Þjóðviljinn - 25.02.1988, Side 23
ÍÞRÓTHR
og þetta
tíka...
Zola Budd
hlaupakonan berfætta var beðin um
að staðfesta að hún ætlaði að búa í
Bretlandi og minnka tengsl sín við
Suður-Afríku fyrir skömmu. Það var
Frjálsíþróttasamband áhugamanna í
Bretlandi sem óskaði eftir þessu og
ætla með því að reyna að koma í veg
fyrir mótmæli þegar Budd keppir í
langhlaupi á Samveldisleikunum í
mars. Einnig vonast þeir til að þessi
staðfesting eigi eftir að greiða leið
hennar í hlaupinu en það hefur komið
fyrir að fólk flækist fyrir henni í keppn-
um. Fólkið er að mótmæla því að
Bretar tóku við henni feginshendi
þegar hún kom þangað og létu hana
fá ríkisborgararétt innan tveggja
vikna, sem er meira en lítið óvenju-
legt.
íþróttarstjórnunarfræði
Stefán Konráðsson, sem var einn
besti borðtennisspilari íslendinga um
margra ára skeið, er nú staddur hér á
landi til að kynna sér rekstur íþrótta-
hreyfingarinnar. Hann hefur stundað
nám við íþróttaháskólann í Osló und-
anfarin tvö ár og lýkur námi nú í vor.
Þar hefur hann lagt stund á íþrótta-
stjórnunarfræði, en sú grein snýst um
rekstur á íþróttafélögum. Stefán segir
að þessi grein sé að ryðja sér til rúms
víða enda sé nóg af menntuðum
þjálfurum en rekstri íþróttahreyfinga
sé víða ábótavant. Áður hafði hann
kynnt sér (SÍ þeirra Norðmanna.
Skyldi vera tími til kominn....
Ari Vatanen
fékk synjun við áfrýjun sinni þegar
honum var vikið úr keppni í París-
Dakar rallinu. Þar var, eins og menn
muna, bíl hans stolið rétt áður en
leggja átti af stað frá einum áfangan-
um en fannst skömmu síðar á rusla-
haugum í grenndinni. Þá var búið að
ræsa rallkappana og Vatanen orðinn
of seinn. Helsta mótbára Vatanens
og Peugeot liðsins var að skipuleg-
gjendur keppninnar ættu að sjá um
öryggi keppenda en henni var hafn-
að. „Tframtíðinni verðum við að leigja
okkur öryggisverði til að gæta farar-
tækja okkar," sagði einn úr Peugeot
liðinu.
Russ kætist
lan Russ, knattspyrnukappanum
breska, er farið að líða betur á Ítalíu.
„Mér gekk illa að koma mér fyrir og
læra málið. Nú er það farið að ganga
betur að tala ítölskuna og ég skil
meira hvað hinir leikmennirnir eru að
segja við mig," sagði Russ þegar
hann var staddur í Englandi fyrir
skömmu. „Ég varð líka að skipta um
stíl og hef þurft að læra að spila með
honum."
Tottenham
hefur fengið að láni Bobby Mimms,
markvörð Everton, til að fylla upp í
skarðið eftir Ray Clemence en hann
hefur verið á sjúkralista að undan-
förnu. Terry Venables segir að von-
andi verði hægt að ganga frá félaga-
skiptum Mimms til Tottenham fljót-
lega en ekki hafa náðst samningar
um kaupverðið.
Heimsmet
Stefka Kostadinova frá Búlgaríu sló
sitt eigið heimsmet í hástökki innan-
húss fyrir skömmu þegar hún sfökk
2.06 metra en fyrra met hennar var
2.05. Hún lét hækka rána uppí 2.10
en felldi. Stefka á einnig heimsmetið í
hástökki utanhúss, sem er 2.09 og
var sett á heimsmeistaramótinu í
Róm 1987. Metið þá vakti litla athygli
því sekúndu síðar sló Ben Johnson
heimsmet í 100 metra hlaupi svo að
Stefka greyið hvarf alveg í skuggann.
Metahríð
Heimsmetið í 50 metra grindahlaupi
kvenna var slegið fjórum sinnum á
einu móti. Það var austur-þýska
stúlkan Cornelia Oschkenat sem átti
metið, 6.71 sekúndu, en samlanda
hennar Gloria Siebert byrjaði á að
hlaupa á 6.69 sekúndum. Oschkenat
hljóp þá enn hraðar og náði tímanum
6.68 sekúndum en Siebert bætti það
fljótlega og náði að hlaupa á 6.67.
