Þjóðviljinn - 11.10.1985, Page 17
HEIMURINN
Sjórán
Ræningjar týndir
Kaíró og víðar - Enn er óljóst
hvað orðið hefur um sjóræn-
ingjana fjóra sem héldu ítalska
farþegaskipinu Achille Lauro
með yfir 400 manns innan-
borðs í rúma tvo sólarhringa
þar til þeir gáfust upp í fyrra-
dag. Egyptar segjast hafa látið
þá lausa og sé ekkert vitað
hvert þeir fóru.
Hvarf bandarísks farþega hef-
ur vakið áköf viðbrögð og kröfur
um að ræningjarnir verði eltir
uppi og dæmdir í þyngstu refs-
ingu. Ekki er ljóst hvað um hann
varð en bandarísk stjórnvöld og
fleiri hafa fullyrt að ræningjarnir
væru sekir um hvarf hans. PLF,
samtökin sem ræningjarnir
sögðust tilheyra, hafa neitað því
að farþeginn hafi verið myrtur og
talsmaður PLO hjá öryggisráði
SÞ lýsti eftir sönnunum um afdrif
hans.
í fyrstu var talið að egyptar
hefðu afhent PLO ræningjana
fjóra en Yassir Arafat ber á móti
því. Hosni Mubarak, forsætisráð-
herra Egyptalands, sagði að það
hefði verið liður í lausn málsins
að leyfa ræningjunum að fara
frjálsum ferða sinna. Egyptar
hefðu gert það í þeirri trú að full-
yrðing skipstjóra Achille Lauro
um að ekkert hefði amað að far-
þegunum meðan á ráninu stóð
hafi verið sönn. Ef þeir hefðu vit-
að um hvarf bandaríska farþeg-
ans hefði verið tekið allt öðruvísi
á málinu.
Norðurlönd
Refs'iaðgerðir til umræðu
Helsinki - Leiðtogar samtaka
flutningaverkamanna í Dan-
mörku, Svíþjóð, Finnlandi og
Noregi komu saman til fundar í
Helsinki í gær þar sem eitt
helsta umræðuefnið verður af-
greiðslubann á inn- og útflutn-
ing til Suður-Afríku.
Norskir og finnskir flutninga-
verkamenn hafa þegar ákveðið
Afríka
Dregur úr hungri
Nairobi - Matvæla- og landbún-
aðarstofnun Sameinuðu þjóð-
anna, FAO, segir í nýútkom-
inni skýrslu að heldur hafi
dregið úr hungrinu í Afríku en
að enn séu fimm lönd á lista
yfir þau sem þurfa á neyðarað-
stoð og matvælasendingum
að halda.
Löndin fimm eru Eþíópía,
Angóla, Mósambik, Súdan og
Botswana. Lélegar hafnir og
skortur á flutningatækjum kallar
á flutninga í lofti og að matar-
sendingum verði varpað úr lofti. í
Eþíópíu og Súdan gerir innan-
landsófriður illt verra og Angóla
og Mósambik liggja undir árásum
stjórnvalda í Suður-Afríku og
handbenda þeirra.
Dregið hefur úr þurrkum en í
21 af 50 ríkjum álfunnar eru mat-
væli. enn af skornum skammti
þótt ástandið hafi skánað síðan í
fyrra en þá ríkti neyðarástand
meðal 150 miljóna íbúa.
að neita að vinna við uppskipun á
vörum frá Suður-Afríku og þeir
finnsku hafa einnig hætt að skipa
út vörum sem þangað eiga að
fara. Ætla þeir að leggja að
starfsbræðrum sínum í Dan-
mörku og Svíþjóð að fara að
fordæmi sínu. Dönsku og sænsku
fulltrúarnir tóku vel í málaleitan
norðmanna og finna en sögðust
af skipulagsástæðum ekki geta
tekið ákvörðun fyrr en á næstu
vikum.
Viðskipti þessara fjögurra
landa við Suður-Afríku námu
tæplega 30 miljörðum íslenskra
króna á síðasta ári og á fundi
utanríkisráðherra Norðurlanda
sem haldinn verður í Osló í næstu
viku verða ræddar leiðir til að
setja á efnahagslegar refsiað-
gerðir gegn stjórn hvíta minni-
hlutans.
