Þjóðviljinn - 06.09.1987, Síða 7
Held undir
þrýstingi
Þráttfyrirvinsældirog út-
breiðslu knattspyrnunnar um-
fram aðrar íþróttir hérlendis er
það staðreynd að sigrar okkar
í landsleikjum eru heldur fátfð-
ir. Gildir þá einu í hvaða ald-
ursflokki er þótt yngri landslið-
in hafi löngum verið ívið sigur-
sællien þaueldri.
Það teljast því stórtíðindi þeg-
ar tveir eftirtektarverðir sigrar
vinnast með viku millibili - og
báðir óvænt. í fyrri viku vann 21-
árs landsliðið frækinn sigur í Evr-
ópuleik í Danmörku, 3-1, og á
miðvikudagskvöldið vann
ólympíuliðið, með einn atvinnu-
mann innanborðs, Austur-
Þýskaland á sannfærandi hátt á
Laugardalsvellinum, 2-0. Þessi
úrslit hafa verið kærkomin fyrir
alla áhugamenn um knattspyrnu
sem hafa margir hverjir verið
langt niðri eftir ófarirnar gegn
Austur-Þjóðverjum í Evrópuk-
eppninni fyrr í sumar.
Sigurinn á miðvikudaginn er
einhver sá glæsilegasti sem ég hef
orðið vitni að. íslensku strákarnir
báru enga virðingu fyrir eldri og
reyndari mótherjum sínum,
mættu til leiks með réttu hugar-
fari og höfðu getuna til að fylgja
því eftir. Barátta og hæfileikar
sameinuðust, t.d. hjá Ólafi Þórð-
arsyni og Pétri Arnþórssyni sem á
köflum sýndu ótrúlega blöndu af
þessu tvennu. Allt liðið vann
saman sem ein heild og leikurinn
lofar góðu fyrir framtíð íslenskrar
knattspyrnu. Kjarninn úr þessu
liði er aðeins 22-23 ára gamall og
hefur leikið saman í yngri lands-
liðunum. Þetta sýnir vel hve
mikilvæg þátttaka Islands í þess-
ari ólympíukeppni er, með henni
er brúað bilið á milli 21-árs lands-
liðs og A-landsliðs og leikmenn
sem annars myndu lenda þar á
milli skipa öðlast dýrmæta
reynslu. An hennar kæmust þeir
kannski aldrei alla leið í sterkasta
landslið íslands eða væru ekki
undir það búnir þegar kallið
kæmi.
Evrópuleikur við Noreg er
framundan og þá er stillt upp
öðru landsliði. Sigfried Held
landsliðsþjálfari mun verða fast-
heldinn á kjarnann sem lék hina
Evrópuleikina en nú er hann
undir meiri þrýstingi en nokkru
sinni fyrr eftir frammistöðu ólym-
píuliðsins. Hann veit nú að úr
breiðari hópi er að velja en áður
og hefur sjálfur sagt (í enn óbirtu
viðtali!) að í þessum lokaleikjum
Evrópukeppninnar sé rétt að
hefja undirbúning fyrir heims-
meistarakeppnina sem byrjar á
næsta ári.
Talsverð óvissa er um nokkra
af okkar bestu leikmönnum.
Ómar Torfason hefur þegar boð-
að forföll og tvísýnt er um Ásgeir
Sigurvinsson og Arnór Guðjohn-
sen. Ágúst Már Jónsson hefur
einnig átt við langvarandi meiðsli
að stríða og kemur tæplega til
greina. Ein til fjórar breytingar
verða því á óskaliði Helds.
Staða aftasta tengiliðs er opin.
Ómar Torfason hefur leikið þar
og verið ankeri miðjunnar. Sá
sem þar stendur þarf að leika af
yfirvegun og skynsemi - Janus
Guðlaugsson var löngum
ómetanlegur á þessum stað. Á
miðvikudaginn stóð Valsmaður-
inn ungi Ingvar Guðmundsson
sig frábærlega í þessari stöðu
gegn Austur-Þjóðverjum. Hann
er reynsluminnstur af þeim 20
leikmönnum sem valdir voru
fyrir helgi en einhvers staðar
verða menn að byrja. Gunnar
Gíslason kann líka vel við sig
þarna. Baráttujaxl sem kann því
illa að svitna lítið í stöðu
„sweepers".
Guðni Bergsson virðist enda
okkar framtíðarmaður í
„sweeper“-stöðunni og tímabært
að honum sé treyst í „alvöruverk-
efni“. Viðar Þorkelsson virðist
síðan sjálfsagður við hlið Sævars
Jónssonar í vörninni, í stað Ág-
ústs Más sem hefur sjálfur sagt að
hann sé varla boðlegur í landsleik
vegna langvarandi meiðsla.
Komi Asgeir ekki ætti að vera
sjálfgefið að stilla Pétri Ormslev
upp í hans stöðu. Pétur er í mun
betri æfingu en þegar hann tók
stöðu Ásgeirs í útileiknum gegn
Austur-Þjóðverjum í fyrrahaust.
