Þjóðviljinn - 31.03.1989, Page 16
Þáttaskil á ítalska
vinstri vængnum
Átjánda flokksþing ítalska kommúnistaflokksins segir skilið við flokksleiðtogann
Ochetto en gagnkvæm tortryggni torveldar samvinnu „kommúnista“ og sósíalista
í dymbilvikunni hélt ítalski
kommúnistgflokkurinn (PCI)
átjánda flokksþing sitt í Róm.
Þingið markar viss þáttaskil í
sögu flokksins, og þar með
einnig í sögu evrópskrar
vinstri-hreyfingar. Þessi
þáttaskil felast fyrst og fremst
í því að flokknum virðist nú
hafa orðið verulega ágengt í
að treysta eigin sjálfsímynd
eftir þá kreppu sem gengið
hefur yfir vinstrihreyfinguna
almenntog kommúnistaflokk-
ana í álfunni sérstaklega.
Styrkt
sjálfsímynd
Þversögnin við lausn þessarar
tilvistarkreppu er fólgin í því að
flokkurinn hefur nú afskrifað þá
„sérstöðu" sem var grundvöllur
sjálfsímyndar flokksins á dögum
Berlinguers.
Hugmyndaarfur Berlinguers
um „Evrópukommúnisma" og
„þriðju leiðina“ til sósíalismans,
sem andsvar við hugmyndafræði
sósíaldemókrata, virðist nú hafa
runnið út í sandinn, og í stað þess
að leggja áherslu á sérstöðu sína
meðal annarra stjórnmálaflokka
leggja ítalskir kommúnistar nú
áherslu á hlutverk sitt sem virkur
og skapandi þátttakandi í
evrópskri vinstri-hreyfingu.
Þannig hafa þeir nú lengi unnið
að inngöngu flokksins í Alþjóða-
samband jafnaðarmanna og
flokkasamstarf jafnaðarmanna-
flokka á Evrópuþinginu í Strass-
bourg. Og í innanríkismálum
þýðir þetta að stefnt er að vinstri
valkosti við kristilega demó-
krataflokkinn með stjórnarsam-
starfi við sósíalistaflokkinn
(PSI).
Lýðræðislega
miðstjórnar-
valdið kvatt
Á flokksþinginu komu þessi
þáttaskil fram með beinum og
óbeinum hætti. Þannig sam-
þykkti flokksþingið skipulags-
breytingar, þar sem meðal annars
var sagt skilið við hið „lýðræðis-
lega miðstjórnarvald“, en það
voru síðustu ieyfarnar frá þriðja
alþjóðasambandi kommúnista-
flokka í innra starfi flokksins og
miðaði fyrst og fremst að því að
stefnumótun ætti að vera einhliða
að ofan og að gagnrýni á foryst-
una væru svik.
Lýðræðislega miðstjórnarvaldið
hafði ekki verið virkt í flokknum
síðustu árin, en þarna var það
formlega afgreitt sem eitthvað er
heyrði sögunni til.
Umbætur í
stað byltingar
Þau þáttaskil, sem mestu máli
skipta, koma þó trúlega fram í
samþykktum flokksþingsins, þar
sem gengið er út frá því sem
gefnu að kapítalisminn sé kom-
inn til að vera. Hlutverk PCI er
þá ekki lengur að kollvarpa kap-
ítalismanum sem slíkum, heldur
að vera vakandi í gagnrýni sinni á
misfellur hans í því skyni að leiða
hann til betri vegar. Þannig er
flokkurinn kominn á sama grund-
völl og aðrir umbótaflokkar, og
þar með er ekki lengur hægt að
afskrifa flokkinn í pólitísku sam-
starfi á þeim forsendum að hann
tali ekki sama tungumál og aðrir
flokkar. Þar með hefur flokkur-
inn líka skorið á öll hugsanleg
tengsl sín við hina sögulegu arf-
leifð Þriðja alþjóðasambandsins
og það skipbrot sem kommún-
istaflokkar heimsins eru nú að
ganga í gegnum.
