Þjóðviljinn - 12.02.1983, Side 24
24 SÍÐA - ÞJÓÐVlLJfNN Helgin 12. - 13: febrúar 1983
Á þessum árstíma fer hver
maður með réttu ráði á útsölu,
a.m.k. þeir sem hafa ekki alla vasa
úttroðna af seðlum og þeir eru
nokkrir. Á útsölum lækkar verð á
skyrtum og buxum um helming og
þar er því hægt að græða mörg
hundruð krónur. Þetta sýnir best
hversu góðhjartaða kaupmenn við
eigum og skýrir tapið. Ég fer alltaf
á útsölur.
Samt þarf ég alltaf að herða mig
dálítið upp áður en ég legg upp í
minn árlega útsöluleiðangur. Mér
hættir nefnilega til að kaupa of
stórt eða of lítið, of skræpótt eða of
dauft. í þetta sinn var ég búinn að
reyna að ýta mér að slánni þar sem
karlmannaskyrturnar héngu og
komst svo nærri að ég var í seiling-
arfjarlægð og gat þrifið í nokkrar.
Smám saman óx mér ásmegin og
var fa/inn að gefa illyrmisleg oln-
bogaskot, varð jafnvei nokkrum
sinnum fyrri til að taka í skyrtur
sem ég sá að einhver annar hafði
fengið augastað á.
Að lokum gerðist ég svo djarfur
að taka eina af slánni, blásvarta, og
þrýsta henni að brjósti mér svo að
hún yrði ekki af mér tekin. Síðan
lét ég mig reka í þeirri von að kon-
an bærist upp í fangið á mér og gæti
lagt blessun sína á þá blásvörtu.i
Mín árlega
útsöluferð
væflast töluvert um Laugaveginn
áður en ég herti upp hugann. Mér
fannst t.d. ekki viðeigandi - miðað
við aldur minn - að fara inn í
Sautján og eitthvað svona pempíu-
legt að fara inn á Pampillu - eða
hvað hún nú heitir.
Konan var með og að lokum dró
hún mig inn í hús sem á að líta út
eins og 700 ára gömul verslun í
City í London en er víst eitthvað
yngra. Ég var dreginn upp snar-
brattan og þröngan siga og sjá: þar
uppi var nú aldeilis handagangur í
öskjunni.
Konan fór strax að líta á pils og
sagði mér að fara inn í skot og líta á
karimannaskyrtur. Þarna voru
mest konur, unglingar og börn sem
tróðust fram og til baka, þrifu í flík-
ur, skoðuðu í krók og kring, þef-
uðu og mátuðu. Allir ætluðu að
grípa gæsina. Lengi vel var ég svo
utan við mig í öllum þessum látum
að ég lét mig bara berast með
straumnum, fram og til baka eins
og stefnulaust rekald. Svo fór ég að
Mér var ýtt fram og til baka, snúið f
hringi og stundum hnaut ég um
smábörn.
Annars voru allir eiginlega í
góðu skapi og þetta vandist. Lítill
patti sat við búningsbásana og kíkti (
undir vængjahurðirnar þar sem:
einhverjar smápíur voru að mátaj
buxur. Svo skellihló hann, tókbók-
staflega bakföll af hlátri. Sennilegaj
hefur hann ekki verið nema 5 ára.
Mamma hans eldroðnaði og reyndi |
að draga hann í burtu en hann
streittist við og hélt áfram að kíkja.
Þetta var sannkallað bíó og stelp-
urnar, sem voru að máta buxur,
fengu líka hláturskast.
Eg hélt blásvörtu skyrtunni sem
fastast að brjósti mér og loks bar
mig á fjörur konu minnar sem kom
mér á rétta braut í átt að af-
greiðslustúlku. Mikið var ég feginn
þegar allt var komið í kring og
minni árlegu útsöluferð lokið.
Þetta er svipað og að skila skatta-
framtalinu sínu.
-Guðjón
sunnudagskrossgátan Nr. 358
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á
ættbálki áttfætlna. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til
Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 358“.
Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send vinningshafa.
Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort
sem lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá
að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp,
því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því
eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir
því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í
þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sér-
hljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á og öfugt.
Verðlaunin
Verðlaun fyrir krossgátu nr.
354 hlaut Eiías Valgeirsson,
Efstasundi 55, Rvík. Þau eru
bókin Af manna völdum eftir
Álfrúnu Gunnlaugsdóttur.
Lausnarorðið var stofu-
depla.
Verðlaunin að þessu sinni
eru bókin Max og Helena
eftir Simon Wiesenthal sem
Fjölnir gefur út.
A Á B D D E ÉFGHlfJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
9 30 3 17 1 3 (p // /D
1 2 3 TF~ T— 6> 3 ¥ 1 'V' V 2 °i 10 ¥ u
12 /3 10 3 l¥ IT Uff 2 3 8 l¥ 10 V
¥ V 9 )¥ ~ 12 2 ? /9 ~T~ 20 \¥ ? ¥ 9
2t V 22 25 V 8 )0 2h w/ 0 V 22 /£>"
V /3 )0 9 7 )S~ 9 V 9 Z¥ á> )D )3
d )<r 10 22 V 9 ¥ 23 9 22 8 )¥ ¥
9 2sr 2¥ TT )¥■ T~ )2 23 2Ö V~ S
2* 7- ¥ 1 1 10 28 2¥
W 2* (29 11 12 z IÖ ¥ ¥ 3 )¥ ¥
29 11 7- V ¥ 2 )!>' ¥ 2 9 10 t/
9 2Z ¥ // 2¥ V 2(„ 0 1? V \r~ °) 22 3 )L7
¥ 22 2¥ 2? 22 )$ 3 (p i¥ 21 /8 ¥
)$ ¥ ¥ )£- 3 ¥ ¥ 3 S2 )S~ T~ 10 ¥