Þjóðviljinn - 10.03.1984, Page 12
12 SIÐA - ÞJOÐVILJINN Helgin 10. - 11. mars 1984
Guðmundur Valgeir Sigurðsson
Borgarnesi
Fœddur 30. des. 1912
Dáinn 3. mars 1984
I dag er kvaddur hinstu kveöju
Guðmundur V. Sigurðsson,
heiðursfélagi og fyrrverandi for-
maður Verkalýðsfélags Borgar -
ness.
Við fráfall Guðmundur koma
upp í huga minn ótal minningar frá
áratuga ánægjulegu samstarfi okk-
ar að félgsmálum. Mér er ríkt í
minni er ég sem unglingur, árið
1960, fylgdist með stjórnarkjöri í
Verkalýðsfélagi Borgarness. Fé-
lagsmenn gátu þá valið um tvo
lista, en það hafði oft gerst áður,
því að um árabil hafði óeining verið
ríkjandi og pólitískir flokkadrættir
drógu úr starfsmætti. Formanns-
efni á þeim lista, sem boðinn
var fram gegn þáverandi stjórn, var
Guðmundur V. Sigurðsson bif -
reiðastjóri. Flann varformaðuríbíl-
stjóradeild félagssins árið 1958, en
hafði fram að því lítið tekið þátt í
starfi félagsins. Þegar úrslit í
stjórnarkjörinu lágu fyrir kom í
ljós að listi Guðmundar hafði sigr-
að með fjögurra atkvæða mun.
Ég minnist þess, að Guðmundur
sagði mér frá því, þegar fráfarandi
formaður kom með eignir félagsins
á heimili hans, en þær voru:
skápur, kjörkassi og nokkrar krón-
ur í sjóði. Félagið hafði ekki fastan
samastað og voru stjórnarfundir
oftast haldnir heima hjá formanni
og þangað leitaði fólk ef það átti
erindi við Verkalýðsfélagið.
Guðmundur V.Sigurðsson og fé-
lagar hans gerðu sér strax ljóst að
friður yrði að ríkja innan félagsins
ef það ætti að geta orðið öflugur
málssvari alþýðu manna. And-
stæðingar stjórnarinnar reyndu að
gera henni erfitt fyrir, og fundir
voru hávaðasamir. Það var því ekki
auðvelt verk að gegna formennsku
í Verkalýðsfélagi Borgarness á
þessum árum, en Guðmundur
sýndi mikla þolinmæði og lagni,
sem leiddi til þess að eftir þrjú til
fjögur ár tókst að korna á einingu
innan félagsins.
Nýr tími öflugs félagsstarfs rann í
garð.
Að sjálfsögðu voru kjara- og at-
vinnumál aðal viðfangsefnið, en
Guðmundur lagði áherslu á fjöl-
breytt félagsstarf. Hann hvatti
mjög til þess að haldnar væru árs-
hátíðir á vegum félagsins og var
hrókur alls fagnaðar á þeim sam-
komum. Þá beitti Guðmundur sér
fyrir skemmtiferðum að sumarlagi.
Ferðalögin voru ánægjulegur þátt-
ur í félagsstarfinu, sem margir
minnast með þakklæti. Guðmund-
ur átti gott myndasafn úr ferðum
þessum, svo og öðrum, sem hann
fór. Hann kunni vel að meta fegurð
landsins og bjó yfir fróðleik um
hinaýmsu staði, sem komið var til.
Arið 1964 var tekið á leigu hús-
næði undir starfsemi Verka-
lýðsfélagsins. Árið 1972 tókst svo
að koma á samvinnu milli stéttar •
félaganna í Borgarnesi. Guðmund-
ur lagði sig fram, að af þessu sam-
starfi yrði. Þar var stigið mikið
heilla spor.
Jafnhliða formennsku í Verka-
lýðsfélagi Borgarness hlóðust á
Guðmund fjölmörg trúnaðarstörf.
Hann tók þátt í stofnun Lífeyris-
sjóðs Vesturlands og átti sæti í
stjórn sjóðsins frá 1970 - 1976, og í'
stjórn Sjúkra- og orlofssjóðs
Verkalýðsfélags Borgarness frá
stofnun sjóðanna til dauðadags.