Eining um
leiðtogann
Þáttaskilin á flokksþinginu
voru ekki bara hugmyndafræði-
leg. Sá ágreiningur og þær deilur
sem uppi hafa verið á milli vinstri
armsins (undirforystu Pietro Ing-
rao), umbótasinnanna (undir for-
ystu Giorgio Napoletano) og
gömlu bresnévistanna (undir for-
ystu Armando Cossutta) virtust
hafa gufað upp í algjörri einingu
um flokksformanninn sem ko-
sinn var í fyrsta skipti með leyni-
legri kosningu og þorra atkvæða
á flokksþinginu, sem skipað var
1042 þingfulltrúum. Auk þess
hafa orðið kynslóðaskipti í
flokknum, þar sem fjölmargir
menn og konur um fertugt hafa
komist í áhrifastöður, sem áður
voru setnar af mönnum sem áttu
sér rætur í gamalli fortíð flokks-
ins. Achille Ochetto, sem hefur
verið talinn miðjumaður og stóð
á sínum tíma nærri Berlinguer
hefur þótt sýna verulega leið-
togahæfileika við að skapa ein-
ingu um þær breytingar sem
flokkurinn hefur nú gengið í
gegnum með endurnýjun á hug-
myndafræði og forystuliði flokks-
ins.
Umhverfisvernd
og lýðræði
í stefnuyfirlýsingu flokksþings-
ins er lögð áhersla á að um leið og
kapítalisminn hafi sýnt yfirburði
yfir „sósíalisma“ kommúnistar-
íkjanna hvað varðar verðmæta-
sköpun og þróun lýðræðis, þá séu
þau vandamál sem kapítalisminn
hefur skapað með tæknibylting-
unni geigvænleg og varði bæði
lýðræðið í víðari skilningi og ekki
síður umhverfi mannsins. Þannig
er lögð megináhersla á að tengja
flokkinn sterkum böndum við
grasrótarhreyfingu umhverfi-
sverndarmanna og kvenréttinda.
Þannig sagði Ochetto í ræðu sinni
að sníða yrði efnahagsstefnuna
að markmiðum umhverfisvern-
dar og að hagsmunir stéttabar-
áttu og umhverfisverndar yrðu að
fara saman, að öðrum kosti
myndu báðir aðilar bíða ósigur.
Jafnframt var samþykkt að konur
yrðu að skipa 30% af öllum
ábyrgðarstöðum innan flokksins
og að stefnt skyldi að því að þetta
hlutfall yrði 50%.
Afstaöan til
EB og PSI
Annar afgerandi þáttur í stefnu
flokksins varðar afstöðuna til
Evrópubandalagsins annars veg-
ar og til ítalska sósíalistaflokksins
hins vegar. ítalski kommúnista-
flokkurinn hefur um alllangt
skeið verið sá flokkur á Ítalíu,
sem hefur lagt hvað þyngsta
áherslu á nauðsyn þess að hraðað
verði sameiningu Evrópuríkja
V/A/S7RI
l/ALKOSTO'íns/N
Ll
Deilur Achille Ochetto og Bettino Craxi séöar með augum leikarans Forattini
innan EB. Bæði í þeim tilgangi að
efla samkeppnisstöðu Evrópur-
íkjanna efnahagslega, en ekki síst
í því skyni að gera Evrópu að pól-
itísku mótvægi við stórveldin á
vettvangi friðargæslu og afvopn-
unar og einnig í vestrænu sam-
starfi innan NATO. ítalskir
kommúnistar hafa einnig bent á
að umhverfisvandamálin, sem
eru orðin ein brýnustu vandamál
álfunnar, verða ekki leyst nema
innan slíks samstarfs.
Hvað varðar afstöðuna til
ítalska sósíalistaflokksins, þá hef-
ur hún verið nokkuð tvíbent til
þessa: „hægri-armurinn“ hefur
lagt áherslu á samstarf vinstri-
flokkanna, en miðjumennirnir
sögðu gjarnan að PCI væri reyðu-
búið til samstarfs við kaþólikka
jafnt og sósíalista, það færi eftir
málefnunum. Nú hefur flokkur-
inn tekið ákveðnari afstöðu í
þessu máli: framtíðarmarkmiðið
er vinstri-valkostur við kristilega
flokkinn, þ.e.a.s. samstarf við
sósíalistaflokk Bettino Craxi.
