Þjóðviljinn - 25.02.1988, Side 17
í UMFERÐINNI
Kristján sýnir aðstööuna í nýju Tjónaskoðunarstöðinni. Sjá má að enginn hörgull er á tjónabílum, enda koma að jafnaði
20 bílar á dag til skoðunar. Mynd E.ÓI.
fólk yrði ekkert skyldugt til að
láta viðgerð fara fram á sama
stað,“ sagði Kristján og bætti því
við, að reynslan yrði að leiða í
ljós hvort þau stæðu ekki undir
ábyrgð sem skoðuninni fylgir.
Rannsaka þarf
orsök slysa
„Hér er ekki spurt afhverju
slysið varð. Við fáum aldrei nið-
urstöður um það. Til að fá því
svarað þarf sérstaka rannsókna-
nefnd umferðarslysa, þar sem
sérmenntaðir menn rannsaka or-
sök slysanna, bæði með skoðun á
öryggisútbúnaði ökutækjanna og
aðstæðum á slysstað. Með því
mætti afla mikilvægra gagna, sem
nota má til að auka öryggi í um-
ferðinni.“
Kristján sagði það mikla aftur-
för og vanhugsaðan sparnað að
hætta að láta bifreiðaeftirlits-
menn skoða bíla á slysstað. Al-
mennir lögreglumenn hefðu enga
þekkingu til að rannsaka orsakir
slysa og í skýrslum vantaði oft
mikilvæg atriði eins og t.d. hraða
ökutækja.
Sjálfur telur Kristján að helstu
orsakir fjölda tjóna hér að und-
anförnu megi rekja til þess að
fólkkeyri ofþétt. Flesttjón verða
vegna aftanákeyrslu og mörgum
hefði mátt afstýra ef fólk væri
með allan hugann við keyrsluna,
en ekki talandi í síma eða við
samfarþega. Oft hefðu góð dekk
og hemlar einnig komið að gagni.
Tölvur í framtíöar*
bílinn
Kristján fylgist af áhuga með
öllum nýjungum í hönnun bíla og
bættum öryggisbúnaði. Segir
hartn að á þessu sviði, sem og öðr-
um sé tölvutæknin að ryðja sér til
rúms. í suma nýja bíla eru komn-
ir tölvustýrðir hemlar, sem auka
mjög öryggi í akstri. Er þá heml-
un hvers hjóls stýrt miðað við það
viðnám er undirlagið veitir.
Á leiðinni eru einnig tölvur í
bfla sem bjóða munu upp á marga
skemmtilega möguleika. Krist-
ján tók sem dæmi um notagildi
tölvunnar, að ef unglingar fengju
lánaðan bílinn til bíóferðar, gætu
foreldrarnir slegið inn hámarks-
hraða og þann tíma þegar drepast
ætti á bílnum. Þannig þyrfti ekki
lengur að vera sífellt að taka lof-
orð af unglingunum, um að aka
ekki of hratt og mæta heim á til-
skildum tíma.
-mj
Fróðleiksmolar úr
umferðarlögunum
• Eigi má stökkva af eða upp í ökutæki á ferð eða
vera utan á ökutæki á ferð.
• Ökumaður skal nota akbraut. Bannað er að aka
eftir gangstétt eða gangstíg.
• Eigi má stöðva ökutæki á gangstétt eða leggja því
þar, nema annað sé ákveðið.
• Ökumaður, sem mætir eða ekur fram hjá gang-
andi vegfaranda, skal gefa honum tíma til að víkja til
hliðar og veita honum nægilegt rými á veginum.
• Án leyfis má eigi nema brott eða breyta umferðar-
merki.
• Hjólreiðamaður skal að jafnaði hafa fætur á fót-
stigum og a.m.k. aðra hönd á stýri.
• Ökumaður létts bifhjóls skal háfa báða fætur á
fótstigum eða fóthvílum og aðjafnaði báðar hendur á N
stýri.
• Vélknúinn hjólastóll telst vera reiðhjól ef hann er
ekki hannaður til hraðari aksturs en 15 km á klst.
• Það leysir ökumann ekki undan sök, þótt hann
ætli vínandamagn minna en 1,20 prómill.
• Enginn má hjóla eða reyna að hjóla eða stjórna
eða reyna að stjórna hesti, ef hann er undir svo
miklum áhrifum áfengis eða annarra örvandi eða
deyfandi efna, að hann geti eigi stjórnað hjólinu eða
hestinum örugglega. Eða hvað?
Er heitur morgunmatur lausnin?
I nýju fréttabréfi Umferðarráðs er athyglisverð klausa um þátt heits
morgunverðar í því að auka umferðaröryggi.
Úr skýrslu umferðarráðs New Yorkborgar fást þær upplýsingar, að
jafnvægisskyn ökumanns sem ekki sér líkamanum fyrir nægilega
góðri næringu að morgni, geti orðið afar lélegt er á líður daginn. Sagt
er að ef fólk borðar heitan morgunverð áður en það ekur til vinnu, sé
því síður hætt við að lenda í umferðaróhappi en þeim sem þjóta
matarlausir út.
Ástæðan fyrir minnkandi jafnvægisskyni er sú að eftir 12-14 klukku-
stundir án þess að borða heitan mat, lækkar líkamshitinn og verður
rúmum 2 gráðum undir eðlilegum hita. Hjartsláttur getur orðið allt að 8
slögum undir meðaltali og blóðþrýstingur stigið um 10 stig. Auk þess
lækkar sykurmagn í blóðinu.
Off/VOl-PUSHWSnAY
AUDIOLINE
AUTO-SCAN/SKK • 18 MEMORY
Vinsælu bíltækin ■ |P Einstök tæki
á íslandi ■ llt Einstakt verð
Verð
aðeins
kr.
9575,-
I ALLA BILA
i
.Q3
Aðrir útsölustaðir:
öll kaupfélög og
stærri verslanir í
landinu auk Esso
oliustöðvanna.
LW - MW - FM stereo - sjálfvirk stöðvaleitun og minni á 18 stöðvar. Digital klukka - næturlýs- 12 Watt
ing - hraðspólun áfram á kassettu o.fl. o.fl.
SJONVARPSMIÐSTÖÐIN HF.,
Síðumúia 2 - sími 689090