Þjóðviljinn - 21.10.1988, Qupperneq 30
Alþýðubankinn, Akureyri, kynning á
verkum Drafnar Friðfinnsdóttur
stendurtil4. nóvember.
Bókasafn Kópavogs, Þóra Jóns-
dóttir sýnir olíu- og vatnslitamyndir til
30. október. Bókasafnið eropið mán-
udaga til föstudaga kl. 9-21, og
laugardaga kl. 11-14.
FÍM-saiurinn, málverkasýningu
Bergljótar Kjartansdóttur lýkur á
sunnudaginn, 23. október.
Gallerí Borg, Helga Egilsdóttir sýnir
olíumálverk. Sýningin stendur til 1.
nóvember og er opin virka daga kl.
10-18, og kl. 14-18 um helgar.
Graf íkgalleríið, Austurstræti 10,
búningateikningar Alexanders Vassi-
liev. Sýningin stendurtil 26. október,
galleríið er opið á verslunartíma.
Gallerí Gangskör, Anna
Gunnlaugsdóttir, málverkasýning.
Sýningin stendur til 24. október og er
opin kl. 12-18 þriðjudaga til föstu-
daga og kl. 14-18 um helgar.
Gallerí Grjót, Skólavörðustíg 4 A,
listamennirnir 9 sem að galleríinu
standa sýna ný verk í tilefni fimm ára
afmælis Grjótsins. Sýningin stendur
til mánaðamóta og er opin virka daga
kl. 12-18, ogkl. 14-18 um helgar.
Gallerí Svart á hvítu, Laufásvegi 17,
Rósa Gísladóttir opnar sýningu á
höggmyndum og olíumálverkum á
morgun kl. 14. Sýningin stendur til 6.
nóvember og er opin alla daga nema
mánudagakl. 14-18.
Hafnarborg, Strandgötu 34 Hafnar-
firði, málverkasýningu Gunnars Á.
Hjaltasonar lýkur á sunnudaginn, 23.
október. Sýningin eropin daglega kl.
14-22.
Hafnargallerí, sýning á skissum
nokkurra félaga í FAT (Félagi fata- og,
textilhönnuða) stendurtil 28. október
og er opin á verslunartíma.
Hótel Selfoss, Elísabet H. Harðar-
dóttir sýnir teppi og pappamassa-
myndir. Sýningin stendur út mánuð-
inn.
Kjarvalsstaðir, Vestursalur, sýning
Guðrúnar Gunnarsdóttur og Sigrúnar
Eldjárn á olíumálverkum og textil-
verkum. Austursalur, Sverrir Ólafs-
son sýnir skúlptúra. Sýningunum lýk-
ur á sunnudaginn, 23. október.
Vestur- og Austur-forsalur, teikningar
barna. Kjarvalsstaðir eru opnir dag-
legakl. 14-22.
Listasafn ASÍ, Veiðarfæri í 60 ár, kl.
17 á morgun verður opnuð sýning í
tilefni þess að 60 ár eru liðin f rá því að
netagerð varð löggilt iðngrein og að
50 ár eru liðin f rá stofnun Nótar, fé-
lags netagerðarmanna. Sýningin
verður opin kl. virka daga kl. 16-20,
kl. 14-20 um helgar og stendur til 30.
október.
Listasafn Einars Jónssonar, er
opið kl. 13:30-16 um helgar. Högg-
myndagarðurinn er opinn daglega kl.
11-17.
Listasafn íslands, sýning á verkum
ungra íslenskra listamanna í tilefni 10
ára afmælis Nýlistasafnsins. Á neðri
hæðum sýning á íslenskum verkum í
eigu safnsins. Leiðsögnin Mynd
mánaðarins fer fram á fimmtudögum
kl. 13:30, og er mynd októbermánað-
ar Sumarkvöld (Öræfajökull) eftir Ás-
grím Jónsson, og er hún máluð árið
1912.
Listasafnið er opið alla daga nema
mánudaga, kl. 11-17.
Mokka, Skólavörðustíg, Ásta Guð-
rún Eyvindardóttirsýnirolíumyndir.
Sýningin stendurtil 13. nóvember.
Menningarstofnun Bandaríkj-
anna, Neshaga 16, sýning Robert
Dell hefst á morgun og stendur til 23.
október. Skúlptúrar og teikningar.
