Þjóðviljinn - 15.12.1982, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 15. desember 1982
MOOVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson.
Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús
H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson,
Þórunn Siguröardóttir, Valþór Hlöðversson.
íþróttafréttaritari: Víðir Sigurösson.
Útlít og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Gísli Sigurðsson, Guömundur Andri
Thorsson.
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir Kristín Pétursdóitir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Bárðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigmundsson.
Pókkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6 Reykjavík, sími 8 13 33
Umbrot og setning: Prent.
Prentun: Blaðaprent h.f.
Hvaða
viðmiðun?
• í viðræðunum við Alusuisse að undanförnu um hækkun
orkuverðs til álversins í Straumsvík, þá hafa íslensk stjórn-
völd lagt ríka áherslu á, að við nýja ákvörðun orkuverðsins
yrði fullt tillit tekið til fjögurra höfuðatriða.
• í fyrsta lagi yrði tekið mið af framleiðslukostnaði hér
innanlands, en henn er nú talinn vera á bilinu 15 - 20 mill/
kwh.
• í öðru lagi yrði tekið mið af orkuverði til álvera í Vestur-
Evrópu og Norður-Ameríku, eins og það er í viðskiptum
óskyldra aðila. - Þetta verð er nú 21 mill/kwh í Vestur-
Evrópu að jafnaði og 22 mill/kwh í Bandaríkjunum. í þess-
um efnum hefur því hins vegar verið hafnað af íslenskum
stjómvöldum að taka til viðmiðunar orkuverð í viðskiptum,
þar sem eigandinn er sá sami að orkuveri og iðjuveri, eða
þeir nátengdir svo sem algengt er í Kanada. í slíkum tilvikum
er orkusalan oft bókfærð á gjafverði, enda aðeins bókhalds-
atriði þar sem fjármunir eru færðir úr einum vasa í annan
hjá sama aðila.
• í þriðja lagi hafa íslensk stjórnvöld talið eðlilegt, að litið
yrði á það meðalverð sem Alusuisse greiðir fyrir orku í þeim
13 álverksmiðjum, sem auðhringurinn á hlut að, en meðal-
orkuverð hjá þessum verksmiðjum er nú 20,3 mill/kwh.
• í fjórða lagi hefur Alusuisse verið boðið upp á, að haft
yrði til hliðsjónar meðalorkuverð til álvera um allan heim,
en það er nú talið vera 22,3 mill/kwh. - Hér er verðið 6,5
mill/kwh.
• Alusuisse hefur hins vegar ekki viljað viðurkenna eina
eða neina af þessum sjálfsögðu viðmiðunum. I staðinn hafa
fulltrúar auðhringsins viljað að grundvöllur viðræðnanna
væri „orkuverð til álvera í Evrópu og Ameríku.“ Með því
móti hyggjast þeir láta hið lága orkuverð þar sem einn og
sami aðili selur sjálfum sér orkuna - t.d. í Kanada - hafa
mjög veruleg áhrif á orkuverð í viðskiptum okkar og
auðhringsins. Með þessu orðalagi vilja þeir líka tryggja, að
tekiö sé mið af orkuverði í Suður-Ameríku, þar sem það er
sérstaklega lágt, en útiloka hins vegar t.d. Japan þar sem
orkuverðið er mjög hátt.
• Þótt orðalagið kunni að sýnast saklaust fljótt á litið, þá
kemur algerlega sitthvað út eftir því hvort orkuverð er
reiknað í samræmi við „tilboð“ Alusuisse að umræðugrund-
velli, eða hafðar í huga þær viðmiðanir, sem íslensk stjórn-
völd hafa byggt á sínar kröfur.
• Og staðreyndin er sú, að fulltrúar Alusuisse hafa hingað
til neitað að taka tillit til okkar framleiðslukostnaðar, þeir
hafa neitað að viðmiðunin skyldi bundin við viðskipti
óskyldra aðila í Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku, og þeir
hafa einnig neitað að miðað yrði við meðalorkuverð í þeirra
eigin álverum ellegar meðalverð til álvera um allan heim.
