Þjóðviljinn - 13.04.1988, Blaðsíða 8
Tjarnarstálþil
Þurrum fótum eftir botninum?
Ásta Porleifsdóttir, GuðniJóhannessonogGuðrún Pétursdóttir
skrifa Náttúruverndarráði: Verklýsing miðast við að skapa sem hestar aðstœður til vinnu í
grunninum, án tillits til lífríkis Tjarnarinnar
„Vatnsmagn Tjarnarinnar er
svo lítið að vatnstap sem ekki
nemur miklu í rúmmetrum getur
haft afgerandi afleiðingar fyrir
lífríkið,“ segja þau Ásta Þorleifs-
dóttir jarðvatnsfræðingur,
Guðni Jóhannesson verkfræðing-
ur og Guðrún Pétursdóttir líf-
eðlisfræðingur í nýlegu bréfi til
Náttúruverndarráðs, þar sem
þau árétta hvflíkur voði steðjar
að Tjörninni vegna yfírvofandi
ráðhússtiltekta.
Texti bréfsins fer hér á eftir,
því sem næst óstyttur, en fyrir- og
millifyrirsagnir eru Þjóðviljans.
Við förum þess á leit við yður,
að Náttúruverndarráð hlutist til
um að borgaryfirvöld geri
nauðsynlegar og ákveðnar
varúðarráðstafanir til að forða
því, að lífríki Tjarnarinnar bíði
verulegan skaða við fyrirhugaðar
framkvæmdir vegna ráðhússins.
Við teljum að vissir fram-
kvæmdaþættir, sem lýst er í verk-
efnislýsingu fyrir ráðhúsið, geti
valdið það miklum breytingum á
vatnsbúskap Tjarnarinnar að líf-
ríkinu sé veruleg hætta búin.
Okkur er kunnugt um, að fyrir
næsta fundi bygginganefndar
Reykjavíkur, sem haldinn verður
á morgun, 30.9. 1988, liggur
beiðni verkefnisstjórnar ráðhúss
um byggingarleyfi eða a,m.k.
leyfi til að hefja framkvæmdir við
að byggja garð, grafa grunn og
reka niður stálþil íTjörninni. Við
teljum óhjákvæmilegt að
ákveðnar varúðarráðstafanir
verði gerðar áður en slíkt leyfi er
veitt.
Áður en við færum rök fyrir
máli okkar, viljum við taka fram,
að við efumst ekki um verkfræði-
lega reynslu og getu verktaka.
Hann hefur m.a. unnið að stórum
virkjunarframkvæmdum og hef-
ur því góða reynslu af vinnu í
vatni, þar sem byggja þarf garða
og reka niður stálþil. Hins vegar
bendum við á það, að aðstæður
við slíkar virkjunarframkvæmdir
eru í mjög veigamiklum atriðum
ólíkar þeim sem verða við fram-
kvæmdirnar í Tjörninni. Við
virkjanir hefur verktaki ekki
þurft að hafa teljandi áhyggjur af
lífríki vatnsins sem unnið var í.
Dæla hefur mátt vatni umsvifa-
Iaust út fyrir stálþil, breytingar á
vatnsborði utan þils hafa ekki
verið taldar skipta máli frá líff-
ræðilegu sjónarmiði og hætta á að
þurrka upp vatnið sem unnið var í
hefur áreiðanlega aldrei verið
fyrir hendi.
Lítið innstreymi
vatns í Tjörnina
Þessi atriði eru hins vegar öll
mikilvæg við framkvæmdirnar í
Tjörninni. Yfirborð norður- og
suður Tjarnanna beggja er um
90.000 m2. Meðaldýpt er 40-60
cm. Heildarvatnsmagn Tjarn-
anna beggja er því aðeins um
50.000 m2. Samkvæmt skýrslu
sem verkfræðistofan Vatnaskil
skilaði í desember 1987 um
grunnvatnsástand í miðborg
Reykjavíkur, er innstreymi vatns
í Tjörnina lítið, eða um 39 lítrar á
sekúndu. Við núverandi aðstæð-
ur er jafnvægi milli inn- og út-
streymis vatns í Tjörninni. Öll
aukning á útstreymi, t.d. með
dælingu, mun því stuðla að lækk-
un yfirborðs. Sama máli gegnir
um allt sem dregur úr innstreymi
vatns í Tjörnina.