MÍR, Vatnsstíg 10, sýning á eftir-
prentunum íkóna, og Ijósmyndum,
sem tengdar eru starfi kirkju og trú-
arsafnaða í Sovétríkjunum. Sýningin
verður opin næstu vikur á mánu-
dögum, miðvikudögum og föstu-
dögum kl. 17-18:30.
Norræna húsið, Anddyri, sýning á
Ijósmyndum sænska málarans
Bruno Ehrs verður opnuð á morgun.
Norræna húsið er opið kl. 9-19 virka
dagaog kl. 12-19 um helgar. Kjallari,
Ólafur Sveinn Gíslason sýnir skúlp-
túra kl. 14-18 alla daga. Sýningunum
lýkur 6. nóvember.
Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Borghildur
Óskarsdóttir sýnir verk úr leir og gleri
til 26. október. Nýhöfn er opin virka
daga kl. 10-18 og kl. 14-18 um helg-
ar.
Nýlistasaf nið, sýning á verkum er-
lendra listamanna I tilefni 10 ára af-
mælissafnsins.
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis, Álfabakka 14, Breiðholti,
sýning á verkum Jóhannesar Geirs
stendur til 25. nóvember. Opið kl.
9:15-16alla virkadaga.
Tunglið, Lækjargötu, málverkasýn-
ing Elínar Magnúsdóttur lýkur á sunn-
udagsmorgun, opið í kvöld og annað
kvöld kl. 22-3.
Undirpifsfaldinum, Hlaðvarpanum,
Vesturgötu 3, Halldór Dungal sýnir
málverk til 30. október. Opið daglega
kl. 14-18.
LEIKLIST
Alþýðuleikhúsið, Ásmundarsal v/
Freyjugötu. Elskhuginn, laugardag
kl. 20:30, sunnudag kl. 16.00. Kjallari
Hlaðvarpans, Vesturgötu 3, Koss
kóngulóarkonunnar, frumsýning á
sunnudag.
Frú Emilfa, leiklestur á Þremur systr-
um eftirTsjekhov, í Listasafni íslands
á morgun og sunnudag kl. 14.
íslenska Óperan, Madame de la
Carliere, f ranskur gestaleikur á mán-
udagskvöld kl. 20:30.
Leikfélag Akureyrar, Skjaldbakan
kemst þangað líka, föstudag og laug-
ardagkl. 20:30.
Leikfelag Hafnarfjarðar, Emil í Katt-
holti, í Bæjarbíói á morgun kl. 16,
sunnudag kl. 16og 17.
Leikfélag Mosfellssveitar, sýningar
eru hafnar á ný á „Dagbókinni hans
Dadda." Sýnt er í Hlégarði. Gestir
geta notið veitinga meðan á sýningu
stendur.
Leikfélag Reykjavíkur, Hamlet, í
kvöld kl. 20. Sveitasinfónía,
laugardags- og sunnudagskvöld kl.
20:30.
Nemendaleikhúsið, Lindarbæ,
Smáborgarabrúðkaupið eftir Brecht
og Sköllótta söngkonan eftir lonesco,
laugardag og sunnudag kl. 20.30.
Þjóðleikhúsið, Ef ég væri þú, Litla
sviðinu, síðasta sýning á laugardags-
kvöld kl. 20:30. Marmari, Stóra svið-
inu laugardagskvöld kl. 20. Ævintýri
Hoffmanns, Stóra sviðinu, frumsýn-
ing í kvöld kl. 20, önnur sýning á
sunnudagskvöld kl. 20. Hvar er ham-
arinn? íslensku óperunni, sunnudag
kl. 15.
TÓNLIST
Páll Jóhannesson tenórsöngvari
og Ólafur Vignir Albertsson píanó-
leikari halda tónleika í Norræna hús-
inu á morgun kl. 17, og á Akranesi á
sunnudaginn kl. 16. Á efnisskránni
eru sönglög eftir m.a. Gluck, Caccini,
Giordani, Gylfa Þ. Gíslason og Sigfús
Einarsson.
Sigríður Ella Magnúsdóttir mezz-
ósópran og Jónas Ingimundarson pí-
anóleikari halda Ijóðatónleika að
Gerðubergi á sunnudagskvöldið kl.
20:30. Á efnisskránni eru sönglög
eftir Schubert, R.Strauss, Rossini og
íslenska höfunda.
HITT OG ÞETTA
MÍR, Vatnsstíg 10, sovéska kvik-
myndin Mimino verður sýnd á sunnu-
daginn kl. 16. Aðgangur er ókeypis
ogöllum heimill.
