Þjóðviljinn - 12.02.1983, Síða 22

Þjóðviljinn - 12.02.1983, Síða 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 12. - 13. febrúar 1983 Afmæliskveöja: Ólafur Helgason 80 ára 14. febrúar 1983 Tengdafaðir minn og einn minn bezti vinur, Ólafur Helgason, fyrrv. tollvörður, Lindarflöt 43 í Garðabæ, á 80 ára afmæli mánu- daginn 14. febrúar. Af því tilefni langar mig til þess að mega senda honum afmæliskveðju í örfáum orðum og þá aðallega ti! þess að tjá honum þakklæti mitt fyrir nána vináttu og trausta samfylgd í þau 30 ár, sem við höfuni þekkst. Mér er reyndar vandi á höndum að Senda honum kveðju mína á opinberum vettvangi, því mig langar vissulega til þess að mega tala opinskátt um Ólaf sem einn bezta mann, sem ég hefi kynnst á lífsleiðinni og þá get- ur verið nauðsynlegt og eðlilegt að grípa til býzna sterkra lýsingar- orða, en slíkt veit ég að myndi vera Ólafi mikið á móti skapi, svo hóg- vær og yfirlitslaus sem hann hef- ur verið allt sitt líf. Eg verð því að spara lofsyrðin, sem hann þó vissu- lega á skilin, þótt kveðjan verði að sama skapi fátæklegri en efni standa til. Ólafur fæddist að Kverngrjóti í Saubæ 14. febrúar 1903, sonur hjónanna Helga Helgasonar og Ingibjargar Friðriksdóttur, sem þá bjuggu þar. f>au fluttu síðar að Gautsdal í Geiradal á Barðaströnd og bjuggu þar í fögru umhverfi upp af Króksfirðinum með Barma- hlíðina og Reykhólasveitina til vesturs og Gilsfjörðinn ti! austurs. Mikil vinnusemi og elja efldi hag þeirra og þau bjuggu góðu búi á þeirra tíma mælikvarða. Þarna átti Ólafur bernsku sína og unglingsár í hópi systkina og traustra foreldra við venjuleg sveitastörf, sem voru honum einkar hugleikin, enda kom þá strax í ljós sá mikli ræktunará- hugi, sem honum er í blóð borinn og einkennt hefur hann allt hans líf. Þá kom strax í ljós þessi einstaki hæfileiki hugar og handa til þess að gera moldina frjósamari, gróand- ann grænni og blómin fegurri, þessi einstaki hæfileiki til þess að gæða allt lifandi í umhverfinu auknum þroska og meiri fegurð. Hann virkj- aði bæjariækinn og veitti ljósi og yl í híbýlin og vann hörðum hönd- um að endurbótum á landinu. Raf- stöðin í Gautsdal var ein fyrsta raf- stöðin til sveita, en Ólafur var enn nánast unglingur að árum, þegar hann braust í byggingu hennar. Ég veit að hugur Ólafs stóð ti! langskólanáms, enda er hann einn þeirra manna, sem fékk mikla greind og góðar gáfur í vöggugjöf. Eg veit að læknisstörf eða vísind- astörf á sviði jarðræktar hefðu leikið honum í höndum, en efnin á þeirri tíð leyfðu ekki að slík áhuga- mál næðu fram að ganga. Hann hvarf til búnaðarnáms að Hvann- eyri og lauk þar prófi með miklum ágætum eftir tvo vetur fyrir 60 árum síðan. Hanri fór aftur til bún- aðarstarfa að Gautsdal og hlúði að jörðinni með föður og bræðrum. Hann kvæntist 1935 Ólöfu dótt- ur Sigríðar og Ingimundar bónda í Bæ í Króksfirði, en hún hefur síðan verið hans samhenti og trausti lífs- förunautur. Jarðnæði var ekki fyrir hendi fyrir ungu hjónin að hefja búskap í heimabyggð og þau hurfu því til Reykjavíkur, þar sem Ólafur r i ■* .mars ■ •» eintak □AIHATSU CHAR 1983 Nu er stora tækifærið að vera með Aöeins skuldlausir askriíendur geta tekið þatt í getrauninni Getraunaseðlarnir birtast í laugardagsblöðunum Siðumula 15, Reykjavik hóf störf sem tollvörður, en því starfi gegndi hann alla tíð síðan meðan aldur leyfði, ýmist við toll- gæzlu, á skrifstofu tollstjóra eða á tollpóststofunni. En þótt á mölina væri komið héldu þau áfram að rækta garðinn sinn í eiginlegum og óeiginlegum skilningi. Þau bjuggu sér notalegt heimili í verkamanna- bústöðunum við Einholt og löðuðu fagran blóma- og trjágarð upp úr grýttu holtinu. Húsrými var ekki mikið en skapaði hlýlega umgjörð góðu heimili fyrir hjónin og dætur þeirra Sigríði, Ingibjörgu, Hildi- gunni