Þjóðviljinn - 10.02.1989, Qupperneq 30

Þjóðviljinn - 10.02.1989, Qupperneq 30
Hvað á að gera um helgina? TAGE AMMENDRUP Jú, ég ætla að heimsækja son minn sem býr í Osló og athuga hvort hann hefur það. Blómin eru víst farin að springa út þarna, þannig að þetta er eins konar sólarlandaferð hjá okkur hjónunum. eb MYNDLIST Guðbjörg Lind Jónsdóttir sýnir olíumálverk og vatnslitamyndir í Nýhöfn, Hafnarstræti, opið virka 10-18, helgar 14-18. Hefst ld., lýkur 22.2. ívar Valgarðsson og Níels Haf- stein í Nýlistasafninu, opið virka 16-20, helgar 14-20. Lýkur 19.2. „Steinn og stál.“ Grímur M. Steindórsson sýnir í Bókasafni Kópavogs Fannborg 3-5, opið virka 10-21. Id. 11-14. Lýkur 28.2. Ljósbrot, Ijósmyndarar í fram- haldsskólum, í Hafnarborg Hfirði, opið dagl. 14-18 nema þd., lýkur 19.2. Dúkristur Guðbjargar Ringsted í Alþýðubankanum Akureyri, lýkur 10.3. Erla B. Axelsdóttir sýnir í FÍM- salnum, Garðastræti 6, opið 12-18 virka, 14-18 helgar, lýkur 19.2. Elsa Rook frá Svíþjóð sýnir í Gallerí List 24 akrýlverk, hefst Id. Opið dagl. 10.30-18, sd. 14-18. GaleríSál.Tryggvagötu 18,sýning T ryggva Gunnars Hansens, 17- 21 dagl. Listasafn Einars Jónssonar, opið Id. sd. 13.30-16. Höggmyndagarð- urinndagl. 11-17. GalleríBorg. Pósthússtræti:eldri meistarar. Austurstræti: grafík, leir, gler og olía eftir yngri menn. Opið 10-18virka. Listasafn íslands. Salur 1: Jón Stefánsson, Jóhannes Kjarval, GunnlaugurScheving. Salur2: Þórarinn B. Þorláksson, Ásgrímur Jónsson. Aðrir salir: Ný aðföng. Leiðsögn sd. 15.00. Opið nema mánud. 11-17. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnesi, 50 verk Sigurjóns, 14- 17 um helgar. Söngtónleikar myrkra músíkdaga Id. 17.00, fið- lutónleikar m.m. sd. 20.30. Tón- leikar Guðnýjar Guðmundsdóttur og Gunnars Kvarans sd. 15.00. Mokka v/Skólavörðustíg, Ríkey Ingimundardóttir sýnir um óákv. tíma. GalleríGangskör,opiðþd.-föd. 12- 18, verk gangskörunga til sýnis og sölu. Safn Ásgríms Jónssonar, Berg- staðastræti 74, þjóðsagna- og ævintýramyndir Asgríms til febrúar- loka.dagl. 13.10-16nemamánu- og miðvd. SPRON, Álfabakka 14, Breiðholti, verk eftir Sigurð Þóri Sigurðsson, opið virka 9.15-16 nema föstud. 9.15-18.Lýkur31.3. Kjarvalsstaðir, vesturs., Kristján Guðmundsson „Teikningar 1972- 1988", austurs. sýn. Halldórs Ás- geirssonar. Opið dagl. 11-18, lýkur sd. Börn norðursins, sýning frá IBBY um myndskreytingar í norrænum barnabókum, Norræna húsinu, lýk- ursd. TÓNLIST Myrkir músíkdagar, söngtónleikar Id. 17.00 Listasafni Sigurjóns. Signý Sæmundsdóttir (sópran), Inga Rós Ingólfsdóttir(selló), Krist- inn Sigmundsson (barítónn), Guð- ríður S. Sigurðardóttir (píanó) flytja verke. Karólínu Eiríksdóttur, Þor- stein Hauksson, Vladimir Agopov, Önnu Jastrzebska. Myrkir músíkdagar, fiðlutónleikar sd. 20.30 Listasafni Sigurións. Hlíf Sigurjónsdóttir (fiðla) og Orn Magnússon (píanó) leika verk e. JónasTómasson, HróðmarSigur- björnsson, Caroline Ansink, Carl Nielsen, Louis Andriessen. Guðný Guðmundsdóttir (fiðla) og Gunnar Kvaran (selló) leika í Lista- safni Sigurjóns sd. 15.00 verk e. Jón Nordal, Hándel-Halvorsen, Ko- dály. Kristinn H. Árnason á gítar, verk e. Dowland, Bach, Britten, Ponce, Albeniz, Langholtskirkju föd. 20.30. Saxófónkvartett Jean-Yves Fo- urmeau frá París í Óperunni sd. 20.30 á vegum Alliance frangaise. Verk eftir Hándel, Mozart, Sciort- ino, Offenbacho.fi. Kammertónleikar í Hallgríms- kirkju Id. 15.00. Kjartan Oskarsson (klarínett), Björn Árnason (fagott), Þorkell Jóhannsson (horn), Martin Frewer (fiðla), David Burton (fiðla), Sarah Buckley (víóla), Gary McBretney (selló), Páll Hannesson (bassi) leika klarinettkvintett Kv. 581 