Þjóðviljinn - 05.02.1983, Page 24
24 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 5. - 6. febrúar 1983
„Maður lifandi!"
„Það hlýtur nú að vera meiri
persónulega heiftin milli þeirra
Páls á Höllustöðum og Ingólfs á
Hvammstanga úr því að Ingólfur
bara neitar að sitja á listanum",
sagði gömul kona sem ég heyrði í
á förnum vegi. „Maður veit bara
ekki nógu mikið um þetta“, bætti
hún við. Og Ólafur Ragnar datt
niður eins og Geir, sagði hún enn-
fremur. „Þetta voru víst einhver
skipulögð öfl.“
Þetta var á Hlemmi. Inni í
horni sátu tveir spakir menn á
hljóðu tali. Égsettist við hliðina á
þeim og komst ekki hjá því að
heyra hvað þeir voru að segja.
„Skyldi Vilmundur fá
eitthvað?", sagði annar.
„Já, ætli það ekki“, sagði hinn.
„Þeir fóru svo illa með hann í
sjónvarpinu um daginn“.
„Þetta er nú meiri vitleysan",
sagði annar.
„Maður lifandi", sagð hinn.
Svo fóru þeir að tala um veðr-
ið.
Ég stóð upp til að kaupa blað-
ið. Konan í gatinu var að tala við
aðra konu.
„Hvað ætlar þú að kjósa?“,
sagði sú í gatinu.
„Ég veit það svei mér ekki“,
sagði hin. „Ætli maður kjósi ekki
bara Trausta. Er hann ekki í
framboði?“
„Neiii.sagði sú í gatinu.
Svo var það ekki meira.
Tveir strákar voru í eltingar-
leik íbiðskýlinu. Sá minni miðaði
á þann stóra og sagði: „Bang!“.
Hinn datt niður á skítugt gólfið
eins og dauður væri. Hann verður
sennilega flengdur þegar hann
kemur heim fyrir að skíta út bux-
urnar sínar.
Ég var búinn að fá nóg af þessu
og gekk út í kuldann og snjóinn.
Fáar hræður voru á stangli og
norpuðu meðan þær biðu eftir
strætó. Svo kom galtómur vagn
og ég fór upp í hann og borgaði
mínar 8 krónur. „Helvítið hann
Davíð“, hugsaði ég með mér og
fékk mér sæti.
Meðan strætó silaðist inn
Suðurlandsbrautina lét ég hug-
ann líða:
„Ekki vildi ég vera borgarstjóri
og fá svona kveðju frá bláókunn-
ugum manni á kuldaúlpu niðri
við Hlemm“, hugsaði ég með
mér. „Og ekki vildi ég vera
stjórnmálamaður og láta þjóðina
smjatta á mér.“
Þegar strætó beygði inn á
Grensásveginn fór ég að gæla við
þá hugmynd að ég væri á röndótt-
um jakkafötum með rautt bindi
og sæti í neðri deild, lítið eitt
rjóður í vöngum og dálítið
ánægður með sjálfan mig. „Hvort
ætti ég nú að segja já eða nei við
bráðabirgðalögunum og hvölun-
um?“ Þá færi nú að vandast mál-
ið. Yfirleitt á ég nefnilega ákaf-
lega erfitt með að taka ákvörðun
og er bæði áhrifagjarn og ístöðu-
laus. Sennilega væri ég stöðugt að
skipta um skoðun. Líklega best
að þegja og láta flokkinn ráða.
Verst ef hann er ekki á einu máli.
Svo fór ég að ímynda mér að ég
væri í Kastljósi og léti einhvern
hakka mig í sig og yrði að gjalti
fyrir framan alþjóð og allir hugs-
uðu með sér: „Aumingja maður-,
inn, ekki kýs ég þennan". Og
kerlingarnar á Hlemmi mundu
segja: „Ósköp var að sjá hann
þennan þarna í sjónvarpinu,
hvað heitir hann nú aftur?“.
Nei, ég gef allar framavornir
upp á bátinn og sit bara áfram
úlpuklæddur í strætó á leið upp
Ártúnsbrekkuna.
- Guðjón.
Hvaðeráseyði'
sunnudagskrossgátan
Nr. 3S7
/ 2 3 •7 / 5" (o 7- e 5 1 / 10
n /2 ) 3 )¥ /z /z V nr ib 73 S~ r /7 r
ie 10 /9 ? z/ r zz S? 3 /3 l<7 7
V í>~ 3 22> V 17- / zT- 7- zp f8 21 20 7
ár / y 2/ ) Zb /8 / 27 23 20 7- r
/2 zs r? 3 ZÐ /3 /2> '<7 zo >8 12 zv V
z?- / 18 2$ Zo 7 23 (v; 21 /7-
zö s? /F n /Z 22 V / S2 /3
/<r 30 V 5" zz Vo V /3 r? 2‘}> n > (e> 3 V
2fr /3 zy /<7 r 17 r 3 Á
3 20 i U 20 V 3\ 3 Zo 0? \3Í U n r 1
21 V 24» r 7 20 'V' >V zo ro 23, 12 ZO £2 ýe i/
V 2h> W e sr 7- zo 21 Z 12 n 6' 18
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á
frægri borg í útlöndum. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni
til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavtk, merkt „krossgáta nr. 357“.
Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
2°! 1 2 sr )3 /<? ZZ
Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort
sem lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá
að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp,
•því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því
eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir
því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í
þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sér-
hljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á og öfugt.
Verðlaunin
Verðlaun fyrir krossgátu nr.
353 hlaut Guðmunda
Ingibergsdóttir, Eylandi,
Stöðvarfirði. Þau eru Birgir
og Ásdís eftir Eðvarð Ing-
ólfsson. Lausnarorðið var
Munkaþverá.
Verðlaunin að þessu sinni er
AÁBDÐEÉFGHlfJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ fjórða bindi eftir sr. Ágúst Sigurðsson sem Orn & Or- PJ
lygur gefa út.