Áður en við rökstyðjum hvers
vegna við teljum að vatnsbúskap
Tjarnarinnar sé hætta búin, vilj-
xk ■
J ~ Tjsrnsrosts
um við gera nokkra grein fyrir
aðstæðum á byggingarsvæðinu.
Ráðgert er að leggja 10 til 20
metra breiðan grjót- og malar-
garð út í Tjörnina sem afmarkar
byggingarsvæði ráðhússins til
austurs og suður. Byggingar-
svæðið mun nema u.þ.b. 8000
m2, þar af er lóðin við norðvestur
horn Tjarnarinnar um 12002,
skerðing Tjarnarinnar á bygging-
artímanum er því u.þ.b. 6800 nr,
eða um 10% af Norður-
Tjörninni. Stálþil verður rekið
niður meðfram Tjarnargötu og
Vonarstræti og innan garðsins í
Tjörninni, ef hann reynist lekur.
Grunnurinn verður 7,2 m undir
sjávarmáli þar sem hann er dýp-
stur, en vatnsstaða Tjarnarinnar
er +2 yfir viðmiðunarpunkti.
Gert er ráð fyrir að dæla vatni
upp úr grunninum ýmist beint út í
Tjörnina, í setþró, eða út í Læk-
inn. í þvf sambandi vekjum við
athygli á því, að byggingarstjóra
verður falið að meta hvenær dæla
á vatninu á hvern þessara staða,
og verða litabrigði á vatni Tjarn-
arinnar höfð sem viðmiðun!
í svari borgarverkfræðings
varðandi spurningar íbúa við
Tjarnargötu dags. 3. 3. 1988,
kemur fram að reiknað er með að
dæla 50-100 lítrum á sekúndu úr
grunni ráðhússins. Á svarinu
verður ekki annað skilið en að
reiknað sé með að þetta sé
grunnvatn. Það er því óhjá-
kvæmilega hluti af innstreymi til
Tjarnarinnar, og verði þessu
vatni dælt burt mun það rýra
vatnsflæði til Tjarnarinnar, og
stuðla þar með að lækkun yfir-
borðsins.
300 samskeyti
á stálþilinu
Hvað varðar leka á Tjarnar-
Við byggjum ráðhús: ráðgert er að leggja 10 til 20 metra breiðan grjót-
og malargarð út í Tjörnina og afmarkar hann byggingarsvæði ráð-
hússins til austurs og suðurs. Skerðing Tjarnarinnar á byggingartím
anum er um 10% af norðurtjörninni.
vatni niður í grunninn, kemur
fram í svari borgarverkfræðings
að ekki er gert ráð fyrir að garður
eða stálþil umhverfis grunninn
leki, og því ekki gerðar neinar
ráðstafanir til að mæta slíkum
leka. Okkur er ekki kunnugt um
að nein gerð stálþilja sé til, sem
ekki lekur í vikur eða mánuði,
þar til setkorn úr vatninu hafa
þétt mótin milli platanna. Auka
má hraðann á svona þéttingu
með því að stuðla að vægu flæði
að utan með dælingu. Lekinn
eykst í hlutfalli vð fjölda sam-
skeyta, en skv. upplýsingum frá
Almennu verkfræðistofunni hf.
virðist vera um nálægt 300 sam-
skeyti að ræða umhverfis grunn-
inn, þar af u.þ.b. 130 Tjarnar-
megin. Hvergi kemur fram í lýs-
ingu á stálþili því sem nota á, að
það sé örugglega vatnsþétt frá
upphafi. Sé hins vegar svo, væri
fróðlegt að vita í hverju sá eigin-
leiki þess er fólginn.
Vatnsmagn Tjarnarinnar er
svo lítið, að vatnstap sem ekki
nemur miklu í rúmmetrum, getur
haft afgerandi afleiðingar fyrir
lífríkið. Dæling á Tjarnarvatni
sem næmi 50 sekúndulítrum
myndi tæma Tjörnina á 20
dögum, þó svo innflæði í hana
héldist stöðugt. í ofannefndu
svari borgarverkfræðings eru töl-
urnar 50 til 100 sekúndulítra
nefndar í tengslum við dælingu úr
grunninum.
