Þjóðviljinn - 02.12.1988, Blaðsíða 13
Hrafn í veröld
kvenna
Nýtega birtist viðtal við Hrafn
Gunnlaugsson í sænska kvenna-
blaðinu Damernas varld þar sem
hann m.a. lýsir því yfir að hann
ætli að segja upp starfi sínu sem
dagskrárstjóri innlendrar dag-
skrárgerðar hjá Sjónvarpinu
áður en hann snúi sér aftur að
gerð langrar leikinnar kvikmynd-
ar, sem sennilegast muni fjalla
um lífið á íslandi í dag. Hann
virðist því búinn að fá sig
fullsaddan á þorskvestrunum í
bili.
Annars fjallar viðtalið mest um
jakkann hans, saumaðan af vin-
konu hans, sem er fatahönnuður
og verslunareigandi í Reykjavík
og um stefnumót Hrafns við
Jacqueline Picasso.
„Við dönsuðum f hrauninu,“
segir hann. Síðan upplýsir hann
lesendur veraldar kvenna um
veröld Jacqueline í sambúðinni
við Picasso og endar þá frásögn á
því að segja að hún hafi verið fyr-
irmyndin að góðu móðurinni í
kvikmyndinni I skugga hrafnsins.
Hann ræðir einnig um systur
sína Tinnu og segist eitt sinn hafa
heitið sér því að nota aldrei skyld-
menni í kvikmyndum sínum en
nú sé hann orðinn fullorðinn og
frjáls þannig að þau Tinna séu
félagar.
Ljúkum þessu með því að vitna
í lýsingu Hrafns á sjálfum sér sem
leikstjóra:
„Hershöfðingi. Upptaka kvik-
myndar er ekkert sumarfrí. Hún
er hreinasta kvalræði, sérstak-
lega vegna veðursins á íslandi.
En skemmtilegt kvalræði.“
-Sáf
„Silkihúfurnar“ bur
Ekki sér enn fyrir átökin á
fréttastofu Stöðvar 2, eftir að
Páll Magnússon fréttastjóri
vék Ómari Valdimarssyni
frá störfum. Starfsfélagar
Ómars eru mjög ósáttir við
þessa uppákomu og hefur álit
þeirra á fréttastjóranum síst
batnað eftir þetta. Ástæðan
fyrir þessum deilum er sögð
fyrst og fremst sú, að Páll sjá-
ist lítið á fréttastofunni nema
rétt undir kvöld þegar hann
kemur til að lesa fréttirnar.
Fréttamenn stjórni því sjálfir
meira og minna fréttasto-
funni. Þegar stjórn fyrirtækis-
ins boðaði sparnaðaraðgerðir
uppá 30% í síðustu viku,
fannst mörgum að réttast
væri að skera niður „silkihúf-
urnar". Þetta umtal var meira
en fréttastjórinn gat sætt sig
við og því fór sem fór.B
Helgi Pé gekk út
En það eru fleiri sem hafa
deilt við fréttastjórann síðustu
vikur, en fréttamennirnir.
Helgi Pétursson sem hefur
haft umsjón með fréttaaukan-
um í 19.19, deildi einnig
harkalega við Pál um stjórnun
og starfshætti og lauk þeim
deilum á þann veg að Helgi
rauk á dyr og sagðist ekki
koma nálægt þessu lengur.
Sagan segir að Jóni Óttari
sjónvarpsstjóra hafi brugðið
illilega þegar hann frétti af
þessari uppákomu, og hafi
rokið út á eftir Helga. Eftir
nokkrar fortölur féllst Helgi á
að koma aftur, gegn því að
hann ætti ekkert undir Pál
Magnússon að sækja. Sú
varð niðurstaðan og nú mun
Helgi ásamt Valgerði Matthí-
asdóttur sinna sjálfstæðum
mannlífsþáttum um helgar
strax að loknum fréttum frá
fréttastofu Páls.B
Endalok ráðherra-
brennivinsins
Hæstaréttarbrennivínið,
sem útvarpið kallar kurteis-
lega „áfengiskaupamálið"
hefur meðal annars vakið upp
hugleiðingar um vínkaup
ráðamanna fyrr á tímum. Sagt
er til dæmis að ráðherrar hafi
margir notfært sér hiklaust
rétt sinn til áfengiskaupa á
framleiðsluverði, sumir til að
geyma til mögru áranna, aðrir
til að senda höfðingjum heim í
héraði. Þessi einkakaup ráð-
herranna tíðkuðust allt til árs-
ins 1971 þega_r vinstristjórnin
undir forystu Ólafs Jóhann-
essonar tók við. Upphaf rétt-
indaafnámsins var með þeim
hætti að Magnúsi Kjart-
anssyni berst mjög áríðandi
umslag heim til sín rétt eftir að
hann er orðinn ráðherra. Þeg-
ar Magnús tekur upp bréfið
sér hann þar verðlista frá
ÁTVR með ábendingum um
hin nýju forréttindi sín. Magn-
ús brást ókvæða við, og á
næsta ríkisstjórnarfundi afsal-
aði hann sér þessum rétti.
Urðu þá aðrir ráðherrar að
fylgja í kjölfarið, og fylgir sögu
að ekki hafi þeir verið allir jafn
glaðir.
Síðan hafa ráðherrar að-
eins getað pantað ódýrt vín til
opinberra þarfa. ■
GULLVÆGAR
BÆ
fyrir sál og líkama
Himinn og hel
Undur lifsins eftir dauðann
Emanuel Swedenborg
Sveinn Ólafsson þýddi
Swedenborg lýsir lífi í öðrum heimi
Skýrt er andlegt eðli umhverfis og
grundvallarlögmdl andlegs
lífsveruleika sem og alvaldsstjórn
Drottins. Nýtt inntak birtist í
trúarskýringum hans sem hann
segir gefið af Drottni.
KUR
Erik Bostrup
Ólafur Halldórsson liffræðingur
þýddi
Efnisatriði bókarinnar eru í stafrófsröð. Bókin
fjallar skipulega um einstaka sjúkdóma eftir
eðli þeirra eða staðsetningu. Þetta auðveld-
ar leit að svörum við spurningum og gerir
þann fróðleik sem bókin hefur að geyma
vel aðgengilegan með
&
íí.' -5
Undirheimar isienskra
stjórnmála
Reyfarakenndur sannleikur um
pólitisk vigaferli
Porleifur Friðriksson
Bókin lýsir einstæðum pólitískum átökum
eftir byltingu Hannibals í Alþýðu-
flokknum 1952.
Launráð voru brugguð og þvingunum
beitt gegn hinum ógnvænlega
„hannibalisma".
ORN OG
ORLYGUR
SIÐUMULA 11, SIMI 8 48 66
Lækninga
handbókin