Yoga og sjálfsvitund, frítt helgar-
námskeið á veaum Sri Chinmoy set-
ursins hefst á Árnagarði kl. 20 í kvöld.
Ferðafélag íslands, Rjúpnadyngja-
Heiðmörk, dagsferð á sunnudaginn
kl.1'3.
Hana nú, lagt upp í laugardags-
gönguna í fyrramálið kl. 10 frá Digra-
nesvegi 12.
Úti vist, Siglubergsháls - Vatnsheiði
- Bláa lónið, dagsferð á sunnudaginn
kl. 13.
Hótel ísland, sunnudagskvöld með
Svavari Gests.
Félag eldri borgara, opið hús íTón-
abæfrákl. 13:30ámorgun. Dans-
leikur hefst kl. 21. Félagið minnir á að
danskennsla er hafin í T ónabæ á
laugardögum kl. 17:30og 19:30.
Sunnudagur kl. 14, opið hús í Goð-
heimum, Sigtúni 3, Frjálstspil og tafl,
dansaðfrákl. 20-23:30.
Hvað á að gera um helgina
Grímur Sæmundsen
læknir
Ja, þú segir það... þú veist að ég
erflokksbundinn Sjálfstæðis-
maður, og þess vegna hafði ég
hugsað mér að eyða hluta af
laugardeginum í flokkinn og fara
á stef nuskrárráðstefnu flokksfé-
laganna í Reykjavík. En þegar
þeirri „þolraun" lýkurætlaég að
skreppa í Skalla-blak með hress-
ustu mönnum norðan Alpa og
þótt víðarværi leitað. Nú, svo kík-
ir maður í Heilsugarðinn.
Sunnudeginum ætla ég svo að
eyða með fjölskyldunni. Hver veit
nema ég komi við í Borgarleik-
húsinu með syni mínum á sunnu-
daginn, ef vel liggur á okkur,
sagði GrímurSæmundsen lækn-
ir og fyrrum knattspyrnuhetja.
Templarahöllín, Eiríksgötu 5,
skemmtikvöldin verða á hverjum
föstudegi í vetur. Allir sem vilja
skemmta sér án áfengis velkomnir.
Þriggja kvölda félagsvist hefst í kvöld
kl. 21. Tíglarnir leika fyrir dansi.
Kvæðamannafélagið Iðunn, fundur
á Hallveigarstöðum á laugardag
kl.20.
Borgf irðingafélagið f Reykjavík,
vetrarfagnaður á laugardag í Sóknar-
salnum Skipholti 50A. Byrjað með
félagsvist kl. 20, dans að loknum spil-
um.
Breiðf Irðingar, vetrarfagnaður í fé-
lagsheimili Kópavogs, laugardag kl
21.30.
Eskflrðingar og Reyðf irðingar í
Reykjavík halda sitt árlega síðdegis-
kaffi fyrir eldri sveitunga ásunnudag
kl. 15 í Sóknarsalnum, Skipholti 50A.
Húnvetningafélaglð heldur vetrar-
fagnað í félagsheimili Seltjarnarness,
Suðurströnd á laugardag kl. 21.30.
Upplyfting leikurfyrirdansi.
Blblíuerindi í safnaðarheimil Nes-
kirkju, sunnudag kl. 15. Þórir Kr.
Þórðarson flytur erindið.
FJOLMIÐLAR
ÞROSTUR
HARALDSSON
Klúður og hvalveiðar
Stundum fara fjölmiðlarnir dá-
lítið í taugarnar á mér. Ekki veit
ég hvort ég er eitthvað næmari en
venjulega en mér finnst vera
óvenjumikið um klúður og vit-
leysur í sumum fjölmiðlum þessa
dagana. Stundum er það bara
notalegt klúður eins og þegar
Þorsteinn Pálsson talar ofan í
frétt sem honum kemur ekkert
við í Sjónvarpinu. Eða þegar
Helgi Ólafsson fer að raða tafl-
mönnum eins og hann viti ekki af
því að með því skyggir hann á
Jóhann kollega sinn Hjartarson
sem Páll Magnússon er að tala
við. Það innskot úr Borgarleik-
húsinu varð reyndar styttra en til
stóð vegna þess að myndin klikk-
aði. Sjaldan ein báran stök.
