Þjóðviljinn - 06.02.1982, Side 32
UOBVIUINN ( Aöalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tlma er hægt aö ná I blaöamenn og aöra starfsmenn hlaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot Aðalsími Kvöldsími
Helgin 6.— 7. febrúar 1982. 8x285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af- greiöslu blaösins I sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Helgarsím!
afgreiðslu
81663
Tvö ár liðin irá myndun
núverandi ríkisstjómar:
„Svar færðu ekki
fyrr en nær
dregur kosningum”
Rætt við Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra
Rikisstjórn Gunnars Thorodd-
sen á tveggja ára afmæli á mánu-
daginn. Óhætt mun aö fullyrða, að
ekki hafi annað eins gengið á við
inyndun rikisstjórnar hin síðariár
a.m.k. og þegar Gunnar Thorodd-
sen gekk fram fyrir skjöldu eftir
2ja mánaða stjórnarkreppu og
bauðst til að mynda ríkisstjórn,
sem styddist við meirihiuta á
Alþingi. Þegar þetta gerðist höfðu
formenn allra stjórnmálaflokk-
anna fengiö umboð til stjórnar-
myndunar, en allir orðið að gefast
upp. Það blasti þvi ekkert við
annaö en myndun utanþings-
stjórnar, sem, eins og Gunnar
scgir, „hefði verið áfall fyrir álit
og traust Alþingis. Eins og á stóð
var myndun þessarar ríkisstjórn-
ar eini möguleikinn fyrir meiri-
hluta stjórn. En vegna þess að
meirihluti þingflokks mins flokks
vildi ekki styðja stjórnina varð
stjórnarmyndunin átaka meiri en
ella.”
Margir eru undrandi
Og nú að loknum tveimur ár-
um, hvernig hefur til tekist?
Þaö er nú með þessa rikisstjórn
eins og aðrar, að sumt hefur
gengið að óskum, annaö ekki. En
varðandi það, hvað vel hefur til-
tekist hjá rikisstjórninni vil ég
nefna, aö frá upphafi hefur það
verið eitt af megin atriöum i
störfum stjórnarinnar að halda
uppi nægri atvinnu i landinu og
forðast með öllu atvinnuleysi.
Þetta hefur tekist. Það heyrist
stundum frá stjórnarandstöð-
unni, að þetta sé ekki afrek vegna
þess að næg atvinna hafi verið hér
á landi i all mörg ár. En þegar lit-
ið er til margra nágrannalanda
okkar, þar sem allt er reynt til að
halda uppi fullri atvinnu, er út-
koman sú að um verulegt at-
vinnuleysi er að ræöa og sum-
staðar hrikalegt atvinnuleysi.
Erlendir stjórnmálamenn og
blaðamenn horfa meö undrun og
vissri aðdáun til Islands, þar sem
næg atvinna er fyrir hendi, þrátt
fyrir efnahagslegar þrengingar,
sem flestar þjóðireiga við aö búa.
Verðbólgan á
niðurleið
Annað megin verkefni rikis-
stjórnarinnar hefur verið frá upp-
hafi viðnám gegn veröbólgunni.
Þegar rikisstjórnin tók við völd-
um i ársbyrjun 1980 haföi verð-
bólgan verið 60% árið á undan. A
fyrsta ári rikisstjórnarinnar tókst
ekki eins vel og skyldi i glimunni
við verðbólguna, sem var 59%
það ár. Um áramótin 1980/1981
skipti hinsvegar sköpum. Rikis-
stjórnin geröi þá viðtæka efna-
hagsáætlun, sem fól i sér m.a. að
koma verðbólgunni úr 60% niöur i
40%. Það tókst. Þeir eru margir
efnahagssérfræöingarnir, bæði
erlendir og innlendir, sem halda
þvi fram að ekki sé unnt að draga
úr verðbólgu nema meö atvinnu-
leysi. Við Islendingar höfum nú
afsannað þá kenningu.
Frá upphafi hefur það veriö eitt
af aðal verkefnum stjórnarinnar
að efla atvinnulifið og tryggja þvi
svo traustan grundvöll, sem unnt
er. Sumar atvinnugreinar hafa að
visu um stundarsakir átt við
erfiðleika að etja af ýmsum
ástæðum, ekki sist vegna gegnis-
sveiflna og misgengis erlendis.
Við þetta ráða islensk stjórnvöld
að sjálfsögðu alls ekki. Sú stað-
reynd blasir hinsvegar við að hér
er ekkert atvinnuleysi og að at-
vinnuvegirnir hafa komist þolan-
lega af, þótt stundum hafi á móti
blásið. Og ef við nefnum stærstu
atvinnugrein þjóðarinnar, þá er
það mat Þjóðhagsstofnunar að
fiskvinnslan i heild sé rekin með
6—7% hagnaði. Og með hinum
nýju efnahagsaögeröum rikis-
stjórnarinnar er unnið að þvi að
treysta úr verðbólgunni, þótt ekki
verði stigið jafn stórt skref i þeim
efnum og i fyrra.
