Þjóðviljinn - 31.07.1982, Page 18
18 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 31. júli—1. ágúst 1982.
Kristín Aðalsteinsdóttir hjá Útsýn:
: ..Og ég myndi benda þér á ítaliu
„Ég myndi byrja á þvi að reyna
að komast að þvi á hverju þú
hefðir áhuga, og reyna svo að
bjóöa þér ferð i samræmi við það.
Og ég myndi benda þér á ttaliu-
Ilaraidur Jóhannsson hjá Far-
andi: Á Filippseyjum eru heilsu-
samlegt andrúmsloft, og ibúarnir
eru einkar eiskulegt fólk. Ljósm.:
—gel—
ber þetta nafn, samanstendur af
yfir 7000 eyjum, og það má nú
nærri geta, hvort ekki sé sitthvað
að sjá”.
— Hvernig verður ferðast um
Ferðir til Mexíkó og
Brasilíu í haust
„Við leggjum auðvitað
aðaláherslu á þær ferðir,
sem við skipuleggjum og
förum í leiguflugi, en í
sumar höfum við sent út
þrjár vélar á viku", sagði
Kristín Aðalsteinsdóttir
hjá ferðaskrifstofunni Út-
sýn í spjalli við Þjóðvilj-
ann. „Við erum svo líka
með hópferðir i áætlunar-
flugi, en það eru náttúru-
lega mun smærri hópar,
sem fara í þær ferðir.
Af þessum smærri ferðum má
m.a. nefna ferðir meö langferða-
bilum um Evrópu, bæöi hina
svonefndu „átta landa sýn” og
aðra hliðstæða, sem farin er til
sex landa, auk þess sem við bjóð-
um upp á ferð til Rinarlanda.
En við bjóðum einnig upp á
tvær feröir til Kritar, og svo má
nefna, að við verðum með ferð i
langferðabil um Bandarikin og
Kanada nú i ágúst, ferð til Finn-
lands og i september verðum við
með ferð til Portúgals”.
— Hvert liggur meginstraumur
ferðamanna hjá ykkur?
„Flestir fara nú til Italiu og
Spánar. Við fljúgum einu sinni i
viku til Spánar og jafnoft til ttaliu
og Júgóslaviu, auk þess sem við
fljúgum til Sikileyjar og Mall-
orka. betta þýðir, að við fljúgum
út með um 450 manns i hverri
viku, en ætli það séu ekki á bilinu
15-20.000 manns, sem njóta okkar
þjónustu meö einu eða öðru móti i
þvi skyni að fara utan.”
— Hvað kostar nú að fara i eina
sólarlandaferð?
„Það veltur nú á ýmsu, m.a.
þvi hvert er farið og hve
lengi dvalið. En verðið getur ver-
ið allt frá um 8.000 krónum og svo
alveg upp i 17-18.000. Aðrar ferðir,
eins og t.d. Indlandsferð i októ-
ber, eru aðeins dýrari. Indlands-
ferðin mun kosta nálægt 25.-27.000
krónum”.
— Er það sama fólkið, sem
Haraldur Jóhannsson hjá ferðaskrifstofunni Farandi:
Hápunkturinn verður
ferð til Filippseyja
„Það, sem ferðaskrif-
stofan Farandi býður nær
eingöngu upp á, eru ferðir
til Suður-Af ríku, en
punkturinn yfir i-ið hjá
okkur verður áramótaferð
til Filippseyja", sagði
Haraldur Jóhannsson í
Farandi í viðtali við Þjóð-
viljann.
„Það verður lagt af stað i þessa
ferð til Filippseyja þann 17.
desember og komið aftur 16.
janúar, en þetta er i annaö sinn
sem viö leggjum i þessa ferð. Viö
fórum i fyrra með um 30 manns,
og það var með eindæmum vel
lukkuð ferö, vil ég leyfa mér að
segja”.
— Hvað kemur tii að þið bjóðið
upp á hópferð til Filippseyja?
„Ég dvaldi eitt sinn um fimm
mánaða skeið á Filippseyjum,og
varö ákaflega heillaður af bæði
landi og þjóð, og ákvað það þá, að
þaö skyldi alltaf verða hápunktur
starfseminnar að fara til Filipps-
eyja á hverju ári.”
— Hvernig verður svo Filipps-
eyjaferðinni háttað?
„Það er náttúrlega flogið
héðan frá Keflavik út til London,
þar sem haldið er áfram með
bresku flugfélagi til Hong Kong.
