Þjóðviljinn - 11.10.1985, Blaðsíða 6
Hádegisjazz í Blómasal
Vegna mikilla vinsælda mun Hótel Loftleiðir halda áfram
með hádegisjazz fyrir alla fjölskylduna.
Sambland af morgun- og hádegisverði með léttri og lifandi
tónlist.
Þeir sem koma og leika í sunnudagshádeginu:
Kvartett Kristjáns Magnússonar.
Gestur: Björn Thoroddsen, gítarleikari.
Hressið upp á sunnudagstilveruna með léttum jazz og Ijúf-
fengum réttum í Blómasalnum.
Borðapantanir í símum 22321 og 22322.
Verið velkomin,
HÚTEL LOFTLEKJIR
hLUGLEIDA HOTEL
Félagsvist Dans
Áttahagafélag Strandamanna
minnir á félagsvist og dans laugardaginn 12. okt. kl.
20.30 í Domus Medica. Mætum öll.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahúsið í Húsvík óskar aö ráða hjúkrunarfræð-
inga, nú þegar eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 96-41333.
Sjúkrahúsið í Húsavík s/f.
Landvernd
Aðalfundur Landverndar verður haldinn laugardaginn
9. nóvember 1985 í Alviðru í Ölfusi og hefst kl. 9.30 f.h.
Á dagskrá fundarins verður:
1. Almenn aðalfundarstörf.
2. Kynning á fræðslusetrinu Alviðru.
3. Umræður um rannsóknir í umhverfismálum.
Stjórnin
Laus staða
Staða yfirmatsmanns á Vestfjörðum er laus til um-
sóknar.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi matsréttindi og
reynslu í sem flestum greinum fiskiðnaðar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf sendistsjávarútvegsráðuneytinu fyrir 1. nóv-
ember n.k.
Sjávarútvegsráðuneytið,
10. október 1985.
Lestu
aðeins
stjóniari>l<)ðin?
DJÓÐVIiJINN
Höfuðmálgagn
stjómarandstöðunnar
Áskriftarsími (91)81333
MANNLÍF
Á Sauðanesi á Ásum hlýða fundarmenn á Pál Jónsson skýra frá starfi föður síns, Jóns Pálssonar, við hina
umfanasmiklu skógrækt, er hann hóf þar. Mynd: sibl.
Skógræktin
Landið allt þarfnast vemdar
Nokkrar ályktanir frá aðalfundi
Meðal ályktana, sem skóg-
ræktarmenn samþykktu á fundi
sínum á Blönduósi og greint er frá
annars staðar hér ■ blaðinu, eru
þær, sem hér fara á eftir:
Aðalfundurinn telur brýnt að
ráðinn verði erindreki (ráðunaut-
ur) fyrir Skógræktarfélag íslands
og að ríkissjóður greiði sama
hluta launa hans og hann gerir
vegna ráðunauta búnaðarsam-
bandanna.
Fundurinn beinir því til stjórn-
ar Skógræktarfélagsins að hún
beiti sér fyrir breytingu á jarð-
ræktarlögunum í þá átt „að sem
minnstar hindranir verði því í
vegi að skógræktarfélög og aðrir
aðilar, sem ætla sér að stunda
skógrækt, fái keyptar jarðir eða
jarðahluta til skógræktar.
Fundurinn fagnar ákvörðun
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð-
inu um stórátak í trjárækt og
skorar á önnur sveitarfélög að
fara að dæmi þeirra.
Fundurinn beinir þeim tilmæl-
um til Skógræktar ríkisins að hún
stuðli að stofnun almennings-
garða á þéttbýlisstöðum til sveita
með því að leggja til stórar
hnausaplöntur úr ræktunar-
löndum sínum.
Fundurinn samþykkir að fela
stjórn félagsins að gera tillögu að
stofnun styrktarkerfis fyrir Skóg-
ræktarfélags íslands og leggja
fyrir næsta aðalfund.
Fundurinn telur nauðsynlegt
að endurskoða meðferð fjár-
veitinga til landgræðslu. Líta ber
svo á, að allt landið þarfnist land-
verndar og landgræðsluaðgerða.
Fundurinn telur að skjólbelta-
rækt eigi að flokka undir land-
vernd og að stór aukinn hluti af
landgræðslufé eigi að renna til
þessa verkefnis.
Fundurinn skorar á Búnað-
arfélag íslands að við þá endur-
skoðun á jarðræktarlögunum,
sem nú stendur yfir, verði skóg-
rækt á jörðum bænda viðurkennd
sem ræktun og því styrkhæf sam-
kvæmt því.
Fundurinn felur stjórn Skóg-
ræktarfélags íslands, í samvinnu
við héraðsskógræktarfélögin, að
gera áætlun um áningarstaði
meðfram hringveginum. Leita
skal eftir samvinnu við Vegagerð
ríkisins um framkvæmd þessa en
skógræktarfélögin í héraði hafi
framkvæmdina á hendi að öðru
leyti.
Ýmsar ályktanir voru sam-
þykktar, sem lúta að innri mál-
efnum félagsins og ekki þykir
ástæða til að birta. -mhg
TILLAGA AÐ DEILISKIPULAGI SKÚLAGÖTUSVÆÐISINS
Hvcrfiu^uta
lindarcata
Sölvhólagatu
og breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur
Með vísan til 17. og 18. gr. laga nr. 19/1964, er hér með auglýst deiliskipulagstillaga
bkulagotusvæðisins sem afmarkast af Sætúni, Snorrabraut, Hverfisgötu og Ingólfsstræti.
Tillagan felur í sér landnotkunarbreytingu og breytingu á umferðarkerfi á staðfestu Aðal-
skipulagi Reykjavíkur.
Uppdrættir, ásamt líkönum og greinargerð liggja frammi almenningi til sýnis á skrifstofut-
ima i Byggmg^rþjónustunni, Hallveigarstíg 1, frá og með föstudeginum 11. okt. til 22. nóv.
1985.
Á miðvikudögum milli kl. 16.00 og 18.00 munu höfundar og/eða fulltrúi Borgarskipulaqs
mæta a staðinn og svara fyrirspurnum varðandi tillöguna.
Athugasemdum, ef einhverjar eru, skal skila skriflega á sama stað eigi síðar en kl 18 00
föstudaginn 6. des. 1985.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir breytingunni.
Reykjavík, 11. október 1985,
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
Þverholti 15,
105 Reykjavík