Virkjun orkulinda
Einnig vil ég I þessu sambandi
benda á að miklar framkvæmdir
hafa átt sér stað i tið núverandi
rikisstjórnar viö nýtingu orku-
linda. Þar má benda á hitaveitu-
framkvæmdir, sem bæta hag not-
enda og spara okkur erlendan
gjaldeyri . Varðandi virkjanir
fallvatna, þá hafa verið ákveðin
og standa fyrir dyrum einhver
stærstu átök i þeim efnum i sögu
þjóðarinnar. Á næstunni veröur
hafist handa um verulegar fram-
kvæmdir á Þjórsársvæðinu til
orkuöflunar, virkjun Blöndu er á
næsta leyti og að auki virkjanir i
Þjórsá og i Fljótsdal.
Gengiö hægar
en viðóskuðum
Hvað þykir þér hafa laklegast
tekist af þvi sem rikisstjórnin ætl-
aöi sér i upphafi?
1 upphafi vonaðist rikisstjórnin
til, að ná verðbólgunni niður á 3
árum til jafnt viö það sem gerist i
helstu viðskiptalöndum okkar.
Þetta mun ekki takast og eru or-
sakir þess margvislegar. Bæði
innlendar og erlendar orsakir
valda því aö gengiö hefur mun
hægar en við ætluðum okkur, en
við megum heldur ekki gleyma
þvi að það miðar i rétta átt.
Skynsamlega mælt
Vegna þess að þú nefndir efna-
hagsráðstafanir, þá minntist ég
þess að hafa heyrt Halldór E. Sig-
urðsson, fv. ráöherra einu sinni
segja að þegar rikisstjórn þyrfti
aö gripa til efnahagsráöstafana,
þá ætti hún að gera það sem fyrst
á ferli sínum og gera það mynd-
arlega, fólk væri svo fljótt að
gleyma óvinsælum ráðstöfunum,
ertu sammála þessu?
Þetta er skynsamlega mælt
eins og Halidórs er von og visa.
Hinsvegar verður maður um leið
að hafa það heilræöi i huga, aö i
stjórnmálum verða menn alltaf
aö hafa i huga og kanna hvað er
mögulegt á hverjum tima. Aö-
gerðir, sem útaf fyrir sig eru
skynsamlegar, veröur að fram-
kvæma þegar lag er. Timasetning
slikra aðgerða getur ráðiö úrslit-
um um það hvort þær takast eða
ekki, óskhyggja má þar engu
ráöa.
Ekki ómögulegt
en erfitt
Sumir segja að á Islandi búi
rösklega 200 þúsund kóngar, sem
hver fyrir sig vilji ráöa ferðinni,
ertu sammála þvi að það sé erfitt
að stjórna íslendingum?
Ekki vil ég nú taka svo djúpt i
árinni að segja að þaö sé ómögu-
legt að stjórna Islendingum, en
þaö máttu bóka eftir mér, að það
er erfitt. Islendingar eru mjög
sjálfstæðir i hugsun og telja það
ekki sjálfsagt að aðrir ráði fyrir
þá. Einstaklingar og hagsmuna-
hópar vilja fara sinu fram, en um
leiö vilja menn stjórna sér sjálfir
og mótmæla opinberum afskipt-
um, skamma þeir rikisstjórn fyr-
ir afskiptaleysi. Þeir, er telja sig
mesta frjálsræðismenn ráðast oft
harðast á rikisstjórn fyrir alltof
litil rikisafskipti. Gleggsta dæmið
um þetta er innflutningur og
smiði fiskiskipa. Ég held að hugs-
un og vilji flestra Islendinga, sé á
þá lund aö vilja ráða sér sjálfir,
en ætlast um leiö til þess aö rikis-
stjórnin stjórni. Þetta kann að
hljóma sem öfugmæli en svona er
nú þetta i reynd.
Sjáum til
Margir hafa spurt þig eftir að
þú myndaðir þessa rikisstjórn,
hvort þetta væri svanasöngur
þinn i stjórnmálum og þú hefur
litiö viljað svara þessu, er nokkuð
meiri möguleiki á aö fá svar við
þessari spurningu nú en áður?
Gunnar hugsaði sig mjög lengi
um áður en hann svaraði þessari
spurningu og ég hélt að ég væri
kannski að fá stórfrétt uppi hend-
urnar, svo brosti hann örlitið og
sagði:
Það veltur á svo mörgu sem ég
ræð ekki við, svar geturðu ekki
fengiö fyrr en nær dregur kosn-
ingum.
—S.dór
___4?-1982^
TRYGGÐUGÆÐIN
-TAKTÁ KDDAK...
ÞVl UÓSMYNDIN
VERÐUR ALDREIBETRIEN
FILMUGÆÐIN LEYFA
ÞAÐSEGIR SIG SJÁLFT!
HANS PETERSEN HF
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT!
Sú sögulega stund þegar Gunnar Thoroddsen fór (il Bessastaöa og fékk
umboð til stjórnarmyndunar úr hendi þáverandi forseta dr. Kristjáns
Eldjárns