Þjóðviljinn - 05.02.1983, Síða 15

Þjóðviljinn - 05.02.1983, Síða 15
Helgin 5. - 6. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 Ella Sigurðardóttir Minning Guðný Fædd 4. maí 1931 — Dáin 29. jan. 1983 Oft eigum við erfitt með að sætta okkur við ráðslag örlaganna, vegir Guðs eru og verða órannsakanlegir og stundum ósanngjarnir að okkar dómi. Það er sárt að sjá á eftir góð- um mönnum um dauðans dyr í blóma lífsins, sjá hæfileikamikið fólk hverfa frá hálfunnu verki, ótal óloknunt verkefnum. Sárt að sjá á bak ástvinum sem maður hefði vilj- að deila ellinni með. Ein af þessum mönnum sent okkur finnst hafa yfirgefið okkur allt of fljótt er Guðný Ella Sigurðardóttir, sem dó 29. jan. sl. rúmlega fimmtug að aldri. Heimspekingurinn Martin Bu- ber segir eitthvað á þessa leið: Maðurinn er eina lífveran á þessari jörð sem fæðist með möguleika til stöðugs þroska og vegna þessara möguleika þarfnast hann viður- kenningar og uppörvunar. Sjálft mannlífið er dirfskufullt stökk út í óvissuna og einmitt þess vegna þarfnast hver einstaklingur á sér- hverri tíð staðfestingar á mennsku sinni, viðurkenningar á því að hann sé á réttri leið - að hann sé maður - því aðeins sannfærist hann um sjálfan sig, hlýtur rósemi hugans. Hver og einn þarf á að halda já- kvæðunt viðbrögöum frá meðbróður, þarf að lesa trúnaðar- traust úr augum annarra og um leið að finna traust í eigin hjarta, svo að hann frelsist undan óttanum við einmanaleikann sem er forsmekk- ur dauðans. Þessa uppörvun og viðurkenn- ingu eigum við misjafnlega auðvelt með að láta í Ijós, þar eru suntir öðrum örlátari gefendur, þótt allir hafi þörf fyrir að þiggja. Ég held ég hafi fáum kynnst sem átti þennan hæfileika í jafnríkum mæli og Guðný Ella, þetta að finna hið já- kvæða í fari annarra og viðurkenna það með örvandi orðum. láta öðr- um finnast þeir kannski svolítið betri, gáfaðri, hæfari en þeir. töldu sig vera, auka mönnum sjálfstraust án oflofs eða skrums. Þessi eigin- leiki hlýtur að hafa komið henni vel í því lífsstarfi sem hún valdi sér. starfinu sem var henni svo miklu meira en brauðstritið eitt, kennsl- unni, og þá ekki síst þeirri kennslu sem hún smám saman annaðist meira og meira, kennslu þeirra sem áttu við námserfiðleika að stríða af einhverju tagi, ekki voru einfærir í venjulegri bekkjardeild. Ekki man ég hvenær ég sá Guðnýju Ellu, eða Stellu einsog hún var oftast kölluð, fyrst. Hún var í Austurbæjarskólanum í bekknum hennar Valgerðar Guð- munds, sama bekk og elsti bróð- ir minn, hún var tveimur bekkj- um á undan mér í menntaskóla og síðan tengdumst við fjölskyldu- böndum. Hún var ein af þessum manneskjum sem alltaf hafa verið einhvers staðar nálæg. þótt stund- um hafi verið nokkuð langt á milli okkar. Guðný Ella var dóttir hjónanna Láru Guðmundsdóttur kennara og Sigurðar Helgasonar kennara og rithöfundar. Það var því ekki undarlegt að hún sjálf veldi kennsl- una að ævistarfi. Ekki kann ég að rekja ættir foreldranna nema að móðirin var úr Önundarfirði en faðirinn Austfirðingur. Guðný Ella var einkadóttir hjóna sem um margt voru ólík, en ég held hún hafi erft það besta út fari þeirra beggja. Hún fór í kennaraskólann að loknu stúdentsprófi 1951, lauk þaðan prófi og kenndi við ýmsa barnaskóla hér í Reykjavík með svolitlum hléum meðan synirnir voru ungir og eiginmaðurinn að ljúka námi, lengst við Vogaskóla og Alftamýrarskólann og