Þjóðviljinn - 12.02.1983, Side 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 12. - 13. febrúar 1983
Afmæliskveöja:
Ólafur Helgason
80 ára 14. febrúar 1983
Tengdafaðir minn og einn minn
bezti vinur, Ólafur Helgason,
fyrrv. tollvörður, Lindarflöt 43 í
Garðabæ, á 80 ára afmæli mánu-
daginn 14. febrúar. Af því tilefni
langar mig til þess að mega senda
honum afmæliskveðju í örfáum
orðum og þá aðallega ti! þess að tjá
honum þakklæti mitt fyrir nána
vináttu og trausta samfylgd í þau 30
ár, sem við höfuni þekkst. Mér er
reyndar vandi á höndum að Senda
honum kveðju mína á opinberum
vettvangi, því mig langar vissulega
til þess að mega tala opinskátt um
Ólaf sem einn bezta mann, sem ég
hefi kynnst á lífsleiðinni og þá get-
ur verið nauðsynlegt og eðlilegt að
grípa til býzna sterkra lýsingar-
orða, en slíkt veit ég að myndi vera
Ólafi mikið á móti skapi, svo hóg-
vær og yfirlitslaus sem hann hef-
ur verið allt sitt líf. Eg verð því að
spara lofsyrðin, sem hann þó vissu-
lega á skilin, þótt kveðjan verði að
sama skapi fátæklegri en efni
standa til.
Ólafur fæddist að Kverngrjóti í
Saubæ 14. febrúar 1903, sonur
hjónanna Helga Helgasonar og
Ingibjargar Friðriksdóttur, sem þá
bjuggu þar. f>au fluttu síðar að
Gautsdal í Geiradal á Barðaströnd
og bjuggu þar í fögru umhverfi upp
af Króksfirðinum með Barma-
hlíðina og Reykhólasveitina til
vesturs og Gilsfjörðinn ti! austurs.
Mikil vinnusemi og elja efldi hag
þeirra og þau bjuggu góðu búi á
þeirra tíma mælikvarða. Þarna átti
Ólafur bernsku sína og unglingsár í
hópi systkina og traustra foreldra
við venjuleg sveitastörf, sem voru
honum einkar hugleikin, enda kom
þá strax í ljós sá mikli ræktunará-
hugi, sem honum er í blóð borinn
og einkennt hefur hann allt hans
líf. Þá kom strax í ljós þessi einstaki
hæfileiki hugar og handa til þess að
gera moldina frjósamari, gróand-
ann grænni og blómin fegurri, þessi
einstaki hæfileiki til þess að gæða
allt lifandi í umhverfinu auknum
þroska og meiri fegurð. Hann virkj-
aði bæjariækinn og veitti ljósi og
yl í híbýlin og vann hörðum hönd-
um að endurbótum á landinu. Raf-
stöðin í Gautsdal var ein fyrsta raf-
stöðin til sveita, en Ólafur var enn
nánast unglingur að árum, þegar
hann braust í byggingu hennar.
Ég veit að hugur Ólafs stóð ti!
langskólanáms, enda er hann einn
þeirra manna, sem fékk mikla
greind og góðar gáfur í vöggugjöf.
Eg veit að læknisstörf eða vísind-
astörf á sviði jarðræktar hefðu
leikið honum í höndum, en efnin á
þeirri tíð leyfðu ekki að slík áhuga-
mál næðu fram að ganga. Hann
hvarf til búnaðarnáms að Hvann-
eyri og lauk þar prófi með miklum
ágætum eftir tvo vetur fyrir 60
árum síðan. Hanri fór aftur til bún-
aðarstarfa að Gautsdal og hlúði að
jörðinni með föður og bræðrum.
Hann kvæntist 1935 Ólöfu dótt-
ur Sigríðar og Ingimundar bónda í
Bæ í Króksfirði, en hún hefur síðan
verið hans samhenti og trausti lífs-
förunautur. Jarðnæði var ekki fyrir
hendi fyrir ungu hjónin að hefja
búskap í heimabyggð og þau hurfu
því til Reykjavíkur, þar sem Ólafur
r i ■*
.mars
■ •»
eintak
□AIHATSU
CHAR
1983
Nu er stora tækifærið
að vera með
Aöeins skuldlausir askriíendur geta tekið þatt í getrauninni
Getraunaseðlarnir birtast í laugardagsblöðunum
Siðumula 15, Reykjavik
hóf störf sem tollvörður, en því
starfi gegndi hann alla tíð síðan
meðan aldur leyfði, ýmist við toll-
gæzlu, á skrifstofu tollstjóra eða á
tollpóststofunni. En þótt á mölina
væri komið héldu þau áfram að
rækta garðinn sinn í eiginlegum og
óeiginlegum skilningi. Þau bjuggu
sér notalegt heimili í verkamanna-
bústöðunum við Einholt og löðuðu
fagran blóma- og trjágarð upp úr
grýttu holtinu. Húsrými var ekki
mikið en skapaði hlýlega umgjörð
góðu heimili fyrir hjónin og dætur
þeirra Sigríði, Ingibjörgu, Hildi-
gunni og fósturdótturina Mörthu,
auk þess sem jafnan var nóg rúm
fyrir fjölda gesta, sem hjá þeim
dvaldi lengri eða skemmri tíma,
sérstaklega gamla vini og ættingja
úr heimabyggð fyrir vestan.
