Þjóðviljinn - 05.02.1983, Side 22

Þjóðviljinn - 05.02.1983, Side 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 5. - 6. febrúar 1983 sháfc______________ Elvar Guðmundsson „Skákmeistari Reykjavíkur 1983” ElvarGuðmundssontryggði sértitilinn „Skákmeistari Reykjavíkur 1983“ með því að sigra ungan og efnilegan Kópavogsbúa, Þröst Einarsson í úrslitauppgjöri þeirra í 11. og síðustu umferð sem tefíd var á miðvikudagskvöldið. Eftir 10 umferðirdeildu þeirefsta sætinu báðirmeð8V2vinning. Það vakti eigi litla athygli að í 3. sæti komGuðlaug Þorsteinsdóttiraðeins 1/2 vinningi á eftir, með 8 vinninga. Hún átti fræðilega möguleika á sigri í mótinu, en Bolvíkingurinn Halldór G. Einarsson kom í veg fyrir að þær vonir rættust. Sigur Elvars Guðmundssonar kem- ur engum á óvart, enda var hann fyrir mótið álitinn einn af sigur- stranglegri keppendum. Elvar var í góðri æfingu þegar mótið hófst, ný- kominn frá Evrópumeistaramóti unglinga sem haldið var í Groning- en í Hollandi enda fór svo í upp- hafsumferðunum að honum héldu engin bönd. Hann vann sjö fyrstu skákir sínar og meðal þeirra sem hann lagði var Haukur Angantýs- son, en Haukur var ásanrt Elvari talinn einn sigurstranglegasti kepp- andinn. Elvar tapaði í 8. umferð fyrir Svíanum Dan Hansson og við það komst Dan, sem hefur haft búsetu hér í næstum þrjú ár, upp við hliðina á honum. Honum tókst þó ekki að halda þeirri ágætu frammi- stöðu til lengdar, því næstu tveim skákum tapaði hann. Eftir tapið fyrir Dan gerði Elvar jafntefli við Svein Kristinss,en vanntværsíð- ustu skákir sfnar gegn Halldóri G. Einarssyni og Þresti Einarssyni. Sigur hans var fyllilega verðskuld- aður, enda hefur Elvar ýmsa ágæta eiginleika til að bera sem skák- maður s.s. seiglu og þolinmæði í erfiðum stöðum samfara mikilli út- sjónarsemi í tímahraki, en sá sæt- beiski sjúkdómur sem kenndur er við tímahrak hefur ekki alveg látið Elvar ósnortinn. Það kann að hafa staðið Elvari fyrir þrifum að hafa ekki tekið skáklistina nógu föstum tökum, en sigur hans nú hefur á- reiðanlega breytingu í för með sér í þeim efnum. Sá sem þessar línur ritar óskar Elvari til hamingju með titilinn. í 2.-4. sæti komu svo þeir Haukur Angantýsson, Halldór G. Einarsson og Þröstur Einarsson. Haukur hefði sennilega viljað hafa sætaskipti við Elvar, en á það verð- ur ekki alltaf kosið og ætti 2. sætið sem kemur Hauki í hlut vegna hag- stæðra stiga að vera dágóð sárabót. Halldór og Þröstur eru báðir ört vaxandi skákmenn sem eiga eftir að láta meira að sér kveða í fram- tíðinni. Af Halldóri hef ég haft nokkur kynni, en frammistaða Þrastar kemur á óvart og hefur hann ekki í annan tíma náð jafn- góðum árangri. Helgi Ólafsson skrifar { 5.