e. Mozart og oktett op. 166 e. Schubert. Ileana Cotrubas Ijóðasöngkona með Raymond Janssen í Operunni Id. 15.00, verk e. Enesco, Fauré, Liszt, Wolf. LEIKLIST Háskaleg kynni e. Cristopher Hampton/de Laclos, leikstj. Bene- dikt Árnason, Þjlh. Id. 20.00 (frum- sýning). ÓvitaríÞjlh.ld.,sd 14.00. „og mærin fór í dansinn..." Nem- endaleikhúsinu Lindarbæ, föd. 20.00 Sjang-Eng í Iðnó föd. 20.00. Sveitasinfónían í Iðnó ld., sd. 20.30. Ævintýri Hoffmanns, Þjlh. föd., sd. 20.00. Koss kóngulóarkonunnar í Al- þýðuleikhúsinu, kjallara Hlaðvarp- ans föd. 20.30, sd. 17.00. Allra allra allra síðustu aukasýningar. HITT OG ÞETTA Pólitík á laugardegi. Björn Grétar Sveinsson og Ögmundur Jónasson á Hverfisgötu 105,4. hæð, Id. 11 - 14. Þjóðviljinn/ABR. MÍR-bíó Vatnsstig 10 sd. 16.00, stuttar frétta- og fræðslumyndir, m.a. frá Úkraínu og Moldavíu. Skýr- ingar á ísl. og ensku. Ókeypis inn. Félag eldri borgara, opið hús í Tónabæ laugard. frá 13.30, dan- skennsla 14.30-17.30. Opið hús sd. í Goðheimum, Sigtúni 3, spjall, spil og tafl frá 14, dansað 20-23.30. Opið hús í Tónabæ mánud. frá 13.30, félagsvist frá 14.00. Ath. Þorrablót í Sigtúni 3 föd. Laugardagsganga Hana nú, lagt af stað 10.00 frá Digranesvegi 12. Samvera, súrefni, hreyfing. Ferðafélagið, sd. 13.00: Litli- Meitill, göngu- og skíðaferð, frá Þrengslum austan Litla-Meitils að Hellisheiðarvegi, 800 kr. (frítt undir 15), brottför austanvið Umfmst. Útivist, Ölfusárhringur- ökuferð sd. 13.00.1000 kr., Bláfjöll- Heiðmörk ný skíðagönguleið sd. 13.00,600 kr. Brottför vestanvið Umfmst, fríttf. börn m. full. Víkingar í Jón/ík og Austurvegi, í Norræna húsinu og Þjóðminjasafni, opindagl. nemamánud. 11-18. Raymond I. Page prófessor í eng- ilsaxnesku í Cambridge flytur fyrir- lestur um rúnir og aðrar heimildir Id. 16.00ÍNH,áensku. GrímurThomsen og Magdalena Thoresen. Elin Page, norskurbók- menntafræðingur (eiginkona Ra- ymonds, sjá víkingasýn.) flytur fyrir- lestur um samband þeirra. Skákþing Hafnarf jarðar hefst sd. 20.00, húsi Dvergs við Lækjargötu. Tefltsd.,þd.,föd. KFUM og K 90 ára, hátíð í Háskóla- bíói sd. 14.00. Gengið frá styttu Friðriks á Bernhöftstorfu 13.00 ef veður leyfir. Aðalfundur Samtaka Svarfdæl- inga sd. 15.00 í Safnaðarheimili Langholtskirkju. Myndbandahátíð Samtaka ísl. myndbandaleiga Hótel Borg fd. frá 17.00. Gunnulf Myrbo prófessor talar á fundi Félags áhugamanna um heimspekisd. 14.30 stofu 101 Lög- bergi um „Perils of Rationality" á ensku. ÍÞRÓTTIR Handbolti ka. föd. 20.00 Landsliðið-Pressuliðið Höllinni. Fótbolti. íslm. ka. 1.d. innanhúss sd. 9.00-21.15 Höllinni. Karfa ka. sd. 19.00 Stjörnuleikur, Suðurnes-Landið Keflav. 1 .d.kv. sd. 14.00Haukar-UMFG Strandg. Blak. fslm. ka. föd. 19.30 Fram- ÞrótturN. Vogask., 20.45 HSK-KA Laugarvatn, 21.00 ÍS-Þróttur R. Hagask., Id. 12.15HK-KADigra- nes, 14.00 (S-Þróttur N. Hagaskóli, fslm. kv. föd. 18.30 Víkingur-Þróttur N. Hagask., 19.45 iS-Þróttur R. Hagask., 20.45 UBK-ÞrótturN. Vogask., Id. 11.00 HK-KA Digran- es, 15.15 (S-Þróttur N. Hagask. 0 rininini t HARALDSSON Rausið í Indriða G. í Dægurmálaútvarpinu á mán- udaginn var urðu merkileg skoðanaskipti milli tveggja blað- amanna af norðlenskum upp- runa. Þar spjölluðu þau Indriði G. Þorsteinsson, ritstjóri Tím- ans, og Sigrún Stefánsdóttir, for- stöðumaður Fræðsluvarps, um það hvort nauðsynlegt væri að koma á fót kennslu í blaða- mennsku hér á landi. Svo merkilegt sem það kann nú að virðast er það alls ekki talið sjálfsagt mál hvort rétt sé að kenna fólki til verka í blaða- mennsku. Því hefur verið haldið fram að það sé einmitt kostur við íslenska blaðamenn hversu fjöl- breyttur bakgrunnur þeirra er, þar eru