Þjóðviljinn - 21.10.1988, Síða 27
Miðilshæfileikar
í kynlífi
Að geta rætt málin saman er
grundvallaratriði í að góðu ást-
arsambandi. Mörgum finnst samt
voðalega erfitt að ræða um sitt
ástarlíf við maka sína. Hvers
vegna er það svona erfitt? Þetta
stafar aðallega af þrennu; félag-
smótun, feimni og kvíða. í fyrsta
lagi er fólk ekki vant að tala um
kynlíf á eðlilegan hátt. Félag-
smótun okkar hefur brugðist í
þeim efnum. Þú mátt bara segja
brandara ef þú ætlar að tala um
kynlíf eða vera svo alvarlegur að
enginn skilur þig. í öðru lagi er
fólk oft feimið þegar kynlífsum-
ræða er annarsvegar. Það er allt í
lagi að vera feiminn ef siðferði-
skennd viðkomandi krefst þess.
Ef feimni verður að óraunsæjum
tepruskap eða er svo mikil að ein-
staklingurinn líður stöðugt fyrir
og hálfskammast sín er annað
uppi á teningnum. Slíkur einstak-
lingur er etv. haldinn sterkri
minnimáttarkennd eða er bældur
í samskiptum við annað fólk, sér-
staklega hvað varðar snertingu. í
þriðja lagi er fólk oft stressað eða
haldið kvíða yfir frammistöðu
sinni í rúminu. Ef makinn vill tala
um kynlífið túlkar hinn það sem
árás á eigin getu eða ásökun um
vanþekkingu. Kynlíf er eini vett-
vangurinn þar sem fólk virðist
eiga að vita alla hluti sjálfkrafa án
þess að læra neitt sérstakt eða
hafa eitthvað fyrir því. Þessvegna
þegir fólk og smámsaman safnast
upp ýmiskonar óleystur pirringur
og verður að stórum vonbrigðap-
akka sem er opnaður á endanum
með oft miður óskemmtilegum
uppákomum. Þegar annar aði-
linn loksins brýst út með upps-
öfnuðu vonbrigðin bregst hinn
sár og reiður við og hugsar kann-
ski sem svo: „Það var þá ekkert
sérstakt í öll þessi skipti.“ Sú upp-
götvun er ekki beint heppileg
fyrir sjálfstraustið og það ástarlíf
sem í vændum er. Léleg tjáskipti
eru ein algengasta orsök þróunar
hinna ýmsu kynlífsvandamála.
Uppskriftir
Upplifun kynlífs gerir kannski
ekki ráð fyrir að ræða þurfi mál-
in. Að minnsta kosti ekki ef tvær
algengar „uppskriftir" urn ástarlíf
eru skoðaðar. Báðar hugmynd-
irnar leggja ofurkapp á samfarir
sem hina einu sönnu leið til að
njótasín kynferðislega. í rómant-
íkinni er kynferðislegt samband
tveggja aðila sveipað töfraljóma,
birtan er þokukennd og viss
spenna og himneskur unaður
KYNLÍF
INGIBJÖRG
JÓNA
JÓNSDÓniR
hvíliryfir ástarleiknum. Allt ger-
ist sjálfkrafa, næstum á yfirnátt-
úrulegan hátt. Að sjálfsögðu
þurfa elskendurnir ekki að tala
saman um sínar kynferðislegu
langanir og óskir heldur lesa þeir
hugsanir hvor annars. Allt gerist
áóaðfinnanlegan hátt. Forleikur-
inn (segir til um hvað sé aðalat-
riðið) er stórkostleg upplifun og
ástarleikurinn endar í enn betri
samfarablossa þeirra beggja -
samtímis. En bíðið við; og hún
fær fullnægingu hvað eftir annað
uns hún biður hann vægðar! Til er
alveg hellingur af lesefni sem lýsir
rómantísku hugmyndafræðinni.
Það þarf ekki annað en að kíkja í
viss tímarit til að lesa slíkar útlist-
anir. Hin hugmyndin sem margir
gera sér af samlífi er vélræn.
Samlíf er bein lína; löngun vakn-
ar, munnar mætast, brjóst og
kynfæri snert og samfarir hefjast
sem enda hjá gagnkynhneigðu
pari með fullnægingu hans. Litt-
eratúr í sex-terapíu er uppfullur
af ráðum þar sem reynt er að gera
við bilun í þessu kynferðislega,
vélræna gangverki. í rómantíska
og vélræna kynlífinu eru orðin
óþörf.
Talið saman
Eina leiðin til að finna út hvað
manni finnst gott og hvað ekki er
að tala um það eða gefa til kynna
með öðrum hætti hvaða örvun
mann langar í. „Segðu mér hvað
þér finnst gott?“ eða „Ef ég geri
eitthvað sem þér finnst ekki gott,
láttu mig bara vita?“ eru áhrifa-
mikil skref í að opna tjáskiptin.
