Þjóðviljinn - 11.10.1985, Page 20
Aðalsfmi: 81333. Kvöldsími: 81348., Helgarsími: 81663.
Föstudaour 11. september 1985 234. tðlublað 50. árgangur
DJOÐVIIJINN
BSRB samningarnir
Steingrímur samþykkti
Orson
Welles
látinn
Kristján ThorlacíusformaðurBSRB: Égfullyrði aðforsœtisráðherra
samþykkti samningana. Þorsteinn Pálssonfól Albert Guðmundssyni aðgangafráþeim
r
Eg var staddur inni hjá fjár-
málaráðherra Albert Guð-
mundssyni þegar hann ræddi við
forsætisráðherra Steingrím Her-
mannsson og skýrði honum frá
því að við værum að skrifa undir
Skák
samninga og ég fullyrði að
Steingrímur Hermannsson gaf
samþykki sitt fyrir því að gengið
yrði frá samningum. Því varð ég
undrandi þegar ég las ummæli
Steingríms um samningana í
blöðunum í morgun, sagði Krist-
ján Thorlacíus formaður BSRB í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Þjóðviljinn leitaði til Kristjáns
vegna þeirra ummæla forsætis-
ráðherra Steingríms Hermanns-
sonar í blaðaviðtölum og í út-
varpinu í gær að hann tryði því
varla að búið væri að ganga frá
samningunum þar sem ríkis-
stjórninni hefðu ekki verið sýndir
þessir samningar.
Þá hefur Þorsteinn Pálsson lýst
því yfir að þegar Albert ræddi við
hann, sem væntanlegan fjármála-
ráðherra, um samningana hafi
Þorsteinn alfarið vísað málinu til
Alberts til lúkningar. - S.dór.
Leikstjórinn og leikarinn Or-
son Welles sem hræddi miljónir
manna með útsendingu leikritsins
Innrásin frá Mars er látinn.
Orson Welles sem var þekktur
af kvikmyndum eins og Citizen
Kane og Þriðji maðurinn fannst í
fyrradag látinn að heimili sínu.
Að sögn læknis Orson Welles lést
hann úr hjartaslagi, en Orson
var síðustu árin undir læknishendi. !
Helgi
fær prik
Mikail Botvinnik fyrrverandi
heimsmeistari í skák telur sigur-
skák Helga Ólafssonar við Hort á
Ólympíumótinu í Þessalóníku í
fyrra eina af tíu bestu skákum
þess misseris.
Þetta kemur fram í nýjasta
hefti skáktímaritsins Informator,
sem er einskonar húspostilla
skákheimsins og birtir í hverju
heftri um 800 best tefldu skákir
frá mótum og einvígjum hvaðan-
æva úr heiminum.
Það er siður blaðsins að biðja
nokkra kunna skákmenn að velja
tíu bestur skákir. í síðasta hefti,
og í fyrra hefti ársins ’85, er skák
Helga nefnd tvisvar á þeim lista.
Botvinnik segir hana tíundu
bestu skák síðasta heftis og dóm-
arinn úr einvígi Fischers og Spas-
skís, Lothar Schmid, telur hana
níundu bestu skákina. Skák
Helga við Hort er 22. í þessari
palladómaröð, en flest stig fékk
27. skák Karpoffs og Kasparoffs
úr einvíginu endalausa í Moskvu í
fyrrahaust.
Bœjarstarfsmenn
Vilja líka
Bæjarstarfsmannaráð BSRB
samþykkti á fundi sínum í gær að
beina þeim eindregnu tilmælum
til sveitarstjórna að sú launa-
hækkun sem BSRB hefur samið
um við fjármálaráðherra fyrir
rikisstarfsmenn nái þegar fram
að ganga hjá bæjarstarfs-
mönnum.
Mörg stærstu starfsmannafé-
lögin eru þegar búin að óska eftir
viðræðum við viðkomandi bæjar-
yfirvöid um samræmingu á
launakjörum á við nýjan samning
ríkisstarfsmanna. -Jg-
Kennarar
styðja
útvarpsmenn
„Við viljum með bréfi þessu
sýna ykkur einlægan stuðnings og
sendum ykkur baráttukveðjur“,
segir í bréfi sem Bandalag kenn-
arafélaga hefur sent til Starfs-
mannafélags útvarps og sjón-
varps.