og fósturdótturina Mörthu, auk þess sem jafnan var nóg rúm fyrir fjölda gesta, sem hjá þeim dvaldi lengri eða skemmri tíma, sérstaklega gamla vini og ættingja úr heimabyggð fyrir vestan. Gestrisnin var þá og jafnan síðan þeirra tryggi förunautur. Tak- markaðar tekjur nýttust samhentu og hagsýnu heimili ótrúlega vel og þau byggðu efri hæð og ris í fallegu tvíbýlishúsi við Tómasarhaga, sem þau fluttu í 1953. Einnig þar töfr- aðist fram hinn fegursti trjágarður á ótrúlega skömmum tíma. Heilsu- leysi hafði reyndar stundum barið að dyrum hjá Ólafi í gegnum árin, en því var eytt með einstakri bjart- sýni, góðu lunderni og sérstöku jafnvægi hugans, sem Ölafur á til að bera í ríkari mæli en margir aðrir. Það stóð því ekki í vegi gró- anda og betri hags. Þarna undu þau öll í gleði og eindrægni, hjónin, dæturnar og móðir Ólafs, Ingi- björg, en hún hafði flutt til þeirra hjónanna meðan þau enn bjuggu í litlu íbúðinni í Einholti eftir að hún varð ekkja. Hún fékk sæmdar- heitið „amma“ og var jafnan köll- uð amma af öllum, sem inn á heim- ilið komu, og þeir voru ekki fáir, því gestrisnin dvínaði ekki með ár- unum. Ég, sem þetta rita, kallaði hana einnig ömmu, þegar ég kom inn á heimilið fyrsta sinni fyrir árslok 1953 og alla tíð síðan, þar til hún andaðist 93 ára gömul, en þá vor- um við öll flutt í Garðabæ og við Sigríður, dóttir þeirra Ólafs og Ólafar, þá reynar flutt norður til Akureyrar. Við hófum búskap í risinu í Tómasarhaga 1956 og síðar byggðum við Ólafur tvö einbýlis- hús hlið við hlið í Garðabæ við Lindarflöt, þangað sem við fluttum 1964. Við hjálpuðum hvor öðrum mikið við byggingarframkvæmd- irnar, en hann mér þó miklu meira við mitt hús en ég honum við hans. Við bjuggum reyndar ekki lengi hlið við hlið í Garðabænum, því við Sigríður fluttum til Akureyrar tveim árum síðar, en böndin hafa þó alltaf haldist jafn sterk. Allir, sem kynnast Ólafi, hljóta að laðast að honum og bindast hon- um tryggðarböndum. Það var mér mikið lán að kynnast honum 1953, meðan ég enn var ungur að árum og óharðnaður unglingur. Við höf- um síðan átt nána samleið sem tengdafeðgar og vinir og það hefur verið mér mikils virði að kynnast honum og eiga hann að. Ég ætla mér ekki þá dul að geta lýst hans góðu eigindum og orð verða reyndar fátækleg í því efni. Allir, sem kynnst hafa Ólafi, vita, að þar fer einstakur drengskaparmaður, bjartsýnn, góðviljaður og ráðholl- ur. Orð eru því óþörf. Ég veit hins vegar, að þegar hugsað er til hins góða ræktarmanns lands og lýðs á vel við vísustefið, sem Ólöf, eiginkona Ólafs, kastaði fram þeg- ar hann varð sjötugur, en það er svona: Bráðum vakna blómin þín á ný er blessuð sólin hækkar göngu sína og litlir sprotar lifna fyrr af því að lífið gaf þeim ennþá nálaegð þína. Ungu frœin þekkja þína sál og þakklát tala þau sitt hljóða mál. Ég sendi Ólafi hugheilar ham- ingjuóskir í tilefni 80 ára afmælis- ins. Hlýjar tilfinningar þakklætis og virðingar streyma til hans frá okkur Siggu og börnunum. Ég veit að sömu tilfinningar streyma til hans frá Hildigunni og fjöl- skyldu hennar í Hafnarfirði, frá Ingibjörgu og fjölskyldu hennar í Danmörku og frá Mörthu og henn- ar fjölskyldu í Breiðdal. Guð gefi honum og Ólöfu fagurt ævikvöld. Valur Arnþórsson, Akureyri. eST. JÓSEFSSPÍTAU LANDAK0TI Hjúkrunarfræöingar Lausar stöður DEILDARSTJÓRI á handlækningadeild l-B. Umsóknarfrestur til 15. mars n.k. Lausar stöður hjúkrunarfræðinga nú þegar eða eftir samkomulagi: Lyflækningadeild ll-A Barnadeild Gjörgæsludeild Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu hjúkr- unarforstjóra í síma 19600, kl. 11-12 og 13- 15. • Blikkiðjan Ásgaröi 7, Garöabæ Önnumst þakrennusmiði og uppsefningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð SIMI 53468

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.