Þjóðviljinn - 25.02.1988, Síða 2

Þjóðviljinn - 25.02.1988, Síða 2
— SPURNINGIN1 Spurt í Þjóðminjasafn- inu: Hvað er langt síðan þú komst síðast í safnið? Jón Kristjánsson Ábyggilega 10 ár. Ég hef bara komið einu sinni. Alexander Stefánsson Um eitt og hálft ár. Ég hef komið þó nokkuð oft, svona 10-12 sinn- um. Ég á það til að fara á sérsýn- ingar. Guðmundur Bjarnason Ætli ég hafi ekki verið um 15 ára þegar ég kom hingað í skóla- ferðalagi. Það er í eina skiptið sem ég hef komið á Þjóðminja- safnið. Ingi Björn Albertsson Það eru um 20 ár síðan. Ég hef komið svona þrisvar sinnum, alltaf verið dreginn með skólan- um. Salome Þorkelsdóttir Það er ekki svo langt síðan, um 2 ár. Ég hef komið nógu oft til að geta ekki talið það. Ég kem helst af einhverju sérstöku tilefni og Ijom líka nokkrum sinnum hingað sem barn. FRETTIR Bjórinn Læknar í Þingtíðindi Fyrstu umrœðu um bjórinnfrestað í tvígang. ÓlafurÞ. Þórðarson las upp nöfn allra lœknanna sem skrifuðu undir stuðning við bjórinn Erfíðlega ætlar að ganga að Ijúka fyrstu umræðu um bjórfrumvarpið í neðri deild Al- þingis og virðast þingmenn hafa mikla þörf fyrir að tjá sig um mál- ið, þótt skammt sé um liðið síðan deildin ræddi hliðstætt frumvarp á mörgum fundum fyrir jól. Meirihluti allsherjarnefndar ákvað að flytja nýtt frumvarp í stað þess að koma með breyting- artillögur við frumvarp Jóns Magnússonar og fl. þingmanna. Ólafur G. Einarsson mælti fyrir þessu nýja frumvarpi á þriðjudag og síðan lýsti Guðrún Helgadótt- ir stuðningi við frumvarpið, en hún var einn af meðflutnings- mönnum Jóns á fyrra bjórfrum- vaipinu. Ólafur Þ. Þórðarson var næst- ur á mælendaskrá og fór fram á að málinu yrði frestað og urðu um það hörð orðaskipti. Ólafur fékk þó vilja sínum framgengt og var málið tekið aftur á dagskrá í gær. Þrír andstæðingar bjórsins töluðu í gær, þeir Arni Gunnars- son, Sverrir Hermannsson og Ólafur Þ. Þórðarson. Þeir læknar sem skrifuðu undir að leyfa bæri bjórinn voru töluvert á milli tann- anna á ræðumönnum í gær. Árni Gunnarsson sagði að þeir sem léðu nafn sitt við þetta frumvarp hafi ekki kynnt sér afleiðingu þess ef bjór yrði leyfður. Ólafur Þ. Þórðarson sá ástæðu til að lesa upp nöfn allra læknanna sem skrifuðu undir, svo að nöfn þeirra yrðu skjalfest í Þingtíðindum, en þeir eru á annað hundrað talsins. Umræðu var frestað um fjög- urleytið í gær þegar Ólafur Þ. var í miðri ræðu, því að þingmenn voru boðnir í Þjóðminjasafnið klukkan fimm. -Sáf Gerviefni í lögnum Þörf á virku eftirliti Lagnafélag Islands: Brýn nauðsyn á lagnaefnisráði. Til upplýsingar um hvort lagnaefni og samsetningartœkni sé viðurkennd Stúdentaráðskosningar Hreinar línur Þórunn Sveinbjarnardóttir: Röskva, breiðfylking félagshyggjufólks, býður stúdentum upp á ótvírœðan valkost Lánamálin og málcfni Félags- stofnunar stúdenta eru þau mál sem kosningabaráttan snýst fyrst og fremst um, að mati Þórunnar Sveinbjarnardóttur, formanns Röskvu, en kosningar til Stúdenta- og Háskólaráðs fara fram 15. mars. „Röskva“ er nafn hinna nýju heildarsamtaka félagshyggju- fólks í Háskólanum, og standa bæði Félag vinstri manna og Fé- lag umbótasinna að henni. Vöku- menn hafa kallað hið nýja félag hræðslubandalag, og sagði Þór- unn að fólk tæki þeim stimpli með jafnaðargeði; meira máli skipti að breiðfylking félags- hyggjufólks í Háskþlanum væri orðin að veruleika og byði hún stúdentum upp á ótvíræðan val- kost í komandi kosningum. Þórunn sagðist ekki verða ann- ars vör en að stofnun hins nýja félags mæltist vel fyrir og sagði að allnokkur hópur fólks hefði nú komið til starfa sem áður hefði staðið álengdar í pólitískum efn- um. Því ríkti bjartsýni í röðum félagsmanna. Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður Röskvu, breiðfylkingar félagshyggjufólks í Háskólanum: Stofnun hins nýja félags mælist vel fyrir. Hjá Staðlaráði íslands er nú til umfjöllunar tillaga frá sex manna nefnd sem fagráð Lagnafélags íslands skipaði sl. vor um að komið verði á fót lagn- aefnisráði. Verk- og valdsvið þess verði að gera kröfur um þol rör- lagna og hafa framleiðslueftirlit með vörum til ýmisskonar lagna úr mismunandi gerviefnum sem nú ryðja sér til rúms hér á landi. Á blaðamannafundi sem Lagnafélag íslands boðaði til kom fram að verulegur skortur er á virku eftirliti með notkun og gæðum þeirra mismunandi gervi- efna sem í notkun eru í dag. Því beri að koma á virku eftirliti með notkun slíkra efna þannig að not- endur og eftirlitsaðilar hafi ávallt upplýsingar um það hvort lagna- efni og samsetningartækni séu viðurkennd og hvert sé notkunar- svið þeirra. Stjórn Lagnafélagsins vill með öllum tiltækum ráðum fyrir- byggja slys vegna rangrar notk- unar þessara nýju rörlagnaefna með því að efla þekkingu þeirra sem með efnin fara. En því miður hafa orðið slys af völdum þekk- ingarskorts á því hvernig vinna ber með þessi gerviefni, plast og önnur efni, sem hægt hefði verið að koma í veg fyrir ef nauðsynleg þekking hefði verið fyrir hendi hjá viðkomandi fagmönnum. Til að efla þekkingu á þessum mismunandi gerviefnum og notk- un á þeim, tóku Lagnafélagið og Iðnskólinn í Reykjavík höndum saman og héldu námskeið fyrir pípulagningamenn, hönnuði og byggingarfulltrúa þar sem þeim var kennt að nota þessi mismun- andi gerviefni og hvernig þau kæmu að sem bestum notum í þeirra starfi. Það er von Lagnafé- lagsins og Iðnskólans að hægt verði að gefa út fræðsluefni sem að gagni megi koma fyrir alla þá aðila sem málið snertir. .erh

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.