn á I
siðasta sinn, að fyrir löngu er búið
að draga i happdrætti Þjóövilj-
ans. Nú um helgina eru siðustu
forvöö að ganga til innheimt-
unnar og skila af sér.
Setjum nú öll upp húfur og
vettlinga og höldum af stað!
Opið verður að Grettisgötu 3
sem hr segir:
laugardag.....kl. 14.00—16.00
Sunnudag......kl. 14.00—16.00
Verum þess minnug, að Þjóð-
viljinn byggir fjárhagsafkomu
sina á velunnurum.
Þinghlé fram
til 20. janúar:
Fjárlög
afgreidd
í dag
Um miöjan dag I gær tókst
samkomulag á milli þingflokka
um frestun þinghalds I dag laug-
ardag til 20. janúar á næsta ári.
Timi þingsins undanfariö hefur
mikið til farið I aö ræða lánsfjár-
lögog fjárlögin. Stjórnarandstaö-
an hefur haldið uppi málþófi sem
nú er aflétt.
1 samkomulaginu felst frestun
afgreiöslu lánsfjárlaga fram yfir
áramót. Tóku mál að ganga
greiðlegar fyrir sig og nokkur
urðu að lögum i gær eftir að sam-
komulagið var i höfn. Þinghaldið
mun standa fram eftir degi i dag
og lokið verður við afgreiðslu
fjárlaga. Þingið hefst að nýju 20.
janúar á næsta ári. —óg.
Ný skýrsla Þjóðhagsstofnunar:
Taxtakaup og verðlag
hækka jafnt í ár, 42 %
Einkaneyslan
vex um 3-4%
Viðskiptakjör.
batna um 2%
Lauga-
vegur
aðeins
Ólafur
Hansson
látinn
Ólafur Hansson prófessor er
látinn. Hann fæddist 18. sept. 1909
og var norskur i fööurætt. Hann
lauk cand. mag. prófi i sögu,
landafræði og þýsku frá Oslóar-
háskóla 1933 og var skólastjóri
Gagnfræðaskólans i Neskaups-
stað 1934-6. Kennari við Mennta-
skólann i Reykjavik var Ólafur
frá 1936 en prófessor i sagnfræði
við Háskóla tslands hin siðari ár.
Eftir hann liggur fjöldi bóka um
sagnfræði og landafræði.
Kauptaxtar allra
launþega eru að meðaltali
taldir hækka um rösklega
42% frá upphafi til loka
þessa árs. Framfærslu-
kostnaður er einnig talinn
hækka um rétt rúmlega
42% frá upphafi til loka
ársins/ — svo jafnara getur
það ekki verið.
— Þessar upplýsingar
koma fram í bæklingi frá
Þjóðhagsstof nun um
framvindu efnahagsmála#
er sendur var f jölmiðlum f
gær
Samkvæmtþeim upplýsingum,
erþarna koma fram veröur kaup-
máttur kauptaxta allra launþega
aö meðaltali um 1% lakari á árinu
1981 heldur en á siöasta ári. Hins
vegar kemur fram, að Kjara-
rannsóknanefnd telur að ætla
megi að greitt dagvinnukaup
verkafólks, verslunarfólks og iön-
aðarmanna hafi hækkað um
1—2% umfram kauptaxta á fyrri
helmingi þessa árs, miðað við
sama tima i fyrra. Mest var sú
hækkun hjá verkakonum eða
3—4%.
Um ráöstöfunartekjur heim-
ilanna segir i þessari skýrslu
Þjóöhagsstofunnar, aö ætla megi
að kaupmáttur þeirra verði i ár
1—2% meiri en á siöasta ári.
Talið er að sjávarafurðafram-
leiðslan verði i ár um 2,5% meiri
en i fyrra og i heild hafa sjávar-
afuröir hækkað nokkuð i veröi frá
fyrra ári. A fyrstu niu mánuöum
þessa árs hefur verð á útflutn-
ingsvörum okkar almennt verið
að jafnaði um 8,7% hærra en i
fyrra og er þá miðað viö fast
meðalgengi. Sé breytingin hins
vegar metin i dollurum, þá er um
1% lækkun að ræða. Reiknað á
föstu meðalgengi hefur innflutn-
ingsverö á þeim vörum, sem
hingað eru fluttar veriö um 6%
hærra á þessu ári en i fyrra.
Þannig eru viðskiptakjör I okkar
utanrikisviöskiptum talin veröa
um 2% betri i ár en i fyrra.
