Þjóðviljinn - 31.07.1982, Page 5
Helgin 31. júli—1. ágúst 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Bráðabirgðalög um
verkamannabústaði:
Forkaupsréttur
kemur í stað
kaupskyldu
Gefin hafa verið út bráða-
birgðalög að tillögu félagsmála-
ráðherra og eru þau um húsnæð-
ismál. Breytingarnar varða ein-
göngu eldri ibúðir i verkamanna-
bústöðum, þ.e. ibúðir byggðar
fyrir gildistöku núgildandi laga,
(frá 1. júli 1980) Er nú afnumin
kaupskylda og forkaupsréttur
ákveðinn i staðinn. Með forkaups-
rétti verður sveitarfélögum er
þaö vilja, tryggö full heimild til
aö kaupa ibúðir, þegar þær eru t(l
sölu og þá við þvi verði sém al-
mennt tiðkast i byggðarlaginu.
Samkvæmt lögum skal reikna
1% fyrningu á ári þegar ibúð i
verkamannabústaö er keypt inn
eða endurseld. t framkvæmd hef-
ur þessi regla reynst of stif. Gera
bráðabirgðalögin ráö fyrir þeirri
breytingu að fyrning verði sett
0.5—1% á ári, en þá ber mats-
mönnum að ákveða fyrninguna
innan þessa ramma.
Með ákvæðum laganna um rétt
ibúðareigenda að verkamanna-
bústað, sem hann vill selja, til
aukinna verðbóta eftir 10 ára og
20 ára éignarhald, var leitast við
að finna sanngjarna verðbóta-
reglu, sem átti allvel viö þegar
hún var sett á sjöunda áratugn-
um. Með vaxandi verðbólgu hefur
þessi regla valdið slikum stökk-
breytingum á verölagningunni
við umrædd timamörk, að ekki
verður lengur við unað. Fólk
heldur að sér höndum með sölu og
biður eftir þvi að ná 10 ára eða 20
ára eignarhaldstima.
Þvi markmiöi, að veita sann-
gjarnar verðbætur, er unnt að ná
á annan hátt með þvi að láta hin-
ar sérstöku verðbætur fara smátt
og smátt vaxandi (4% á ári) með
auknum eignarhaldstima, en
forðast snöggar breytingar.
Framk væmdast j óri
ÞÖRUNGAVINNSLAN HF. á Reykhólum
óskar að ráóa framkvæmdastjóra.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og í'yrri störf berist fyrir 20. ágúst nk. til
stjórnarformanns, Vilhjálms Lúðviksson-
ar, Laugavegi 13, sem gefur nánari upp-
lýsingar i sima 21320.
Sumartilboð
Fyrir litlu heimilin áður en hækkanirnar koma
Elektro Helios
Kæliskápur KG161
Úrvals kæliskápur fyrir lítil
heimili eöa sumarhús.
Mjög lítil straumnotkun.
132 lítra 15 lítra frystihólf.
Mál: Breidd 55 cm. Hæö:
85 cm. Dýpt 60 cm.
Kr. 5.522.-
Elektro Helios
uppþvottavélin D6 40
Tekur lítiö pláss, getur staðiö
á boröi. Tekur fullan borö-
búnaö fyrir 4. Einstaklega
fljótvirk og lágvær. Vélin
getur veriö laustengd viö
krana. Mál: breidd 46 cm.
Hæö: 47 cm. Dýpt 53 cm
kr. 6.718.-
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstadastrœti 10 A Sími 16995
EINSTAKTI4EKIFÆRI!
Skemmtisigling meö
lúxusskipi f rá Reykjavík til
Noregs og þýskalands
mdsm
Nú gefst íslendingum tækifæri á siglingu með
einu glæsilegasta skemmtiferðaskipi Evrópu
M.s. MAXIM GORKI (áður Hamburg) sem er 25
þús. tonna fleyta. Skiplð kemur til Reykjavíkur
29. ágúst og fer kl. 8 að kvöldi 30. ágúst.
Siglt er um norsku firðina og eru viðkomustaðir:
Þrándheimur, Hellesylt, Geiranger, Olden, Vik,
Flam og Bergen.
Frá Bergen verður siglt beint til Bremerhaven í
Vestur-Þýskalandi og komið þangað 8. septem-
ber. Þaðan verður ekið samdægurs til Luxem-
borgar þar sem dvalið er á 1. flokks hóteli til 12.
september. Þaðan verður svo flogið að kvöldi
belnt til Keflavíkur.
MAXIM GORKI er lúxusskip. Allir vistarverur eru
með sturtu og w.c.. Á meðan dvalið er um borð
er farþegum séð fyrir fullu fæði og fá þeir aðgang
að öllum þægindum um borð, svo sem sundlaug,
leikfimisherbergi, borðtennis, kvikmynda og
veitingasölum, börum og næturklúbb, svo eitt-
hvað sé nefnt.
FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaðarhúsinu Hallveigarstigl. Símar 28388 og 28580