Finnski utanríkisráðherrann,
Paavo Váyrynen, hefur lagt fyrir
stjórn sína lista yfir aðgerðir sem
hann vill að stjórnin grípi til.
Aðalsmerki Yul Brynner var skortur á hárprýði en hann hélt þeim sið að vera
nauðrakaður frá því hann sló fyrst í gegn og fram á banadægur.
Yul Brynner látinn
New York - Kvikmynda- og
sviðsleikarinn Yul Brynner
lést í gærmorgun á sjúkrahúsi
í New York. Brynner varð 65
ára gamall en banamein hans
var krabbamein.
Yul Brynner fæddist á
Sakhalin-eyju norður af Japan.
Faðir hans var hálfur svisslend-
ingur og hálfur mongóli en móðir
hans sígauni. Hann hóf feril sinn
sem akróbat í sirkus en datt illa
þegar hann var 17 ára og varð að
hætta. Þá sneri hann sér að leik-
stjórn fyrir sjónvarp og sfðan fór
hann að leika á sviði.
Hann sló í gegn árið 1951 í
söngleiknum Konungurinn og ég
eftir Rodgers og Hammerstein og
það varð honum mikið heillahlut-
verk. Þegar söngleikurinn var
kvikmyndaður árið 1956 fékk
Brynner Óskarsverðlaunin fyrir
leik sinn. Alls lék Brynner Síams-
kóng í 4.625 skipti, nú síðast í
júnímánuði í sumar. Meðal kvik-
mynda sem Brynner lék í má
nefna Anastasia, Bræðurnir Kar-
amazof og Solomon og Sheba.
Spánn
Kommúnistar klofnir
Madrid - Santiago Carrillo sem
um áratuga skeið var formaður
Pólkmd
Stjómin pantar andlitslyftingu
Varsjá - Það er víðar kosið en í
Belgíu um næstu helgi. Á
sunnudaginn ætlar stjórn Jar-
uzeiski í Póllandi að lokka
kjósendur að kjörborðinu þótt
kostirnir sem þeim bjóðast
séu færri en tíðkast í Vestur-
Evrópu. Ólöglegu verkalýðs-
samtökin Eining hafa hvatt
fólk til að sitja heima á kjördag
en talsmenn stjórnarinnar eru
þó bjartsýnir á að allt að 80% af
25 miljónum sem eru á kjör-
skrá neyti atkvæðisréttar síns.
Fréttaskýrendur telja að ætlun
pólsku stjórnarinnar sé tvíþætt.
Hún vilji sýna umheiminum að
ummæli Jaruzelski í nýafstaðinni
heimsókn hans á Allsherjarþing
SÞ séu rétt en þau voru á þá leið
að „það versta væri að baki“ í
Póllandi. Kosningarnar eiga að
sýna að eining ríki í Póllandi og
að þar stefni allt framávið.
Inn á við eiga kosningamar að
sýna pólskum almenningi að
hlutverki Einingar í pólskum
stjórnmálum sé endanlega lokið
með sigri Kommúnistaflokksins.
Enda hefur það sýnt sig í kosn- >
ingabaráttunni að stjórnin leggur
allt kapp á að halda fjölmiðlum á
hinni einu réttu línu og nokkuð
hefur verið um handtökur á fylg-
ismönnum Einingar síðustu vik-
urnar.
Síðan herlögum var aflétt í
landinu fyrir rúmum tveimur
árum hafa ýmis lög verið sett sem
auka vald dómstóla og veita
stjórninni betra svigrúm til að
beita stjórnarandstæðinga
hörku. Á kosningafundum und-
anfamar vikur hefur ekki farið
Jaruzelski í veislu sem haldln var í tilefni af 40 ára afmæli Sameinuðu þjóðanna
í New York nú fyrir skemmstu. Það var til þess tekið að hann hafði tekið ofan
sólgleraugun og töldu margir að það væri liður í að koma sér upp mildara
yfirbragði.
mikið fyrir umræðum um lýð-
frelsi í landinu en gagnrýnin hef-
ur einkum beinst að mengun,
mistökum í efnahagslífinu og
skriffinnsku.
