Þjóðviljinn - 15.12.1982, Síða 2
2 SíÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 15. desember 1982
síðan
Um ástina
Ástin er eins og mislingar, því
eldir sem maður er þegar hann
tekur þá, þvt' verri verða fylgi-
kvillarnir.
Bœtum
tunguna
Sagt var: t>á væri fulldjúpt í árina
tekið.
Rétt væri: Þá væri fulldjúpt tekið
í árinni.
(Ath.: Þarna er í ekki forsetning,
heldur atviksorð. Þess vegna
mætti eins segja: Þá væri árinni
fulldjúpt í tektð, þó að hin orða-
röðin sé venjulegri.)
Þeir vísu
sögðu
Ef að maður er ánægður í Ame-
ríku, þá er alveg víst, að hann er
að gera einhverja vitleysu.“
Ávextir
jarðar
Jörðin gefur ykkur ávöxt sinn, og
ykkur mun ekkert skorta, ef þið
kunnið að taka á móti gjöfum
hennar.
Með því að deila rétt gjöfum
jarðarinnar, fáið þið auð og alls-
nægtir.
En ef þið deilið ekki af kærleika
og réttsýni, verða sumir ágjarnir
og aðrir svangir.
(Úr Spámanninum.)
Skák
Karpov að tafli - 65
Stórmótið í Budapest var tæpast með betri
mótum Karpovs. Engu að síður náði hann
öðru sæti og var taplaus. ( mörgum
skákum hans mátti finnayfirsjónirog næst-
um slaka taflmennsku, en á hinn bóginn
voru sigurskákir hans sannfærandi. Hér
kemur eitt dæmi þess. Andtæðingurinn er
einn sterkasti skákmaður Ungverja um
langt skeið:
abcdefgh
Karpov - Sax
37. Dg4!
(Með hótuninni 38. Bxc5 dxc5 39. De6f
ásamt 38. d6 o.s.frv.)
37. ...b3
38. Kg2
(Ef 38. Bxc5 þá 38. - b2! og svartur hefur
náð mótspili.)
38. ... b2
39. Hbl Ha3?
(Nauðsynlegt var 39. - Db8.)
40. Bxc5 dxc5
(Eða 40. - Dxc5 41. Dc8 Dcl+ 42. Kg2
Dxbl 43. Dxe8+ Bf8 44. Be6+ Kg7 45.
Df7+ Kh6 46. Dxf8+ og mátar.)
41. Hxb2 Db8
42. De6+
- Svartur gafst upp. Eftir 42. - Kh8 43.
Hxb5 eða 42. - Kf8 43. Rg4 er öllu lokið.
Rokkað
gegn vímu
Tvennir hljómleikar
í Háskólabíói
á föstudag
Spjallað við Sigurð
Karlsson
hljómlistarmann:
Sigurður Karlsson hljómlist-
armaður er aðalforsprakki tvenn-
ra hljómleika sem verða í Háskól-
abíói á föstudag kl. 18 og 23 með
yfirskriftinni Rokk gegn vímu.
Peir eru haldnir á vegum Styrkt-
arfélags Sogns og tnun allur á-
góði renna til byggingar sjúkra-'
stöðvar SAA. Allir sem fram
koma gefa vinnu sína. Hér er um
30 manns að rœða og getur fólk
séð nöfn flytjendanna í auglýs-
ingu um Rokk gegn vímu á bls. 6.
Við höfðum samband við Sig-
urð Karlsson til að forvitnast
nokkum um dagskrá hljóm-
leikanna:
- Bubbi Morthens og Egó verða
þarna með eigið efni, sömuleiðis
Magnúr Þór Sigmundson og svo
ég sjálfur. Eftir mig verður frum-
flutt verkið Bakkus, sem má
segja að sé ferill minn - og ann-
arra - í áfengisdrykkju. Bakkus
skiptist í 4 þætti: Tælingin, Þján-
ingin, Uppreisnin, Sigurinn. Upp-
reisnin er eingöngu leikin á
trommur og annað slagverk en
jafnframt munu tvíburarnir
Hörður og Haukur túlka þann
þátt í bardagalist með sverðum.
„Mjólkurdagar
1982"
Tókust
ágætlega
„Mjólkurdagar 1982“ sem hald-
nir voru í húsakynnum Osta- og
smjörsölunnar á Bitruhálsi 12,
13. og 14. nóv. s.l., sýndu glöggt
þá miklu grósku, sem er í mjólk-
uriðnaði hér á landi. Var ljóst, að
þeir 8 þús. gestir, sem komu þessa
tvo daga, kunnu vel að meta
framleiðsluvörur mjólkur-
iðnaðarins.
Þarna voru, í fyrsta sinn, kynn-
tir tveir nýir ostar frá Mjólkur-
samlaginu í Búðardal, „Dala,
yrja“ og „Dala Brie“. Eru þeir nú
komnir á markaðinn. Þá voru og •
kynntar nýjar tegundir af rjóma-
osti. Um þetta leyti komu einnig
á markaðinn nýjar ístegundir og
ýmsar aðrar nýungar voru kynn-
tar þarna í fyrsta sinn.
Bragðprufur voru gefnar af
ýmsum mjólkurvörum, m.a.
fengu gestir að bragða á mysuost-
asúpu og sérstakri sveppasúpu,.
sem notuð hafði verið í jógúrt.
Gefnar voru allslags ídýfur og
könnun fór fram meðal gesta á
því, hvaða ídýfa þeim þætti best.