-8. sæti koma Guðlaug Þor- steinsdóttir, Georg Páll Skúlason, Ingimar Halldórsson, og Haraidur Haraldsson. Þau fengu 8 vinninga. Frammistaða Guðlaugar Þor- steinsdóttur er fyrir margra hluta sakir athyglisverð. Undanfarin ár hefur hún lítið getað teflt vegna náms en frá því að hún byrjaði nú í haust hefur henni fleygt fram. Mig rekur í minni að hún hafi hlotið 3'h vinning úr 11 skákum á Haustmóti TR í haust og þá gegn öllu lakari andstæðingum en nú svo framfar- irnar eru augljósar. Olympíuskák- mótiö í Luzern á þar greinilega stóran hlut að máli, en þar tefldi Guðlaug skínandi vel og gaf nokkr- um af sterkustu skákkonum heims lítið eftir. Það sem stendur skák- iðkun kvenna einna helst fyrir þrifurn hér á landi eru ónóg skákmót svo og skortur á nauðsyn- legri hvatningu. í þessu sambandi ber mönnum að hafa í huga að margt er karlmönnum betur gefið 17. JUNI 1983 Borgaryfirvöld hafa ákveðið að fela Æskuiýðsráði Reykjavíkur dag- skrárgerð og framkvæmd á hátíðar- höldum vegna þjóðhátíðardagsins 17. júní. Æskulýðsráð auglýsir hér með eftir hugmyndum og tillögum borgar- búa um dagskráratriði og aðra þætti ersnerta 17. júní hátiðarhöld- in nú í ár. Vinsamlegast sendið tillögur og hugmyndir til Æskulýðsráðs Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 11, fyrir 11. mars n.k. ÆSKULÝÐSRÁÐ REYKJAVÍKUR en að kunna að tapa í skák fyrir konu og hefur t.a.m. fyrrum heimsmeistari kvenna Nona Gapr- idhasvili sagt að karlmenn leggi sig alveg sérstaklega fram þegar þeir tefla gegn henni. Hún ætti að vita hvað hún segir konan sú, því yfir- leitt tekur hún skákmót meðal karla fram yfir kvennamótin. Nóg um það. Hér koma tvær skákir frá nýafstöðnu skákþingi. Fyrri skákin var ein af úrslita- skákum mótsins, sú síðari ein af vinningsskákum Guðlaugar Þor- steinsdóttur: 6. umferð: Hvítt: Haukur Angantýsson Svart: Elvar Guðmundsson Drottningarbragð 1. d4 Rf6 5. Bg5 h6 2. c4 c6 6. Bh4 0-0 3. Rf3 d5 7. e3 b6 4. Rc3 Be7 (Tartakower - afbrigðið í drottn- ingarbragði er ein vinsælasta byrjun samtímans. Karpov heimsmeistari á þar sennilega stærstan hlut að máli.) 8. cxd5 (Þessi leikaðferð sem Fischer beitti í 6. einvígisskák sinni við Spasskí sést sjaldan núorðið. Gellerendur- bætti taflmennsku Spasskís í frægri skák gegn Timman ári eftir að ein- víginu í Reykjavík lauk. Sú endur- bót hefur staðist tímans tönn og því hafa aðrar leiðir eins og 8. Hcl, 8. Be2, 8. Dc2 og 8. Dd2 orðið vinsælar.) 8. .. Rxd5 11. HclBeö 9. Rxd5 exd5 12- Bd3 10. Bxe7 Dxe7 (Máttlítill leikur. Fischer lék 12. Da4 og framhaldið varð: 12. - c5 13. Da3 Hc8 14. Bb5 a6?! 15. dxc5 bxc5 16. 0-0 Ha7 17. Be2 Rd7 18. Rd4! Df8 19. Rxe6 fxe6 20. e4! og hvítur stendur mun betur að vígi. Geller kom með endurbót sína í 14. leik, - Db7! og eftir 15. bxc5 bxc5 16. Hxc5 Hxc5 17. Dxc5 Ra6! 18. Bxa6 Dxa6 og svartur hefur mikla yfirburði fyrir peðið sem hann fórnaði. 14. Bb5 þótti merkileg endurbót á sínum tíma, en minna má á annan leik, nefnilega 14. Be2 en þannig tefldi Petrosjan gegn Spasskí í tvígang árið 1966.) 12. .. c5 13. Re5 (Hæpinn leikur. Rétt var 13. 0-0.) 13. .. Rd7 14. 0-0? (Færir svörtum frumkvæðið. Eftir 14. Rxd7 Bxd7 er staðan u.þ.b. í jafnvægi.) 14. .. Rxe5! 