menn með allra handa menntun, jafnt háskólapróf sem iðnmenntun, og sumir hafa lítið verið í skólum. Indriði er einn þeirra síð- astnefndu og af því honum hefur dugað meirapróf á bfl heldur hann því fram bæði seint og snemma að það sé eiginlega ekki hægt að kenna blaðamennsku. Og allra síst sé það á færi ein- hverra ótíndra menntamanna að auka færni stéttarinnar. Slíkt fólk á helst ekki að koma nálægt blað- amennsku eða kennslu hennar. Það á bara að halda sig í ffla- beinsturninum við Suðurgötu og hætta að angra almennilegt fólk. Vafalaust er það hæft í þessum skoðunum Indriða að til þess að verða góður blaðamaður þarf einhverja sérstaka hæfileika sem ekki verða sóttir í skóla, rétt eins og það þarf sérstaka hæfileika til að verða góður vísindamaður, pólitíkus eða skósmiður. í öllum störfum er einhver kjarni sem lærist hvergi nema í starfi og um það ættu menn ekki að þurfa að rífast. Hins vegar gildir það sama um blaðamennsku og flest önnur störf að hún krefst ákveðinnar þekkingar og handbragða sem að sjálfsögðu er hægt að kenna í skóla. Lengi vel hafa blaðamenn tekið þessa þjálfun út í starfinu og mistökin birst öllum lesendum blaðsins sem þeir starfa við, Tím- inn ekki undanskilinn. Mér er sagt að alls staðar þar sem kennsla í blaðamennsku hef- ur verið sett á iaggirnar hafi hún haft jákvæð áhrif á gæði fjölmiðla í viðkomandi landi. í Danmörku var horfið frá einhvers konar iðn- meistarakerfi og komið á fót blaðamannaskóla um 1970 og hef ég heyrt blaðamenn segja að sá skóli hafi reynst mikið heillaspor fyrir danska fjölmiðla og að sjálf- sögðu notendur þeirra sem fá betri blöð í hendur. Nú er búið að skipa nefnd til að undirbúa fjölmiðlakennslu á há- skólastigi hér á landi. Þetta er að vísu ekki fyrsta nefndin sem á að gera slíkar tillögur. Ég átti sæti í nefnd fyrir hartnær fimmtán árum sem gerði tillögur um að kenna blaðamennsku til BA- prófs við Háskóla íslands en þær tillögur rykféllu í ráðuneytinu og man nú enginn lengur um hvað þær snerust. Mér skilst hins vegar að það sem verið er að ræða núna sé að koma á fót styttra námi í blaða- mennsku sem fólk geti bætt ofan á annað nám, til dæmis BA- eða BS-próf í einhverri háskólagrein. Með því móti ætti áðumefnd fjöl- breytni í stéttinni að vera tryggð. Að því undanskildu að skósmiðir eða rútubílstjórar ættu kannski erfiðara en áður með að verða blaðamenn. Má vera, en ég held að ef fólk sem ekki er með há- skólapróf vill verða blaðamenn og hefur til þess ótvíræða hæfi- leika muni það áfram eiga aðgang að stéttinni. Það er ekki verið að ræða um að löggilda starfsheitið blaðamaður. Það er von mín að raus í mönnum á borð við Indriða G. Þorsteinsson verði ekki lengur látið koma í veg fyrir að hægt sé að læra blaðamennsku hér á landi. Að vísu er hægt að læra þetta fag víða erlendis og að sögn Sigrúnar Stefánsdóttur í þessum sömu umræðum eru nú um 70 manns í slíku námi. En blaða- mennska hefur þá sérstöðu mið- að við mörg önnur störf að við- fangsefni hennar er íslenskt samfélag og helsta atvinnutækið íslensk tunga og hvorugt verður numið í erlendum háskólum. Ég treysti hins vegar starfs- mönnum Háskóla fslands vel til að kenna verðandi blaða- mönnum um íslenskt þjóðfélag og íslenskt mál. Auk þess eru í blaðamannastétt ýmsir þeir sem hafa getið sér gott orð sem kenn- arar á námskeiðum og í fram- haldsskólum, já og meira að segja við erlenda blaðamanna- skóla. Úr þessu liði ætti að geta orðið til ágætis blaðamannadeild, hvað sem tuldri nátttrölla úr kaldastríðinu líður. 30 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 10. febrúar 1989

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.