Þjóðviljinn - 19.06.1982, Page 18

Þjóðviljinn - 19.06.1982, Page 18
18 SIÐA — ÞJOÐVILJINN Helgin 19.-20. júnl 1982 Snyrtimennska er það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar litast er um í Víðigerði í Reykholtsdal í Borgarfirði. Þar búa hjón- in Kristján Benediktsson og Erla Kristjánsdóttir og reka garðyrkjubú, eitt af mörgum í Reykholtsdal. Ekki þurfa þau að kvarta undan skorti á jarðhita því að vatnsmesti hver í heimi er svo til í bæjarhlaðinu. Það er sjálfur Deildar- tunguhver. Kristján er for- maður Sambands garð- yrkjubænda og var það ekki síst sú staðreynd sem leiddi okkur á fund þeirra hjóna. Þetta var á mánu- degi og veðrið ekki ama- legt, sólskin og nánast hitabylgja. Okkur var boð- ið í hádegismat og þar var að sjálfsögðu fjölbreytt grænmeti á borðum. Síðan var Kristján tekinn tali. Úr húsgagnasmíði í garðyrkju — Hvaö stendur þetta garð- yrkjubú á gömlum merg, Kristján? — Faðir minn, Benedikt Guð- þetta allvel laugsson, lærði garðyrkju i Dan- mörku á fjórða áratugnum og kynntist þar móður minni, Petru sem er dönsk að uppruna. Þau komu svo heim og settu þetta bú á laggirnar árið 1938, og voru fyrst til að hefja slikan búskap hér um slóöir. Ég tók svo við árið 1970 og hef rekið þetta siðan. — Ert þú sjálfur garðyrkju- maður að mennt? — Nei, ekki er það nú þó að auð- vitað hafi ég alist upp við þetta og lært mikið af foreldrum minum. Ég er húsgagnasmiður að mennt og vann við smiðar i nokkur ár, bæði hér og i Danmörku. — Hvað eru gróðurhúsin stór hér i Viðigerði? — Viö erum með 1430 fermetra hús en það telst vera svona með- alstórt bú. — Og hvað rækliö þið aöallega? — Þaö er um 830 ferm. undir tómataræktinni en uppistaðan i hinu eru gúrkur, pottaplöntur og afskorin blóm. Sex áratuga saga — Hvað er saga gróöurhúsa- ræktar eiginlega orðin löng hér á landi? — Fyrsta gróðurhúsið var reist á Reykjum i Mosfellssveit árið 1924, og siðan hefur þetta smá- þróast. Aðalsveiflan upp á viö varð á striösárunum þvi að þá jókst kaupgeta mjög, samfara þvi að miklar hömlur voru á innflutn- ingi. Herinn skapaði lika aukinn markaö. Flest gróðurhúsin voru i fyrstunni i nágrenni Reykjavikur en á seinni árum hafa þau sprott- iðupp á æ fleiri stöðum. Núna eru um 150 þúsund fermetrar undir gleri og garðyrkjustöðvarnar 125—130. — Þú ert formaöur Samtaka garðyrkjubænda. Eru þeir allir innan vébanda þess? — Nei, ekki allir en flestir. 1 samtökunum eru fjögur félög þ.e.a.s. Garðyrkjubændafélag Borgarfjarðar, Garðyrkjubænda- félag uppsveita Arnessýslu , Garðyrkjubændafélag Hvera- gerðis og nágrennis og Garð- yrkjubændafélag Mosfellssveit- ar. Norðlendingar t.d. hafa ekki enn skipulagt sig i samtökum en fylgjast þó vel meö þvi sem við erum aðgera. Frjálst sölukerfi — Litur löggjafinn sömu augum á ykkur og aðra bændur? — Já, samkvæmt lögum erum við ein grein landbúnaðar og njót- um sömu réttinda i lánakerfinu en aftur á móti höfum við nokkuð frjálst sölukerfi þó að ekki sé það alveg frjálst. Hins vegar erum við utan við niðurgreiðslukerfið þó að þær raddir hafi reyndar heyrst aö greiða ætti niður afurðir okkar. Það er þó siður en svo almenn skoöun. — Er grænmeti reiknað meö i visitölugrundvellinum? — Nei, einungis