18. Dxf6 Hxf6 15. dxe5 f6 19. Hfdl Hd8 16. Dh5 fxe5 20. Bb5 17. Dxe5 Df6 (Tilagangurinn með þessum leik er ekki ljós. Eðlilegra var 20. Kfl.) 20. .. B17 22. b4 cxb4 21. a3 Hfd6 23. axb4 d4! abcdefgh (Frumkvæði svarts er augljóst eftir jrennan sterka leik. Hvítur getur trauðla stofnað til uppskipta á d4, því eftir 24. exd4 Hxd4 25. Hxd4 Hxd4 26. Hbl Bg6 fellur peðið á b4.) 24. e4 d3 25. f3 d2 26. Hc3 Hd4 27. Kf2 Hxb4 28. Bd3 Hb2 29. Ke2 b5 30. Hxd2 Hxd2+ 31. Kxd2 a5! Guðlaug Þorsteinsdóttir að tafli í ellcftu og síðustu umferð Skákþings Reykjavíkur 1983. Hún hlaut 8 vinninga af 11 mögulegum. -Ljósm.: -eik. (Virk staða svörtu mannanna ásamt með hinum framsæknu frí- peðum á drottningarvængnum tryggja svörtum sigurinn.) 32. Kc2 b4 34. Bc4 b3+ 33. Hc7 a4 35. Kcl (Eða 35. Kc3 Bxc4 36. Hxc4 Ha8! og a - peðið verður ekki stöðvað.) 35. .. Bxc4 37. Hc3 a2 36. Hxc4 a3 - Hvftur gafst upp. Guðlaug Þorsteinsdóttir hafði hlotið 8 vinninga að loknum 10 um- ferðum. Hún tapaði fyrstu skák sinni í mótinu en fékk síðan hinn vel þekkta Monrad - meðvind. Slíkum meðvindi fylgir yfirleitt góð taflmennska og efist einhver um það skal hann skoðá eftirfarandi skák sem tefld var í 10. umferð. Andstæðingur Guðlaugar er gamla kempan Sveinn Kristinsson: 10. umferð: Hvítt: Guðlaug Þorsteinsdóttir Svart: Sveinn Kristinsson Nimzo - indversk vörn 1. d4 Rf6 4. Rf3 b6 2. c4 e6 5. g3 .. 3. Rc3 Bb4 (Algengara er 5. Dc2.) 5. .. Bb7 6. Bg2 c5 (Hér kom sterklega til greina að leika 6. - Re4.) 7. 0-0 0-0 8. Bf4 cxd4?! (Svartur lendir þegar í erfiðleikum eftir þennan leik. Það er ljóst að Sveinn hefur ekki tekið með í reikninginn sterkan svarleik Guð- laugar. 8. - Rc6 kom sterklega til greina.) 9. Rb5! Ra6 10. Rd6 Bxd6 11. Bxd6 He8 12. Dxd4 Hat*8 13. Hfdl Rc5 14. Hacl Rce4 15. Re5 Rxdó 16. Dxd6 Bxg2 17. Kxg2 Hc7 18. f3 Dc8 19. a4! (Hvítur hefur haldið uppi miklum þrýstingi á stöðu svarts. Hér er möguleikinn, - b5 hindraður og peðaframsókn á drottningarvæng undirbúin.) 19. .. Hd8 21. Dd4 d6 20. b4 Re8 22. Rd3 Db8 abcdefgh 23. b5! (Vel leikið. Menn taka ekki á sig veikingar á c5 reitnum af fúsum og frjálsum vilja en meira er um vert í þessari stöðu-að c6 - reiturinn er hreint ákjósanlegur stökkpallur fyrir riddarann.) 23. .. Hdd7 26. a5 bxa5 24. Rb4Dd8 27. Hal a6!? 25. Rc6 Dg5 (Sennilega besti möguleikinn úr því sem komið er. Svartur áræðir að gefa skiptamun en nær um leið að gera út af við peð hvíts á drottningarvæng.) 28. Rb8 axb5 29. Rxd7 Hxd7 30. Hxa5 e5 31. Dd5 bxc4 32. Dxc4 h5 33. Ha8 De7 34. Dc8 Kf8 35. Hbl Hc7 36. Df5 g6 37. Dd3 Kg7 38. Hbb8 Rf6 39. Dd2! Rh7 (Hvítur hótaði 40. Hh8 og 41. Dh6 mát.) 40. Hg8+ Kf6 (Hér fór skákin í bið. Guðlaug hef- ur haldið upp stöðugri pressu og lýkur nú skákinni með velheppn- aðri lokaatlögu.) 41. Hae8 (Biðleikurinn og sá besti sem völ er á.) 41. .. Dd7 44. e4+ Kg5 42. Hd8 Db5 45. h4+ 43. Dxd6+ Kf5 - Svartur gafst upp. Eftir 45. - Kh6 46. Dd2+ g5 er ein fjölmargra vinningsleiða 47. Dxg5+.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.