Fulltrúi á þingum ASÍ frá 1960 -
1976 og fulltrúi á þingum VMSf
meðan hann var formaður. Þá var
Guðmundur varamaður í sam-
bandsstjórn ASÍ. í trúnaðar-
mannaráði Verkalýðsfélags
Borgarness átti hann sæti til aðal-
fundar 1983. Guðmundur átti sæti í
hreppsnefnd Borgarneshrepps frá
1966 - 1970. Þar lét hann atvinnu-
mál sig miklu varða og var á þess-
um árum í atvinnumálanefnd, sem
starfaði á Vesturlandi.
Guðmundur gegndi formennsku
í Verkalýðsfélagi Borgarness til
ársins 1973, en þá gaf hann ekki
kost á sér til endurkjörs. Hann var
farsæll formaður, sem naut þakk-
lætisog virðingarað starfiloknu. Á
50 ára afmæli félagsins 1981 var
Guðmundur einróma kjörinn
heiðursfélagi þess.
Árið 1944 gerðist Guðmundur
starfsmaður Kaupfélags Borgfirð-
inga, sem bifreiðastjóri. Það starf
stundaði hann lengst af til ársloka
1982. Félagsmálastörf Guðmundar
voru því öll unnin í frístundum, án
þess að greiðsla kæmi fyrir. Oft
varð því vinnudagurinn langur.
Hann varði ómældum tíma í þágu
félagsins en aldrei heyrði ég hann
kvarta yfir því.
Það var lærdómsríkt að vinna
með Guðmundi að félagsmálum.
Hann lagði jafnan áherslu á að
leysa mál með sátt, en ef það tókst
ekki var Guðmundur fastur fyrir og
gekk ótrauður ti! baráttu. Hann
hvatti ungt fólk til starfa í félaginu.
Þegar ég hóf störf í stjórn Verka-
lýðsfélags Borgarness ungur að
árum mætti ég sérstakri velvild og
hjálpsemi hjá Guðntundi. Til hans
var ávallt gott að leita ef vanda bar
að höndum.
Mér er nú efst í huga þakklæti
fyrir góð ráð og vinsemd, sem Guð-
mundur sýndi mér í öllu okkar
samstarfi fyrr og síðar.
Á heimili Guðmundar var
ánægjulegt að koma. Þar ríkti jafn-
an glaðværð og gott viðmót. Það
eru margar góðar minningar frá
þessum árum.
Kona Guðmundar var Ingvarína
Einarsdóttir. Hún varð bráðkvödd
20. nóvember 1972. Það varð
Guðmundi þungt áfall, en hann var
þástadduráþingi ASÍ í Reykjavík.
Börn þeirra hjóna eru: Erla
Guðrún búsett í Danmörku, Þor-
geir og Eydís búsett í Borgarnesi.
Á kveðjustund þakkar Verka-
lýðsfélag Borgarness Guðmundi
V. Sigurðssyni ómetanleg störf í
þágu félagsins, og við sem unnum
með honum söknum góðs vinar og
félaga.
Verkalýðsfélag Borgarness hef-
ur nú misst einn sinn besta liðs-
mann, en áhrifa starfa hans í fé-
laginu mun lengi gæta.
Ég vott ástvinum Guðmundar
innilega samúð.
Jón Agnar Eggertssson
„Og lífsins kvöð og kjarni er það
að líða,
og kenna til í stormum sinna tíða".
St.G.St.
Enn falla vinir og samherjar í
valinn. Nú er það Guðmundur vin-
ur minn Sigurðsson, fyrrum for-
maður Verkalýðsfélags Borgar -
ness, mjólkurbílstjóri hjá Kaupfé-
lagi Borgfirðinga svo lengi sem ég
hefi þekkt hann.
Fyrir nokkru heimsótti ég hann á
Sjúkrahús Akraness, þar sem hann
hafði dvalið í nokkurn tíma. Var
hann þá hinn hressasti, og við á -
kváðum að fara í ferð útá Mýrar,
þaðan sem Guðmundur var ættað-
ur, þegar voraði og daginn tæki að
lengja. Næst þegar ég ætlaði að
heimsækja hann, var hann dáinn.