Þar er dvalið bara stutta stund og
haldið áfram til Manila á Filipps-
eyjum, og þegar þangað er
komið, er töluvert liðið fram á
næsta dag vegna timamismunar-
ins, en hann er um átta klukku-
stundir. Þess vegna verður næsti
dagur notaður til hvildar og að-
lögunar, en það er alveg óhætt að
segja, að þarna verði maður að
aðlagast alveg nýrri veröld.
Síðan verður næstu vikum eytt i
margvislegar skoöunarferðir um
Filippseyjar, en eyjaklasinn, sem
ferðast ár eftir ár, eöa bætist
mikib við á ári hverju?
„Það bætist náttúrlega allaf
verulega við á hverju ári. En hins
vegar held ég, án þess aö ég geti
fullyrt beinllnis um það, að mikill
hluti okkar ferðalanga hafi ferö-
ast áður með okkur. Kannski ekki
á hverju ári, en annaö eða þriðja
hvert ár.
Utanlandsferðir eru þvi i raun
og veru ætlaðar hinum breiða al-
menningi, þær eru ekki ætlaðar
fáum útvöldum. Ekki lengur.”
— Hvenær breyttist þaö?
„Þaö breyttist með tilkomu
leiguflugsins. Þá var hægt að
bjóða ferðir á mjög viðráðnalegu
verði, og það var á árunum 1972-
3.”
— Hvernig verður svo haust-
prógrammið hjá ykkur?
„Það hefur nú ekki verið gengiö
frá því i smáatriðum ennþá, en ég
geri ráð fyrir þvi, að ferðaskrif-
stofurnar bjóöi saman nú, eins og
áður, upp á ferðir til Kanarieyja
og skiðaferöir, þótt þær hafi auð-
vitaö sinar eigin skiðaferðir lika.
A ferðaalmanaki Útsýnar er
einnig gert ráð fyrir Mexicóferð i
október og Brasiliuferð i nóvem-
ber. Þetta eru hvort tveggja til
tölulega nýir áfangastaðir okkar,
og ég veit ekki til þess að aðrar
ferðaskrifstofur bjóði upp á ferðir
til þessara landa. En fyrri ferðir
okkar þangað féllu vel i geð þeim,
sem fóru, en það var reyndar
fariö fyrst til Mexikó i tilefni 25
ára afmælis útsýnar fyrir tveim-
ur árum, og það er Ingólfur sjálf-
ur, sem undirbýr þessar ferðir og
sér um, að okkar ferðalangar fái
þá bestu þjónustu, sem völ er á,
Kristin Aðalsteinsdóttir hjá Útsýn
ferðirnar okkar. Ljósm. — jsj.
og tryggir sem hagstæðasta
samninga”.
— Segðu mér nú, Kristin: Hvert
myndirðu ráölegga mér að fara,
ef ég spyrði?
I
!_
Sigríður Magnúsdóttir hjá Ferðaskrifstofu stúdenta:
„Öðruvísi ferðir”
„Nei, það er alls ekki
nauðsynlegt að vera stúd-
ent tii þess að skipta við
okkur hjá Ferðaskrifstof u
stúdenta, en ég hef einmitt
orðið vör við, að þessa mis-
skilnings gætti hjá fólki",
sagði Sigríður Magnús-
dóttir hjá Ferðaskrifstofu
stúdenta í samtali við
Þjóðviljann.
„Við leggjum áherslu á ódýrar
ferðir og öðruvisi ferðir en jþær,
sem hinar ferðaskrifstofurnar
bjóöa upp á — og siðast en ekki
sist, ferðir, sem fólk þarf aö geta
bjargað sér i sem mest upp á eig-
in spýtur.
Þau timabil, sem viö reynum
aö miða við, eru kannski helst þau
sem henta námsmönnum, og okk-
ar aðaltimi er náttúrulega sum-
arið, þegar námsmenn eru i frii,
haustið þegar námsmenn fara
mikiö utan til náms og svo jóla-
leytið. En okkar þjónusta er samt
opin öllum, og við getum i sjálfu
sér boðiö upp á flest það sem þær
bjóða”.
— Þú segir Ferðaskrifstofu
stúdenta bjóba upp á „öðruvisi”
ferðir. Að hvaða leyti eru þær
öðruvisi?
