Þjóðviljinn - 11.10.1985, Síða 3
FRETTIR
Fjárhagserfiðleikar
Ásmundarstaðabúið til sölu
Eigendurþess hafa reistsér hurðarás um öxl við byggingu allt ofstórrar kjarnfóðurverksmiðju
Stærsta fiðurfjárbú landsins.
Ásmundarstaðabúið í
Rangárvallasýslu, er nú til sölu og
kostar 200 miljónir króna. Munu
ýmsir aðilar vera að skoða málið,
þar á meðal bæði ísfugl og ísegg
sem hafa áhuga á að kaupa búið,
sem bæði framleiðir kjúklinga og
egg-
Ástæðan fyrir því að búið er til
sölu, að sögn aðila sem Þjóðvilj-
inn ræddi við í gær og gerþekkir
til mála í þessari atvinnugrein, er
sú að eigendur Ásmundarstaða-
búsins, sem eru aðal eigendur
Fóðublöndunar hf., keyptu fóð-
urverksmiðju fyrir 3 árum á 90
miljónir króna. Nú er svo komið
að endurnýja verður allan vé-
lakostinn og kostar það ekki
undir 100 miljónum króna og
ráða eigendurnir ekki við það
nema með því að selja Ás-
mundarstaðabúið. Mun fjárhags-
staða þessarar fóðurverksmiðju
vera mjög erfið.
Þessi verksmiðja mun, eftir að
nýju vélarnar eru komnar, geta
framleitt margfalt meira magn af
fóðri en notað er á öllu landinu
auk þess sem hún þarf að standa í
samkeppni við þær fóðurverks-
miðjur aðrar sem fyrir eru í
landinu.
-S.dór
Fjárlögin:
Föstudagur 11. október 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Geir Gunnarsson og Skúli Alexandersson ganga vígreifir til átakaþings í gær. Mynd Sig.
Þorsteinn
mælir fyrir
fmmvarpi
Alberts
Þrír
aðstoðarráðherrar
Sjálfstœðismanna á
lausu? Geir Haarde
verður áfram í
fjármálaráðuneytinu
„Ætli það komi ekki í minn
hlut“, sagði Þorsteinn Pálsson í
gær, aðspurður um hver myndi
mæla fyrir fjárlagafrumvarpinu
margumrædda, í þinginu. Albert
Guðmundsson mun leggja frum-
varpið fram strax eftir helgi eins
og fjármálaráðherra ber, en Þor-
steinn sagði óvíst hvenær mælt
yrði fyrir því. Venjulega hefur
það verið gert í byrjun nóvember.
Þorsteinn sagði enga þversögn
fólgna í því að hann mælti fyrir
frumvarpi sem þingflokkur og
miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
hefði hafnað. „í Stykkishólmi var
aðeins tekin ákvörðun um að
frumvarpinu yrði breytt á ákveð-
inn hátt í meðförum þingsins“,
sagði Þorsteinn, „og það mun
verða gert“.
Geir Haarde hagfræðingur
mun áfram gegna störfum að-
stoðarráðherra í fjármálaráðu-
neytinu en engin ákvörðun mun
hafa verið tekin um hina aðstoð-
arráðherra Sjálfstæðismanna:
Ingu Jónu Þórðardóttur sem ver-
ið hefur hægri hönd Ragnhildar í
menntamálunum, Davíð Á.
Gunnarsson, aðstoðarráðherra í
heilbrigðisráðuneyti, og Hrein
Loftsson, aðstoðarmann við-
skiptaráðherra. _ÁI
Fréttamannastúkan
Dagur
á þingi
Þingmcnn Norðurlands munu
væntanlega fá meiri athygli í
fréttamannastúku alþingis í vet-
ur, því þar er nú mættur til leiks
fréttaritari Dags í Reykjavík,
Adolf Erlingsson.
Adolf hefur verið fréttaritari
blaðsins í Reykjavík frá því Degi
var breytt í dagblað og sagðist
hann í gær einkum hafa fjallað
um íþróttaviðburði hér syðra. Á
því verður nú breyting og sagðist
hann einkum mundu fylgjast með
frammistöðu sinna manna, þ.e.
