Þjóðviljinn - 21.10.1988, Qupperneq 6
Fyrir ofan Málarann við Grensásveg er falt leiguhúsnæði. Eins og drepið er á í þessum pistli situr mikið af Nýlega var byggt ofan á „Miðbæinn" á horni Háaleitisbrautar og
efri hæðunum eftir, en frekar að jarðhæðirnar gangi út. Safamýrar, en þar er nú þegar húsnæði til leigu. Myndir: Jim Smart.
Steypt í kapp við
Viðbótin við verslunar- og skrifstofuhúsnæði í höfuðborginni hefur margfaldast milli ára síðan 1985,
en þó halda stórhýsin áfram að rísa. Framboðið er gífurlegt og leigan hefur snarlækkað
Meira en helmingi meira af
verslunar- og skrifstofuhús-
næði í Reykjavík var fullgert
árið 1986 en árið á undan,
eða um 193 þúsund rúmmetr-
ar á móti tæplega 91 þúsund
rúmmetrum 1985. Það ár var
samanlagður rúmmetrafjöldi
fyrir öll fullgerð hús í borginni
um 813 þúsund, en liðlega
miljón árið 1986.
Þennan fróðleik er að finna í
Árbók Reykjavíkurborgar 1987
og má af honum sjá að aukningin
í verslunar- og skrifstofuhúsnæð-
inu er meira en helmingi meiri en
í öliu öðru húsnæði, hverju nafni
sem það nefnist, en flokkunin er
að öðru leyti þessi í árbókinni;
íbúðarhús, skólar og sjúkrahús,
iðnaðar- og verksmiðjuhús, og
bílskúrar og geymslur.
Þessi sannindi hafa undanfarið
skilað sér í því að óhemjumikið
framboð virðist vera á húsnæði af
þessu tagi í borginni. Auglýsingar
þar að lútandi eru alla jafna
margar í helsta málgagni fast-
eignaviðskiptanna, Sunnu-
dagsmogganum, en að auki verða
sífellt meira áberandi spjöld eða
miðar úti í gluggum þarsem pláss-
ið fyrir innan er ýmist auglýst til
sölu eða leigu. Ljósmyndari
blaðsins festi nokkrar slíkar út-
stillingar á filmu fyrr í vikunni og
má sjá afraksturinn hér á opn-
unni.
Þrátt fyrir þetta eru mörg stór-
hýsi fyrir verslunarrekstur og
skrifstofuhald í byggingu, og má
sem dæmi nefna til þeirrar sögu
skipulagshryðjuverk það sem rís
nú sem óðast oní Borgarleikhús-
inu nýja og kennt er við þá forn-
frægu prentsmiðju ísafold, en
forráðamenn fyrirtækisins hafa
auglýst á heilsíðum að hluti ný-
byggingarinnar sé til sölu. Og það
er ekkert smotterí sem bætist við
með þessu eina húsi, því að þar
verða meðal annars tvær 2000
fermetra verslunarhæðir og fimm
300 fermetra skrifstofu- og þjón-
ustuhæðir.
Atli Vagnsson hjá fasteigna-
sölunni Vagn E. Jónsson sagði
aðspurður um þessi mál að sér
sýndist hvorttveggja vera á ferð-
inni: mikið framboð á tiltölulega
gömlu húsnæði, sem væri á vissan
hátt úrelt og illa staðsett og því á
of háu verði, en að j afnframt væri
markaður fyrir húsnæði sem væri
6 SÍÐA - NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 21. október 1988