Vegna aðstæðna í grunninum
er augljóst að vatn sem lekur nið-
ur í hann verður of aurmengað til
að dæla megi því til baka í Tjörn-
ina. Þetta á að minnsta kosti við í
upphafi framkvæmdanna,
þ.e.a.s. fyrstu vikurnar, en ein-
mitt þá má gera ráð fyrir að leki
verði mestur. Ætla má að þessu
vatni verði dælt í Lækinn. Tjarn-
Hjörleifur Sveinbjörnsson
arvatn sem tapast á þenna hátt
verður ekki bætt með hverju sem
er. Við eðlilegar aðstæður er að-
flæði til Tjarnarinnar mjög hægt.
Miðað við rúmtak Tjarnarinnar
og hraða aðstreymis, má búast
við að vatnið í henni endurnýist á
u.þ.b. ári. Lífríki hennar er að-
lagað slíkum aðstæðum, og aukið
innflæði á fersku vatni getur haft
ófyrirsjáanlegar afleiðingar. í
verklýsingu kemur hins vegar
fram að öllu vatni úr dúpbrunn-
um skuli dælt beint í Tjörnina.
Þetta kann að vera varhugavert í
ljósi þess sem að ofan segir. Ef
fullt tillit ætti að taka til lífríkis
Tjarnarinnar yrði að halda því
jafnvægi sem er eðlilegt í
vatnsbúskap hennar og breyta
hvorki innflæði né útflæði.
Aóstæöur til virtnu
ganga ffyrir
Samkvæmt verklýsingu verður
það ekki gert, heldur virðist öll
verklýsingin miðast við að skapa
sem bestar aðstæður til vinnu t
grunninum, án tillits til Tjarnar-
innar. Það er e.t.v. ekki við öðru
að búast í ljósi þeirra aðstæðna
við virkjunarframkvæmdir sem
verktaki er vanur að vinna við.
Við viljum hins vegar ítreka, að
verkefnið í Tjörninni er allt ann-
ars eðlis og krefst mikillar aðgát-
ar sem verður að undirbúa. Ef
verkbjóðandi og verktaki gera
sér ekki grein fyrir því f hverju
hættur fyrir lífríkið kunna að vera
fólgnar, verða þeir sem vit hafa á
þessu að leiðbeina þeim.
Almenningur treystir því að
Náttúruverndarráð verndi þessa
perlu í hjarta höfuðborgarinnar
og komi í veg fyrir að lífríki
Tjarnarinnar verði skaðað við
byggingu ráðhússins. Það væri að
bregðast trausti manna að sjá
fyrir skaða en vara ekki við hon-
um.
í þessu sambandi viljum við
benda á eftirfarandi atriði:
1. Hvergi kemur fram í verklýs-
ingu að fylgjast skuli með
vatnshæð Tjarnarinnar. Ekki
er heldur nefnt hvaða ráðstaf-
anir skuli gerðar ef vatnsborð
hennar lækkar. Úr þessu verð-
ur að bæta með nákvæmri
áætlun.
2. Brýnt er að tryggja að garður
og stálþil leki ekki. Þetta verð-
ur að sannprófa með mæl-
ingum áður en dælt verður úr
grunninum. Reynist þilið lekt,
verður að fresta framkvæmd-
um þar til það er orðið vatns-
helt.
3. Samráð skal haft við vatnalíf-
fræðinga áður en vatni úr
grunni eða djúpholum er dælt
í Tjörnina.
4. í ljósi þess hvað vatnsmagn
Tjarnarinnar er lítið og endur-
nýjun vatns í henni hæg skal
tekið fram að ekki má nota
nein eitruð efni við fram-
kvæmdirnar, t.d við þéttingu
garða.
Við vonum að Náttúruvernd-
arráð sé okkur sammála um
nauðsyn þess að framkvæmdaað-
ilum verði skylt að gera ákveðnar
varúðarráðstafanir til að hindra
að bygging ráðhúss í Tjörninni
valdi meiri skaða á lífríki Tjarn-
arinnar en óhjákvæmilegt er. Við
treystum því, að ráðið beiti sér
fyrir að það verði gert.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 13. apríl 1988