Þessi stefnubreyting gerist sam-
fara því að De Mita, fulltrúi
„frjálslyndari armsins" innan
Kristilega flokksins, varð að
víkja úr leiðtogasæti fyrir Arn-
aldo Forlani, fulltrúa „miðju-
manna“.
Erfið sambúð
við PSI
En áherslan á vinstri-
valkostinn þýddi ekki að sneitt
væri hjá allri gagnrýni á Sósíal-
istaflokkinn. Þvert á móti, þá
voru uppi á þinginu háværar
gagnrýnisraddir á forystu Bettino
Craxi. Og fulltrúar PSI sem sátu
þingið sem áheyrnarfulltrúar
svöruðu fullum hálsi og sögðu
flokkinn ekki enn hafa læknast af
því hrokafulla sjálfdæmi sem sett
hefði flokkinú skör ofar öðrum
flokkum á vinstri væng ítalskra
stjórnmála. Sannleikurinn er
hins vegar sá að báðir flokkarnir
keppa um hylli sömu kjósend-
anna og geta illa unnt hvor öðrum
sannmælis. Þetta á þó enn frekar
við um sósíalistana ef eitthvað er,
eins og berlega kom í ljós 10
dögum fyrir flokksþingið, þegar
til alvarlegs ágreinings kom á
milli leiðtoga flokkanna.
Leiðtogi í
sviðsljósinu
Achille Ochetto hafði þá átt í
umfangsmiklum samskiptum á
alþjóðavettvangi: fyrst hafði
hann þingað með foringjum vest-
urþýskra jafnaðarmanna, Willy
Brandt og Hans Jochim Vogel.
Þaðan fór hann til Moskvu og
heimsótti Gorbatsjov, þar sem
hann flutti m.a. boð vesturþýskra
jafnaðarmanna um áhuga þeirra
á alþjóðlegri ráðstefnu um sam-
skipti norðurs og suðurs með
þátttöku beggja stórveldanna. t
millitíðinni hafði Ochetto einnig
átt virkan þátt í því ásamt með
Francois Mitterrand Frakklands-
forseta að undirbúa ráðstefnu
evrópskra vinstri-flokka um um-
hverfismál.
Um borð í flugvél á leið frá
Moskvu spurði blaðamaður einn
Ochetto hver væri helsta hindr-
unin í vegi fyrir því að PCI gengi í
Alþjóðasamband Jafnaðar-
manna. Þá missti Ochetto það út
úr sér að það væri ekkert
launungarmál að meginhindrun-
in væri Craxi. Bettino Craxi not-
aði þessa pillu flokksleiðtoga PCI
síðan sem átyllu til þess að aflýsa
með stuttum fyrirvara mikilvæg-
um fundi, sem fyrirhugaður var í
Bruxelles fáeinum dögum fyrir
flokksþingið. Þessi fundur, sem
hafði verið í undirbúningi í 8
mánuði, átti að vera á milli leið-
toga jafnaðarmannaflokka EB,
og umræðuefnið átti einmitt að
vera innganga PCI í formlegt
samstarf þessara flokka á
Evrópuþinginu í Strassbourg.
Fundurinn gat ekki orðið án þátt-
töku PSI. Einn fréttaskýrandi
orðaði það þannig að þar með
hefði hornsteininum að hinu
„sameiginlega húsi“ ítalskra sós-
íalista og kommúnista verið kippt
í burtu: slíkt samstarf á alþjóða-
vettvangi væri forsenda fyrir
hugsanlegu samstarfi flokkanna
innanlands.