Á pólska þinginu, Sejm, eiga
sæti 460 þingmenn. í 410 kjör-
dæmum em tveir frambjóðendur
í kjöri og em þeir valdir af ein-
hvers konar samfylkingu, Pron,
sem lýtur forystu Kommúnista-
flokksins. Það hefur vakið athygli
fréttamanna að þess hefur verið
vandlega gætt að þeir þingmenn
sem haft hafa uppi tilburði til að
gagnrýna stjórnvöld eru ekki aft-
ur í kjöri. Þau 50 sæti sem em
ótalin em tryggð Jaruzelski og
öðrum helstu framámönnum
flokksins á þann hátt að þeir eru
einir í framboði.
Að sögn fréttamanna hefur
stjórnin greinilega varið miklu fé
í kosningabaráttuna, einkum í
fjölmiðla sem staðið hafa í her-
ferð til að fegra útlit stjórnarinn-
ar. Stjórnin hefur neitað að til-
greina hve mikið kosningabarátt-
an kostar en þó er vitað að pólska
sjónvarpið fékk sem svarar 300
miljónum króna til þess að hanna
áróðursherferð á vestræna vísu.
Ámi Bergmann segir að þetta
fyrirbæri heiti á rússnesku „að
búa til konfekt úr skít“.
Vestrænir fréttamenn hafa
fengið að kenna á því að það er
staðföst ætlun pólskra
stjórnvalda að gefa umheiminum
þá mynd af ástandinu í Póllandi
að þar standi einhuga þjóð að
baki valdhöfum burtséð frá ör-
fáum ofstækismönnum. Fyrir
stuttu var erlendur fréttaritari
handtekinn og yfirheyrður í bæn-
um Wroclaw og var þá ma. sagt
við hann: „Jamzelski var nýlega í
heimsókn hjá SÞ þar sem menn
gerðu góðan róm að máli hans.
Við viljum ekki sjá neinar fréttir
sem varpa skugga á málflutning
hans“.
Að kosningum afstöðnum er
búist við því að stokkað verði upp
í ráðherraliðinu og ýmsar flokks-
stofnanir endurskipulagðar,
þám. áróðursdeildin og skipulag
fjölmiðlunar í landinu. Mun það
vera ætlun Jamzelski að ljúka
þessum breytingum fyrir flokks-
þing Kommúnistaflokksins sem
haldið verður á næsta ári.
spænska kommúnistaflokks-
ins, PCE, hefur gengið úr
flokknum eftir 49 ára veru í
honum. Er þetta í annað sinn á
tveimur árum sem alvarlegur
klofningur kemur upp í flokkn-
um.
í fyrra yfirgáfu uþb. 100 framá-
menn flokkinn og stofnuðu nýjan
moskvuhollan flokk. Carillo lét
af formennsku í flokknum eftir
að flokkurinn beið afhroð í kosn-
ingum árið 1982 og tapaði 19 af 23
þingsætum. í apríl á þessu ári var
hann rekinn úr miðstjórn vegna
andstöðu við arftaka sinn á for-
mannsstóli, Gerardo Iglesias, en
hann hefur að undanförnu reynt
að biðla til umhverfisverndar-
sinna og friðarsinna í því skyni að
efla flokkinn. í vor var haldinn
skyndifundur til að miðla málum
milli Carillo og Iglesias en sá fyrr-
nefndi lét ekki sjá sig á fundinum.
Carrillo sem stendur á sjötugu
virðist þó ekki ætla að h ætta af-
skiptum af spænskum stjórnmál-
um. Eftir úrsögnina lét hann skrá
nýjan flokk sem hann kennir við
byítingarsinnaðan marxisma. Að
eigin sögn segir hann þetta ein-
ungis vera varnagla ef tilraunir
sem enn eru í gangi til að útkljá
ágreininginn í PCE fara út um
þúfur.
Þetta hka...
... Enska kirkjan er klofnari en
nokkru sinni fyrr í afstöðu sinni til
þess hvort tilhlýðilegt sé að konur
gegni prestsembættum. í kjöri til
kirkjuþings unnu bæði andstæð-
ingar og fylgísmenn kvenpresta á
en miðjumenn töpuðu ...
REUTER
Umsjón:
ÞRÖSTUR HARALDSSON
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17