Þjóðviljinn - 11.10.1985, Síða 10
MATUR, TÓNLIST OG DANS.
Jón Erlendsson: Húsið sem hýsir Fógetann er elsta hús Reykjavíkur byggt 1752. Ljósm. E.ÓI.
Fógetinn
tónlist á hverju kvöldi
Lifandi
„Á fimmtudaginn kemur fáum
við hingað írskan skemmtikraft,
Billy O’shea, gítarleikara og
söngvara. Hann spilar írska tón-
list á hverju kvöldi í hálfan mán-
uð“, sagði Jón Erlendsson, einn
af eigendum Fótgetans við Aðal-
stræti.
„Það er spiluð hér lifandi tón-
list öll kvöld, mest djass og þjóð-
lagatónlist, mjúk tónlist þannig
að fólkið geti komið og setið og
spjallað. Við höfum gert samn-
inga við þrjá erlenda skemmti-
Norrœna húsið
Tónleikar
og námskeið
Willem Brons frá Hollandi mun
halda píanótónleika í Norræna
húsinu sunnudaginn 13. október
kl. 17.
Willem Brons kemur til íslands
á vegum Tónlistarskólans í
Reykjavík og mun auk tón-
leikanna halda námskeið fyrir
píanónemendur.
Á efnisskrnni á sunnudag eru
verk eftir Bach, Schubert, Hon-
egger, Liszt og Franck.
krafta. A eftir Billy kemur 64 ára
náungi sem er kallaður Ragtime
Bob, hann spilar á píanó og syng-
ur, og eftir áramót mun bresk
stúlka skemmta gestum Fógetans
með píanóleik og söng.
Fógetinn er opinn öll kvöld frá
klukkan 18 til 1 eftir miðnætti og
til klukkan 3 eftir miðnætti um
helgar. Við höfum líka opið í há-
deginu frá kl. 11.30 til 15 og bjóð-
um þá uppá hádegisverð. A mat-
seðli hádegisins eru léttir réttir og
3 til 4 réttir dagsins auk fimmtán
til tuttugu fastra rétta. Á kvöldin
er svo boðið uppá þrjátíu rétta
matseðil.
Við leggjum mikla áherslu á
matinn og höfum stöðugt verið
að bæta við réttum og getum
tekið bæði stóra hópa og smáa í
Um helgina heldur danskur
stúlknakór frá Klarup tvenna tón-
leika í Reykjavík.
Þeir fyrri verða í Norræna hús-
inu laugardaginn 12. október kl.
17 og hinir síðari í Háteigskirkju
sunnudaginn 13. október kl. 17.
Einnig mun kórinn halda tón-
leika í Félagsheimilinu á Húsavík
mánudaginn 14. október, en
mat. Við höfum ekki gert mikið
af því að leigja út fyrir einkasam-
kvæmi en erum til viðræðu um
það.
Þá eigum við eftir að innrétta
sal á efri hæðinni við hliðina á
eldhúsinu sem mun taka 60 til 70
manns. Húsið er stærra en virðist
við fyrstu sýn, það er alls 500
Fræðafundur verður haldinn í
Hinu íslenska sjóréttarfélagi
laugardaginn 12. október kl. 14 í
stofu 103 í Lögbergi, húsi Laga-
deildar Háskóla íslands.
Prófessor dr. jur. Thor Falkan-
ger, frá Nordisk Institutt for Sjó-
Klarup er vinabær Húsavíkur.
Stjórnandi kórsins er Jan Ole
Mortensen. Píanóleikarinn
Hanne Kristensen og fiðluleikar-
inn Palle Sommer Mortensen
munu leika einleik á tónleikun-
um.
Á efnisskránni í Norræna hús-
inu eru verk eftir Hándel, Chop-
in, Kodály, ýmis norræn tónskáld
fermetrar", sagði Jón Erlends-
son.
Húsið sem hýsir Fógetann er
elsta hús Reykjavfkur, byggt árið
1752 og er fyrsta húsið af
innréttingum Skúla fógeta. Þar
hafa búið margir frægir menn
eins og til dæmis Geir Vídalín
biskup.
rett í Osló, flytur erindi á ensku
er hann nefnir: Kvantumskon-
trakter (Bulk-contracts). Thor
Falkanger er meðal kunnustu
sjóréttarfræðinga á Norður-
löndum og hefur hann m.a. sér-
hæft sig í farmrétti. Fyrirlesturinn
er öllum opinn.
og negrasálmar, og í Háteigs-
kirkju verða flutt verk eftir Pal-
estrina, Bach, Martini, Verdi,
Hándel, Chopin og Kodály og
auk þess norræn kirkjutónlist og
negrasálmar. Miðar verða seldir
við innganginn á tónleikana í
Norræna húsinu en á tónleikana í
Háteigskirkju er aðgangur
ókeypis.
Nœtursala
Svangur
að
nœturlagi?
Þá sem hungrar og þyrstir þeg-
ar líða tekur á nóttina geta svalað
sér á Kokk-húsinu eða Umferð-
armiðstöðinni í Reykjavík eða
Smiðjukaffi í Kópavogi. Á Kokk-
húsinu er nætursala á föstudags-
og laugardagskvöldum milli kl.
20.30 og 3, matseðillinn er sá
sami og venjulega en lítið eitt
dýrari.
Á Umferðarmiðstöðinni er
einnig hægt að fá ýmislegt í
svanginn fram til klukkan hálf sex
á morgnana.
í Smiðjukaffi er hægt að fá
ýmsa smárétti fram til klukkan 4
eftir miðnætti.
Tónabaer
Dunandi
dans
Dansunnendur eru boðnir
velkomnir í Tónabæ á laugar-
dagskvöldið þar sem stiginn
verður dans við dunandi tónlist af
segulbandi.
Danskennarasamband íslands
mun í vetur standa fýrir dans-
leikjum aðra helgi hvers mánaðar
í Tónabæ og verður fyrsti dans-
leikur vetrarins haldinn á laugar-
dagskvöld. Ballið byrjar kl. 21 og
lýkur kl. 2 eftir miðnætti. Allt
dansáhugafólk er velkomið.
Rauða risið
Menning,
kaffi
og pólitík
Á sunnudaginn, þann 13., mun
verða starfrækt kaffihús, Rauða
risið, að Hverfisgötu 105,4. hæð.
í Rauða risinu er auk veitinga
boðið uppá menningarlega dag-
skrá og pólitíska umræðu. Að
þessu sinni mun dagskráin verða
á þessa leið:
Kl. 14: húsið opnað, létt tónlist
líður um salinn. Kl. 15: Silja Að-
alsteinsdóttir les úr verkum
kvenna. Kvenréttindi - Jafnrétti -
Forréttindi - Hvað viljum við?
Gerður Óskarsdóttir og Margrét
Björnsdóttir ræða málið við
kaffihúsgesti. Kl. 19: Húsinu lok-
að og allir fara heim.
Rauða risið er opið öllum og
aðgangseyrir er enginn.
Tónlist
Danskur stúlknakðr
Frœðafundur um sjórétt
Auglýsingaþjónustan '
Someínumsf öff um o6