Afbrýðisemi
Craxi
Gagnrýnendur PSI hafa síðan
bent á að Craxi gæti ekki þolað að
flokksleiðtogi PCI sé í sviðsljós-
inu á alþjóðavettvangi eins og
raun ber vitni, og það hafi í raun
verið þessi afbrýðisemi sem kom
honum til að kippa í spottana. Og
það virðist ekki síður fara í
taugarnar á Craxi að nú stendur
fyrir dyrum heimsókn Ochetto til
Washington, þar sem hann mun
hitta Bush forseta að máli.
Gagnrýnendur PSI á flokks-
þinginu bentu á að nú hefði PSI
verið 10 ár í fimmflokkastjóm
með kristilegum demókrötum
með þeim árangri að valdastaða
kristilega flokksins væri óðum að
styrkjast án þess að nauðsynlegar
umbætur hefðu verið gerðar á ít-
ölsku þjóðfélagi. Tvöfeldni sós-
íalista væri augljós, því með því
að starfa stöðugt með kristilegum
en nota möguleikann á vinstri-
valkosti sem vönd væru þeir að
byggja á pólitík sem hefði ekki
grundvöll nema í samstarfi við
kristilega.
Þannig stendur þvergirðings-
háttur vinstra samstarfi fyrir
þrifum á Ítalíu: PCI vill vinstra-
samstarf í orði en vill ekki láta af
sjálfstæði sínu og forystuhlut-
verki. PSl starfar með kristi-
legum, segir vinstri-valkost
mögulegan í orði, en þá aðeins
undir forystu sósíalista og þá að-
eins að þeir geti séð fram á
hreinan þingmeirihluta í samein-
ingu.
Tímamót
Fréttaskýrendur eru yfirleitt
sammála um að 18. flokksþingið
marki tímamót. PCI hafi sýnt það
með áþreifanlegum hætti að
flokkurinn er fær um að bregðast
við nýjum raunveruleika. En
veikleika flokksins var kannski
best lýst í ræðu eins fulltrúa um-
bótasinnanna í flokknum sem
sagði á þinginu: Flokknum er
ekki nóg að benda á vandamálin
og segja: unga fólkið, konurnar,
Suður-Ítalía, umhverfismál. Það
er of mikið og of lítið í senn. Við
þurfum líka að spyrja: hvernig?,
með hverjum?, á hvaða efna-
hagsforsendum?, með hvers kon-
ar umbótum? Það er væntanlega
með svörum við slíkum spurning-
um sem PCI mun sanna hlutverk
sitt og stöðu sem næst stærsti
stjórnmálaflokkurinn á Ítalíu og
sem hugmyndaríkt forystuafl í
evrópskri vinstrihreyfingu á
næstu mánuðum og árum.
-ólg. Heimildir: La Repubblica,
Corriere della sera, LÉspresso og
Panorama
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐJRYGGÐRA
SPARISKIRTEINA RIKISSJOEJS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1980-1. fl. 15.04.89-15.04.90 kr. 2.097,81
*lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þarjafnframtframmi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, mars 1989
SEÐLABANKIÍSLANDS
Borgarstjórar gegn vímuefhum
Borgarstjórar frá Bandaríkjunum, S- Ameríku og Evrópu leggja til að fjármunum
sem sparast vegna afvopnunar
sévariðíbaráttuna gegn vímuefnum
Fyrr í þessum mánuði hitt-
ust þrjátíu borgarstjórar frá
Bandaríkjunum, Suður-
Ameríku og Evrópu á alþjóð-
legum borgarstjórafundi gegn
vímuefnum sem haldinn var í
New York. Á fundinum sam-
þykktu borgarstjórarnir álykt-
un þar sem þess var krafist að
þeim fjármunum sem sparast
vegna afvopnunar í heiminum
verði varið til baráttunnar
gegn vímuefnum.
Meðal þess sem borgarstjór-
arnir leggja til að gert verði er að
bjóða þeim sem rækta kók-
plöntuna önnur verkefni sem gefi
meira í aðra hönd.