Það verður víst ekkert af því að við
förum í þessa ferð á Mýrarnar að
sinni, hann er lagður í aðra ferð
með nesti og nýja skó. Ég segi nesti
og nýja skó, því að ef eitthvað er
framundan eftir þetta líf, þá er
Guðmundur vel búinn til slíkrar
farar.
Ég heyrði hann oft nefndan
Guðmund góða, af samferða-
mönnum sínum, og ég hyg að það
hafi ekki verið að ófyrirsynju. í ná-
vist hans varð allt eitthvað betra og
léttbærara. Hann barði aldrei í
brestina, heldur tók yfirvegaða af-
stöðu með mönnum og málefnum.
Það var gaman að heyra hann
segja frá því, hvernig hann, verka-
maðurinn og Framsóknarmaður-
inn, leitaði sér samsvörunnar í pól-
itískum flokki og varð sósíalisti
eftir átökin 1942. Þetta ergömul og
ný saga þeirra, sem á kreppuárum
verða að berjast fyrir lífi sínu og
sinna, og sú barátta stendur oft svo
glöggt, að engu má muna.
Guðmundur V. Sigurðsson vár
fæddur 30. des. 1912 á Smiðjuhóls-
veggjum í Álftaneshreppi á Mýr-
um, kotbæ, sem nú er löngu kom-
inn í eyði. Foreldrar hans voru þau
hjónin Sigurður Othúelsson og Er-
lendína Erlendsdóttir. Hann
kynntist kjörum fátæks fólks frá
upphafi og fór snemrha að sjá fyrir
sér sjálfur, eins og þá var títt. Fór í
verið suður með sjó og hann sagði
oft frá því að afraksturinn hefði
ekki verið í réttu hlutfalli við erfið-
ið og vosbúðina.
Kona Guðmundar var Ingvarína
Einarsdóttir, ættuð úr Innri Akra-
neshrepp. Hún varð bráðkvödd
árið 1972, og var það mikið áfall
fyrir Guðmund, og ég held að hann
hafi aldrei orðið samur maður á
eftir. Þau áttu þrjú börn. Erlu, sem
er elst, gift dönskum manni Boy
Petersen og búa þau í Danmörku.
Þangað þótti Guðmundi gott að
fara og dvelja með þessari fjöl-
skyldu sinni. Fór hann þangað oft
þegar hann átti frí. Hin börnin búa
í Borgarnesi, en þau eru Þorgeir,
hans kona er Rebekka Benjamíns-
dóttir, og Eydís gift Þorsteini
Benjamínssyni. Rebekka og Þor-
steinn eru systkini. Barnabörnin
eru orðin átta.
Guðmundur var bílstjóri hjá
Kaupfélagi Borgfirðinga frá 1944
og til ársloka 1982, er hann kenndi
sér þess sjúkleika, sem nú hefur
dregið hann til dauða. Áður hafði
hann unnið algenga verkamanna-
vinnu hér og þar. Guðmundur
keyrði í mörg ár mjólk til okkar
Akurnesinga og varð honum og
okkur konunum sem þá unnum í
Mjólkurbúðunum vel til vina og
söknuðum við hans innilega þegar
mjólkurbúðunum var lokað og við
hættum að geta gefið honum kaffi-
sopa og spjallað við hann um lands-
ins gagn og nauðsynjar, sem hann
ræddi af góðlátlegri kímni, en þó
^ar alltaf alvara á bak við.
Dýrmætust urðu kynni mín af
Guðmundi í verkalýðs- og
stjórnmálum. Þar vorum við saa%
stíga og samtaka. Hann var félags-
hyggjumaður, og hafði einlægan
metnað fyrir hönd verkafólks, og
hann óttaðist að afskiptaleysi fólks
um kjör sín kæmi niður á því fyrr en
síðar. Hann hafði lifað kreppuna
og vissi hvað það var, kannaðist við
lítilsvirðingu atvinnurekenda og
stjórnvalda á verkafólki, og hvern-
ig aðeins samtakamáttur fólksins
gat breytt kjörum þess og viðhorf-
um. Hann minntist þess oft hvernig
Dagsbrún var forustufélag á þess-
um árum og færði fólki um allt land
afraksturinn af baráttunni.
