Þjóðviljinn - 10.03.1984, Blaðsíða 28
MOBVIUINN
Helgin 10. - 11. mars 1984
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaöamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiöjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Yfirvinnubann boðað í Eyjurn
„Það siglir allt í átök“
„Það siglir allt í átök hér í Eyjum, viðerum búin að boða
yfirvinnubann með og frá nk.föstudegi“sagði Jón Kjartans-
son formaður verkalýðsfélagsins í Vestmannaeyjum begar
Þjóðviljinn hafði samband við hann í gær. Fundur með
samninganefndum verkalýðsfélagsins og Snótar með at-
vinnurekendum hófst kl. hálf ellefu í gærmorgun. Uppúr
slittnaði þegar ljóst var að engin vilji var hjá atvinnurekend-
um að ná samkomulagi. Kröfu atvinnurekenda um að
deilunni yrði skotið til ríkissáttasemjara var hafnað af hálfu
fulltrúa verkafólks.
„Það er mikill einhugur meðal fólksins hér í Eyjurn og
hugsanleg átök koma til með að grípa allstaðar inní atvinnu-
lífið“ sagði Jón Kjartansson að lokum.
-R.Þ.
Kennarar gegn
kjararáni
Sjómenn og útgerðarmenn:
Baráttu-
fundur í
Sigtúni
Kennarar á suðvesturhorni
landsins hafa boðað til baráttu-
fundar í Sigtúni á þriðjudaginn 13.
mars kl. hálf fjögur um kjarasamn-
inga BSRB og ríkisvaldsins.
Þjóðviljanum hefur borist eftir-
farandi fréttatilkynning um þenn-
an fund:
„Þriðjudaginn 13.3 n.k. kl. 15.30
munu kennarar á suðvesturhorni
landsins koma saman til baráttu-
fundar í Sigtúni við Suðurlands-
braut.A fundinum er ætlunin að
ræða nýgerða kjarasamninga
BSRB og ríkisins, og kjör kennara.
Gífurlega óánægja er nú meðal
grunnskólakennara vegna slæmra
kjara og má benda á að byrjunar-
laun kennara eftir þriggja ára há-
skólanám eru 14.792 kr. Þá var
þeirri eðlilegu jafnréttiskröfu hafn-
aðaðspor í átt til kennsluskyldu-
styttinguyrði tekið þráttfyrir gefin
loforð fyrrverandi fjármálaráð-
herra. Þetta m.a. leiddi til þess að
allir samningarnefndarmenn
Kennarasambandsins níu að tölu
greiddu atkvæði gegn samningun-
um.
Dagskrá fundarins verur sem hér
segir: Valgerður Eiríksdóttir setur
fudninn. Þá mundu eftirtaldir
flytja stutt ávörp: Jóhanna Karls-
dóttir Grundarskóla, Akranesi.
Þórdís Mósesdóttir, Hafnarfirði.
Guðlaug Teitsdóttir Vesturbæjar-
skóla, Reykjavík. Bjarni Ansnes,
Flúðaskó'a. Fundarstjori verður
Gísli Baldvinsson, kennari. Gert er
ráð fyrir að fundurinn standi í
tvær klukkustundir.
Undanfarna viku hafa 30-40 bændur dvalið á Hótel Sögu í sk. bændaorlofi, sér til hvíldar og ressingar. Þessu bændaorlofi lýkur nú urn helgina en í gær
fór landsbyggðarfólkið m.a. í skoðunarferð til verksmiðja Álafoss þar sem þessi mynd var tekin. Ljósm eik.
Samband byggingamanna undirritaði kjarasamning
4% hækkun umfram
ASÍ-VSÍ samning
auk þess sem nokkrar taxtatilfœrslur verða
Samningar hafa tekist á milli
Sambands byggingamanna og við-
scmjcnda þeirra með fyrirvara um
samþykki félagsfunda. Samkvæmt
heimildum Þjóðviljans tryggja
byggingamenn sér með þessu
samkomulagi talsvert umfram það
sem ASI-VSI samningarnir kveða á
um.
