Þjóðviljinn - 11.10.1985, Side 9
Slysalaus dagur
Þarf að
tuska
til
íbúa
höfuð
borgar-
innar
segirólafur
Jónsson
framkvæmdastjóri
umferðarvikunnar
í Reykjavík.
Ólafur Jónsson: Allir eru sammála um hvernig viö högum okkur í umferðinni
en samt er eins og enginn láti sig málið varða. Ljósm. Sig.
Við ætlum að reyna með um-
fjöllun að ná til og hvetja alla
borgarbúa til að vera þátttakend-
ur í slysalausum degi, sagði
Ólafur Jónsson forstöðumaður
Tónabæjar og framkvæmdastjóri
umferðarvikunnar í Reykjavík.
En það gerist auðvitað ekki
nema í gegnum jákvæða og kraft-
mikla umfjöllun í fjölmiðlum.
Pað er alveg greinilegt að það
þarf að tuska til íbúa höfuðborg-
arinnar í umferðarmálum. Og
það aðhald sem þarf veitir enginn
nema lögreglan. Umferðarrann-
sókn barnanna sýndi mjög greini-
lega að við eigum langt í land meö
að teljast til siðmenntaðra þjóða í
umferðinni.
Helsti óvinur umferðarmenn-
ingar hér á landi er tillitsleysið á
öllum vígstöðvum. Tillitsleysi
bæði ökumanna og annarra sem
eru í umferðinni. Við vonumst
þess vegna til að umferðarvikan
geti verið tæki til að koma af stað
einhverju jákvæðu. Markmiðið
er að virkja sem flesta i því að
taka sig alvarlega í umferðinni.
Það er sama við hvern þú talar,
allir eru sammála um hvernig við
högum okkur í umferðinni en
samt er eins og enginn láti sig
málið varða.
Á slysalausa deginum leggur
lögreglan mjög mikla áherslu á
hraðamælingar og munu ýmis fé-
lagasamtök starfa með okkur að
þessu, meðal annars verður Slys-
avarnarfélagið með sérstaka
gangbrautarvörslu. Á laugardag
verður svo umræðuþáttur í út-
varpinu þar sem niðurstöður
slysalausa dagsins verða ræddar,
að hverju er stefnt og hvað svona
vika getur gefið.
f>að er ekki hægt að mæla ár-
angur umferðarvikunnar, hún er
bara eitt af þeim verkum sem
unnin eru og eiga að vera fyrir-
byggjandi. Árangurinn er því
ómælanlegur nema þegar til
lengri tíma er litið.
Það er stefna yfirvalda að vera
með einhvers konar aðgerðir á
hverju ári og þá aðallega þegar
skólarnir byrja, því allt snýst
þetta um að reyna að vernda af-
komendur okkar.
-aró
Kvöldstund á El Sombrero
Góður matur
a
fallegum
stað
Fallegur staður, sem notalegt
er að dveljast á, góður matur fyrir
þá sem kunna að meta spánskan
og s-amerískan mat ásamt
ítalska almúgaréttinum - pizza -
og hóflegt verð. Þetta er sá dóm-
ur sem ég læt falla um þann
ágæta veitingastað „El Som-
brero“ við Laugaveginn. Ég veit
ekki um annan veitingastað í
Reykjavík sem notalegra er að
dveljast á en El Sombrero. Hann
er spánsk/s-amrískur í útliti, tónl-
istin frá sömu svæðum og þjón-
usta starfsfólks einhver sú besta,
sem fyrir finnst í Reykjavík.
Jónas Kristjánsson myndi ef-
laust ekki hæla þeim mat sem
boðið er uppá á E1 Sombrero,
vegna þess að ekki er boðið uppá
hráan, bragðlausan franskan
mat. Þvert á móti, hann er bragð-
mikill og góður spánsk/s-
amerískur, auk alþjóðlegra rétta
eins og „piparsteikur“ og
„pönnusteiktrar lúðu“, svo dæmi
séu nefnd.
Sá kunni mexíkanski réttur
Chili con carne reyndist mjög
bragðgóður, en ef til vill full
sterkur fyrir íslenska bragðlauka,
en aftur á móti eins og hann á að
vera í heimalandinu Mexíkó.
Pönnusteikt lúða reyndist einnig
mjög góð, sem og piparsteikin.
Lauksúpa, rækjukokteill og Hue-
vos flamenca, allt var þetta mjög
góður matur.
Verðið á E1 Sombrero er í lægri
kantinum miðað við veitingahús í
Reykjavík. Pizzur, en boðið er
uppá 20 tegundir, kosta frá 250 til
345 kr.. Piparsteik er dýrasti rétt-
urinn og kostar 680 kr. Chili con
carne kostar ekki nema 375 kr. og
chilenski rétturinn Empanadas,
sem er sælgæti, kostar aðeins 225
kr..