nú síðast við Þroskaþjálfaskóla ísiands. Hún sérhæfði sig í hjálparkennsiu, var við framhaldsnám í Edinborg og fór námsferðir til annarra landa, var sívakandi í starfi sínu og hafði lifandi áhuga á öllum hag nemenda sinna. Guðný Ella giftist 28. des. 1952 Örnólfi Thorlacius og þau eignuð- ust fjóra syni: Sigurð, kvæntan Sif Eiríksdóttur, Arngrím, kvæntan Arnþrúði Einarsdóttur, Birgi, kvæntan Rósu Jónsdóttur. og Lár- us yngstan sem enn er í foreldra- húsum. Sonabörnin eru orðin sex, sum svo ung að þau munu ekki minnast ömmu sinnar. Guðný Ella vann alla tíð utan heimilis sem kallað er, hún byrjaði að vinna meðan eiginmaðurinn var við langskólanám og starfið var henni sjálfri svo mikils virði að ég held hún hefði átt erfitt með að hugsa sér að vera án þess. En í sameiningu unnu þau hjónin að uppeldi sonanna, hún var þeint góð og umhyggjusöm móðir, hún hafði heilbrigðan metnað fyrir þeirra hönd, hvatti þá til náms án þess þó að reyna að ráða fyrir þá. Hún var líka gæfumanneskja í lífinu. hún átti góðan mann og góða syni, hún fékk tækifæri til að vinna að því starfi sem hugur hennar stóð til og þar sem hæfileikar hennar fengu notið sín. Hún hafði mikla skipu- iagsgáfu og varð því mikið úr verki og hefur skilað drjúgu ævistarfi, þótt ævin yrði ekki lengri. Hún lét ekki heldur sjúkdóminn buga sig. Hún vann nú síöast að samræm- ingu á námsefni á Norðurlöndum á vegum Norrænu menningarmála- skrifstofunnar og að því verki starf- aði hún fram að jólum ásamt starfs- félögum sínum og tókst að sjá því lokið. Að þessu verki sem öðrum er hún tók að sér vann hún af mik- illi alúð og ég veit það hefur glatt hana að fá að sjá árangur þess. Eld- ri synirnir þrír eru allir við nám og störf erlendis, en tveir þeirra komu heim með fjölskyldur sínar um jól- in. Þessi síðustu jól fékk Guðný Ella því að eiga með sonunt sínum, tengdadætrum og barnabörnum á heimili sínu. Og þegar eldri synirnir þrír voru kvæntir og horfnir að heiman, Lár- us einn eftir, þá fannst mágkonu minni of rúmt um þau þrjú, og sveitastrákur af Snæfellsnesi, sem konr í bæinn til að þreyta próf, var boðinn velkominn á Háaleitisbraut 117. Nú eru veturnir orðnir 4 sem hann hefur notið þar gistivináttu og annar yngri bróðir hans var jafn- sjálfsagður í hópinn þegar röðin kom að honum að setjast á bekk í Hamrahlíðarskóla. Én það var ekki aðeins húsnæði og fæði sem húsráðendur létu þessum strákum í té. Foreldrar úti á landi sem þurfa að senda börn sín frá sér í skóla á viðkvæmum aldri hafa oft af þeim þungar áhyggjur. En mágkona mín tók þessa frændur mannsins síns - sem reyndar voru svolítið skyldir henni sjálfri líka - að sér eins og hún ætti þá sjálf, fylgdist með námi þeirra, örvaði þá og hvatti, án þess að skipa eða banna.á þennan ein- læga hátt sem henni var laginn. Þeir munu geyma minninguna um hana í þakklátum huga. Fyrir þetta og fyrir öll okkar kynni vil ég nú þakka. Meðan hún lifði fékk ég aldrei þakkað henni til fulls, svo inngróin var gjafmildi hennar og greiðasemi að hún gat látið þiggjandanum finnast liann vera að gera veitandanum greiða. Fjölskyldan öll á Staðastað vott- arsyrgjendum samúð, eiginmanni, sonum, tengdadætrum og barna- börnum, og þakkar samfylgd liðinna ára. Kristín R. Thorlacius Mig langar til að minnast vin- konu minnar og fyrrum samstarfs- manns Guðnýjar Ellu með örfáum orðuni. Guðný Ella fékk snemma á