Þó að svarið sé: „Mér finnst allt
gott sem þú gerir" er búið að gefa
til kynna að það sé alltílagi að
ræða málin og að enginn þurfi að
fara „íkleinu" út af því. En það er
einnig nauðsynlegt að ræða sam-
an utan svefnherhergisins um það
sem liggur manni á hjarta í þessu
sambandi. Það hefur góð áhrif og
getur hreinsað andrúmsloftið.
Heimsbikarmót Stórmeistarasambandsins
Kasparov sýnir klæmar
Lagði Timman að velli með svörtu mönnunum. Tal tapaði ífyrstasinn
hérlendis, fyrir Beljavskíj sem nú trónir einn á tihdinum
Jan Tlmman - Garrfj Kasparov
Kóngslndversk vörn
1. d4-Rf6
2. c4-g6
3. Rc3-Bg7
(Það er athyglisvert að Kasparov teflir nú
hina hvössu kóngsindversku vörn til jafns
við Grúnfelds-vörnina.)
4. e4-d6
5. O
(Samisch-afbrigðið svokallaða, eitt
traustasta vígi hvíts gegn kóngsindversku
vörninni.)
5. ...-0-0
6. Be3-e5
7. d5-c6
8. Bd3
(Af ýmsum cr talið nákvæmara að leika 8.
Dd2 til að hindra næsta leik svarts.)
8. ...-bS
9. cxb5-cxd5
10. exd5-e4!
(Kasparov hugsaði sig um í röskar 40 mín-
útur. Þessi skemmtilegi peðsleikur byggir á
hugmyndinni 11. fxe4 Rg4 og svartur hefur
gott spil fyrir peðin. Engu að síður er áli-
tamál hvort 11. fxc4 hafi ekki verið besta
leið Timntans.)
11. Rxe4-Rxd5
12. Bg5-Da5+
13. Dd2-Dxd2+
14. Bxd2-Bxb2
15. Hbl-Bg7
16. Re2-Rd7
17. Rxd6?
(Timman hefði sennilega betur látið þetta
ógert. Kasparov fær rífandi spil fyrir peð-
ið.)
17. ...-Rc5
18. Bc2-Be6
19. Re4-Hac8
20. 0-0-Rxe4
21. Bxe4-f5
22. Bd3-Rb6!
23. Rcl-Hfd8
World Cup Chess Tournament, Reykjavfk 1988 ' 40.10J988 21:23
Nafn I 2 3 4 5 6 7 H 9 10 11 12 13 14 15 16 17 IH Alls Roð
1 Alcxamlcr Bcliavskv M V4 V4 1 1 0 '/i '/4 '/4 1 V4 '/4 '/4 1 1 9 1
2 .lan Timman V4 V4 0 1 '/4 1 V4 •/4 '/4 0 1 0 '/4 1 7V4 5-9
\ (íyula Sax V4 V4 i. 1 Vi '/4 '/4 '/i '/4 0 V4 1 '/4 '/4 '/í 7'/i 5-9
4 Jaan Ehlvcst 0 1 0 S- 1 V4 Ti 1 '/4 '/4 V4 '/4 •/4 1 1 8V4 2-3
5 Prcdrai: Nikolic 0 0 V4 0 h 1 '/4 '/4 '/4 '/4 '/4 1 '/4 V4 '/4 6'/i 12-13
6 Arlur Júsudov 1 V4 V4 V4 0 M. '/4 V4 V4 V4 '/4 '/4 '/4 1 '/4 V/i 5-9
7 Ulf Andcrsson Vi 0 */i V4 '/i M >» '/4 1 V4 '/4 V4 V4 1 7 10-11
H Jonathan Socclman Vi ‘/2 V4 0 '/i Vi V4 k V4 '/4 '/4 0 1 V4 '/4 6'/i 12-13
9 Zoltan Ribli V4 V4 V4 V4 V4 V4 V4 V4 V4 V4 0 0 '/4 V4 6 14-15
10 Laios Portisch 0 V4 1 V4 V4 '/4 ■f, 1 V4 V4 0 0 0 V4 0 5'/i 16-17
11 Jóhann Hjartarson Vx 1 '/4 '/i '/4 V4 4L 0 V4 I V4 1 1 7V4 5-9
12 Andrci Sokolov V4 0 0 0 '/4 '/4 '/4 1 f 1 '/4 '/4 V4 '/4 1 7 10-11
1' (Jarrv Kasoarov Vx 1 V4 1 Vi V4 V4 1 0 f V4 1 V4 '/4 V4 HV4 2-3
14 Mikhail Tal 0 '/i ‘/4 V4 l 1 1 V4 V4 V4 á V4 V4 V4 V4 H 4
15 Viktor Kortsnoi '/i 0 '/4 V4 0 1 1 0 V4 0 '/4 0 '/4 1 6 14-15
16 John Nunn */4 '/4 V4 •/4 14 '/4 V4 1 V4 V4 V4 V4 1 y 0 7V4 5-9
17 Boris Soassky Vz '/4 0 '/4 0 '/4 '/4 '/4 '/4 0 '/4 '/4 '/4 '/4 K SVi 16-17
1H Marecir Pétursson 0 0 Vi 0 V4 '/4 0 1 0 0 V4 V4 0 1 s 4Vi 1H
(Stöðumyndin scgir skýra sögu. Allir menn
svarts standa frábærlega vel, hrókarnir og
biskuparnir ráða lögum og lofum og aðeins
tímaspursmál hvenær svartur vinnur lið.)