Talið er að velta söluskatts-
skyldrar vöru og þjónustu hafi
veriö 5% meiri að raungildi á
fyrstu 10 mánuöum þessa árs
heldur en á sama tima I fyrra, og
aö einkaneysla muni i ár verða
3—4% meiri aö raungildi en i
fyrra. Allt eru þetta upplýsingar
sem fram koma i hinni nýju
skýrslu Þjóðhagsstofnunar. — k.
Leikfélags-
menn
óánægðir
með tillögur
fjárveitinga-
nefndar
Starfsmenn Leikfélags
Reykjavi'kur fjölmenntu á
borgarstjdrnarpallana í gær,
þegar fyrri umræða fór fram um
fjárhagsáæthm borgarinnar 1982.
Eru þeir mjög óánægðir nteð þær
tillögur um fjárveitingar til LR
sem i frumvarpinu eru.
Frumvarpið gerir ráð fyrir
óbreyttum fjölda starfsmanna
eöa 38, en þeim hefur ekki verið
fjölgaö frá þvi' 1980. Leikfélagiö
sótti um 4 stöðugildi til viöbótar
nú, 2 leikara og 2 i önnur störf.
En það sem kemur verr við
Leikfélagsmenn ersú tillaga sem
er I f járhagsáætluninni um
framlag tíl byggingar Borgar-
leikhúss i Kringlumýri. Er gert
ráð fyrir 1,5 miljónum króna Ur
borgarsjóði til þess, en samnings-
bundinn verkáfangi, sem ljúka á
á næsta ári mun kosta um 4
miljónir króna, auk kostnaöar af
hönnun og aukaverkum.
Samkvæmt þessu verður framlag
húsbyggingarsjóðs LR þvi að
nema 3,5 miljónum króna á næsta
ári, en það telja forráöamenn
leikhússins ókleift. Framlag
borgarinnar til leikhúsbygging-
arinnar i ár nam sömu upphæð,
1,5 mfljónum króna. — AI
fyrir
strætó
í dag laugardag verða
verslanir opnar frain til klukk-
an 22 og má búast við að mikill
liandagangur verði i öskjunni.
Að sögn óskars Ólasonar yfir-
lögregluþjóns i Reykjavík verð-
ur l.augaveginum lokað fyrir
allri umferð nema strætisvagna
á timabilinu frá kl. 13-19. Sami
háttur verður hafður á á Þor-
láksmessu. n.k. miðvikudag.
Gunnar Guöjónsson eftirlits-
maður hjá SVR sagði i gær að
strætisvagnarnir myndu aka
samkvæmt venjulegri laugar-
dagsáætlun, þe. á hálftima
fresti á öllum leiðum. Niður
Laugaveg aka vagnarnir á
a.m.k. kortérs fresti. Gunnar
sagöi að erfitt væri að auka tiðni
vagnanna, stór hluti vagnstjóra
væri i frii á laugardögum og
sunnudögum og væru þeir eðli-
lega tregir tíl að fórna þvi,en að
auki kæmi svo að i hinum m ikla
umferðarþunga sem er á sið-
asta laugardegi fyrir jól ættu
vagnarnir fullt i fangi með að
halda álítima áætlun. Auka-
vagnar verða i förum til og frá
úthverfunum. A Þorláksmessu
verður ekið skv. áætlun virkra
daga, þ.e. á kortérs íresti. —AI
Deilt er um vaktakerfi
Reykj avíkurlögreglunnar
Kominn er upp ágreiningur á
milli Lögreglufélags Reykjavikur
og dómsmála og fjármála ráöu-
neytisins varöandi framkvæmd
laganna um lágmarkshvild.
Að sögn Björns Sigurössonar
formanns Lögreglufélagsins hef-
ur það ekki viljað una þvi að sett-
ar verði vaktareglur án samráðs
við félagið, en ráöuneytin höföu
upphaflega gefið lögreglustjóra
frest til 1. jan. n.k. til þess að
koma á nýju kerfi I samræmi viö
lögin. Lögregluþjönar búa nú viö
gamalt vaktakerfi, sem þeir vilja
ógjarnan breyta, en ágreiningur
hefurstaðið á milli deiluaöila um
hvort fullri vinnuskyldu sé sinnt
samkvæmt lögum " meö þessu
kerfi.
Hópur lögreglumanna gekk á
fund fulltrúa ráðuneytanna i
fyrradag, til aö skýra sjónarmið
lögreglunnar, en ráðuneytin hafa
nú framlengt frestinn um gildis-
töku nýrra vaktareglna til 1.
mars n.k.