Þjóðviljinn - 16.01.1987, Blaðsíða 16
AMSTERDAM kr. 14.162.-
Helgar- og vikuferðir. Flug, gist., morgunv. Verð í tvíbýli frá kr. 14.162.-. Kynnið ykkur tilboðsverðin.
LONDON kr. 13.240.-
Helgar- og vikuferðir flug, gist., morgunv. Verð í tvíbýli frá kr. 13.240.- Seljum afsláttarkort í London.
GLASGOW kr. 12.284.-
Helgar- og vikuferðirn f.,g.,m. Verð í tvíbýli frá kr. 12. 284,-
KAUPM.HOFN kr. 14.960.-
Helgar- og vikuferðir f.,g.,m. Verö í tvíbýli frá kr. 14.960,-
STOKKHOLMUR kr. 22.402.-
Helgar- og vikuferðir f.,g.,m. Verð í tvíbýli frá kr. 22.402,-
HAMBORG kr. 17.960.-
Helgar- og vikuferðir f.,g.,m. Verð í tvíbýli frá kr. 17.960.-
PARlS kr. 20.160.-
Helgar- og vikuferðir f.,g.,m. Verð f tvíbýli frá kr. 20.160.-
ROM kr. 30.232.-
Helgar- og vikuferðirf.,g.,m. Verð í tvlbýli frá kr. 30.232,- 2næturLuxog3 nætur Róm.
SKIÐAFERÐIR kr. 27.008.-
Tvær vikur. Verö í tvíbýli frá kr. 27.008.-
KANARIEYJAR kr. 43.500.-
Þrjár vikur. Verö í tvíbýli frá kr. 43.500.-
FLORIDA kr. 28.900.-
11 dagar, flug og gisting. Verð í tvíbýli frá kr. 28.900.-
THAILAND kr. 51.669.-
Tvær vikur, f.,g.,m. Verð í tvíbýli frá kr. 51.669.-
FERÐA..
MIDSTOÐIIM
AÐALSTRÆTI 9&28133
ÚT VIL EK
ií
Kolbeinn Pálsson. Helgi Jóhannsson
0
Örn Steinsen. Böðvar Valgeirsson.
Spuming dagsins í Ferðablað Þjóðviljans
Hvert er
ferðatromp
vetrarins?
Kolbeinn Pálsson
Terra
Feröatromp vetrarins
87 tel ég tvímælalaust vera
hinar geysihagstæöu ferðir til
Austurlandafjær. Fariö er alla
þriöjudaga í gegnum Kaup-
mannahöfn.
Ennfremur gefst kostur á dvöl í
Singapore og/eða Bali fyrir mjög
gott verð. í Bangkok er nóg við
að vera og margt að skoða. Þar er
urmull veitingahúsa, diskóteka,
næturklúbba o.fl.
Helgi Jóhannsson
Samvinnuferðir
Því er fyrst til að svara að
snemma í haust voru ferðir okkar
til Florida, sem hófust um leið og
Flugleiðir hófu áætlunarflug til
Orlandi, ferðatromp haustsins.
Þar voru í boði ótrúlega hagstæð
kjör, og aðstaða í Orlando og St.
Petersburg, þar sem við bjóðum
fjölbreytta gistimöguleika, er til
mikillar fyrirmyndar.
Ef ég ætti hinsvegar að nefna
ferðatromp vetrarins í heild
myndi ég skilyrðislaust nefna
skíðaferðir okkar í vetur. Við
höfum boðið upp á þrjá skíða-
staði í Austurríki: Sölden, Sall-
bach-Hinterglemm og St. Anton
og við vissum fyrir að allir þessir
staðir bjóða frábæra aðstöðu
fyrir skíðafólk.
íslaug Aðalsteinsdóttir
Ferðamiðstöðin
Ferðatromp í febrúar og mars.
Það er skemmtisigling í al-
gjörum sérflokki með glæsifley-
inu Maxim Gorki. Siglingin hefst
í Sidney í Ástralíu og endar í
Yokohama í Japan með viðkomu
á mörgum mjög forvitnilegum
eyjum og í borgum á leiðinni.
Örn Steinsen
Saga
Opnun ferðaskrifstofunnar
Sögu h/f þ. 24. okt. ’86.
Böðvar Valgeirsson
Atlantik
Eins og berlega hefur k.omið
fram í fjölmiðlum voru íslending-
ar mikið á ferðinni í upphafi
vetrar. í þremur stuttum sumar-
aukaferðum Atlantik í endaðan
október og byrjun nóvember
fóru mörg hundruð farþegar til
sólskinseyjarinnar Mallorka. Má
með sanni segja að þetta hafi ver-
ið upphafsferðatromp vetrarins.
Haraldur Jóhannsson
Farandi
Tvímælalaust Indlandsferð
Faranda sem hefst 30. mars,
og stendur í 3 vikur undir leið-
sögn Sigurðar A. Magnús-
sonar, rithöfundar.
fslaug Aðalsteinsdóttir.
Haraldur Jóhannsson
Rúnar Björgvinsson, markaðsstjóri.
Það eru félagar í Indlandsvina-
félaginu sem hafa hvatt til þessar-
ar ferðar en hún er skipulögð af
viðurkenndri indverskri ferða-
skrifstofu.
Sigurður hefur lagt blessun
sína yfir áætlunina, en hann er
þaulkunnugur á Indlandi og má í
því sambandi minna á bók hans
„Við elda Indlands“, sem hefur
komið út tvisvar, fyrst árið 1962
og öðru sinni 1983.
Það er engin spurning að ferð
þessi verður fullskipuð, nú þegar
hafa allmargir skráð sig en hóp-
stærð verður takmörkuð til þess
að hver og einn þátttakandi njóti
ferðarinnar sem allra best.
Rúnar Björgvinsson
Útsýn
Ferðatromp vetrarins eru tvö
að þessu sinni.
Ánnars vegar er það
heimsreisan til Brasilíu þann 13.
mars, sem við erum mjög stoltir
af, bæði fyrir verð og ekki síður
gæðin.
Hins vegar er það páskaferðin
á Costa del Sol í beinu leiguflugi
þann 15. apríl, 12 daga ferð. Þessi
ferð hefur hlotið mjög góðar
undirtektir undanfarin ár og
alltaf verið uppselt. Það verður
örugglega eins í ár.
EINSTAKLINGSFERÐIR
VÖRUSÝNINGAR
SÓLARFERÐIR
SKÍÐAFERÐIR
INNANLANDSFERÐIR
FERÐASKRIFSTOFAN
TJARNARGÖTU 10
SÍMI 28633
til næsta bæjar