Þjóðviljinn - 15.12.1982, Side 12

Þjóðviljinn - 15.12.1982, Side 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 15. desember 1982 Breskt hjólbarðafyrirtæki sýnir áhuga á hugmynd Einars Einarsson um nýja gerð nagla í snjódekk Vilja 500 nagla tU prófunar fljótt „Ég vona að hægt verði að byrja á framieiðslu þessara 500 nagla mjög fljótlega eftir áramótin, svo fram- arlega sem naegur fjárstyrkur fæst til verksins“, sagði Einar Einarsson vélstjóri og uppfinningamaður í samtali við Þjóðviljann. Eins og mörgum er kunnugt hef- ur Einar hannaö sérstaka gerð nagla til aö setja í snjóhjólbarða. Að sögn Einars standa þessir nagl- ar ekki kyrfilega fastir í dekkinu, heldur dragast þeir inn og út eftir því hve mótstaðan er mikil. Þannig ætti slit á götum að minnka að stór- um mun með tilkomu þessara nagla. Engin nákvæm úttekt hefur enn verið gerð á notkun þessara nagla, en í sumar sem leið bauðst breska hljólbarðafyrirtækið Avon Tyres Limited til þess að prófa gildi þeirra og hefur fyrirtækið óskað eftir því að fá senda 500 nagla til prófunar. Iðntæknistofnun íslands hefur mælt með því að þessir 500 naglar verði framleiddir til prófunar hjá Avon í þeirri trú að úrskurður fáist um notagildi hugmyndarinnar. Handsmíða þarf hvern einstakan nagla, en þeir eru að því leyti frá- brugðnir venjulegum dekkjanögl- um að í stað þess að vera með flatan haus, eru þeir gúmmíf- óðraðir og ganga inn í dekkið eftir því sem það slitnar og mótstaðan eykst. Iðnrekstrarsjóður hefur þegar lofað fé til smíði naglanna 500, og eins hefur Vegagerð ríkisins gefið vilyrði um stuðning. Þessa stund- ina er málið til afgreiðslu hjá Fram- kvæmdastofnun, að sögn Einars. -Ig- Dalvík: Nýr sjúkrabíll eyðilagðist á leið til landsins Nýr sjúkrabíll, sem Rauða krossdeildin á Dalvík hafði keypt, eyðilagðist í flutningi til landsins, þegar brotsjór reið yfír skipið og stórt stykki í farminum kastaðist á bílinn. Hér er um mjög mikið tjón að ræða fyrir RK á Dalvík. Þegar bíll- inn var pantaður fyrir 13 mánuðum átti hann að kosta 300 þúsund krónur, en kostar nú meira en 600 þúsund krónur. Það mun taka um hálft ár að fá annan bíl og enginn veit hvað hann kemur til með að kosta. Tryggingar greiða aðeins það verð sem umræddur sjúkrabíll kostar í dag, en ekki nýjan bíl á því verði sem hann mun kosta þegar hann kemur til landsins. Deildin átti tvo bíla fyrir, sumar- bíl og svo jeppa, en þeir voru báðir seldir þegar sá nýi var keyptur og standa því sjúkraflutningsmál illa hjá þeim Dalvíkingum. - S.dór SIGGE STARK SKÓGAR- VÖRÐURINN ELSE-MARIE IMOHR ERÉG? RAUÐU ÁSTARSÖGURNflfl SIÍUUGSJÁ RAUUU ÁSTARSOGURNAR SKUGGSJÍ Þrjár rauðar ástarsögur Rauðu ástarsögumar eru spenn- andi skemmtisögur eftir kunna og vinsæla höfunda. Út eru komnar hjá Skuggsjá þrjár nýjar bækur í þessu safni: Skógarvörðurinn eftir Sigge Stark, Hver er ég? eftir Else-Marie Nohr og Hvítklædda brúðurin eftir Erik Nerlöe. Skógarvörðurinn eftir Sigge Stark er rómantísk ástarsaga Onnu frá Hlíð. Anna er sautján ára og mjög þögul og fáskiptin. Hún tjáði eng- um hug sinn, heldur hélt sig út af fyrir sig. En svo hitti hún skógar- vörðinn. Þessi sumardagur festist henni í minni sem einn mesti ham- ingjudagurinn í lífi hennar, enda þótt hann bæri í senn með sér sorg, biturleika og tár... Hver er ég? eftir Else-Marie Nohr fjallar um unga hjúkrunar- konu, sem fær þær óvæntu upplýs- ingar þegar hún ætlar að fara að ganga í hjónaband, að vígslan geti ekki farið fram, þar sem hún sé þegar gift. Hún hafði lent í bílslysi og misst minni um tíma... ,ErikNerlöe HVITKLÆDDA BRÚÐURIN Hvítklædda brúðurin eftir Erik Nerlöe er saga ungrar stúlku.Kar- lottu, og Jespers, unnusta hennar. Karlottu er rænt þegar hún er í brúðarvagninum á leið til kirkj- unnar, þar sem unnustinn og veislugestirnir bíða hennar.... HLJÓMPLA TAN með Jarðlingum Ijóslifandi hefur fengið frábærar móttökur Enda ber öllum saman um það að platan sé eínn Ijós- asti punkturínn í svartasta skammdeginu Allir vita hvað Guðmundur Símonarson hafði um plötuna að segja, En einn plötugagnrýnandi dag- blaðanna sagði að platan væri frábær að öllu leyti og minnti sig á gömlu góðu bítlana og erþað ekki leiðum að líkjast. Útgáfu og dreifingu annast: Grensásvegi 11, sími 37688

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.