þingmanna fyrir Norðurland
eystra og vestra. Þess má geta að
Adolf er tvíefldur: tekur bæði
ljósmyndir og skrifar fréttir.
kemur svartur í veg fyrir það. Eftir f3
leikur hann einfaldlega Dh8 og hefur
vinningsstöðu.
19. Df3 Dh8 20. Bg2
Karpov mS alls ekki langhróka.
Eftir 20. - Dh4 21. Hgl Rxf2 22. Bel
jeikur svartur Df4+! 23. Dxf4 Rd3+
og hefur unnið peð.
20. - Dh4
21. b3 dS 22. Dg3 Dxg3
Svartur virðist ekki eiga um neitt
annað að velja.
23. fxg3 Hd8
24. Ke2 Ke7
25. Bcl! d4
26. Ba3+ Ke8
27. cxd4 exd4
28. Hhl Rc5
29. Hh8+ Kd7
30. Hxd8+ Kxd8
31. Bb2 Bg4+
32. Kd2 Rf3+
jafntefli.
Eftir 33. Bxf3 (Kd3? Rel+ og
vinnur mann) BxO 34. Bxd4 g6 35.
Ke3 Bdl er komin upp staða með
mislitum biskupum sem er steindautt
jafntefli. Staðan: Karpov 7 Kasparov
7.
Karpovs-árásin
Alþingi
franTá
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Garry Kasparov
Sikileyjarvörn.
Karpovs árásin ■
1. e4 c5 Rxd4 Rc6
2. Rf3 e6 5. Rc3 d6
3. d4 cxd4 6- g4
Hvað heitir nú þessi byrjun?
Þetta líkist Keresar árásinni en þá
verður svartur líka að leika Rf6 í ein-
hverjum af næstu ieikjum. Ætli það
sé ekki bara best að kalla þetta Karp-
ovs árásina.
6. - h6 10- Dxd4 e5
7. h4 a6 11. Ddl Be6
8. Bg2 Be7 12. Rd5 Hc8
9. Bc3 Rxd4 13. c3 Rf6
Loksins kemur þessi riddari út.
14. Rxe7 Dxe7 15. g5 hxg5
16. hxg5 Hxhl +
17. Bxhl Rg4 18. Bd2
18. - Df8!
Hvítur hótaði að vinna riddarann
með B og De2. En með þessum leik
Biöstaöa
miövikudag
Síðasta atriði stólaleiksins hefurforgang. Reglubundinþingstörf hefjast á miðvikudag
Aþriðjudag verður fram haldið
setningarfundi alþingis frá í
gær og kosnir forsetar þingsins og
þingnefndir. Á miðvikudag verð-
ur síðan rikisráðsfundur og þar
fara hin formlegu stólaskipti
fram. Reglubundin störf alþingis
munu því ekki hefjast fyrr en síð-
degis á miðvikudag.
Það varStefán Valgeirsson,
aldursforseti alþingis^ sem stýrði
fundi í gær, en hann var stuttur og
hefðbundinn. Forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir; setti þing-
ið og þingmenn hylltu forseta og
fósturjörð með ferföldu húrra-
hrópi. Að því búnu minntist Stef-
án látins fyrrverandi þingmanns,
Axels Jónssonar, en hann átti
sæti á 16 þingum fyrir flokk sinn,
Sj álfstæðisflokkinn.
Þingflokksfundir voru stuttir
nema hjá Sjálfstæðisflokknum og
voru allir þingflokksformenn
endurkjömir nema hvað Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir var kosin
þingflokksformaður Kvennalista
í stað Kristínar Halldórsdóttur.
Karvels Pálmasonar sem er í
veikindaleyfi en stólar þeirra
Matthíasar Mathiesen og Birgis
Isleifs Gunnarssonar voru auðir.
Allir þingmenn utan þrír voru
mættir til þings í gær. Sighvatur
Björgvinsson hefur tekið sæti
Matthías er sem kunnugt er í Jap-
an en Birgir mun erlendis að
gagna erinda stóriðjunefndar.
-ÁI.