Verði Ásgeir með hlýtur Pétur
samt sem áður að þjarma talsvert
að félaga sínum úr Fram, Ragnari
Margeirssyni, um sæti á miðj-
unni.
Leiki Arnór ekki með er varla
annað verjandi fyrir Held en að
gefa Guðmundi Torfasyni tæki-
færi í byrjunarliðinu. Guðmund-
ur átti stórbrotinn leik gegn
Austur-Þjóðverjum á miðviku-
daginn og sýndi að hann hefur
miklu bætt við sig á skömmum
tíma sem atvinnumaður. Síðan er
Lárus Guðmundsson í hópnum,
og auðvitað Pétur Pétursson, og
því eru í raun margir kostir fyrir
hendi með sóknarmenn. Það er
dálítið kitlandi tilhugsun að sjá
hvernig markakóngarnir Guð-
mundur og Pétur myndu spjara
sig saman.
Ef litið er á ólympíuliðið mætti
segja að þeir sem úr því hafa ver-
ið valdir í A-hópinn geti hver og
einn komið inní byrjunarliðið og
staðið fyrir sínu. Við höfum
sennilega aldrei átt úr fleiri góð-
um leikmönnum að velja og því
er eiginlega synd að hámark
þrettán geti tekið þátt í leiknum!
Svo mikið er víst að engin ein
uppstilling á liðinu getur gert alla
ánægða.
Áhorfendur á landsleikjum ís-
lands eru sérstakur kapítuli. Að-
eins tæp 1400 sáu leikinn við
Austur-Þýskaland á miðvikudag-
inn og þeir eru örugglega margir
sem naga sig í handarbökin fyrir
að hafa setið heima. íslenskir
knattspyrnuáhugamenn eru með
eindæmum vandlátir og virðast
ýmsir ekki mæta á völlinn til að
sjá íslenska landsliðið og styðja
það - þeir koma til að sjá einstak-
linga. Leiki Ásgeir eða Arnór
ekki með munar það þúsundum í
aðsókn. Leiki þeir með og sýni
ekki sínar bestu hliðar eru allir
fúlir. Það var merkilegt að sjá til
sumra þeirra sem þó komu á
ólympíuleikinn á miðvikudaginn.
Þegar enn lifðu nokkrar mínútur
af leiktímanum hvarf allnokkur
hópur á braut, beið ekki í eina til
tvær mínútur til að gefa íslenska
liðinu verðskuldað lófatak og
hylli þegar leiknum lyki. Fannst
mönnum virkilega ekkert sérlega
merkilegt vera að gerast?
Gleymum því ekki að þegar
flautað verður til leiks gegn Nor-
egi á miðvikudagskvöldið hefja
flestir íslensku leikmannanna
baráttuna með 0-6 martröðina á
bakinu. Þeir verða æstir í að
sanna getu sína á ný, en jafnframt
taugaóstyrkir og hættara við mis-
tökum en ella ef byrjunin á
leiknum verður ekki nógu góð.
Þeir þurfa að fá góðan stuðning
frá fyrstu mínútu til að fleyta sér
yfir erfiðasta hjallann. Þá verða
vonandi allar deilur og vangavelt-
ur um liðsuppstillingu lagðar til
hliðar og íslenska liðinu veittur
allur sá liðsstyrkur sem það þarf á
að halda. Þegar allt er yfirstaðið
er svo hægt að rífast og skammast
ef ástæða verður til.
IÞROTTASPEGILL
VIÐIR
SIGURÐSSONj,
Skóladagheimili
Fóstrur - kennarar
Nú stendur ykkur til boða skemmtilegt starf með
góðu fólki á Hagakoti við Fornhaga. Vinnutími
eftir samkomulagi. Upplýsingar gefur Steinunn,
sími 29270 eða 27683.
Laus staða
Staða bókafulltrúa í menntamálaráðuneytinu, sbr. 10. gr. laga nr.
50/1986 um almenningsbókasöfn, er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil skulu hafa
borist menntamálaráðuneytinu fyrir 25. september næstkomandi.
Menntamálará&uneytið
31. ágúst 1987
Verslunarstjóri
Óskum eftir að ráða verslunarstjóra í matvöru-
verslun sem selur heilsuvörur. Þarf að geta sinnt
öllum verslunarstörfum, svo sem að færa í sjóðs-
bók og fylla út tollskýrslur. Þarf að hafa gott vald á
ensku. Skaðar ekki að hafa áhuga á heilsufæði.
Upplýsingar um menntun og starfsreynslu skilist
á auglýsingadeild Þjóðviljans merkt „verslunar-
stjóri”.
Encyclopædia
Britannica
Ný sending af 1987 útgáfunni er komin.
32 bindi + 1987 árbókin.
Útborgun aðeins kr. 7.600,- og kr. 3.950,- á
mánuði í 12 mánuði.
Fjárfesting sem vit er L
Bókabúð Steinars,
Bergstaöastræti 7,
sími 12030.