Þjóðviljinn - 06.09.1987, Blaðsíða 5
Höll Gekvadans af Baroda var þrisvar sinnum stærri en Buckinhamhöll.
Indland hlaut
sjálfstœði fyrir
40árum-Þá
réðu 565
furstar um
þriðjungi
landsins-
Síðustu
höfðingjarnir
úr 1001 nótt.-
Allra manna
ríkastirog sér-
vitrastir
kvennafari. Bhupinder Singh af
Patiala átti 350 konur og trúði
enskri frú sem hann sótti heim
fyrir því að hann þyrfti að fá
hreina mey með sér í bólið á
hverju kvöldi. Forfeður hans
höfðu reyndar haft þann sið að
hlaupa naktir um götur höfu-
ðborgar sinnar einu sinni á ári
með liminn stífan, til að þegnarn-
ir mættu sannfærast um að allt
væri í lagi með karlmennsku
höfðingjans.
Furstinn af Bharatpur valdi sér
rekkjunaut á þann hátt, að hann
lét konurnar 40 úr kvennabúrinu
dansa naktar með logandi kerti
milli fóta. Sú sem lét ljós sitt
brenna lengst gekk til sængur
með eiganda sínum.
Skrautlegt safn
manngerða
Sumir furstar voru bersýnilega
ekki með öllum mjalla. Navabinn
af Dsjúnagadh átti 800 hunda
sem bjuggu í jafnmörgum her-
bergjum í höll hans. í hverju her-
bergi var sími, hverjum hundi
sinnti sérstakur þjónn. Þegar Na-
vabinn gifti eftirlætistík sína,
Rosjanara, bauð hann hundruð-
um göfugra gesta - en að vísu
neitaði varakonugurinn, stað-
gengill Bretakonungs, að mæta
til þess brullaups.
Til voru furstar sem reyndust
dugandi umbótamenn eins og
maharadsjan í Mysore, sem tók
upp ókeypis skólakerfi, heilsu-
gæslukerfi og veitti konum kosn-
ingarétt. Aðrir voru skelfilegir
harðstjórar, eins og mahara-
dsjann af Alwar, sem notaði börn
fyrir agn á tígrisdýraveiðum sín-
um. Hann var ekki settur af fyrr
en hann braut breskan sport- og
dýaravinaanda með því að hella
bensíni yfir lifandi hest sem hafði
brugðist honum í póló og kveikja
í honum.
Eyðslusemi þeirra var víðfræg.
Þegar maharadsjanum af Bharat-
pur fannst sem bílasalar í London
sýndu sér ekki nægan sóma þegar
hann spurði eftir verði á Rolls
Roycemódeli einu, þá keypti
hann alla Rollsrosjana á bflasýn-
ingunni - með því skilyrði að hinn
ókurteisi sölumaður kæmi sjálfur
með þá alla til Indlands. Hann
kom með bflana, gljáfægði þá og
raðaði þeim upp fyrir framan höll
furstans. Furstinn leit á blikkbelj-
ur þessar með fyrirlitningu og
bað aðstoðarmenn sína að af-
henda þá öskuköllunum í bæn-
um.
Endalokin
Árið 1947 sátu um hundrað
furstar sem mest áttu undir sér á
svonefndri furstadeild í Dehli, og
127 smnærri furstar áttu sér þar
12 fulltrúa. Þessir menn höfðu
verið ein helsta tryggingin fyrir
því að Indland héldist innan
breska heimsveldisins. Þeir litu á
sig sem dygga bandamenn bresku
krúnunnar og viðurkenndu ekki
annað vald yfir sér. Og þegar Ind-
land yrði frjálst ríki ætluðu þeir
að lýsa sig sjálfstæða líka. En þeir
stjórnmálamenn sem börðust
fyrir sjálfstæði Indlands litu mál-
ið vitanlega allt öðrum augum.
Mahatma Gandhi leit svo á, að
furstarnir hefðu verið Bretum
þægir þjónar og gegnt því hlut-
verki að veikja mótspyrnu Ind-
verja gegn erlendu valdi. Þess
vegna yrðu þeir að hverfa um leið
og sjálfstæði fengist. Auk þess
yrði það Indland illa starfhæft ríki
sem fullt væri af „götum“ sjálfs-
tæðra ríkja.
Mountbatten varakóngur, sem
stjórna átti síðasta skeiði breskr-
ar stjórnar, skildi og að furstun-
um yrði að fórna. Hann gerði
einskonar hrossakaup við leið-
toga Kongressflokksins ind-
verska. Hann tók að sér að
„sannfæra" furstana um að þeir
yrðu að ganga með lönd sín undir
vald sjálfstæðs Indlands. Með því
að lofa þeim því, að indverskir
stjórnmálamenn leyfðu þeim að
halda titlum sínum, höllum,
einkaauði og einskonar friðhelgi
stjórnarerindreka.
Furstarnir áttu ekki margra
kosta völ, þótt sumir þybbuðust
við eins og Nisaminn af Hajdera-
bad sem gafst ekki endanlega upp
fyrr en ári síðar - og hafði ind-
verskur her þá haldið inn í land
hans.
Kongressflokkurinn sam-
þykkti þessi kaup fyrir sitt leyti - í
bili. Nokkrum árum síðar misstu
furstarnir forréttindi sín, og
fannst þá að þeir hefðu verið illa
sviknir í tvígang - fyrst af Bretum
og síðan af löndum sínum. En
það er önnur saga.
ÁB byggði á greinaflokki
í Spiegel
Skóladagheimilið
Völvukot
Vantar fóstrur og/eða starfsfólk með sambæri-
lega menntun ásamt ófaglærðu fólki. í boði eru
heilsdags- og hlutastörf. Þetta er kjörið tækifæri
fyrir ykkur að takast á við nýtt og skemmtilegt
verkefni í notalegu umhverfi. Völvukot tók til
starfa sumarið 1979 og í dag eru börnin 16. Kom-
ið eða hringið í síma 77270 og fáið nánari upplýs-
ingar.
Starfsfólk
Námsstyrkir
fyrir starfandi
félagsráðgjafa og
æskulýðsleiðtoga
Alþjóða fræðsluráðið (CIP) býður styrki til þátt-
töku í námskeiðum og vinnu í Bandaríkjunum frá
apríl til ágúst 1988.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar liggja frammi
hjá Fulbrightstofnuninni, sími 20830.
Umsóknarfrestur er til 10. september 1987.
Fulbrightstofnunin,
Garðastræti 16
box 752.
Taktu eftir
Spennandi uppeldisstarf í boði.
Hringdu í síma 33280 milli kl. 8 og 16 eða í síma
671543 og 675395 á kvöldin.
Atvinna erlendis
Hér er upplýsingabókin fyrir þig sem ert að leita aö vinnu
erlendis til lengri eöa skemmri tíma.
Hún inniheldur upplýsingar um störf í málm- og olíuiðnaði,
við kennslu, garðvinnu, akstur, á hótelum og veitingastöð-
um, au-pair, fararstjórn, ávaxtatínslu í Frakklandi og Banda-
ríkjunum, tískusýninga- og Ijósmyndafyrirsætustörf og störf
á búgörðum, samyrkjubúum eða skemmtiferðaskipum.
Bókinni fylgja umsóknareyðublöð. Þetta er bókin fyrir þá
sem hafa hug á að fá sér starf erlendis. Þú færð upplýsingar
um loftslag, aðbúnað í húsnæði, vinnutíma o.fl. Þar að auki
færðu heimilisföng u.þ.b. 1000 staða og atvinnumiðlana.
Bókin kostar aðeins 98,- s.kr. (póstburðargjald innifalið). 10
daga skilafrestur. Skrifaðu til
CENTRALHUS
Box 48, 142 00 Stockholm
Sími: 08 744 10 50
P.S. Við útvegum ekki vinnu!
Skóladagheimili
Fóstrur - kennarar
Á horni Dyngjuvegar og Langholtsvegar er stórt
2ja hæða hús. Þar eru 22 hressir krakkar á skóla-
aldri (6-10 ára) sem skora á þig að fá þér vinnu
hér frá 7.30-12.30 eða í fullt starf frá kl. 7.30-
15.00.
Upplýsingar gefur Ragnar, Langholti, sími
31105.
St. Jósefsspítali
Landakoti
Deildarritarar
Óskum eftir að ráða deildarritara í fullt starf, nú
þegar, á handlækningadeild 3B og gjörgæslu.
Upplýsingar veittar á skrifstofu hjúkrunarstjórnar
alla virka daga frá kl. 10-16.
Reykjavík 3. september 1987
Sunnudagur 6. september 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5