En stundum fara þessi mistök í
taugarnar á mér. Eins og fram
hefur komið í þessum pistlum
hlustar undirritaður mest á Rás 2
og síðdegis á þriðjudaginn var
viðtal við lækni frá Krabbameins-
félaginu um rannsóknir á krabb-
ameini í brjóstum kvenna. Allt í
einu í miðri setningu kemur stef
stöðvarinnar og þaggar niður í
honum. Ég hélt nú að þessi mis-
tök yrðu leiðrétt strax að loknu
stefinu en svo reyndist ekki, það
kom lag. Ég varð að fara frá tæk-
inu svo ég veit ekki hvort maður-
inn komst að til að ljúka máli
sínu.
Þó svo hafi verið þá eru þetta
mistök sem eiga ekki að koma
fyrir á útvarpsstöð allra lands-
manna. Mér finnst útvarps-
mönnum hafa verið óvenju mis-
lagðar hendur að undanförnu og
hef reynt að afsaka það með því
að nýtt fólk sé að koma til starfa
með vetrardagskrá. En það á
varla við um tæknimennina, eða
hvað? j
Kannski er hægt að útskýra
þetta með blankheitum sem
vissulega hrjá stofnunina eftir
langt kuldaskeið í menntamála-
ráðuneytinu. Nú eru breyttir
tímar og nýr ráðherra þegar bú-
inn að skipa nefnd sem á að skila
tillögum strax í næsta mánuði um
það hvernig Ríkisútvarpið verði
eflt. Það veit á gott að í nefndinni
eru eingöngu núverandi og fyrr-
verandi starfsmenn stofnunar-
innar. Vonandi að þessi nefnd
starfi vel og að Svavari takist að
finna aura til að framkvæma til-
lögurnar sem hún mun skila.
En ég verð að segja eins og er
að ekki er allt vont í Sjónvarpinu
um þessar mundir. Nú er nýlokið
sýningum á einhverjum maka-
lausustu framhaldsþáttum sem ég
hef séð lengi. Þar á ég að sjálf-
sögðu við Ævi og ástir kvendjöf-
uls eftir sögu Fay Weldons. í
þessum þáttum sanna Bretar enn
og aftur að fáum fer betur að búa
til sjónvarpsefni.
Og svo sá ég þátt á þriðjudag-
inn um mengun í Norðursjónum.
Hún hefur töluvert verið í frétt-
um undanfarna mánuði út af sela-
dauða og þörungaplágu. í þessari
þýsku mynd (sem reyndar er orð-
in þriggja ára gömul) var gerður
samanburður á ástandi sjávar úti
fyrir suðurströnd Noregs árið
1985 og átján árum áður. Þýsku
Halldór borðar hval í boði Þjóðviljans.
vísindamennirnir höfðu kafað í
sjónum með myndavél sumarið
1967 og sáust klipp úr þeirri
myndatöku innan um nýjar
myndir af nákvæmlega sömu
stöðum. Útkoman var vægast
sagt sláandi. Þar sem áður var
fjölskrúðugt líf fiska, krabba og
annarra kvikinda var nú lítið ann-
að en þörungar og aftur þörung-
ar, í bland við leðju. Sjórinn birt-
ist manni eins og risaskepna að
köfnun komin vegna súrefnis-
skorts og skíts.
Eftir á að hyggja fannst mér
tímasetning myndarinnar virki-
lega góð. í fréttunum á undan var
nefnilega enn eitt viðtalið við
Halldór Ásgrímsson með
þrjóskusvip og í varnarstöðu fyrir
hvalveiðar íslendinga sem allir
aðrir en hann og Kristján Lofts-
son sjá að eru að koma okkur í
verulega klípu meðal þjóða
heims.
Það er einmitt eins og í mynd-
inni um Norðursjóinn sem íbúar
Vestur-Evrópu líta á hvalina:
sem risaskepnur í útrýmingar-
hættu vegna tillitsleysis íslend-
inga, Rússa og Japana. Þeir líta á
þessar þjóðir sömu augum og
þeir líta þá iðnjöfra sem eru búnir
að eyðileggja fyrir þeim Norður-
sjóinn og skógana.
Frammi fyrir þeirri staðreynd
fáum við litlu þokað í einu vet-
fangi. Það er alveg sama hversu
góð rökin eru fyrir hvalveiðum og
hversu mjög rökin gegn hval-
veiðum ráðast af tilfinningasemi.
Við erum búin að tapa þessari
orrustu áróðursstríðsins og tím-
inn verður að leiða í ljós hvort
nokkur von er til þess að við vinn-
um stríðið.
30 SfÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 21. október 1988