Sem spánskur staður býður E1
Sombrero auðvitað uppá spönsk
vín, eins og Marques de Riscal,
Siglo sago og Sangre Brava. Tvö
hin fyrrnefndu eru eðalvín.
Sem fordrykk er hægt að fá Tio
pepe og La Ina, ljós vín frá Jerez
de la Frontera á Spáni eins og öll
Jerez-vín sem Englendingar kalla
Sherry.
Eigandi E1 Sombrero er Ant-
onío Narvaez en hann er frá
Chile. Hann sagðist í sumar er
leið hafa tekið upp þá nýbreytni
að vera með hlaðborð í hádeginu
og er greitt fyrir matinn eftir vigt
og kosta 100 grömm 80 krónur.
Þeir sem kjósa að borða lítið eiga
þess því kost fyrir litla peninga og
öfugt.
íslenskar stúlkur gengu um
beina og voru sérstaklega liprar
og elskulegar en með þeim vinn-
ur spánskur þjónn og engir eru
betri þjónar en Spánverjar.
Það er eflaust hægt að fá betri
og margfalt dýrari mat í Reykja-
vík en á E1 Sombrero en miðað
við verðið tel ég hann vera í efsta
gæðaflokki enda sýnir aðsóknin
að staðnum að íslendingar kunna
að meta það sem boðið er uppá.
-S.dór
Starfsfólk á El Sombrero, frá v.: Rafael Vias, Ragnheiður Björnsdóttir, Michel
Angel, Sóley Víglundsdóttir og Lamberto Biase. Ljósm. E.ÓI.
Hvernig væri að hrista af
sér slenið og í stað þess að fara
í lífsþreyttan helgarbíltúr,
sleikjandi ís í haustnepjunni,
að byrja helgina heldur á því
að stinga sér í sund eld-
snemma á laugar-
dagsmorgun?
Laugardalslaugin er opin
frá kl. hálfátta, sundhöllin
sömuleiðis, Breiðholtslaugin
og Vesturbæjarlaugin breiða
út faðma sína á sama tíma og
klukkan átta opna sundlaug
Hafnarfjarðar og sundlaug
Kópavogs. Óvönum sund-
mönnum veitir kannski ekki
af hvíld í nokkra klukkutíma
eftir sundsprettinn en uppúr 2
er tími til kominn að leggja af
stað aftur. Er ekki langt síðan
þú fórst á handboltaleik síð-
ast? Til dæmis keppa Fram-
KA í Laugardalshöll klukkan
14 á laugardag og FH-
Stjarnan á sama tíma í Hafn-
arfirði. Fúlsirðu við slíkri
skemmtan sýnir sænskur
myndlistarmaður grafík-
myndir af stórkostulegum per-
sónumí Stokkhólmi átjándu
aldar. Af nógu er að taka af
myndlistarsýningum enda
eigum við íslendingar heims-
met í þeim eins og öllu öðru.
Sértu frekar værukær er hægt
að halda kyrru fyrir í Norræna
húsinu því klukkan 17 á laug-
ardag heldur danskur stúlkna-
kór tónleika þar og syngja þær
lög eftir ekki minni menn en
Hándel, Chopin og ýmsa
aðra. Eða fara á fræðafund
um sjórétt kl. 14 í Lögbergi.
Lokapunktur kvöldsins er svo
dansiball í Tónabæ fyrir allt
dansáhugafólk þar sem fjöl-
breytt tónlist verður leikin af
segulbandi og óspart tjúttað.
Sunnudagsmorgunn er
frekar viðburðasnauður og þá
er um að gera að liggja í lá-
réttri stöðu og innbyrða and-
lega næringu útvarpmess -
unnar. Eftir hádegi má svo
hugsa sér til hreyfings. Þeir
sem ekki fóru í sund í gær geta
drifið í því í dag. Þá eru sund-
laugarnar opnar frá klukkan 8
nema í Hafnarfirði og Kópa-
vogi er opnað kl. 9.
Eftir hádegið er svo hægt að
velta sér í kvikmyndum Lista-
hátíðar kvenna í Stjörnubíói.
Þar eru sýndar, í báðum
sölum, innlendar og erlendar
kvikmyndir mætra kvik-
myndaleikstjóra af kvenkyni.
Vilji menn frekar eitthvað
fyrir eyrað er Hollendingur-
inn Willem Brons með tón-
leika í Norræna húsinu kl. 17
og Stúdentaleikhúsið sýnir
rokksöngleikinn Ekkó í
Félagsstofnun stúdenta kl. 21,
ef síðasti þáttur Njósnaskips-
ins í sjónvarpinu þykir ekki
fýsilegur
-aró
Föstudagur 11. október 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9