Þjóðviljinn - 05.02.1983, Page 9

Þjóðviljinn - 05.02.1983, Page 9
Helgin 5. - 6. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 Hvert skal halda? Árni Bergmann skrifar um leikhús íslcnski dansflukkurinn: DANSSMIÐJAN. Dansahöfundar: Ingibjörg Björnsdóttir Nanna Olafsdóttir og meðlimir dansflokksins. Tónlist: Gunnar Reynir Sveinsson, Lcifur Þórarinsson, Þórir Baldursson, Elgar, Kjatsjatúrjan og Sibelius. Lýsing: Ingvar Björnsson. Svið og búningar: Guðrún Svava Svavarsdóttir. íslenski dansflokkurinn er tíu ára nú í vor og því fer vel á því, að byrjað er að halda upp á afmælið með svotil „alíslensku“ pró- grammi: dansarnir eru allir til orðnir innan hópsins, þrjú íslensk tónskáld skrifa fyrir flokkinn - í fjórða stutta ballettinum sem sýnd- ur er eru svo höfð þrjú stutt verk erlend, hvert úr sinni áttinni. Eng- inn erlendur gestur er með, sem þýðir meðal annars að íslenskur karlpeningur er meira áberandi í þessari sýningu en mörgum öðrum. En það muna flestir, að „karl- mannsleysið" hefur verið eitt af þrálátum vandamálum íslensks listdans. Af þeim ballettum tveim, sem dansararnir semja sjálfir er „Dans- brigði“ við tónlist Elgars, Khatsjat- úrjans og Sibeliusar blátt áfram fal- legri og meira fagmannlegt öryggi í allri útfærslu hans - þó svo hann Úr ballettinum 20 mínútna seinkun. hefði kannski ekki annan metnað en að sýna nokkurnveginn hvar dansflokkurinn er á vegi staddur um þessar mundir að því er varðar hefðbundinn stíl. Hinn ballettinn er saminn við poppaðan söng geimvíddanna eftir Þóri Baldurs- son. Það var einkum í þessum ball- ett að gallar í dansi og kóreografíu urðu áberandi: samhæfing hreyf- inga í einhverri óvissu, línur „óhreinar“ ef svo mætti að orði kveða. Og einmitt í þesari sýningu verður áhorfandinn ósáttur við glæfralega glitrandi búninga - en annars gerðu þau Guðrún Svava og Ingvar ljósameistari margt mjög vel í því að skapa hverju verki þá umgjörð sem tæki vel undir hugblæ í tónlist og dansi. „20 mínútna seinkun" heitir ballett sem Ingibjörg Bjömsdóttir hefur samið við mjög áheyrilega syrpu tónlistar af ýmsu tagi sem Gunnar Reynir Sveinsson hefur skrifað. Þetta verk er samansett annarsvegar úr skrýtlum, tengdum ákveðnum týpum, og uppákomum á biðstöð - hinsvegar er þrefaldur ástardúett í heitum ljósum. Sá þátt- ur verksins varð mest aðlaðandi, í hinum var ýmislegt skemmtilega til fundið, en stundum þó eins og úr- ræði brysti til að fá þeim stóra hópi sem var á sviðinu verkefni við hæfi. Oft hefur sá sem horfir á sýning- ar íslenska dansflokksins sagt sem .svo: þetta er ljúft, þetta er skemmtilegt, þettta er vel til fundið - en jafnoft með það hálfsagt, að einhvern herslumun vanti, ein- hvern léttleika, frelsi, samstillingu og þar fram eftir götum. Flokkur- inn hefur reyndar átt misgóðar stundir á ferli sínum. Vandinn er sá, þegar um þetta mál er fjallað, að listdans hefur of lengi eins og svifið í lausu lofti í leikhúslífi hér á landi. Dansarar hafa komið upp, margir hafa á ungum aldri lært ein- hver undirstöðuatriði og þar með breitt út vissa þekkingu og áhuga, orðið partur af nauðsynlegum fastagestum og þar fram eftir göt- um. En svo hefur skapast víta- hringur: dansarar hafa gefist upp eða leitað annað vegna þess að verkefni skorti - og verkefni voru af skornum skammti, meðal annars af því að starfið var á of fáum herð- um. Allt um það: sá kjarni dansara sem hefur borið uppi starf íslenska dansflokksins hefur sýnt mikla þrautseigju og þolinmæði - og hann hefur komið upp ágætum rósum í listagarðinum. Það gerði hann einnig með þessari dagskrá. Og þá ekki síst með lokahluta hennar, nýjum ballett eftir Nönnu Ólafsdóttur við tónlist Leifs Þórar- inssonar. í hönum varð heildar- myndin sterkust, samspil listgreina markvissast og tjáningin frjáls- legust. í sýningunni var ekki gert ráð fyrir stórum hlutverkum og smáum og því ekki ástæða til að nema stað- ar við einstök nöfn. Dansflokkur- inn ítrekaði þá ögrun sem í getu hans felst - og um leið þær spurn- ingar um hlutverk hans sem enn í dag hafa ekki fengist svöi við. - áb. í vorblóma Vikuferd dk 29/3 — 5/4 1 -*//////•■ Sumir kalla borgina „Feneyjar noröursins", enda má með sanni segja að Amsterdam með öll sín síki sé sérstæð borg. í Amsterdam er fjölskrúðugt mannlíf og eru Hollendingar sérstaklega viðmótsþýtt fólk. í Amsterdam finna flestir eitthvað við sitt hæfi. Þar er hægt að sigla um síkin á daginn eða um kvöld viö kertaljós og rómantík. Hægt er að fara í skoðunarferðir um borgina eða út í friösælar sveitir og þorp. Ekki má heldur gleyma listasöfnunum, tónleikasölunum, verslunargötunum og skemmtanalífinu. Já, vikan er fljót að líða í Amsterdam ... Páskaferðin er mjög vinsæl, vegna þess aö þá eru margir frídag- ar og vinnutap meö minna móti. Mallorca er vöknuð af vetrardvalanum, mátulegur lofthiti, gott sólskin og sjórinn farinn að hlýna. Atlantik býður upp á gistiaðstöðu við allra hæfi, svo allir ættu að hafa þaö gott um páskana. Pantið tímanlega, því framboð er takmarkað. Ferðaskrifstofa, Iðnaðarhúsinu, Hallveigarstíg 1 símar 28388 og 28580

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.