í samningi byggingarr.anna fá
þeir um það bil 4% hækkun sem
þeir telja sig hafa misst af umfram
aðra þegar bráðabirgðalög ríkis-
stjórnarinnar gengu í gildi. Auk
þess er um einhverjar taxtatilfærsl-
ur að ræða. Þá fá þeir þær hækkan-
ir sem samningar ASÍ og VSÍ
kváðu á um. Hins vegar nær 4%
hækkunin ekki til ákvæðisvinnunn-
ar nema að litlu leyti en í
samkomulaginu er yfirlýsing um
það að næsta sumar verði teknar
upp viðræður um endurskoðun
ákvæðiskerfisins með það fyrir aug
um að leiðrétta misvægið gagnvart
töxtum.
í dag mun verða félagsfundur
hjá Trésmiðafélagi Reykjavíkur
um hinn nýja samning. Fleiri félög
byggingamanna munu funda um
helgina svo og á mánudag og
þriðjudag.
-v.
Safna liði gegn kvótakerfinu
Mikill mótmœlafundur er í undirbúningi
Nokkrir útgerðarmenn og sjómenn hafa tekið höndum saman um að
safna liði gegn kvótakerfinu umdeilda og er ætlun þeirra að halda stóran
og mikinn mótmælafund um málið. Þeir sem að þessu standa hafa unnið að
undirbúningi fundarins síðustu daga. Er þetta gert algerlega utan við
samtök sjomanna og útgerðarmanna, Sjómannasambands Islands og LIU.
Skákin í Grindavík
Á fótinn hjá Jóni L.
Upphaf þessa á rætur að rekja til
mikils fundar sem útgerðarmenn á
sunnanverðum Vestfjörðum efndu
til sl. sunnudag. Sjómaður á Patr-
eksfirði, sem Þjóðviljinn ræddi við
í gær, sagði það ætlun manna að
safna öllum útgerðarmönnum og
eins mörgum sjómönnum saman til
mótmælafundar og hægt er.
Hann benti á að ef ekkert yrði að
gert í málinu, myndu tugir ef ekki
hundruð báta stöðvast vegna þess
að útgerðarmenn þeirra yrðu
gjaldþrota og í kjölfarið fylgja stór-
fellt atvinnuleysi sjómanna. Einnig
sagði þessi sjómaður að það væri
ekki bara ætlunin að mótmæla
kvótakerfinu heldur einfaldlega fá
það afnumið og yrði til þess beitt
öllum tiltækum ráðum.
Þjóðviljinn hefur haft af því
spurnir að ef kvótakerfinu verður
haldið til streytu sé hópurútgerðar-
manna og sjómanna tilbúinn til að
reyna að brjóta það og sjá til hvaða
ráða stjórnvöld þá grípa. Þau ráð
geti ekki geti ekki orðið verri en
ástandið hjá útgerðrmönnum ef
ekkert verður að gert. En þessi
stóri mótmælafundur sem þegar er
fyrirhugaður og unnið er að verður
fyrsta skrefið. -S.dór
Jón L. Árnason þarf aö fá einn og hálfan
vinning úr tveimur siðustu umferðunum á
skákmótinu i Grindavík til að ná áfanga að
stórmeistaratitli. Það verður þrautin
þyngri, - hann á eftir þá Gutman og Lomb-
ardy. Jón gerði í gær jafntefli við Elvar
Guðmundsson og er enn efstur á mótinu
með 6'/2 vinning.
Önnur úrslit í 9. umferðinni voru þessi:
Gutman vann Ingvar Ásmundsson,
Christiansen vann Helga Ólafsson,
McCambridge vann Jóhann Hjartarson,
Knezevic og Björgvin gerðu jafntefli og
skák þeirra Lombardy og Hauks Angant-
ýssonar fór i bið. Lombardy er talinn hafa
betri stöðu.
Jón L. er með 6V2 vinning í efsta sæti en
á hæla honum koma þeir Christiansen og
Gutman með 6 vinninga. I fjórða sæti er
McCambridge (5’/2 v.) og þar á eftir Helgi
og Knezevic með 5 vinninga.
Alþjóðlega skákmótinu i Grindavík lýk-
ur nú um helgina. Næst síðasta umferðin
hef st i dag, laugardag, klukkan tvö og síð-
asta umferð á sama tima á sunnudag.
Teflt er í félagsheimilinu Festi. -m