Þjóðviljinn - 14.04.1989, Síða 25
Hvítabjöm í
Suöurríkjunum
Fyrr á þessu ári var á síðum
þessa blaðs vakin athygli á safn-
plötu með úrvali blúsa Johnny
Winter, albinóans frá Suðurríkj-
um Bandaríkjanna. Það hefur
verið sagt um Jonny Winter í mín
eyru, að svartir blúsarar vestan-
hafs beri ekki eins mikla virðingu
fyrir nokkrum hvítum gítarblús-
ara og honum. Skýringin er
auðvitað sú að Winter er upplit-
aður, eða skaparinn hefur gert
hann svo hlutlausan gagnvart lit-
arhafti manna, að hann setti eng-
ar litarfrumur í kappann.
Winter gaf út á síðasta ári
fantagóða blússkífu sem hann
kallar „The Winter of ‘88“. Hér
mætir Hvítabjörn suðursins til
leiks mun lífsglaðari og hressari
en áður. Winter er greinilega
ánægður með lífið og tilveruna
um þessar mundir og í þessu glað-1
værðarkasti gerir hann plötu sem
er holl heilsu manna. Gamlir
blúsar eins og „Rain“ eru fram-
reiddir með óaðfinnanlegum
hætti og sá gamli situr enn með
fullri reisn í lávarðadeild blúss-
ins.
Gítarleikurinn er með því al-
skemmtilegasta sem ég hef heyrt
hjá Winter og hann syngur af
meiri innlifun en á fyrri plötum.
Þessi blúsplata er ólík plötu Hea-
leys (sem rætt er um annarsstaðar
hér á síðunni) að því leyti að
Winter kemur betur út í fjöl-
menni. Það tekur því ekki að
hressa upp á þann sem ekki
kemst á hreyfingu við að hlusta á
„Veturinn ‘88“. Samt er að finna
á þessari plötu tragíst teygða
hljóma í ætt við spangól og fram-
kalla ljúfan blúshroll.
Aðstoðarmenn Winters eru af
betra taginu, bassa- og munn-
hörpuleikarinn Jon Paris og sá
sem föndrar við trommurnar er
Tom Comton. Þeir hjálpa til við
að gera „veturinn“ að skotheld-
um blús.
Hvernig væri að spila þessa
plötu í byrjun hvers ríkis-
stjórnarfundar og sjá hvort upp-
litið á stjórnvöldum breyttist
ekki?
Á geisladisknum eru tveir
aukablúsar sem ekki eru á LP-
plötunni.
-hmp
Gamli Hvítabjörninn frá Suður-
ríkjunum, Johnny Winter, er enn
að.
ALÞÝPIJBANDALA GTF)
Alþýðubandalagið Siglufirði
Félagsfundur
Alþýðubandalagið Siglufirði boðar til fundar í Alþýðuhúsinu laugardaginn
15. apríl kl. 16.00.
Dagskrá: Brauðstrit og barátta, til heiðurs höfundinum, Benedikt Sig-
urðssyni.
Á fundinn koma Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Steingrímur J.
Sigfússon samgönguráðherra og Ragnar Arnalds alþingismaður.
Stjórnln
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Spilakvöld
Alþýðubandalagið í Kópavogi verður með spilakvöld mánudaginn 17. apríl
klukkan 20,30 í Þinghól Hamraborg 11 3. hæð.
Allir velkomnir. Stjórnln
Alþýðubandalagið á Akureyri
Bæjarmálaráð
Fundur veröur haldinn í bæjarmálaráði Alþýðubandalagsins á Akureyri
mánudaginn 17. apríl klukkan 20,30 í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18.
Fundarefni:
1. Dagskrá bæjarstjórnarfundar 18. apríl.
2. önnur mál. Stjórnln.
Alþýðubandalagið á Akureyri
Áður auglýstri árshátíð frestað af óviðráðanlegum orsökum.
Stjórnin
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Framhaldsskólarnir
Félagsfundur um framhaldsskólamál í Kópavogi verður haldinn laugardag-
inn 15. apríl kl. 10-12 í Þinghól, Hamraborg 11. Heiðrún Sverrisdóttir
formaður skólanefndar og Heimir Pálsson borgarfulltrúi leiða umræðurnar.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Bæjarmála ráð
Fundur í bæjarmálaráði mánudaginn 17. apríl kl. 20.30. í Þinghól, Hamra-
borg 11. Rætt um stjórnsýslu í Kópavogskaupstað.
Alþýðubandalagið Skagafirði
Opinn fundur í Skagafirði
Steingrímur J. Sigfússon og Ragnar Arnalds mæta til yfirheyrslu um
landbúnaðar- og samgöngumál í Miðgarði sunnudaginn 16. apríl kl. 16.00
Stjórnin
Risaeðlan, trompið í dag.
Langi Seli og Risaeðlan á Borginni
Fimmtudaginn í síðustu viku
héldu Langi Seli og Skuggarnir
tónleika á Hótel Borg í tilefni ný-
útkominnar plötu. Risaeðlan hit-
aði upp fyrir Langa Sela og stað-
festi enn og aftur fyrir undirrit-
uðum að Risaeðlan er eins og
ferskur gustur í íslensku tónlistar-
lífi. Risaeðlan er að gera hluti
sem engin hljómsveit hérlend er
að fást við eða hefur fengist við
að mínu viti.
Mest áberandi eru Magga á
fiðlu og Dóra á saxa en samleikur
þeirra er einn sá skemmtilegasti
sem maður verður vitni að. Það
er einnig vel til fundið að setja
þessi hljóðfæri í forgrunninn og
sýna þannig að hægt er að fremja
rokk með öðrum hljóðfærum en
bara gítar, bassa og trommum.