Við Guðmundur áttum oft tal
saman, og ég minnist þess að
stundum hitnaði honum í hamsi.
Þá stóð hann upp, tók í nefið, og
snýtti sér síðan hraustlega, gekk
kannski góða stund um gólf og
endurtók að verkafólki hefði aldrei
verið rétt neitt á silfurdiski, það
sem náðst hefði væri fyrir samstíga
baráttu fólksins og ekkert annað,
atvinnuleysistryggingar, orlof,
sjúkrasjóðir, lífeyrissjóðir ofl. ofl.
en það gæti verið fljótlegt að glutra
þessu niður ef fólk gætti ekki vöku
sinnar.
Heimili Guðmundar var góður
áningarstaður fyrir okkur sem vor-
um í argaþrasi stjórnmálanna. Það
kom fyrir að ég eldaði kjötsúpu
heima hjá honum fyrir svanga
fundarmenn, sem þeyttust um
kjördæmið þvert og endilangt til að
koma Jónasi Árnasyni á þing. Það
voru skemmtilegir tímar og ekki
var verra að vita af Guðmundi á
mörgum þessara funda. Menn voru
ekkert að telja eftir sér að fara á
milli fundarstaða til þess að hvetja
frambjóðendur.
Við áttum líka saman margar
skemmtilegar ferðir um landið
okkar. Hann hafði mikið yndi af
ferðalögum og ferðaðist mikið ut-
anlands og innan. Alltaf var hann
sami ljúfi og góði ferðafélaginn. Í
fyrravor fórum við nokkrir félagar
út á Mýrar, þaðan sem þeir félag-
arnir Guðmundur og Sigurður
Guðbrandsson eru ættaðir. Þeir
kepptust við að fræða okkur um
staðhætti og um lífshætti fólksins,
sögðu ökkur margar merkilegar og
um leið skemmtilegar sögur af
körlum og kerlingum á Mýrunum.
Við fórum með útfallinu út í
Straumfjörð á Mýrum. Gengum
þar um garða, sem eru að verða
aðeins endurminning um fyrri
frægð. Þarna er búskapur hættur,
eins og víða annarsstaðar.
Við horfðum út til Hnokka, sem
er skerið þar sem franska hafrann-
sóknarskipið Pourquoi-Pas strand-
aði og allir mennirnir fórust utan
einn. Guðmundur sagði okkur
sögu af því, hvernig þessum eina
skipbrotsmanni hafði liðið eftir að
honum var bjargað í land. Hann
gat ekki hvílst, ekki talað við neinn
sem skildi hann, virtist liggja við
sturlun, en það var gömul kona á
bænum sem kunni kvæði á frönsku
og hún söng það fyrir hann, þar til
hann náði að sofna.
Þannig fléttaðist landið og sagan
saman og það var óþrjótandi efni.
Niður áranna rennur hægt og þungt
að sama ósi, kynslóðir koma og
fara, allar sömu leið.
Og nú ert þú vinur minn horfinn
á vit minninganna, og ég kveð þig
með orðum skáldsins.
„Ég kveð þig ugglaus, um það
lokast sárin.
Á eftir blessun, þakkirnar
og tárin".
Ástvinum þínum öllum bið ég
blessunar.
Bjarnfríður Leósdóttir.
Laugardaginn 3. þ.nt. lést Guð-
mundur V. Sigurðsson fyrrum for-
maður Verkalýðsfélags Borgar-
ness, liðlega 71 árs að aldri.
Guömundur var fæddur að
Smiðjuhólsveggjum á Mýrunt
þann 30. desember 1912 og voru
foreldrar hans hjónin Erlendína
Erlendsdóttir og Sigurður Otúels-
son, en þau bjuggu lengst af í
Leirulækjarseli á Mýrum.