24. Bg5-Hd7
25. Hel-KH
26. Be2
(Svartur hótaði í mörgum tilvikum -
Hxcl+ og — Hxd2.)
26. ,..-h6
27. Bh4-Rd5!
(Enn aukast yfirburðir svarts.)
28. Bdl-Bd4+
29. Bf2-Bxf2+
30. Kxf2-Rc3!
(Nú tapar hvitur skiptamun og Timman á
enga möguleika gegn tækni heimsmeistar-
ans.)
31. Bb3-Bxb3
32. Hxb3-Rdl +
33. Hxdl-Hxdl
34. Rd3-Hd2+
35. Ke3-Hxg2
36. Ha3-He8+
37. Kd4-He7
38. Re5+-Kf6
39. Rc6-Hd7+
40. Kc4-Hc2+
41. Kb4-Hxh2
(Frípeð svarts á h-línunni ræður úrslitum.)
42. Ha6-Kg5
43. a4-h5
44. Hxa7-Hxa7
45. Rxa7
-og Timman gafst upp um leið. Einfaldasta
leiðin cr 45. ... h4 o.s.frv.
Alexander Beljavski - Mikail Tal
Móttekið drottningarbragð
1. d4-d5
2. c4-dxc4
3. c4-e5
4. Rf3-exd4
5. Bxc4-Bb4+
6. Rbd2-Rc6
Mynd: Þóm.
7. 0-0-Rf6
(Algengara er 7. ... Rge7.)
8. e5-Rd5
9. Rb3-Rb6
10. Bg5-Be7
11. Bxe7-Rxe7
12. Bd3-Bf5
13. Rfxd4-Bxd3
14. Dxd3-0-0
15. Hadl-DdS
16. De2
(Tal hefur ratað í erftðleika vegna bágrar
stöðu drottningarinnar. Uppskiptin sent
hann stofnar nú til létta ekki á stöðu hans.)
16. ...-Dc4
17. Ðxc4-Rxc4
18. Hcl-RxeS
19. Hxc7
(Hvítur vinnur nú pcð og þótt svartur fái
virka stöðu fyrir er hvergi veikleika aö
finna í stöðu Beljavskíjs sem tekst með
markvissri taflmcnnsku að auka yfirburði
sína.)
19. ... Rd5
20. Hxb7-Hfb8
21. Hxb8+-Hxb8
22. Hdl-Rb4
23. a3-Rbd3
24. Hd2-g5!
(Hindrar framrás f-peðsins cn engu að
síður tckst hvítum að reka riddarana af
höndum sér.)
25. Kfl-HeS
26. Ra5!-f5
27. b4-f4
28. b5-g4
29. Rac6-f3
30. gxf3-gxf3
31. Rxf3!
(Vinnur annað peð og þá eru úrslitin ljós.)
31. ... Rxf3
32. Hxd3-Rxh2+
33. Kg2-Rg4
34. Rxa7
- og Tal gafst upp. Þctta var hans fyrsta
tapskák á fsiandi í 59 viðureignum. Hann
hefur unnið 29 skákir og gcrf 29 jafntefli.
SKAK
HELGI
ÓLAFSSON
Úrsllt í 14. Umfcrí
Margeir Pétursson - John Nunn 1-0
Boris Spassky - Viktor Kortsnoj Vi-'/i
Alexander Beljavsky - Mikhail Tal 1-0
Jan Tintman - Garry Kasparov 0-1
Gyula Sax - Andrei Sokolov 1-0
Jaan Ehlvcst - Jóhann Hjartarson 'A-Vi
Predrag Nikolic - Lajos Portisch Vi-Vi
Artur Júsúpov - Zollan Ribli Vi-Vz
Ulf Andersson' - Jonathan Speelman Vz-Vz
15. tlmfcrð
Jonathan Speelman - Margeir Pélursson .
Zoltan Ribli - Ulf Andersson
Lajos Porlisch - Artur Júsúpov
Jóhann Hjartarson - Predrag Nikolic
Andrei Sokolov - Jaan Ehlvest
Garry Kasparov - Gyula Sax
Mikhail Tal - Jan Timman
Viktor Kortsnoj - Alexander Bcljavsky
John Nunn - Boris Spassky
Föstudagur 21. október 1988 NYTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 27