Þjóðviljinn - 06.02.1982, Síða 7
Helgin 6 — 7. febrúar 1982. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
Siguröur G. Tómasson borgarfulltrúi:
Hundalíf hjá íhaldinu
Sigurjón: Góð frammistaða i
borgarstjórn.
öllum sæmilega inn-
rættum mönnum hlýtur aö
renna til rifja innanf lokks-
ástandið hjá íhaldinu.
Eftir prófkjörið hafa þeir
verið að bitast um röðina
og sætin, og er ýmist að
menn hangi á sinu eins og
hundar á beini eða þyki
sinn leggur of rýr. Svo
mjög eru Sjálfstæðismenn
þróaðri hundinum að sagt
er að þeir hafi jafnvel
heimtað loforð um feitan
bita auk beinsins. Svoleiðis
genverðugheit þekkja þeir
ferfættu varla.
Ekki er foringinn sæll af sinum
hlut. Hans biður ekki öfundsvert
hlutskipti: Að halda til kosninea
með sundrað lið með ósigur Sjálf-
stæðisflokksins i siðustu kosn-
ingum og afar slælega stjórnar-
andstöðu i borgarstjórn i fartesk-
inu. Þar hefur hver ógæfan elt
aðra. Er þess fyrst að minnast
hvernig Sjálfstæðismenn
hömuðust gegn áformum vinstri
manna um þéttingu byggðar i
Reykjavik. Þar varekkert sparað
enda tilganeurinn að minnsta
Davið: Að halda til kosninga með
sundrað lið.
kosti tviheilagur: I fyrsta lagi að
koma höggi á forystuflokkinn Al-
þýðubandalagið og i öðru lagi að
klóra yfir eigið andvaraleysi i
skipulagsmálum. t þéttingu
byggðar hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn étið ofan i sig hvert
svæðið áf öðru. Nú er vart eftir
óétiðnema Laugarásinn, þar sem
fólk með hreinar hugsanir kviðir
þvi að fá að grönnum eignalitið og
ættsmátt fólk úr punktakerfinu.
Brátt kemur eflaust að þvi að
ihaldið muni ekki annað en að
þetta sé allt saman gömul hug-
mynd frá þeim. Areiðanlega ein-
hversstaðar i bláu bókinni. Þó
hefðu menn ekki haldið að Sjálf-
stæðisflokkurinn sýndi jafn mikla
lyst i sambandi við Aðalskipu-
lagið. 1 borgarráði gerðust þau
tiðindi nýlega að Albert greiddi
þvi atkvæði, en Davið sat hjá að
leitað yrði staðfestingar á hinu
nýja skipulagi vinstriflokkanna á
Austursvæðum. Undrar nú engan
þótt þessi flokkur þjáist af alvar-
legum meltingartruflunum, eftir
allt sem hann hefur mátt gleypa.
Smáir og stórir
Ekki varð hún velvildar-
mönnum Sjálfstæðisflokksins til
huggunar frammistaðan i af-
Albert: Greiddi aðalskipulaginu
atkvæði sitt.
greiðslu fjárhagsáætlunar. Þar
vildu ihaldsmenn lækka skatta,
auka framkvæmdir og þjónustu
auk þess sem þeir kenndu vinstri-
mönnum hér og þar, i rikisstjórn
og borgarstjórn, um það að þau
gjöld sem borgarbúa greiða fyrir
hita og rafmagn væru of lág.
Að sjálfsögðu var ekkert reynt að
samræma þetta. Leiötogar Sjálf-
stæöisflokksins stórir og smáir
gera sér auðvitaö grein fyrir
Jón Baldvin: Itaunaleg örlög —
ilialdinu lofað samstarfi.
þessari frammistöðu. Berlegast
kom þetta vonleysi i ljós á
borgarstjórnarfundi um daginn
þegar „borgarstjóraefnið”
kvaddi sér hljóðs utan dagskrár.
Enginn vissi hvaðan á stóð veðrið
fyrr en þaö rann upp úr mann-
inum bitur og taumlaus gremja
yfir góðri frammistöðu Sigurjóns
Péturssonar gegn blaðamanni
Morgunblaösins i útvarpinu á
dögunum. Dæmi munu vera til
þess að borgarfulltrúar kveðji sér
hljóðs utan dagskrár þegar um er
að ræða brýn mál sem ætla má að
skipti Reykvikinga miklu. Við
verðum að trúa þvi að leiðtoginn
hafi hreinlega ekki getað hamið
kvöl sina og látið dómgreindar-
leysi ráða fremur en þarna hafi
einnig búið að baki vitneskja um
nýtilkomna nærveru fréttamanns
úrvarpsins. Það væri ósæmilegt
smekkleysi.
Skilningsskortur sauö-
kindarinnar
Til er gömul munnmælasaga af
Suðurlandi um seinheppinn
fjallkóng sem þótti safnið
heimtast illa af fjallinu og kenndi
það almennum skilningsskorti
sauðkindarinnar. Þvi fer fjarri að
höfundur þessa pistils telji hæfa
að ræða um smalamennsku og
kosningar i sömu andránni en
ósköp væru það raunaleg örlög ef
rættist spásögnin sem fólst i
spangóli Alþýðublaðsritstjórans
um daginn, þar sem ihaldinu var
lofað samstarfi i borgarstjórn
eftir kosningar. Og þótt það kunni
að verða siðasta hálmstráið að
reiða sig á þetta spangói þá er
hollt fyrir ihaldið að muna að
flðkkuhundum gengur gjarnan
illa að binda trúss sitt við nýjan
húsbónda og dugir vist ekki
maeurt bein i þann kjaft ef hann
á að koma að gagni.
VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR
Mv
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
HJ Ú KRUN ARFRÆÐINGAR ATHUGIÐ
— NÁMSKEIÐ
NÁMSKEIÐ fyrir hjúkrunarfræðinga
verður haldið á Kleppsspitala þann 1.
mars n.k. og stendur það i 4 vikur.
Aðalnámsefni verður geðhjúkrun, geð-
sjúkdómafræði og sálarfræði.
Námið hentar vel þeim, sem ekki hafa
starfað, svo nokkru nemi, við geðhjúkrun
áður, en hefðu áhuga á að starfa á þessu
sviði.
Umsóknarfrestur er til 20. febr. n.k.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri
Kleppsspitalans i sima 38 160.
ISLANDSDEILD
amnesty
international
Pósthólf 7124, 127 Reykjavík
heldur fræðslufund í Atthagasal Hótel Sögu
mánudaginn 8. febrúar n.k. kl. 20:30 um efnið
Vtsitala og_ verðbólga
F r amsögumaður:
Ólafur Davíðsson, hagfræðingur
forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar
# Hvernig er hægt að tryggja kaupmátt launa þinna?
# Er vísitala orsök verðbólgunnar?
# Tryggja verðbætur kaupmátt heimilanna?
# Koma niðurgreiðslur að tilætluðum notum?
Félagsmenn V.R. eru hvattir til að mæta og taka þátt I umræðum
Fundarefnið er brýnt og varðar hvert einasta heimili í landinu
\
kVERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKURI