Þjóðviljinn - 06.02.1982, Page 12

Þjóðviljinn - 06.02.1982, Page 12
12 SÍÐÁ — ÞJÓÐVILJINN Helgin 6.-7.’ febrúár 1982. daegurtónlist Eitt af því sem ein- kennt hefur íslenskt tón- listarlif síöastliðið ár eru hin svokölluðu „independ- ent" eða „sjálfstæð" út- gáfufyrirtæki. Ekki svo að skilja að önnur útgáf u- fyrirtæki séu ekki sjálf- stæð, heldur hitt að þessi fyrirtæki vinna á örlítið öðru plani en hin hefð- bundnu útgáf uf yrirtæki. Við samantekt þessa pistils leitaði ég upplýsinga hjá As- mundi Jónssyni hjá Gramminu, Guðna Rúnari Agnarssyni og Hilmari Erni Hilmarssyni hjá Eskvimó, Rafni Jónssyni t Grafik og Tómasi Tómassyni i Þursabiti. Auk útgáfu þessara fjögurra fyrirtækja mætti nefna útgáfu Van Hódens Kókó sem sent hefur frá sér tvær snældur og Bruna B.B. sem látið hefur eina snældu fara frá sér. Þróun mála I Englandi Aður en lengra er haldið er rétt að fjalla um þróun máia i Englandi siðast liðin ár. I kjöl- farþeirrar tónlistarsprengingar sem átti sér stað á árunum 1976/7 fylgdi mikill fjöldi út- gáfufyrirtækja, sem tóku að sér að koma hinum nýju hljóm- sveitum á framfæri. Þessi út- „INDEPENDEIMT gáfuhreyfing var kölluð ,,inde- pendent” til aðgreiningar frá hinum hefðbundnu útgáfufyrir- tækjum. Þessi hreyfing, ef hægt er að nota það orð, varð strax mjög öflug. Ef marka má „small label catalogue” hjá Zig Zag i mars 1978 voru þessi fyrir- tæki um 300. Svo virðist sem fjölgunin hafi verið mun hægari en vonir stóðu til um. I ágúst- hefti Zig Zag frá 1981 voru þau aðeins orðin 330. Það er athygiisvert að fjölg- unin milli þessara þriggja ára skuli ekki vera meiri. Ætli helsta skýringin sé ekki sú að stóru útgáfufyrirtækin séu farin að sækjast meira eftir nýjum hljómsveitum sem sifellt eru að skjóta upp kollinum og geta i krafti fjármagns sins boöið mun betri samninga en „independ- ent” fyrirtækin. Mörg þessara fyrirtækja eru stofnuð af mönnum sem hafa yf- irgefið stóru fyrirtækin til að koma á framfæri hljómsveitum sem þeir hafa trú á. Eins og gef- ur að skilja hefur þessum fyrir- tækjum vegnað misvel. Sum hafa vaxið mjög ört á meðan önnur hafa lapið dauöann dr skel eða hreinlega gefið upp öndina. Ef skilgreina á hvað það er sem öðru fremur greinir „inde- pendent” fyrirtækin frá stóru fyrirtækjunum er hægt að tina ýmislegt til. Aður en lengra er haldið er nauösynlegt að geta þess að skilgreiningar, eins og sú sem fer hér á eftir, geta verið mjög varasamar og á stundum beinlínis villandi. Samt skal þess freistaö að draga upp ein- hverja mynd af þessum fyrir- tækjum. Þeir sem standa að baki þeim eru menn sem hafa ákveðinn metnað og ákveðnar hugmyndir um hvernig fara megi i hlutina og hvernig sé hægt að gera þá á betri, ódýrari og umfram allt heiðarlegri hátt. Peningaleysið setur þessum fyrirtækjum nokkuð þröngar skorður. Kappkostaö er við að gera alla híuti á sem ódýrastan hátt. Koma efninu á „vinyl” þannig að sem flestir eigi aö- gang að þvi. Hljóðritunarkostn- aði er haldið niðri með þvi að nota fáa tima i ,,stúdiói”og vinna i ódýrum „stúdióum”, öll önnur vinna i kringum gerð plötunnar er verðlögö mjög lágt. Kostnaði sem sagt haldið niðri á öllum stigum framleiðsl- unnar. Útgáfufyrirtækin reyna á engan hátt að hafa áhrif á tón- smiðar hljómsveitanna með þvi að heimta að einhver ákveðinn upptökustjóri stjórni vinnslu plötunnar. Heldur er hljóm- sveitunum ætlað að koma meö efni fullfrágengiö til útgáfu og kemur fyrirtækið þar hvergi nærri. Vissulega sniður smæð útgáfunnar plötunni þröngan stakk. Auglýsingar eru stór þáttur, h|á flestum þessara fyrirtækja. Ráða hljómsveitirnar sjálfar hvernig þær eru úr garði gerðar og hvaða imynd er búin til um hljómsveitina. Þó eitt og annaö hafi veriö tint til ber enn aö vara viö þvi að taka þessa skilgreiningu sem algilda. Þvi bilið milli „independent” og „stóru” fyrirtækjanna getur oft á tiðum verið mjög litiö og óglöggt. islensk „independent" fyrirtæki Þróunin hér hefur verið sú að útgáfustarfsemi þessara fyrir- tækja snýst enn sem komið er nær alfarið um ákveðnar hljóm- sveitir. Grammiö gefur Purrk Pillnikk út. Eskvimo gefur Þey út, Þursabit gefur efni Þursa- flokksins út og strákarnir i Grafik gefa sjálfir út sinar plöt- ur. Annað sérislenskt einkenni er, að ég hygg, að sáralitiö bil er á milli útgefenda og hljómsveita. Þursabit er nánast annað nafn á ÞursaflokknumSömu sögu er að segja af þeim drengjum i Graf- ik. Megnið af þeim peningum sem hljómsveitin Þeyr aflar á hljómleikum rennur til Eskvi- mó til að standa straum af kostnaði við útgáfu á efni hljóm- sveitarinnar. Bilið á milli útgef- enda og listamanna er nánast nafnið eitt. Eskvímó „Hugmyndin að bakiEskvimó er sú að þegar við fórum út i þetta kom i ljós að við áttum ekki samleið með „stóru” fyrir- tækjunum hér heima. Þau eru ekki i tengslum við þá hluti sem eru að gerast i dag. Sá skilning- ur sem við viljum hafa á hlutun- um er ekki til staðar. Við sáum það að hægt var aö gera þetta á mun ódýrari hátt með þvi að vinna eins mikið sjálfir aö þessu og við getum. Ætli við spörum okkur ekki i kringum 1000 eintök með þeim vinnubrögðum sem við notum. Þrátt fyrir aö við höfum reynt að gera okkar besta þá er ljóst að báðar þær plötur sem Eskvi- mó hefur gefið út hafa ekki stað- ið undir sér hér heima. En við sjáum fram á betri daga, þvi horfur eru sæmilegar erlendis og fyrirsjáanlegt að útgáfan mun standa undir sér og það er þaö sem viö sjáum i þessu. Þetta kemur til meö að bjarg- ast. Það er mikill styrkur fyrir okkur að vera hluti af þessu, vera þátttakandi alveg frá byrj- un, heldur en að framleiða ein- hverja vöru fyrir einhvern aðila sem tekur við henni og matreið- ir hana að vild. Við værum ekki i aðstöðu til að gagnrýna hve hann auglýsti mikiö, hvernig dreift væri og hverjum væri gefnar plötur. Þetta eru hlutir sem við viljum stjórna. Það hlýtur að vera að þeir sem standi að baki hvers verks viti hvað hæfir þvi. Það er það sem atti okkur út i þetta”. Grammið Asmundúr Jónsson hjá Gramminu tók mjög i sama streng og þeir félagar, Guðni Rúnar Agnarsson og Hilmar örn Hilmarsson, hjá Eskvimó. Hann sagði að Grammið hefði verið stofnað til að gefa út efni Purrks Pillnikks. Hann sagði jafnframt að meginmunur á „independent” og hinum hefð- bundnu útgáfufyrirtækjum væri sá að litlu fyrirtækin væru að vinna fyrir tónlistina en ekki eingöngu með sölusjónarmið i huga. Vissulega væri nauðsyn- legt að selja hvert verk en sölu- áherslan mætti ekki yfirskyggja allt annað. Um fjárhagshlið fyrirtækisins sagöi Asmundur að það heföi fengið um 60 þúsund krónur að láni á siðasta ári. Búið væri að borga eitthvaö til baka en skuldabagginn væri þungur. Ct- gafan á breiöskifu Purrksins Ekki ennstóð ekki undir sér eins og vonir stóðu til og þvi fór sem fói. „Við ætlum engu að siður aö halda áfram á sömu braut og fyrirhuguð er útgáfa á nýrri plötu með Purrkinum með vor- inu og i mars kæmi út plata með Sveinbirni Beinteinssyni.” Grafík Rafn Jónsson i Grafik sagði að aðalástæðan fyrir þvi að þeir heföu farið út i þetta væri sú að þeir hefðu haft aðstæður til þess. Þeir ættu átta rása segul- bandstæki og þvi heföu þeir get- aö tekið upp allt efniö sjálfir. Upptökukostnaður hefði þvi verið litill, aðeins nokkrir timar í hljóðblöndun. öll önnur vinna við plötuna var i algeru lág- marki eins og hún ber með sér, allt gert sem allra ódýrast. Rafn sagði einnig að þeir fé- lagar ætluðu að halda áfram á sömu braut þvi þeir ættu eftir að fullnýta þá möguleika sem tæk- iö byði uppá... Munurinn á þeim og hinum „stærri” útgáfufyrirtækjum væri sá að allt starf i kringum plötuna væri mun einlægara, ekki þessi rútinuvinna, og þvi væri miklu meiri stemmning sem fylgdi þvi að vinna að plöt- um frá upphafi til enda. Þursabit Tómas Tómasson i Þursa- flokknum sagði að það hefði leg- ið beint við að þeir færu inná þessa braut. Þeir ættu orðið sitt eigið „stúdió” þannig að kostn- aðurinn við hljóðritunina væri litill. Þeir ættu eftir að reikna sér laun og sagðist hann halda að þeir myndu reikna sér eitt- hvað i kringum 50 krónur á tim- ann. Hann sagði jafnframt að þó að þeir ættu „stúdió” sjálfir gætu þeir ekki fariö uppfyrir ákveðin timamörk. öll vinnan i kringum þessa væntanlega plötu væri i höndum flokksins og með þvi móti væri hægt að halda kostnaðinum niðri. Að lokum sagði Tómas að þeir hyggðust leigja „stúdió” sitt út og yrði Purrkur Pillnikk vænt- anlega fyrsta hljómsveitin sem þar hljóðritaði efni sitt. Verðið sagði hann aö yrði um 250 krón- ur á timann sem er rúmlega helmingi lægra en veröið iHljóð- rita. Tómas sagði að þeir myndu fara hægt i sakirnar við aö leigja „stúdióið” út, þaö mætti ekki ganga fyrir hljóm- sveitinni. Hvað framtiðin ber i skauti sér fyrir þessi fyrirtæki er ómögulegt að segja, en hitt er vist að islenskt tónlistarlif á þessum fyrirtækjum og þeirri fórnfúsu vinnu sem þar er unnin mikiö að þakka. Jón Viöar Sigurðsson skrifar

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.