Þjóðviljinn - 05.02.1983, Side 20
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 5. - 6. febrúar 1983
dægurmál (sígiid?)
Að raska ró MögguT
Nýja litla platan meö Crass
kom heldurbeturviðkauniná
liösmönnum Möggu T. í
Bretlandi. Platan sem heitir
„How Does It Feel (To Be
The Mother Of A Thousand
Dead) ?“fjallarum
Falklandseyjastríöiö og olli
miklu fjaðrafoki í Bretlandi svo
ekki sé meira sagt.
Eins og endranær þá eru Crass-
menn kjarnyrtir í sínum boðskap
og létu stjórn Mðggu T. hafa það
óþvegið.
„...Your arrogance has gutted
these bodies of life, your deceit
fooled them that it was worth the
sacrifice. Your lies persuaded pe-
ople to accept the wasted blood,
your filthy pride cleansed you of
the doubt you should have had.
You smile in the face of death
because you’re so proud and
vain,... Throughout our history
you and your kind have stolen the
young bodies of the living to be
twisted and torn in filthy
war....“
Eins og þessar línur bera með
sér er þetta all-óvægin árás á for-
sætisráðherra Breta. Bresku
fjölmiðlarnir veittu þessari plötu
mikla athygli og umfjöllun. Gekk
málið svo langt að einn þing-
manna íhaldsflokksins sá sig knú-
inn til að krefjast þess á þingi að
útgáfa á þessari plötu yrði bönn-
uð því hún bryti í bága við vel-
sæmislögin. En illu heilli fyrir
þennan ágæta kappa lýsti sú
stofnun yfir, sem með þessi mál
hefur að gera í ríki Engla, að
lagið félli ekki undir þessi lög og
þar við sat.
Einn þingmanna breska verka-
mannaflokksins bauð forsætis-
ráðherranunt í stráksskap sínum
að hlýða á plötuna en skrifstofa
forsætisráðherra afþakkaði
boðið.
Eins og gefur að skilja þá olli
þessi hamagangur á þinginu og
umfjöllun fjölmiðla því að þetta
er söluhæsta plata Crass til þessa.
En eins og kunnugt er þá hefur
það verið „mottó“ Crass að aug-
lýsa aldrei hljómplötur sínar.
Liðsmenn hljómsveitarinnar
hafa gjarnan litið á auglýsingar af
hinu illa. En þessi mikla umfjöll-
un varð til þess að platan hefur nú
um nokkurt skeið verið í efsta
sæti „independent“listans í Bret-
landi.
Skömmu eftir að platan kom út
var hljómsveitin sökuð um það
að strá salti í sár þeirra mörgu
sem misstu ástvini sína í Falk-
landseyja-átökunum. Hún svar-
aði því til að tilgangur plötunnar
væri alls ekki að ýfa upp gömul
sár heldur fyrst og fremst að
benda á ábyrgð þeirra sem um
stjórnvölinn halda og hvílík firr-
ing stríðið hefði verið.
Annars sker þessi plata sig í
engu úr frá fyrri plötum hljóm-
sveitarinnar. Tónlistin er eins og
fyrri daginn hrá og lætur nokkuð
ruddalega í eyrum, en það eru
hinir hárbeittu textar sem vekja
athygli. Segið svo að dægurtónlist
geti ekki haft áhrif.
Jón Viðar
Andrea ,
Vertu velkominn heim!
Siouxsie and the Banshees hafa aldrei verið betri.
Koss í draumahúsi
Nú fyrir jólin sendi Siouxsie and
the Banshees frá sér sína Fimmtu
breiðskífu A Kiss In The Dream
House. Hljómsveitin hefur allt frá
stofnun verið í hópi fremstu
hljómsveita Breta og ekki mun
merki hennar lækka á lofti við
útkomu þessarar plötu.
Ég er ekki frá því að þetta sé
besta plata hljómsveitarinnar frá
Konur í framlínu nefnist
skemmtikvöld, sem haldið verð-
ur á vegum Satt í Broadway ann-
að kvöld, sunnudaginn 6. febrú-
ar. Fyrir þá sem vilja fá sér
snæðing hefst fagnaðurinn kl. 19
og leikur Magnús Kjartansson
undir borðum, líklega með
a.m.k. einum bræðra sinna -
Finnboga (skyld’ann ekki eiga
neina leikandi systur?). En þetta
er nú bara forrétturinn...
Eins og nafnið gefur til kynna
er hér um að ræða hljómleika
með hljómsveitum sem eru ýmist
eingöngu skipaðar konum eða
konur eru þar í framlínu, þrátt
fyrir einn eða fleiri „kalla“ í
upphafi og voru þó hinar ekkert
slor.
Platan er hálfgert millistig á
milli Juju og Kaleidoscope þó
heyra megi ýmis ný tilbrigði. Sér-
staklega finnst mér gæta sterkra
áhrifa frá Creatures en svo nefn-
ist samstarf Siouxsie og Budgie.
Creátures hljóðrituðu litla plötu
hópnum. Einn „kall" verður þó
sérstaklega heiðraður þetta
kvöld, Egill Ólafsson, sem þarna
mun fá að láta ljós sitt skína og
verður þá hvorki orða vant né
söngs, ef að líkum lætur... og gæti
orðið Grýlugagn. Kynnir verður
Edda Björgvinsdóttir leikari.
Hljómsveitirnar sem fram
koma eru Bakkabræður, sem
flytja vísnabræðing með aðstoð
Gísla Helgasonar. Bakka-
bræðurnar eru Anna María,
Bergþóra Árnadóttir og Gná
Guðjónsdóttir. Oktavía
Stefánsdóttir, sem í nokkur ár
hefur verið djasssöngkona í Dan-
mörku, mun syngja við undirleik
árið 1981, en á henni voru
trommur eina hljóðfærið.