í bréfinu segir ennfremur:
„Stjórn Bandalags kennarafélaga
harmar þá aðför sem að ykkur er
gerð með sérstakri málsókn og
refsingu vegna aðgerða sem
tengdust verkfalli BSRB síðast-
Uðnu hausti.
Það er hörmulegt til þess að
vita að í þjóðfélagi sem státar af
mannréttindum og lýðræði skuli
slíkt geta gerst“.
Meseret frá Eþíópíu hefur verið á íslandi í jarðhitaskóla SÞ: „íslenskir vísindamenn á þessu sviði þeir bestu í heimi". Ljósm - Sig.
Vorum hrædd við snjóinn!
Meseret Teklemariam, jarðfrœðingurfrá Eþíópíu: Stórkostleg
upplifun að koma til Islands
etta hefur verið yndislegur
tími, ég hef lært mikið og þessi
nýja þekking mín um jarðhita-
orku á eftir að koma mér að mikl-
um notum heima í Eþíópíu.
Hún er frá Eþíópíu, Addis
Ababa nánar tiltekið og hefur
verið hér á landi á vegum Jarð-
hitaháskóla Sameinuðu þjóð-
anna. Hún heitir Meseret
Teklemariam, er að fara af
landinu eftir 6 mánaða dvöl en
hefði alveg getað hugsað sér að
vera lengur.
„í Eþíópíu er í gangi ákveðið
jarðhitaverkefni, það er búið að
bora einar átta holur nú þegar.
Orkan úr þeim er ekki komin í
gagnið enn og ég hef verið hér í
þeim tilgangi að auka við þekk-
ingu okkar í þessum málum“.
- Hvernig var svo að koma
hingað til íslands frá Eþíópíu?
„Já, það var vægast sagt mjög
sérstök upplifun. Eg hafði aldrei
verið erlendis áður en ég kom til
íslands og hafði mjög óljósar
hugmyndir um landið. Mér var
sagt að hér væri allt þakið í snjó
og ís og auðvitað afskaplega kalt.
Þegar við nemendurnir í Jarð-
hitaháskóla Sameinuðu þjóð-
anna komum hingað til lands
sáum við engan snjó. Svo var það
hins vegar nokkrum dögum eftir
að við komum að allt í einu fór að
snjóa. Ég man að við sátum
nokkur saman hér við gluggann
og allt í einu bendir eitt okkar út
um gluggann og við sáum ein-
hverjar hvítar flygsur falla til
jarðar. í fyrstu áttuðum við okk-
ur alls ekki á því hvað þetta var,
okkur varð ekki um sel og sum
okkar urðu beinlínis hrædd.
Þetta var alveg óþekkt fyrir
mörgum okkar. En þetta var
stórkostleg reynsla fyrir mig að
sjá þetta í fyrsta sinn. En þetta
hefur allt saman vanist mjög vel
og nú grunar mig að hitinn verði
allt of mikill fyrir mig þegar ég
kem heim“, sagði Meseret.
IH
Vaxtaokrið
Vanskil 18-20% í bönkunum
Heildarútlán bankakerfisins í ár35 miljarðar króna.
Dráttarvextir eru 45 %
Heildarútlán bankakerfisins í
landinu nema í ár um 35 milj-
örðum króna og eins og málin
standa nú nema vanskil um 18-
20%. Þetta er heldur meira en var
árið áður en þá námu vanskil
15%. Dráttarvextir á vanskila-
skuldum nema 3,75% á mánuði
eða um 45% á ári.
Vanskilavextir eru því engin
smáupphæð, en á móti kemur að
bankamir geta svo lent í van-
skilum við Seðlabankann vegna
vanskila viðskiptavina sinna og
verða að greiða háa dráttarvexti
þar.
Hækkun vanskilaprósentu
endurspeglar að sjálfsögðu
ástandið í þjóðfélaginu, minnk-
andi kaupmátt fólks, sem að
sjálfsögðu er keðjuverkandi í
gegnum allt þjóðfélagið.
-S.dór.