Þjóðviljinn - 12.02.1983, Side 23
Helgin 12. - 13. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23
bridge
Gott framtak
Umsjón
Ólafur
Lárusson
Umsíöustu helgi var
íslandsmótið í sveitakeppni
kvenna og spilara 25 ára og
yngri spilaö í íþróttahúsinu í
Hafnarfirði. Þettavarífyrsta
sinnsem keppterí
kvennaflokki en annað sinn í
yngraflokki.
5 sveitir spiluðu í hvorum flokki,
þrefalda umferð með 8 spila
leikjum. Fyrsti íslandsmeistari
kvenna varð sveit Esterar Jakobs-
dóttur en hún hlaut alls 196 stig. í
öðru sæti varð sveit Öldu Hansen
með 164 stig og í 3. sæti sveit Sig-
ríðar Eyjólfsdóttur með 151 stig. í
sveit Esterar spiluðu auk hennar:
Erla Sigurjónsdóttir, Hella Berg-
þórsdóttir og Kristjana Steingríms-
dóttir.
í yngri flokki varð íslands-
meistari sveit Karls Logasonar
með 203 stig. í öðru sæti varð sveit
Aðalsteins Jörgensen með 181 stig
og í 3. sæti sveit Ásgeirs Stefáns-
sonar með 154 stig. í sveit Karls
Logasonar spiluðu auk hans:
Hróðmar Sigurbjörnsson, Bragi
Hauksson og Sigríður Sóley Krist-
jánsdóttir.
Keppnisstjóri var Guðmundur
Sv. Hermannsson.
Rey kj a víkurmótið
í dag hefjast í Hreyfilshúsinu V/
Grensásveg úrslit Reykjavíkur-
mótsins í sveitakeppni.
Til úrslita keppa eftirtaldar
sveitir: sveit Jóns Hjaltasonar,
sveit Sævars Þorbjörnssonar, sveit
Ólafs Lárussonar og sveit Egils
Guðjohnsen.
Spiluð verða 40 spil milli sveita,
allir v/alla. í dag verða 60 spil spil-
uð, og síðari 60 spilin verða svo
spiluð á morgun (IV2 leikur hvorn
daginn).
A morgun verður sýnt á sýning-
artöflu, fyrir áhorfendur. Spila-
mennska hefst kl. 13.00 báða
dagana.
11. umferð mætast: Jón-Egill og
Sævar-Ólafur. í 2. umferð: Ólafur-
Jón og Egill-Svavar og í 3. umferð:
Jón-Sævar og Ólafur-Egill.
Frá Bridgefélagi
Suðurnesja
Nýlokið er sveitakeppni, svo-
nefnt JGT mót. 12 sveitir tóku þátt
í mótinu. Sigurvegari varð sveit Jó-
hannesar Sigurðssonar, en með
honum voru: Alfreð G. Alfreðs-
son, Gísli Torfason, Karl Her-
mannsson, Einar Jónsson.
Röð efstu sveita
1. sv. JóhannesarSigurðssonar...184
2. sv. Einars Júlíussonar.......161
3. sv. Guðmundar Ingólfssonar...151
4. sv. Inga Gunnarssonar........136
5. sv. Ilaraldar Brynjólfssonar.116
Revíuleikhúsið:
Karlinn í
kassanum
Revíuleikhúsið sýnir gaman-
leikinn Karlinn í kassanum í Hafn-
arbíói á sunnudagskvöld kl. 21.00
(ath. breyttan sýningartíma) og er
það síðasta sýning. Uppselt hefur
verið á sýningar að undanförnu.
Miðasala er á laugardag kl. 5-7 síð-
degis og á sunnudag frá kl. 5.
Síminn er 15444.
Aðalfundur félagsins var hald-
inn sl. mánudag. Ný stjórn var kos-
in. Formaður er Gísli Torfason, en
aðrir í stjórn eru Jóhannes Sigurðs-
son, Haraldur Brynjólfsson, Al-
freð G. Alfreðsson og Einar
Jónsson.
Nk. mánudag, 14. febr., hefst
meistaramót Suðurnesja í tví-
menning og verður spilað á mánu-
dögum í Stapa. Félagsmenn og
aðrir eru hvattir til að mæta.
Frá Bridgefélagi
Reykjavíkur
Að loknum 22 umferðum í aðal-
tvímenningskeppni félagsins er
staða efstu para þessi:
Hermann Lárusson - Ólafur Lárusson.... 278
Sigtryggur Sigurðss. - Stefán Guðjohnsen275
Aðalsteinn Jörgensen - Stefán Pálsson 225
Guðm. Arnarson - Þórarinn Sigþórss..202
Sigurður Sverriss. - Valur Sigurðss.194
Jón Ásbjörnss. - Símon Símonarson...179
Jón Baldurss. - Sævar Þorbjörnss.178
HjaltiElíasson-JakobR. Möller....142
Björn Eysteinss. -Guðm. Hermannss...135
Friðrik Guðmunds. -Hreinn Hreinss...126
Frá Bridgedeild
Barðstrendingafé-
lagsins
Staða 8 efstu sveita í Aðal-
sveitakeppni félagsins eftir 10. um-
ferðir:
stig
.... 139
....137
....125
....122
.... 112
.... 104
....102
.... 99
ið Logaland hefur alla tíð verið
miðstöð félagsins.