Annars kom það eins og köld
gusa yfir Siouxsie-aðdáendur á
síðasta ári þegar fréttist að hún
ætti við veikindi að stríða í hálsi
og óvíst væri hver framtíð hljóm-
sveitarinnar yrði. Sem betur fer
reyndist þetta ekki eins slæmt og
menn héldu í fyrstu og eftir nokk-
Grý lurnar senda væntanlega frá
sér sína fyrstu breiðskífu nú um
mánaðamót, og líklega gefst fólki
kostur á að heyra hvers á henni
er að vænta á Satt-sunnudags
kvöldinu
Tappi Tíkarrass verður meðal
þeirra hljómsveita sem koma
fram á tónlistarhátíðinni í M.H.
og Broadway: Konur í framlinu.
urra mánaða hlé birtist hún aftur
á sviði aðdáendum sínum til mik-
illar gleði.
Þessi nýja plata markar að mér
finnst viss tímamót í ferli hljóm-
sveitarinnar. Það er eins og verið
sé að kveðja gamalt tímabil og
heilsa nýju.
* Hljóðfæraleikurinn er alveg
pottþéttur og fáar hljómsveitir
sem fara í föt þeirra. Siouxsie hef-
ur sjaldan sungið betur og var
miklu fargi af mér létt þegar ég
heyrði að hún hafði engu tapað af
sínum fyrri „sjarma". Budgie fer
á kostum og beitir hinum ýmsu
ásláttarhljóðfærum.
Þeir Steve og McGeoch kom-
ast vel frá sínu og var það mikill
fengur fyrir hljómsveitina þegar
McGeoch gekk í hana á sínum
tíma.
Textarnir eru yfirleitt góðir en
kosta töluverða yfirlegu. Sioux-
sie á flesta texta plötunnar eða
sex en Steve á þrjá. I textum sín-
um segja þau gjarnan sögur af
furðulegum fyrirbærum sem
verða á vegi þeirra í hinu daglega
lífi. En eins og áður sagði þá kost-
ar það töluverðar „pælingar“ að
fá botn í texta þeirra.
Ég fer ekki ofan af því að þetta
er einhver albesta plata sem ég
heyrði á seinasta ári. Og gaman
til þess að vita að ekkert lát ætlar
að verða á snilldarverkum þeim
sem hljómsveitin sendir frá sér.
Djasskvartetts Djassvakningar:
Kristjáns Magnússonar píanó-
leikara, Árna Scheving bassa,
Guðmundar Steingrímssonar
trommara og Björns Thoroddsen
gítarleikara. Tappi tíkarrass mun
dilla rófu og viðstöddum með
Björk Guðmundsdóttur í fram-
línunni og strákana þar á meðal.
Og svo er það aðalrétturkvölds-
ins, Grýlurnar sjálfar, „sómi
vor, sverð og skjöldur" í jafnrétt-
issókninni á rokksviðinu! Loks,
eða einhverntímann kvöldsins,
kemur fram algert leyninúmer.
Það eina sem hrökk uppúr Jóa G.
hjá Satt var að hér væri um
kvenkyns leyninúmer að ræða og
það fleiri en ein hræða, því að
hann talaði um þær.
Jæja konur, og aðrir menn, nú
dugar ekki að hanga heima þetta
sunnudagskvöld og láta sér nægja
reykinn af réttunum, því að eigin
sjón og heyrn eru blaðafréttum
ríkari.
A.
Hátíö
fyrir
BELGI
og aðra
FRAKKA
Stórtónleikarverðaí
Hamrahlíðarskóla í dag
(laugardag) og munu þá
margar af okkar yngri
hljómsveitum troða upp. Alls
munu 23 hljómsveitir koma
þarfram og sú fyrsta hefja leik
kl. 14. Aðgangseyrirer20 kr.
M.H. hefur nú um nokkurn
tíma verið í fylkingarbrjósti fram-
haldsskóla hvað varðar blómlegt
tónlistarlíf. Þessir tónleikar eru
enn ein skrautfjöðurin í hatt
skólans og skartar þó mörgum
fyrir.
Hljómsveitirnar koma fram í
þessari röð:
1. Garg og geðveiki. 2. Hivo
pivo. 3. Lítilsháttar frík. 4. Bar8.
5. Hvalasveitin. 6. Gítar. 7. Nef-
rennsli. 8. Ködoggrillkrydderi. 9.
Ringulreið. 10. Lego. 11. Hjört-
ur Geirsson. 12. Omicron. 13.
Hið afleita þríhjól. 14. Pass. 15.
Vébandið. 16. Tcookiothso.17.
Trúðurinn. 18. Englabossar. 19.
Tappi tíkarrass. 20. Svart/hvítur
draumur. 21. Trúbad. 22.
Centaur.
Fyrst verið er að fjalla um tón-
leika þá má geta þess að hingað til
lands er von á góðum gestum ef
allt fer vel. Unnið er að því þessa
daga að fá Virgin Prunes hingað í
mars og Fall í apríl. Þessi mál
skýrast fljótlega og verður greint
frá þeim jafnóðum og fréttir ber-
ast. Annars er það helst að frétta
af Fall að annar gítarleikari
hljómsveitarinnar Mark Wriley,
var rekinn úr henni og hefur eng-
inn verið fenginn í hans stað.
Ekkert er að frétta af Echo and
the Bunnymen en vonandi
skýrast þessi mál fljótlega og von-
andi kemur þessi frábæra hljóm-
sveit hingað til lands.
Hljómleikar
í Broadway sunnudagskvöld:
„Konur í framlínu”