Þjóðviljinn - 11.10.1985, Blaðsíða 1
UM HELGINA
GLÆTAN
LANPIÐ
HEIMURINN
Þá er bara að hætla
Hörð átök á þingflokksfundi Sjálfstœðisflokksins. Albert harkalega gagnrýndurfyrir BSRB-
samninginn. Egill Jónsson: Úti er œvintýri. Friðrik Sophusson: Ogþá er bara að hœtta
þessu. Matthías og Ragnhildur studdu Albert á ríkisstjórnarfundi. Steingrímurþrœtirfyrir
samþykki sitt. Kristján Thorlacius: Ég var vitni að samþykkt Steingríms
Uti er ævintýri, sagði Egill
Jónsson er hann stikaði útúr
þingflokksherbergi Sjálf-
stæðisflokksins ásamt flokks-
bræðrum sínum sem allir voru
hinir reiðustu í fasi eftir mikinn
átakafund sem stóð í tæpar tvær
klukkustundir í stað 15 mínútna
eins og áætlað hafði verið.
Haft var eftir Þorsteini og
Steitígrími Hermannssyni forsæt-
isráðherra í gær að þeir hefðu
aldrei samþykkt samninginn. En
í samtali við Þjóðviljann kvaðst
Kristján Thorlacius hafa orðið
vitni að samþykki forsætisráð-
herra. „Ég fullyrði að Steingrím-
ur Hermannsson gaf samþykki
sitt“, segir formaður BSRB í við-
talinu við Þjóðviljann. Ál/óg
Sjá baksíðu.
Við samþykktum ekki. Þorsteinn Pálsson og Steingrímur Hermannsson á alþingi í gær. Formaður BSRB varð vitni að samþykki Steingríms.
Þingmynd- Sig.
Verkalýðshreyfingin
Við heimtum leiðréttingu
GuðmundurJ. Guðmundssonformaður VMSÍ: Munum
leita eftirsömu leiðréttingu og BSRBfékk. Björn Þórhallsson
varaforseti ASÍ: Samningurinn við BSRB viðurkenning
ríkisstjórnarinnar á kjararýrnun
Albert gekk fyrstur útúr þing-
flokksherberginu og kallaði upp
fyrir sig: „Nei, ekki orð, ég segi
ekki orð“, en blaðamenn biðu
utan herbergis og ætluðu að
spyrja ráðherrann. Síðan gengu
þingmennirnir út hver af öðrum.
„Og þá er bara að hætta þessu!“,
sagði Friðrik Sophusson og ygldi
brún. Fleira heyrðist ekki frá
þingmönnunum og fóru þeir sam-
an í hópum af flokksfundinum.
Gífurleg spenna var í loftinu og
greinilegt að á fundinum hafði
heldur betur kastast í kekki, - og
drógu menn þá ályktun að
BSRB-kauphækkunin hefði
komið til tals sem og hugsanleg
stjórnarslit.
Þorsteinn Pálsson sat eftir
ásamt öðrum ráðherrum flokks-
ins (utan Alberts) og formanni og
varaformanni þingflokksins.
Eftir drykklanga stund, tíndust
þeir hver af öðrum útúr flokks-
herberginu. „Samningarnir voru
skýrðir, en þeir gátu ekki verið til
neinnar efnislegrar afgreiðslu á
þessum fundi, - þeir eru gerðir,
það er búið að skrifa undir“,
sagði Þorsteinn Pálsson og varð-
ist allra fregna af átökunum á
fundinum.
Á ríkisstjórnarfundi í gær-
morgun mun einnig hafa slegið í
brýnu vegna samningsins, en
samkvæmt heimildum Þjóðvilj-
ans munu þau Matthías Bjarna-
son og Ragnhiidur Helgadóttir
hafa stutt Albert Guðmundsson
og samninginn á fundinum.
Flugfreyjur
Sáttafund-
ur í dag
Stjórnin komin með
verkfallsheimild
Ríkissáttasemjari hefur boðað
til fundar með flugfreyjum hjá
Flugleiðum og viðsemjcndum
þeirra kl. 10 árdegis.
Kjarasamningur flugfreyja er
búinn að vera laus frá því 1. sept-
ember sl. og lítið miðað í sam-
komulagsátt ennþá þrátt fyrir
töluverð fundahöld. Félagsfund-
ur hjá flugfreyjum veitti stjórn fé-
lagsins í síðustu viku heimild til
verkfallsboðunar. Sú heimild
hefur ekki verið nýtt ennþá.
-Ig-
Ljóst er að verkalýðshreyfingin
mun fara af stað á næstu
dögum og krefjast samskonar
leiðréttingar á gildandi kjara-
samningi og BSRB fékk á sínum
samningi við ríkið í fyrradag.
Eins er Ijóst að BHM mun einnig
leita eftir leiðréttingu á sínum
samningi.
Það er alveg ljóst að við mun-
um fara þess á leit við okkar við-
semjendur að við fáum sömu
leiðréttingar á okkar samningum
og BSRB fékk á sínum. Ég á von
á því að málið verði tekið upp á
fundi stjórnar ASÍ öðru hvoru
megin við helgina og því síðan
fylgt fram við VSÍ, sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson for-
maður Verkamannasambandsins
í samtali við Þjóðviljann í gær.
Björn Þórhallsson varaforseti
ASI sagði að hann liti svo á að
með þessum samningi við BSRB
hefði ríkisstjórnin viðurkennt að
sú verðlagsspá sem var undir-
staða kjarasamninganna sl. vor
hefði ekki staðist og að ríkis-
stjórnin sé að mæta því með þess-
um samningi. Og ég trúi því ekki
að ríkisstjómin beiti sér ekki fyrir
því að fleiri en félagar í BSRB fái
þessa leiðréttingu og þess mun-
um við krefjast, sagði Bjöm að
lokum.
-S.dór