Guðmundur mun hafa stundað
öll algeng störf framaan af ævi, en
1944 er hann kominn til Borgar-
ness og starfaði eftir það nær ein-
vörðungu hjá Kaupfélagi Borgfirð-
inga og lengst af sem bílstjóri.
Guðmundur kvæntist árið 1944
Ingvarínu Einarsdóttur, hinni
ágætustu konu. Ingvarína lést 20.
nóvember 1972 langt fyrir aldur
fram. Var fráfall hennar Guð-
mundi mikið áfall.
Þau hjónin eignuðust 3 börn sem
upp komust: Erlu Guðrúnu fædda
1945, en hún er búsett í Danmörku
og gift þarlendum manni, Þorgeir
fæddan 1949 og Eydísi fædda 1951;
eru bæði gift og búsett í Borgar-
nesi.
Þau Guðmundur og Ingvarína
bjuggu síðari ár sín í Borgarnesi að
Þórólfsgötu 8 og áttu þar mjög hlý-
legt og notalegt heimili.
Það for ekki hjá því að á Guð-
mund hlæðust trúnaðarstörf, enda
maðurinn mjög félagslyndur að
eðlisfari. Hann var formaður bíl-
stjóradeildar Verkalýðsfélags Borg-
arness árið 1958 og tveimur árum
seinna varð hann formaður verka-
lýðsfélagsins og var ávallt endur-
kjörinn meðan hann gaf á því kost
eða til 1973, hefur enginn annar
gegnt formannsstarfi í félaginu svo
lengi. Hann var fulltrúi félagsins á
þingum Alþýðusambands Islands
1960-1976 og á þingum Verka-
mannasambands íslands frá stofn-
un þess 1964 til 1973. Þá átti hann
um skeið sæti í sambandsstjórn
ASI sem yaramaður.
Guðmundur vann mjög mikið
starf við stofnun Lífeyrissjóðs
Vesturlands og átti sæti í fyrstu
stjórn hans.
í trúnaðarmannaráði Verkalýðs-
félagsins átti hann sæti frá 1960-
1982 að hann gaf ekki kost á því
lengur af heilsufarsástæðum. I
stjórn sjúkra- og orlofssjóð átti
hann sæti frá stofnun sjóðsins til
dauðadags.
Þá sat hann eitt kjörtímabil
1966-1970 í hreppsnefnd Borgar-
neshrepps fyrir Álþýðubandalag-
ið.
Af framangreindri upptalningu
er ljóst að Guðmundur hefur skilið
eftir sig verulegan þátt í sögu
verkalýðshreyfingarinnar í Borgar-
nesi og nafn hans er skráð í sögu
Verkalýðsfélags Borgarness með
óafmáanlegum hætti.
Eins og áður segir var Guð-
mundur að eðlisfari mjög félags-
lega sinnaður og hafði flest það til
að bera, sem góðan félagsmála-
mann má prýða. Hann átti mjög
létt með að umgangast fólk, og var
laginn að leita heppilegra leiða til
lausnar félagslegum vandamálum
án þess að missa sjónar á þeim
meginmarkmiðum, sem að var
stefnt hverju sinni. Hann var ein-
lægur verkalýðssinni og sósíalisti
að lífsskoðun en laus við alla
kreddufestu og einstrengingshátt.
í persónulegri viðkynningu var
hann einstakt ljúfmenni og hjálp-
fús svo að af bar. Ég held að hann
hafi notið þess af heilum hug að
rétta vinum sínum og félögum
hjálparhönd og gera þeim greiða,
m.a. þess vegna var gott að leita til
hans með vandamál hvort heldur
það snerti hina daglegu önn, eða
um stærri framtíðarverkefni væri
að ræða. Hann var einn þeirra
manna sem hver maður verður
ríkari af að kynnast og eiga að vini.
Ég átti þess nokkrum sinnum
kost að njóta gistivináttu og gest-
risni hans og þeirra hjóna; frá þeim
stundum á ég, og við hjónin,
ómetanlegar minningar.
Má ég svo að lokum þessara fáu
og fátæklegu orða þakka Guð-
mundi Sigurðssyni samfylgdina og
samvinnuna. Við hjónin sendum
Framhald á bls. 13