Þá lögðu þeir til að haldin yrði
ráðstefna helstu ráðamanna
heimsins þar sem mótuð yrði pól-
itísk stefna í baráttunni gegn vím-
uefnum. Jafnframt hvöttu þeir til
þess að öll ólögleg vopnasala til
þeirra sem eru tengdir vímuefn-
um á einn eða annan hátt verði
stöðvuð.
George Bush, forseti Banda-
ríkjanna mætti á fundinn til þess
að sýna stuðning sinn við barátt-
una gegn vímuefnum. Hann fékk
hinsvegar fremur kaldar viðtökur
þvf Edward Koch, borgarstjóri
New York gagnrýndi harðlega
stefnu forsetans í þessum málum
og sagði m.a. að allt sem Bush
hefði að segja um vímuefnavand-
amálið væru innantóm orð á
meðan hann sýnir það ekki í verki
að honum sé alvara með því að
hækka stórlega framlög til barátt-
unnar gegn þessum vágesti.
Samkvæmt fjárlögum síðasta
árs átti að verja 2,9 miljörðum
dollara, eða rúmum 153 miljörð-
um íslenskra króna, í Bandaríkj-
unum, í baráttuna gegn vímuefn-
um. Hinsvegar var einungis varið
1,9 miljörðum dollara, eða rúm-
um 100 miljörðum íslenskra
króna í þetta.
Koch lagði til að lagt yrði gjald
á tóbak og áfengi sem fær beint í
það að auka meðferðarmögu-
leika fyrir vímuefnasjúklinga. Þá
lagði hann til að samþykkt yrðu á
þingi lög sem heimiluðu yfirvöld-
um eignaupptöku hjá þeim sem
stunda vímuefnasölu og innflutn-
ing- -Sáf/Ny Tid
«
16 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 31. mars 1989
Borgarstjórarnir vilja stöðva vopnasölu til vímusala.
Föstudagur 31. mars 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 17
GREIÐSLU-
ERFIÐLEIKAR
HÚSBYGGJENDA OG
ÍBÚÐARKAUPENDA
Margir þeirra, sem byggt
hafa íbúðarhúsnæði eða keypt
á síðustu árum, þekkja hvað
það er að lenda í greiðsluerfið-
leikum; að eiga ekki fyrir af-
borgunum lána og þurfa að
taka lán til að greiða af eldri
lánum.
HELSTU ÁSTÆÐUR
Ástæður greiðsluerfiðleik-
anna hafa verið margvíslegar.
Sumir gátu ekki séð vandann
fyrir. Áætlanir þeirra brugðust
vegna aðstæðna sem þeir réðu
ekki við. Allt of margir hefðu
hins vegar getað séð erfiðleika
sina fyrir.
Stór hópur hefur lent í
greiðsluerfiðleikum vegna
byggingar eða kaupa sem
ákveðin voru áður en þeir
fengu svar við umsókn sinni
um lán frá Húsnæðisstofnun.
Þetta heitir að byrja á öfugum
enda. Það er frumskilyrði, að
þeir sem þurfa lán hjá stofnun-
inni, taki ekki ákvaröanir um
byggingu eða kaup fyrr en þeir
hafa fengið senda tilkynningu
um afgreiðslutíma láns
(,,lánsloforð“).
LIFAÐ UM EFNIFRAM
Margir hafa einnig lent í
greiðsluerfiðleikum vegna þess
að þeir byggðu eða keyptu allt
of stórt eða dýrt húsnæði.
Sumir virðast halda að málin
bjargist af sjálfu sér. Sú er
sjaldnast raunin, því miður. Það
er liðin tíð að það borgi sig að
skulda.
Láttu það ekki henda þig, að
eyða mörgum árum ævi þinnar
í erfiðleika og áhyggjur af íbúð-
arkaupum eða byggingu sem
þú ræður engan veginn við.
FÓLK HEFUR MISST
ALEIGU SÍNA VEGNA
ÞESS AÐ ÓSKHYGGJAN
EIN FÉKK AÐ RÁÐA.
ÞAÐ ER EKKI EFTIR-
SÓKNARVERT.
RÁÐGIAEÁSTOÐ
TimmSSlÐFNUNAR l