kartöflur en kartöflubændur eru ekki með i samtökum okkar, þeir eru sér á báti. — Þú segir að þið búið við frjálst sölukerfi. Hvernig er þvi háttað? — Samkvæmt lögum um framleiðsluráð landbúnaðarins má engin selja i heildsölu fram- leiðsluvörur garðyrkjubænda nema i nafni þess. I framkvæmd er þetta þannig að Sölufélag garð- yrkjubænda sér um heildsöluna með samþykki framleiðsluráðs. — En seljiö þið ekki lika beint til neytenda? — Já, þaö fer ekki i gegnum sölufélagið og er látið kyrrt Hggja. — Eru mikiar sveiflur á mark- aðnum? — Hann fer mikið eftir verðinu. Fyrst á vorin er grænmeti nokkuð dýrt en lækkar svo og þá eykst salan strax. Annars hefur t.d. öll sala verið hæg á þessu vori á blómum og grænmeti. — Er heildsala á blómum líka i höndum Sölufélags garðyrkju- manna? — Nei, blómaheildsalan er á vegum tveggja hlutafélaga sem garöyrkjubændur standa aö. Stærstur hlutinn fer i gegnum Blómamiðstöðina en hinn heild- söluaöilinn er Magnús Guð- mundsson. — Er ylrækt arövænleg bú- grein? — Með mikilli vinnu gengur þetta yfirleitt vel en þó eru engin uppgrip. — Verða mikil afföll? — Þau vilja verða það um há- uppskerutimann en það fer þó mikið eftir veðri. Ef nægileg upp- skera á t.d. að verða i mai og okt.-nóv. hlýtur að veröa offram- leiðsla yfir hásumarið. — Hafið þiö kannað möguleika á útflutningi? — Við höfum dálitið spáð i hann, t.d. gert lauslega könnun á möguleikum á útflutningi til Fær- eyja en það ber allt aö sama brunni. Við erum ekki samkeppn- isfærir. Margir álita að við getum framleitt ódýrara en nágranna- þjóðir okkar vegna hins ódýra hita en sú er þó ekki raunin. Or- sakirnar eru m.a. þær aö ræktun- artimabiliö hér er þremur mán- uðum skemmra en i Skandinaviu og gróðurhúsin hér eru mun sterkbyggðari vegna islenskrar veðráttu og þar af leiðandi helm- ingi dýrari en i nágrannalöndum. Efnið i þau er lika dýrara og þarf að flytja það lengri veg. Ég get t.d. nefnt sem dæmi að gler er þrisvar sinnum dýrara hér en i Danmörku. Ég var nýlega á fundi I Danmörku og þar reikna þeir með að um 30% af rekstrarkostn- aði fari i hitann (oliu aö mestu). Hér er hitakostnaður viða 20% af rekstrarkostnaði þó að sums staðar sé hann meiri og sums staðar minni. Þá get ég lika nefnt að þeir hafa mun stærri og þægi- legri markaö, við dyrnar hjá sér. — En framleiðiö þið jafngóða vöru? — Já, það tel ég hiklaust þó að við ræktum kannski minna á gróðureiningu en aðrir. — Koma ekki hinar björtu nætur ykkar til góða? — Margar af plöntunum sem við ræktum eru bara alls ekki vanar slikum nóttum svo að ég er ekki viss um aö bjartar nætur hafi alltaf jafn góð áhrif. Ósáttir við háa álagningu — Eruð þið sáttir við verðlagn- ingu á garðyrkjuvörum? — Nei, föst smásöluálagning á grænmeti er 40% og hirða þvi kaupmenn meira i sinn hlut þegar varan er t.d. dýrari á vorin. I april og mai verðum viö aö leggja i alls konar aukakostnaö t.d. með þvi aö lýsa plönturnar og „Viöerum andvigir hinniháu álagningu á blómum. Það á að framleiða mikið, selja ódýrtog auka neysluna cins og hægt er”. .Frjáls innflutningur legði þessa atvinnugrein f rúst”. Með mikilli vinnu gengur

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.