Risaeðlan hefur lokið upptökum
á plötu sem kemur út í sumar og
eru þeir sem heyrt hafa í Risaeðl-
unni á tónleikum eflaust famir að
bíða spenntir. Langi Seli og
skuggarnir brugðust heldur ekki
áheyrendum sínum en tónlist
þeirra er svo ólík tónlist Risaeðl-
unnar, að maður var eiginlega
ekki tilbúinn til að taka á móti
þeim. Það var ekki fyrr en undir
lok tónleikanna sem maður var
kominn í sveiflu með Langa Sela.
Tónleikarnir voru þokkalega vel
sóttir. -hmp
Blátt, blátt segir gítarinn
Jeff Healey er einn af þeim sem
fengið hefur nafnbótina undra-
barn. Þessi 22 ára gamli, blindi
Kanadamaður þykir nefnilega
með eindæmum góður gítar-
leikari. Honum hefur verið jafn-
að við Hendrix sem er ekki lítið
hól fyrir svo ungan gítarleikara.
Gamlir lautenantar í bransanum
hafa ausið hann lofi og má þar
nefna ekki minni menn en B.B.
King og Stevie Ray Vaughan.
Healey hefur verið blindur frá
eins árs aldri. Þegar hann var
þriggja ára var honum gefinn gít-
ar og síðan þá hafa hann og gítar-
inn verið óaðskiljanlegir. Hann
hefur spilað flestar tegundir dæg-
urtónlistar, djass, raggí, þungar-
okk og kántrý, en hefur nú snúið
sér að blúsnum.
The Jeff Healey Band er tríó og
hittust þeir félagar á djamm ses-
sjón og komu fyrst fram seint á
árinu 1985. Félagar Healeys
trommuleikarinn Tom Stephen
(örugglega íslendingur, kominn
af vesturheimska skáldinu okkar)
og bassaleikarinn Joe Rockman
áttu báðir fyrir höndum ágætan
feril, Stephen í stjómsýslu og
Rockman í hljóðverum vestan-
hafs. En þegar þeir höfðu heyrt
Healey blúsa með gítarinn á
hnjánum, kom aldrei annað til
greina en skrá sig á skútu hjá hon-
um.
Sniglar &
eðlur í
Tunglinu
í kvöld klukkan 23 stundvís-
lega hefjast tónleikar í Tunglinu.
Tónleikarnir hefjast með leik
Rokkabillybands Reykjavíkur
sem ætlar, samkvæmt tilkynn-
ingu, að leika lög frá þeim tíma
þegar karlmenn klístmðu hárið,
kúluspil voru kúluspil og konur
kjömsuðu á kúlutyggjói í krómi
slegnum kádiljákum. Að rokka-
billyinu loknu mun Sniglabandið
stíga á svið og leika nokkur log í
anda Glasnost og Perestrojku.
En Sniglarnir hafa það á stefn-
uskránni að sniglast til Sovét í
sumar.
Annaðkvöld mun Sniglaband-
ið síðan koma fram öðru sinni í
Tunglinu en fær þá til liðs við sig
hina stórgóðu hljómsveit Risa-
eðluna, sem tvímælalaust er að
fremja það alforvitnilegasta í tón-
listarlífi borgarinnar um þessar
mundir. Þessir tónleikar hefjast
einnig stundvíslega klukkan 23.
Jeff Healey og hljómsveit, kappinn sjálfur er í miðjunni.
Fyrsta plata tríósins heitir „See
the Light“ sem er væntanlega vís-
un í það að Healey sjái ljósið í
gegnum tónlistina. En sem hlust-
andi er heldur ekki frá því að
uSee the Light“ opni augu manns
- og eyru. Langflest laganna á
plötunni eru blús í hæsta gæða-
flokki en nokkur þeirra eru í létt-
ari sveiflu. Þetta er þó fágaður
blús með sætvælandi gítar sem
plokkaður er af list og mikilli
færni. Þó Healey sitji nær alltaf
með gítarinn á hnjánum þegar
hann spilar, á hann það til í hita
leiksins að standa upp og naga
strengina að hætti Hendrix og
lyfta gítarnum aftur fyrir hnakka
og plokka án þess að fipast svo
mikið sem á einni nótu.
Það fer ekki á milli mála að hér
er snillingur á ferð og það er ekki
oft sem fyrsta plata tónlistar-
manns er eins heilsteypt og
þroskuð og „See the Light“ er.
Healey á flest laganna á plötunni
en gamlir blúsar fljóta þó með inn
á milli og er farið vel með þá
flesta.
Öfugt við kollega minn í skrif-
um á þessa síðu, er ég ekki eld-
heitur gítarleiks aðdáandi. Fátt
fer eins í taugarnar á mér og há-
vaði framkallaður með rafmagns-
gítar, eins skemmtilegt hljóðfæri
og hann nú annars getur verið.
En Jeff Healey er aldrei með há-
vaða. Eins og góðuf blúsari fer
hann stundum með tónana á ystu
nöf en hann fer aldrei yfir mörk-
in. Á bláum síðkvöldum hentar
þessi plata vel. i > -
'ætt, -hmP
■
■
Ýjebai;
Frá Grunnskólum
Kópavogs
mt
Innritun 6 ára barna (börn fædd 1983) fer fram í
skólum bæjarins mánudaginn 17. apríl og
þriöjudaginn 18. apríl frá kl. 13-16. Innritun
skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast milli
skólahverfa, flytja í Kópavog eða koma úr
einkaskólum, fer fram sömu daga á skólaskrif-
stofu Kópavogs, Hamraborg 12, S.fyæö, kl. 10-
12 og 13-15, sími 41988. ^
Skólafulltrúi
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 25