• Dagblaðið Tíminn, málgagn Framsóknarflokksins remb-
ist við þaö þessa dagana að bera í bætifláka fyrir Guðmund j
G. Þórarinsson og afsaka hans frumhlaup. En hver átti þá að '
vera grundvöllurinn að áframhaldandi viðræðum við Alu- i
suisse samkvæmt tillögu Guðmundar? - Þar kemur nú fyrst |
að alvöru málsins. „Aðilar samþykkja tafarlaust viðræður
um raforkusamning samkvæmt lið 2 A í sama símskeyti með
verðhækkunarformúlu,“ segir þar. Það símskeyti, sem
þarna er vitnað til, er skeyti frá Alusuisse frá 10. nóv. s.l. og
þar er einmitt í lið 2 A kveðið á um að grundvöllur
viðræðnanna skuli vera sá, sem Alusuisse hefur jafnan farið
fram á og lýst var hér að ofan. Og einmitt þetta vildi Guðmund-
ur samþykkja tafarlaust og fyrirvaralaust! - í samningunum
átti sem sagt ekkert tillit að taka til framleiðslukostnaðar hér
og ekki að miða við viðskipti óskyldra aðila í nálægum
löndum eða heiminum yfirleitt. En það átti að taka mið af
orkuverði í hungurlöndum Suður-Ameríku, og gjafaprísum
þar sem einn og sami aðili selur sjálfum sér orkuna!
• Við skulum enn vona að hjá Guðmundi sé ekki annað
verra á ferð en sú glópska sem mörgum kemur í koil.
k.
klippt
Bölsýnn spádómur, aldargamall: „Framtíð blaðamennskunnar“ eftir
André Giil.
Styrjaldir og
sjónvarp
Innrásin í Líbanon, loftárásir á
Beirút, manndrápin í
flóttamannabúðunum - allir eru
þessir atburðir í fersku minni og
allir muna, að ísraelar biðu mikið
afhroð í almenningsálitinu þegar
þessar fregnir voru á dagskrá
allra fjölmiðla. Og það gerðist
ekki síst vegna þess, að stríðið í
Líbanon var háð beint fyrir fram-
an sjónvarpsmyndavélar, ef svo
mætti segja. Nærmyndir af eyði-
leggingu og dauða verða áhrifa-
sterkari en flest annað sém sagt er
um stríð og málstað aðilanna.
Á hinn bóginn er það ljóst, að
til dæmis stríðið í Afganistan, svo
ekki sé talað um smærri styrjaldir
sem háðar hafa verið í Afríku,
verða alltaf öðru hvoru „gleymd“
stríð. Ekki vegna þess endilega,
að Evrópumönnum finnist þau
langt í burtu og háð í annarlegum
þjóðfélögum sem þeir skilja lítið
í. Heldur fyrst og fremst vegna
þess, að sjónvarpsmenn eru ckki
á vettvangi, þeir komast ekki inn
í lokuð lönd eins og Afganistan.
Eða þá, að stríðsaðilar skammta
þeim mjög yfirvegað aðgang að
vígvöllum, eins og írakar gera og
íranir í öðru hálfgleymdu stríði
sem staðið hefur alllengi við Pers-
aflóa.
Meira að segja sæmilega virt
lýðræðisríki eins og Bretland átti
mun auðveldara en ella með að
heyja styrjöld sína á Falklands-
eyjum vegna þess hve afskekktur
vettvangur styrjaldarinnar var og
auðvelt að hafa erftirlit með þeim
fáu sjónvarpsmönnum sem á
staðinn komust.
Tœknilegir og
pólitískir
erfiðleikar
Þessar athugasemdir, sem eru
teknar úr grein eftir tvo franska
fjölmiðlafræðinga, Missika og
Wolton, minna í senn á áhrifa-
mátt sjónvarps og annmarka.
Tæknilegum erfiðleikum á því að
koma fljótt til skila fengnum í
myndum af allskonar atvikum
hefur smám saman verið rutt úr
vegi. En eftir því sem tæknilegum
tálmunum fækkar, þeim mun
meira fjölgar hinunt pólitísku
hindrunum, sem lagðar eru í veg
fyrir þennan miðil.
