Þjóðviljinn - 11.10.1985, Side 2
FRÉTTIR
Tímarit
Félagsútgáfan stofnuð
Nýtt tímarit til eflingar félagshyggju og lýðrœði kemur út í nóvember.
Ifyrrakvöld var haldinn á Hótcl
Hofi stofnfundur hlutaféiags
sem hlaut nafnið Félagsútgáfan
hf. Tilgangur þess er einkum að
standa að útgáfu tímarits til
eflingar félagshyggju og lýðræði.
Hlutafjársöfnun hófst á fundin-
um og söfnuðust loforð að upp-
hæð 180 þúsund krónur.
Tímaritið, sem enn hefur ekki
hlotið nafn, á að fjalla um
„þjóðmál og menningarmál,
tækni og vísindi fyrir almenning.
Það dregur ekki taum neins á-
kveðins stjórnmálaflokks eða
hreyfingar. Pað hefur upplýsingu
að meginatriði og er ætlað að
vera lesendum sínum til gagnlegs
fróðleiks og skemmtunar", eins
og segir í plaggi sem undirbún-
ingshópur hefur unnið.
Ætlunin er að gefa út 8 tölu-
blöð á ári en stærðin er ekki
fullfrágengin, þó verða ekki færri
blaðsíður en 64 í venjulegu tíma-
ritsbroti. Á fundinum í fyrrakvöld
var staðfest ráðning ritstjóra og
framkvæmdastjóra en þeir eru
Jón Guðni Kristjánsson og
Ólafur Ólafsson. Auk þess er frá-
gengið að Áslaug Jóhannesdóttir
tekur að sér auglýsingasöfnun.
Á stofnfundinum í gær var Fé-
lagsútgáfunni kjörin stjórn en í
henni eiga sæti Asdís Ingólfsdótt-
ir, Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Magnús Ólafsson, Ólína Þor-
varðardóttir, Reynir Ingibjarts-
son, Svanur Kristjánsson og
Þröstur Haraldsson og í vara-
stjórn Jón Daníelsson, Ómar
Harðarson og Sigurjón Jóhanns-
son.
-Ig-
Við heimtum bara nýja ríkis-
stjórn
GARÐAB/ER
GARÐATORG 5
ÍNÝ|UM MIÐBÆ
Föstudaginn 11. október
eru tímamót í sögu Garðabœjar.
Þó flytja þrjórhöfuðviðskipta-og þjónustustofnanirbœjarbúa
í ný og glœsileg húsakynni
í hjarta nýja miðbœjarins við Garðatorg.
Búnaðarbankinn, Brunabótafélagið og Póstur og sími
bjóða Garðbœinga velkomna
í nýja húsið Garðatorgi 5,
til að skoða aðbúnað og þiggja léttar veitingar.
Heilsuvernd
10 tíma
skilyrðis-
laus hvíld
Verkamannasamband
íslands vekur athygli á
lögum og samningum um
hvíldartíma launafólks
Af gefnu tilefni vil VMSÍ taka
fram, að ákvæði laga frá 1980 um
aðbúnað, hollustuhætti og öryggi
á vinnustöðum um 10 klst. sam-
fellda hvfld á sólarhring og viku-
legan frídag er afgerandi og und-
antekningar einungis leyfðar ef
um er að ræða hjúkrunar- og
líknarstörf, vörslu dýra og gróð-
urs, sérstakar aðstæður við þjón-
ustu- og framleiðslustörf og
öryggisstörf og varðveislu verð-
mæta.
í samkomulagi ASI við VSÍ og
VMS frá 10. apríl 1981 er kveðið
skýrt á um það að sé vikið frá
vikulegum frídegi, skuli vera frí 2
daga næstu helgi á eftir þ.e. laug-
ardag og sunnudag. Slík tilfærsla
á vikulegum frídegi er því aðeins
heimil að um hana hafi verið gert
sérstakt samkomulag við við-
komandi starfsmenn.
Reykjavík
Bruna-
verðir
þinga
O Geymsluhólf fyrir vlð- Brunabótafélag íslands O Póst-ogsímaafgreiðslan
skiptamenn hefúr œtíð lagt óherslu ó opin mónudaga -
O Nœturhólf. að halda góðum tengslum föstudaga kl. 09-17.
O Visa greiðslukort, við viðskiptamenn sína. O óll almenn póst- og
O Ferðatékkar í helstu Með opnun nýrrar skrifstofu símaþjónusta, þ.ó.m.
gjaldmiðlum. í Garðabce skapast sala símtœkja og leiga
O Oll önnur innlend og möguleikartil betri og virkari pósthólfa.
erlend bankaþjónusta. þjónustu O Sími 51777.
O Nýr sími, 6517 00.
Nýr sími, 651740.
(^BÍNAÐARBANKINN B BHJnnBáTHFftflQD
\^_y TRAUSTUR EiANKI AFÖRYGGISÁSTÆÐUM PÓSTUR og sími
Dagana 11.-13 október nk.
verður haldið að Hótel Hof! í
Reykjavík 13. þing Landssam-
bands slökkviliðsmanna.
Þingið verður sett ki. 15.00
föstudaginn 11.
Helstu mál þingsins verða
væntanlega:
1. Skóla og menntunarmál ís-
lenskra slökkviliðsmanna.
2. Réttindamál slökkviliðs-
manna.
3. Aðstöðu og tækjakostur
slökkviliða á Islandi.
4. Hvað veldur að lítil sem engin
viðbrögð hafa komið upp
vegna skoðanaágreinings
brunamálastjóra og forstjóra
Brunabótafélags íslands um
hvort hér á landi séu óeðlilega
tíðir stórbrunar?
Má búast við að félagsmálaráð-
herra Alexander Stefánsson
ávarpi þingið og viðri skoðanir
félagsmálaráðuneytisins á ís-
lenskum brunamálum.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN