Þjóðviljinn - 11.10.1985, Page 11
LISTAHÁTÍÐ OG MYNDLIST
Listahátíð
Jakobína á Akureyri
Norrœna húsið
Bellmansmyndir
Peters Dahl
Laugardaginn 12. október kl.
15 verður opnuð í anddyri Nor-
ræna hússins sýning á grafík-
myndum sænska myndlistar-
mannsins Peters Dahl. Myndirn-
ar hefur Peter Dahl gert við Pistla
Fredmans eftir Bellman, 87 tals-
ins.
Myndunum er líklega best lýst
með orðum Sigurðar Þórarins-
sonar í bókinni Bellmaniana:
„Pistlar Fredmans eru nánast ep-
ísk ljóð, en fjalla um ýmsar
kostulegar persónur í Stokk-
hólmi, brösótt líferni þeirra og
ýmis ævintýri, sem þær rata í,
einkúm ef Bakkus er með í gerð-
um“. Þetta hefur Peter Dahl náð
að festa á pappír og hafa myndir
hans vakið mikla hrifningu vfða
um lönd. Þegar sýningunni lýkur
hér þann 28. október, fer hún til
Finnlands.
Peter Dahl heldur fyrirlestur í
Norræna húsinu mánudaginn 14.
október kl. 20.30 og talar þá um
vinnuna við Bellman og mynd-
sköpun almennt.
Aðgangur að sýningunni og
fyrirlestrinum er ókeypis og allir
eru velkomnir í Norræna húsið.
Á sunnudaginn kl. 16 flytur
Leikfélag Reykjavíkur leik-,
lestrar- og söngdagskrá sína úr
verkum Jakobínu Sigurðar-
dóttur í samvinnu við Leikfélag
Akureyrar í leikhúsinu á Akureyri.
Þessi dagskrá, sem tekin var
saman í tilefni af Listahátíð
kvenna, hefur verið flutt fjórum
sinnum í Reykjavík: í Gerðu-
bergi og á Kjarvalsstöðum og
Myndlist
Olíumálverk,
kopar og ál
Nú um helgina, laugardaginn
12. október, opnar Árni Páll sýn-
ingu í Galleríi Salnum, Vestur-
götu 3. Á sýningunni verða olíu-
málverk og önnur verk unnin á
kopar og ál.
Á sýningunni svífur andi geó-
metríunnar yfir vötnunum í mót-
mælaskyni við þann subbuskap
og óreglu sem viðgengist hefur í
myndlist heimsins undanfarna
áratugi undir nafninu„nýja mál-
verkið" („bad painting“), en ge-
ómetrían er meðal þeirra hluta
sem aðskilja mennina frá dýrun-
um.
Myndirnar á sýningunni eru
unnar á árunum 1983 til 1985 og
verður sýningin opin 12. til 23.
október kl. 14 - 21 daglega nema
lokað verður á mánudögum.
Flytjendur leik-, lestrar- og söngdagskrárinnar úr verkum Jakobínu Sigurðardóttur. Fr. v. Margrét Ólafsdóttir, Hanna
María Karlsdóttir, Bríet Héðinsdóttir, Valgerður Dan og Þorsteinn Gunnarsson.
ávallt við húsfylli. Það er Bríet
Héðinsdóttir, sem hefur tekið
saman efnið og haft umsjón með
dagskránni, en auk hennar eru
flytjendur: Margrét Ólafsdóttir,
Valgerður Dan, Hanna María
Karlsdóttir og Þorsteinn Gunn-
arsson. Lesið er og leikið úr ýms-
um þekktustu verkum Jakobínu
svo sem skáldsögunum Lifandi
vatninu, Dægurvísu, í sama klefa
og Snörunni. Þá eru sungin lög
við ljóð hennar og fluttur
leikþáttur.
Aðeins verður um þessa einu
sýningu á Akureyri að ræða.
Athugið!
Þeirri ábendingu er hérmeð
komið á framfæri til þeirra sem
vilja koma að fréttatilkynningu í
Um helgina að tilkynningin berist
blaðinu eigi síðar en á hádegi á
miðvikudegi.
Ásmundarsalur
Mannamyndir úr leir
Ríkey Ingimundardóftir mynd- arsal við Freyjugötu á laugardag. postulíni, málverk og fleira og
höggvari og málari opnar sýn- Á sýningunni eru þekktar verður sýningin opin daglega frá
ingu á verkum sínum í Ásmund- mannamyndir úr leir, verk úr kl- 15 - 22, dagana 12. - 21. okt.
Hveragerði
Olíumálverk
í Eden
Jóhanna Brynjólfsdóttir Wat-
hne sýnir 14 olíumálverk í Eden í
Hveragerði.
Þetta er fjórða einkasýning Jó-
hönnu en auk myndlistar hefur
Jóhanna skrifað sögur fyrir börn
og myndskreytt fyrir tímarit, út-
varp og sjónvarp. Sýningin í
Eden er opin á venjulegum opn-
unartíma hússins og þetta er síð-
asta sýningarhelgi.
Augnablik. Síðasta stund augnabliksins er runnin upp og sunnudagskvöld-
ið 13. október lokast augað alfarið á Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3b. Það gefur
auga leið að í eitt hundrað tuttugu og þrem Ijósmyndum eftir tuttugu og eina
konu, hljýtur margt forvitnilegt að bera fyrir augu. Þar fyrir utan gefa mynd-
irnar augnabliks innsýn í hvað ber fyrir augu kvennanna og í hvaða augna-
miði þær nota Ijósmyndavélina. Ljósm.: Anna Svavarsdóttir.
dagurmn í dag verói
i
LU
Q£
o
z
Q£
<