Enn kom Oschkenat til skjalanna og
hljóp á 6.66. Þegar blaðið fór í prent-
un stóð það met enn, en við látum vita
um leið og það verður bætt.
Handbolti
Stórsigur
KA yfir Víkingi
Það var engin frægðarför hjá
Víkingi í gær þegar þeir fóru til
Akureyrar og voru gcrsigraðir af
heimamönnum
Víkingar voru yfir allan fyrri
háifleik og virtust á sigurbraut en
á síðustu mínútunum fyrir leikhlé
náðu KA-menn að jafna 9-9 og
skömmu síðar 10-10
Enn komust gestirnir yfir í
byrjun síðari hálfleiks 10-11 en
síðan ekki söguna meir. Heima-
menn náðu að jafna 12-12 og
gerðu enn betur og komust í 15-
12. Enn seig á ógæfuhliðina hjá
Hæðargarðsstrákunum og náði
KA að auka forskotið í 20-15.
Þegar leið að leikslokum var
staðan orðinn 25-19 og þótt Vík-
ingar næðu að klóra í bakkann í
lokin var stórsigur KA staðr-
eynd, 26-19.
Af KA-mönnum var Axel
Björnsson mjög góður og náði að
halda Bjarka Sigurðssyni alveg
niðri. Brynjar varði einnig vel í
markinu. Af Víkingum er það
helst að frétta að Kristján Sig-
mundsson varði ekki skot í síðari
hálfleik og skipti Sigurður Jens-
son við hann um miðjan hálfleik.
Það sem helst skóp sigur heima-
manna var að sóknarlotur gest-
anna enduðu á Brynjari Kvaran
eða fóru framhjá markinu en KA
náði að skora úr fjölda hraða-
upphlaupa. Það var eins gott fyrir
ZSKA Moskvu að þeir þurftu
ekki að fara til Akureyrar að spila
við KA.
England
Watford
áfram í bikamum
Stoke lagði Leeds
Watford hefur nú komist
þriðja árið í röð í átta liða úrslit í
enska bikarnum.
Það var Trevor Senior sem
gerði fyrsta mark Watford eftir
aðeins 5 mínútur og er það fyrsta
mark hans á heimavelli Watford
Vicarage Road. En leikmenn
Port Vale voru ekki á því að gef-
ast upp enda slógu þeir sjálft
Tottenham út úr bikarnum. Þeir
voru nálægt því að jafna hvað
eftir annað, skutu rétt yfir og
Gary Ford hitti í stöngina
snemma í síðari hálfleik. En það
var Gary Porter sem gerði út um
leikinn með fallegu skoti sem
flaug yfir markvörð Vale, Mark
Grew. Watford leikur því við
Wimbledon 12. mars.
Watford-Port Vale.............2-0
Italía
Gullit
fékk eins
leiks bann
Fœr líklega sektir
Ruud Gullit, knattspyrnumað-
ur Evrópu, fékk eins leiks bann
fyrir að hafa móðgað dómarann í
leik Milan gegn Ascoli 14. febrú-
ar. Gullit fékk þá gult spjald fyrir
brot og þegar dómarinn sýndi
honum spjaidið, klappaði hann
og rétti sá svartklæddi honum þá
rauða spjaldið. Gullit sver að
hann klappi alltaf saman höndun-
um til að koma einbeitingunni í
lag og félagar hans hjá Milan
staðfcstu það. En það samþykkti
aganefndin ekki.
Einnig er búist við að kappinn
fái sektir frá félagi sínu en tals-
maður félagsins vildi ekki segja
hvað það yrði mikið. Gullit mun
því missa af leik liðsins gegn
Sampdoria á sunnudaginn. Þó
var talið að Hollendingurinn
fengi tveggja leikja bann þannig
að hann þykir hafa sloppið sæmi-
lega.
-ste
l.deild
T ottenham-Manchester City..
. 1-1
Þjóðviljinn
r 68 13 33
2.deild
Stoke-Leeds........................2-1
Skoski bikarinn
Partick-Clydeband..................4-1 Bjarka Sigurðssyni var alveg haldið niðri
I í minn
r> 68 18 66
Blaðburður
BESTA TRIMMIÐ
og borgar sigí
BLAÐBERAR ÓSKAST
Fimmtudagur 25. febrúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23’
Víðs
vegar
um
borgina
Hafðu samband við okkur
þJÓÐVIUINN
Síðumúla 6
0 68 13 33