Sýninging fór fram á hátíðar-
borðum: hlaðborði, síðdegis-
borði, kvöldverðarborði og
„partý“ borði. Hægt var að fá
bæklinga með uppskriftum á
þeim réttum, sem sýndir voru á,
þessum borðum. Voru það 23
mismunandi uppskriftir. Auk
þessa bæklings, sem heitir „Þrjú
hátíðarborð" voru gefnir út tveir
bæklingar á vegum Mjólkursams-
ölunnar, annar með réttum úr
rjómskyri en hinn um ýmislegt
góðgæti úr skafís.
Sýndir voru ostar og gefnar
bragðprufur af þeim. Þá var
mjólkurvörumarkaður, þar sem
seldar voru flestar tegundir
mjólkurvara á sérstöku kynning-
arverði. _ mhg
-gel- tók þessa mynd s.l. mánudag á æfingu fyrir Rokk gegn vímu: Tryggvi Húbner, Einar Bragi, Ari
Haraldsson, Sigurður Long og Sigurður Karlsson (lengst t.h.) niðursokknir í útskrift bess síðastnefnda á
útsetningu hans á einu laganna sem þeir leika í Háskólabíó á fóstudag. Sigurður Karlsson er einn þekktasti
rokktrommuleikari landsins, en sýnir á sér fleiri hliðar á nýlegri fjögurra laga sólóplötu sinni, Veruleiki? sem
laga- og textasmiður, gítar-, bassa- og hljómborðsleikari.
Textinn við Bakkur er fenginn úr
Orðskviðum Biblíunnar, 24.
kafla, en þar er einmitt fjallað um
alkóhólisma, sem sýnir okkur að
hann er ekkert nýtt vandamál.
- Fyrir skömmu kom út þín
fyrsta sólóplata, Veruleiki?
Verðurðu með lög af henni?
- Já, t.d. mun Kimiwasa-
flokkurinn dansa við Beirút í
blóma. Ég verð líka með eldri lög
og svo 4 ný um ást og kærleika, ég
sem mest í þeim dúr núna. Þetta
er eiginlega rokkdjass, útsett
með blásturshljóðfærum. Það er
20 manna hljómsveit sem flytur
lögin mín og þetta er í fyrsta
skipti sem ég skrifa fyrir svo stóra
hljómsveit.
- Er langt síðan þú fórst að fást
við annað en trommuleik á hljóm-
listarsviðinu?
—Ég lærði nú einu sinni á tromp-
ett og svo fór ég í skólann hjá
FÍH fyrir Vh ári í hljóðfræði og
tónfræði, en mest lærir maður þó
að að æfa sig nóg sjálfur og prófa
sig áfram. Undanfarin 3 ár hef ég
töluvert samið á gítar. Mér finnst
ég rétt vera að byrja í músíkinni
núna.
- Hvað fáum við að sjá til þín á
föstudag?
- Ég tek nú auðvitað í trom-
murnar, en auk þess gítar og
hljómborð, svo syng ég Hvert
stefnum við? og dansa við lagið i,
þar sem ég túlka kærleika milli
karls og konu. Það er ekki hægt
að útskýra það nánar, sjón er
sögu ríkari, en bæði þessi lög er af
plötunni „Veruleiki?“
Við þökkum Sigurði fyrir
spjallið og hvetjumfólk til að styr-
kja þetta góða og þarfa framtak,
isem auk þess cetti að geta orðið
hin ágœtasta fjölskylduskemm-
tun. Verð aðgöngumiðaer 150 kr.
og eru þeir seldir í öllutn hljóm-
plötuverslunum Karnabœjar.
Rétt er að geta þess, að áhersla
verður lögð á hljómgœði og bestu
fáanlegum tœkjum í bœnum beítt
til þess að setn best til takist. Pétur
Hjaltested sér utn hljóðblöndun.
- A
Sigríður B. Benjamin er önnur frá hægri ásamt starfsfólki Kjarvalsstaða með málverkið á milli sín.
Frú Sigríður G. Benjamin hef-
ur gefið Kjarvalsstöðum málverk
eftir Jóhannes S. Kjarval til
minningar um föður sinn Harald
Guðberg. Hann var fæddur í
Danmörku 1882, fluttist til Is-
lands 1916 og stofnsetti hér fyrsta
reiðhjólaverkstæði landsin, Fálk-
ann, og síðar Örninn. Málverkið
er af Vífilsfelli, 105x150 cm, mál-
að 1936. Frá 1957 hefur málverk-
ið hangið á heimili Sigríðar G.
Benjamin í London.
Ný verslun:
Iþrótta-
búðin
Ómar Torfason, lanós-
liðsmaður í knattspyrnu og fyrir-
liði íslandsmeistara Víkings, hef-
ur opnað nýja íþróttavöruverslun.
í björtum og rúmgóðum húsa-
kynnum að Borgartúni 20 í.
Reykjavík. Hin nýja verslun
heitir íþróttabúðin.
Þar er boðið upp á fjölbreytt
úrval af íþróttavörum og vörum
til útilífs, svo sem hina þekktu
amerísku Nike íþróttaskó, Carl-
ton badmintonvörur, Dunlop
borðtennisvörur og golfvörur.
„Við munum kappkosta að vera
með úrvalsvörur á sem bestu
verði og góða þjónustu,“ sagði
Ómar Torfason.
Það ætti að vera lítill vandi að flnna skó við hæfl hjá honum Ómari.