„Þá á ég til dæmis við „Inter -
rail-ferðirnar” sem hafa verið
geysilega vinsælar i sumar, og
sem við verðum með i gangi al-
veg fram i september. Inter-rail
er lestarmiði, sem gildir ótak-
markað i einn mánuð um alla
Vestur-Evrópu. Fólk getur þann-
ig valsað þvers og kruss um alla
V-Evrópu að eigin geðþótta, eftir
þvi sem það hefur endingu til. Og
það er aðeins Ungverjaland, sem
fer fram á sérstakt visum, en alls
staðar annars staðar nægir vega-
bréfið eitt.
Við aðstoðum fólk að þvi leyt-
inu, að við gefum þvi leiðbeining-
ar og ráðleggingar um gististaöi
og fleira i þeim dúr, en að öðru
leyti feröast fólk algerlega á eigin
vegum. Og svona feröir kosta,
miðað við verðlag i dag, rúmar
6.000 krónur, en það er flug til
Kaupmannahafnar og heim aftur,
og lestarmiðinn, en það er rétt aö
taka það fram, að hann er aðeins
ætlaður fólki undir 26 ára aldri.
Reyndar er lika til Inter-rail-lest-
armiði, sem er ætlaður ellilifeyr-
isþegum, en hann hefur nú ekki
notið neinna sérstakra vinsælda
hér, einhverra hluta vegna.”
— Eru ekki til neinir svona
lestarmiðar fyrir fólkið, sem er á
öðrum aldri?
„Það er hægt aö fá ýmiss konar
lestarmiða fyrir fólk á öllum
aldri, jú. En þeir miðar eru yfir-
leitt seldir aðeins i viðkomandi
löndum. Um þá gildir ekkert al-
þjóölegt samstarf eins og Inter-
rail lestarmiðana. Reyndar hafa
Flugleiðir umboð fyrir Brit-rail i
Bretlandi, og svo má ekki gleyma
Nord-tourist, sem eru sams konar
lestarmiðar og Inter-rail, nema
þeir gilda aðeins á hinum Noröur-
löndunum, og eru aðeins seldir
þar.”
— En þið bjóðið upp á fleiri
ferðamáta en lestarferðir, þegar
út er komið, er ekki svo?
„Jú, mikil ósköp. Þegar til
Kaupmannahafnar er komið, er
hægt að fljúga næstum hvert sem
er i svonefndum stúdentaferðum,
en þær ferðir eru þó háöar á-
kveönum skilyrðum.
En til dæmis má nefna, að ferð
með svona stúdentaflugi, sem er
farið á ákveönum dögum, til Tel
Aviv sem tekur hvort sem þú vilt
hálfan eöa heilan mánuðu, kostar
aðeins rúmar 8.000 krónur. Al-
mennt fargjald fyrir ferð sem
þessa er ekki undir 13.000 krón-
um, en þaö getur þó gilt i allt aö
tvo mánuði.
En það, sem við hjá Feröaskrif-
stofu stúdenta höfum gert og vilj-
um gera meira af, er aö skipu-
leggja ferðir náms- og kynnis-
Sigríöur Magnúsdóttir hjá Ferðaskrifstofu stúdenta: Við viljum
leggja aukna áherslu á kynnisferðir starfs- og áhugahópa til ýmissa
landa i framtfðinni. Ljósm.:—jsj.
hópa út um allar jaröir. Við
skipulögðum t.d. afskaplega vel-
heppnaða ferð leikhúsáhugafólks
til Bretlands fyrr I sumar, og við
höfum skipulagt nokkrar fleiri
slikar ferðir, sem hafa lika mælst
vel fyrir.
Það er til dæmis hægur vandi
fyrir okkur aö skipuleggja segj-
um ferö hjúkrunarfræöinga eöa
læknanema, og þá eru þær farnar
til einhvers ákveðins lands, og
farið i stofnanir og á staði, sem
tengjast störfum og áhugasviðum
hópsins. Þetta finnst okkur at-
hyglisverðar og spennandi ferðir,
sem við viljum leggja áherslu á i
framtiðinni.
En þegar á allt er litið, leggjum
viö áherslu á ódýrar ferðir, þar
sem fólk þarf að láta dálítið á
sjálft sig reyna. Það er að visu
frekar litiö innifalið i þeim ferð-
um, en i móti kemur að þetta er
mjög frjáls ferðamáti”, sagði
Sigrlður Magnúsdóttir að lokum.
— jsj.
1
J