Gamaldags blaðamaður á sér í
raun og veru fleiri möguleika en
sjónvarpsmenn í löndum þar sem
frelsi og starfsmöguleikar fjöl-
miðla eru takmarkaðir. Sjónvarps-
menn þurfa útbúnað með sér sem
er miklu fyrirferðarmeiri en fram-
leiðslugögn fréttaritarans, þeir
þurfa að vera nokkrir saman,
þeir komast sáralítið án þess að
yfirvaldið á staðnum beinlínis
leyfi það. Og fjandmenn fjöl-
miðlafrelsis hafa verið fljótir að
renna á þessa lykt til þess að
koma í veg fyrir að atburðir verði
að fregn. Því að í nútíma fjöl-
miðlaheimi verða þeir atburðir
ekki stórir lengur sem ekki eru til
kvikmyndir af. Eða þá að þessir
valdamenn fjarstýra sjónvarps-
stöðvum heimsins með því að
mata þá á dulbúnum eða jafn-
vel ódulbúnum áróðursmyndum
sem tekið er við vegna þess, að
ekki er annað að hafa frá viðkom-
andi, landi, eða tiltekinni
styrjöld.
Hvað skal til
bragðs taka?
Spyrja má: hvernig skal bregð-
ast við þessu ástandi? Og svarið
liggur ekki í augum uppi. Það er
hægt að slá því föstu, að sá sem
verður að fremja sína glæpi fyrir
framan augu sjónvarpsvélanna
fái vissa refsingu, en sá sem getur
haldið þeirri sömu fjölmiðla-
tækni í burtu frá vettvangi sinna
glæpa sleppi frekar billega. En
hvað svo? Fjölmiðlafræðingarnir
frönsku sem fyrr voru nefndir,
leggja það til að tekin verði upp
raunverulegur og harður slagur
fyrir myndfrelsi í heiminum, en því
miður er ekki líklegt að sú barátta
beri verulegan árangur; ekki í bili
að minnsta kosti. Gamlir vinir og
atvinnumenn prentsvertunnar
geta kannski huggað sig lítillega
við það, að á einhverju sviði geti
þeir enn gefið raunsannari og
áreiðanlegri mynd af heiminum
en filmufólk. Víst er það rétt, og
ekki úr vegi að vekja athygli á
því. En þessi angi af sérstöðu hins
prentaða máls er skammgóður
vermir, því miður.
Alþýðublaðið
stynur
Alþýðublaðið hefur verið held-
ur dauft í dálkinn að undanförnu,
eins og vonlegt er. Fátt um fína,
drætti. Áhugi á flokknum í lág-
marki. Blaðið skrifar um þetta
leiðara í gær og leggur áherslu á
almenna pólitíska þreytu í
landinu, sem hafi tilheigingu til
að setja alla stjórnrriálamenn
undir einn hatt, hverju nafni sem
þeir nefnast. Undir lokin segir
blaðið á þessa leið: „Skoðana-
kannanir hafa sýnt það að undan-
förnu, að fólk í iandinu veit ekki
hvað til bragðs á að taka. Óvissa
markar afstöðu fólks til stjórn-
málaflokkanna; sumir virðast
ætla grípa í það hálmstrá, að ein-
hver ný og óskilgreind öfl í ís-
lenskum stjórnmálum konti til
með að gera kraftaverk. En
draumóralausnir verða aldrei til
gagns. Umræða og skoðanaskipti
um málefni hafa ef til ekki verið
nægilega áberandi í íslenskunt
stjórnmálum. Hávaðinn hefur
allur verið um einstaklinga, sem
áberandi hafa verið í pólitíkinni
af ólíklegustu ástæðum. Alþýðu-
blaðið hvetur eindregið íslenska
kjósendur til að gera athugun á
málefnastöðu stjórnmálaflokk-
anna og kynna sér það á hlut-
lausan hátt, hvaða stjórnmála-
flokkur er líklegastur til að leiða
íslensku þjóðina út úr vandanum
og til bjartari og betri framtíðar.“
Kom vel
á vondan
Það er vitanlega ekki nema
sjálfsagt að taka undir frómar
óskir blaðsins urn málefnalega
umræðu og annað í þeim dúr. En
það liggur líka í augum uppi, að
sú kvörtun um pólitískan „há-
vaða“ sem borin er frant í leiðar-
anurn, er fyrst og síðast sjálfs-
gagnrýni þess flokks, sem til
skantms tíma stærði sig af því að
vera samband kraftaverkamanna
sem hefðu sigrað í prófkjörum, en
enginn gamall ullabjakkflokkur.
- áb.