kennsluferli sínum áhuga á því að búa betur að þeim nemendum sem einhverra hluta vegna ráða ekki við það nánt sem skólinn býður þeim. Hún var með fyrstu sérkennurum sem útskrifuðust frá Kennaraskóla íslands og sótti síðar frámhalds- nám til Edinborgar og lauk þaðan heyrnleysingjakennaraprófi árið 1975. Guðnýju Ellu voru falin marg- vísleg trúnaðarstörf á vegum kenn- arasamataka, þar á meðal var hún formaður Félags íslenskra sér- kennara 1978-80. Það eru aðeins 7 ár síðan ég kynntist Guðnýju Ellu, þá sem samstarfsmaður hennar við sér- kennslu í einum af grunnskólum Reykjavíkur. Hafa þau kynni orð- ið mér mikill ávinningur í starfi æ síðan. Eins og öllum er kunnugt, hefur þróun í uppeldis- og kennslu- málum verið mjög ör á undan- förnum árum og oft verið deilt hart um stefnumótun á þeim vettvangi. Of mörg okkar sem að kennslu störfum höfum verið of fljóthuga að taka við nýjum straumum og stefnum og ekki séð fyrir, hverjar breytingar þyrfti að gera áður en hinu nýja markmiði yrði náð. Guðný Élla var ein af þeim sem var oþin fyrir nýjungum í skólastarfi og breyttu hlutverki skólans samfara breyttum þjóðfélagsaðstæðum. En hún athugaði alla þætti breytinga gaumgæfilega áður en hún mótaði sér stefnu og hafði ávallt haldbær rök máli sínu til stuðnings. Lét hún sér þá í léttu rúnti liggja, þótt skoð- anir hennar væru ekki santhljóma þeim sem vinsælastar voru á hverj- um tíma. Guðný Ella var hlý, já- kvæð og framar öllu bjartsýn kona. Þeir sem kynntust henni urðu rík- ari í andanum. Gaman var að ræða við hana þegar maður var Sammála henni, en ennþá skemmtilegra þó þegar svo var ekki. Aftur störfuðum við Guðný Ella saman í stjórn Félags íslenskra sérkennara um 2ja ára skeið. Þar kom einnig í ljós hin víðfeðma þekking hennar og reynsla í uppeldis- og kennslumálum sem styrkti félagið undir formennsku hennar. Nú síðustu árin starfaði hún í samnorrænni kennslugagna- nefnd sem vinnur að sérkennslu- gögnum í samfélagsfræði. Því miður entist henni ekki tími til að ljúka því. Guðný Ella var ekki gefin fyrir að auglýsa afrek sin á sviði sér- kennslunnar, en við sem njótum afraksturs hennar vitum, hve drjúgt hennar framlag er. Hvaða tilgangur er með því að láta hæfileikaríkt fólk hverfa héðan á miðri starfsævi? Ef til vill segir hún mér það þegar við hittumst í innra hylkinu annars staðar. Að lokum vil ég fyrir hönd Fé- lags íslenskra sérkennara þakka Guðnýju Ellu fyrir framlag henar til sérkennslunnar, og senda sam- úðarkveöjur til fjölskyldu hennar. Kolbrún Gunnarsdóttir formaður Félags íslenskra sérkennara. Kápur frá 199,00 Frottegallar frá 39,95 Pottahlífar frá 19,95 Súkkulaöi 2Alé5 20,90 Sloppar frá 19,95 Barnaúlpur frá 299,00 Herraskyrtur frá 79,95 Kremkex 9,70 Sokkabuxur frá 9,95 Skíöalúffur frá 69,95 Herrapeysur frá 99,95 Sítrónubelgir 8,90 Pils frá 159,00 Eldhúshandklæöi frá 9,95 Dúkkur frá 49,95 , Jif hreingern- Barnanærbuxur frá 6,95 Pottaleppar frá 2,95 Dömustrigaskór frá 1,95 ingalögur 13^5 10,40 Barnarúmteppi frá 159,00 Töskur frá 99,95 IKEA-stóll §9ff;oo 699,00 Handþeytarar frá 59,95 Hljómplötur frá 19,95 Saunaborö 4^60 299,00 Lampaskermar frá 39,95 Einnig útlitsgölluð húsgögn á lágu veröi. SÍMIPÓSTVERSLUNAR ER 30980 Bráðfallegar IKEA vörur á geysihagstæðu verði. Opið í Skeifunni tilkl.20íkvöld TJ&rir ATJP Reykjavík nAuIiAU I Akureyri

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.