Þótt Logaland sé miðsvæðis í
héraðinu eiga margir alllanga leið
að spilastað. Má því segja að
aðstaða sé öll erfiðari en í þéttbýli,
auk þess sem sveitastörfin valda
því að spilamennska hefst mun
seinna kvöldsins en hjá öðrum
bridgefélögum. Undanfarin ár hef-
ur að jafnaði verið spilað á sex
borðum. Mun líflegra var þó hér á
árum áður og ekki óalgengt að
sögn hinna eldri félaga að spilað
hafi verið á 8-10 borðum að
staðaldri.
Fyrsti formaður var Jón Þórisson
og með honum í stjórn þeir Jakob
Magnússon og Gunnar Jónsson.
Eru þeir enn virkir félagar eins og
margir stofnenda þess. Steingrím-
ur Þórisson, fyrrverandi
kaupmaður í Reykholti var einn
stofnenda og skal hans getið hér
vegna þess að hann er einn þeirra
manna sem hvað mest hefur gegn-
um árin stutt að framgangi félags-
ins, mótað starfshættina og haldið
á lofti merki þess.
Núverandi formaður Bridgefé-
lags Borgarfjarðar er Þorvaldur
Pálmason og með honum í stjórn
þeir Örn Einarsson, Guðmundur
Þorgrímsson, Gunnar Jónsson og
Eiríkur Jónsson. Félagið hefur alla
tíð haft ánægjuleg og ágæt sam-
skipti við Bridgefélag Borgarness
og bridgefólk innan starfsmannafé-
lags Sementsverksmiðju ríkisins á
Akranesi. Guðmundarmót svo-
kallað telst orðið hér árlegur bridge-
viðburður. Hér er um að ræða
tvímenningsmót sem Guðmundur
Kr. Sigurðsson stjórnar. Mót þessi
eru haldin á víxl í Logalandi og
Borgarnesi, og er keppt um silruf-
stig. Guðmundarmótin eru opin að
öðru leyti en því að Vestlendingar
og Norðlendingar hafa forgang.
Það kemur í okkar hlut að sjá um
Guðmundarmót að þessu sinni og
er áætlað að það verði haldið um
miðjan mars.
í tilefni aldarfjórðungs afmælis
félagsins hefur verið ákveðið að
efna til afmælismóts laugardaginn
5. mars n.k.
Spilaður verður barometer og
hefst mótið sem er öllum opið kl.
10 árdegis. Þátttökutilkynningar
skulu hafa borist fyrir 26. febrúar
n.k. til Þorvaldar Pálmasonar í
síma 93-5185.
í haust hófst starfsemi félagsins
með firmakeppni. Spilaður var
þriggja kvölda einmenningur á 6
borðum. Úrslit urðu þessi:
1. Esso Hvalflrði
Þórir Leifsson................... 169
2. Bakkakotsbúið
Sveinbjörn Eyjólfsson..............161
3. Lyfasalan Kleppsjárnsreykjum
Þorsteinn Jónsson..................158
4. Jörfi
Magnús Bjarnason...................157
5. Félagsheimilið Logalandi
Eiríkur Jónsson....................154
6. Bændaskólinn Hvanneyri
Jakob Magnússon....................151
Meðalskor 144.
Félagið þakkar fyrirtækum í
Borgarfirði góðan stuðning.
Þriggja kvölda tvímenningur er
einnig afstaðinn. Spilaður var bar-
ometer 7 spil milli para.
Úrslit urðu þessi:
1. Þorvaldur Pálmason-Jón Viðar Jónm. 83
2. Gunnar Jónss.-JakobMagnúss..........81
3. Kristján Axelsson - Örn Einarsson...48
4. Ketilí Jóhanness. - Þorsteinn Jónss.46
Spilað var á 6 borðum. Meðal-
skor 0.
Til bridge-
félaganna
ftrekað skal til fréttafulltrúa fé-
laganna að senda reglulega inn efni
til birtingar í bridgedálkum
blaðanna því erfitt er að eiga við
þessi löngu bréf í ekki stærri þátt-
um. Þannig verður upplýsinga-
streymið örara, og á allan hátt við-
ráðanlegra til birtingar. Einnig, að
mun skemmtilegra er að birta fullt
nafn keppenda, en ekki einungis
fornöfn. Dagblöðin fara jú um
landið allt.
1. ViðarGuðmundsson..
2. Ragnar Þorsteinsson
3. Einar Flygenring...
4. Sigurður Kristjánsson
5. Sigurður ísaksson..
6. HermannÓlafsson ....
7. Jóhann Guðbjartsson.
8. Þorsteinn Þorsteinsson.
Frá Bridgefélagi
Borgarfjarðar
Bridgefélag Borgarfjarðar varð
25 ára á árinu sem leið. Það mun
hafa verið stofnað í janúar 1957 af
íbúum Reykholtsdals, Hálsa-
sveitar, Hvítársíðu, Þverárhlíðar
og Andakíls. Félagið hét lengst af
Bridgefélag Reykdæla. Fyrir
nokkrum árum gerðist félagið aðili
að Bridgesambandi íslands, og var
þá nafni þess breytt. Félagsheimil-
færc mjólkurkæli -ÓRIDA ilv.. )u í inum! m
Floridana safar og þykkni Æ -bestukaupin! *
00
Opið
ALLAN
<
WREVFILL
STÆRSTA BIFREIÐASTÖÐ BORGA^N
oc
/