Gestrisnin var þá og jafnan síðan
þeirra tryggi förunautur. Tak-
markaðar tekjur nýttust samhentu
og hagsýnu heimili ótrúlega vel og
þau byggðu efri hæð og ris í fallegu
tvíbýlishúsi við Tómasarhaga, sem
þau fluttu í 1953. Einnig þar töfr-
aðist fram hinn fegursti trjágarður
á ótrúlega skömmum tíma. Heilsu-
leysi hafði reyndar stundum barið
að dyrum hjá Ólafi í gegnum árin,
en því var eytt með einstakri bjart-
sýni, góðu lunderni og sérstöku
jafnvægi hugans, sem Ölafur á til
að bera í ríkari mæli en margir
aðrir. Það stóð því ekki í vegi gró-
anda og betri hags. Þarna undu þau
öll í gleði og eindrægni, hjónin,
dæturnar og móðir Ólafs, Ingi-
björg, en hún hafði flutt til þeirra
hjónanna meðan þau enn bjuggu í
litlu íbúðinni í Einholti eftir að hún
varð ekkja. Hún fékk sæmdar-
heitið „amma“ og var jafnan köll-
uð amma af öllum, sem inn á heim-
ilið komu, og þeir voru ekki fáir,
því gestrisnin dvínaði ekki með ár-
unum.
Ég, sem þetta rita, kallaði hana
einnig ömmu, þegar ég kom inn á
heimilið fyrsta sinni fyrir árslok
1953 og alla tíð síðan, þar til hún
andaðist 93 ára gömul, en þá vor-
um við öll flutt í Garðabæ og við
Sigríður, dóttir þeirra Ólafs og
Ólafar, þá reynar flutt norður til
Akureyrar. Við hófum búskap í
risinu í Tómasarhaga 1956 og síðar
byggðum við Ólafur tvö einbýlis-
hús hlið við hlið í Garðabæ við
Lindarflöt, þangað sem við fluttum
1964. Við hjálpuðum hvor öðrum
mikið við byggingarframkvæmd-
irnar, en hann mér þó miklu meira
við mitt hús en ég honum við hans.
Við bjuggum reyndar ekki lengi
hlið við hlið í Garðabænum, því við
Sigríður fluttum til Akureyrar
tveim árum síðar, en böndin hafa
þó alltaf haldist jafn sterk.
Allir, sem kynnast Ólafi, hljóta
að laðast að honum og bindast hon-
um tryggðarböndum. Það var mér
mikið lán að kynnast honum 1953,
meðan ég enn var ungur að árum
og óharðnaður unglingur. Við höf-
um síðan átt nána samleið sem
tengdafeðgar og vinir og það hefur
verið mér mikils virði að kynnast
honum og eiga hann að. Ég ætla
mér ekki þá dul að geta lýst hans
góðu eigindum og orð verða
reyndar fátækleg í því efni. Allir,
sem kynnst hafa Ólafi, vita, að þar
fer einstakur drengskaparmaður,
bjartsýnn, góðviljaður og ráðholl-
ur. Orð eru því óþörf. Ég veit hins
vegar, að þegar hugsað er til hins
góða ræktarmanns lands og lýðs
á vel við vísustefið, sem Ólöf,
eiginkona Ólafs, kastaði fram þeg-
ar hann varð sjötugur, en það er
svona:
Bráðum vakna blómin þín á ný
er blessuð sólin hækkar göngu sína
og litlir sprotar lifna fyrr af því
að lífið gaf þeim ennþá nálaegð þína.
Ungu frœin þekkja þína sál
og þakklát tala þau sitt hljóða mál.
Ég sendi Ólafi hugheilar ham-
ingjuóskir í tilefni 80 ára afmælis-
ins. Hlýjar tilfinningar þakklætis
og virðingar streyma til hans frá
okkur Siggu og börnunum. Ég
veit að sömu tilfinningar streyma
til hans frá Hildigunni og fjöl-
skyldu hennar í Hafnarfirði, frá
Ingibjörgu og fjölskyldu hennar í
Danmörku og frá Mörthu og henn-
ar fjölskyldu í Breiðdal. Guð gefi
honum og Ólöfu fagurt ævikvöld.
Valur Arnþórsson,
Akureyri.
eST. JÓSEFSSPÍTAU
LANDAK0TI
Hjúkrunarfræöingar
Lausar stöður
DEILDARSTJÓRI á handlækningadeild l-B.
Umsóknarfrestur til 15. mars n.k.
Lausar stöður hjúkrunarfræðinga nú þegar
eða eftir samkomulagi:
Lyflækningadeild ll-A
Barnadeild
Gjörgæsludeild
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu hjúkr-
unarforstjóra í síma 19600, kl. 11-12 og 13-
15.
• Blikkiðjan
Ásgaröi 7, Garöabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsefningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SIMI 53468