Þjóðviljinn - 29.09.1989, Blaðsíða 3
Kristið blað
Menn eru að sjálfsögðu
farnir að leggja út af því, hver
með sínum hætti, hvað það
tákni eða merki undir augliti
eilífðarinnar að nýr ritstjóri
Þjóðviljans heitir Olafur H.
Torfason. Illkvittnir menn
segja að þetta séu ekki annað
en vélabrögð landbúnaðarm-
afíunnar. Aðrir hafa af sinni
mannþekkingu og skarp-
skyggni fest hugann við það,
að Ölafur er maður kaþólskur
og sat í nefnd þeirri sem undir-
bjó heimsókn páfa nú í sumar
leið. Þessvegna hefur því
verið fram slegið, að loks hafi
vísa eftir Flosa Ólafsson
reynst spámannleg í meira
lagi. En einhverju sinni hafði
merkisklerkur einn ávítað
Morgunblaðið fyrir hæpin skrif
um trúmál og hert á ádrepunni
með því segja sem svo, að
margt gæti það blað lært af
Þjóðviljanum í meðferð trú-
mála. Þá orti Flosi:
Á Mogganum er mesta puð
menn þar ekki trúa á guð.
En hitt er víst og það er það
að Þjóðvitjinn er kristið
blað.m
Heimsins von
Við birtum hér um daginn vísu
sem ort var um Lúðvík Jós-
epsson. Og kom það þá fram
eins og oft vill verða um ágæt-
ar vísur, sem fara að lifa sínu
eigin lífi, að þær afbakast og
tilefni þeirra líka.
Tilefni vísunnar var ekki
vaskleg framganga Lúðvíks
Jósepssonar í landhelgismál-
um eins og fram var haldið.
Tilefnið var það, að höfundur
hennar, Sigurdór Sigur-
dórsson, hafði tekið eftir því
að Þjóðviljinn vitnaði allt að
því fimm sinnum á degi hverj-
um í Lúðvík og þá með nokk-
uð sjálfvirkum formúlum: Lúð-
vík segir, Lúðvík leggur til og
þar fram eftir götum. Og vísan
var svona rétt:
Lúðvík er Ijóssins perla
Lúðvík er heimsins von
Lúðvík er ioftsins erla
Lúðvík er JósepssonM
Sambirtingar-
hljómur
minnihlutans
Birting hefur ákveðið að
ræða við fulltrúa allra flokka
minnihlutans í borgarstjórn í
Reykjavík um sameiginlegt
framboð þessara flokka og
hófust viðræðurnar á því að
gengið var á fund krata. í gær
var svo rætt við fulltrúa Fram-
sóknarflokksins en á miðviku-
dag munu fulltrúar Birtingar
eiga fund með Alþýðubanda-
laginu um þessi mál. Ekki hef-
ur enn verið ákveðið hvenar
rætt verður við Kvennalistann
en hann hefurtekið vel í slíkar
viðræður. En það eru fleiri en
Birting sem áhuga hafa á
þessum málum því á miðviku-
dagskvöld, eftir fund Birtring-
ar og Alþýðubandalagsins,
verður Alþýðubandalagið í
Reykjavík með fund um sam-
eiginlegt framboð og munu
fulltrúar allra flokka minnihlut-
ans mæta á þann fund.B
Freyðibaðið
Fertugsafmæli Ingólfs Mar-
gfeirss. ætlarað dragadilk
á eftir sér því Alþýðublaðið,
sem venjulega gengur undir
gælunafninu Kratinn, hefur
fengið nýtt heiti. Nú kalla gár-
ungarnir það Freyðibaðið.
Ptótaöu Græðandi varasalvi
iriiliHilllll'lfflllllllll'ljilM-
Heilsuval. Laugavegi 32. S 626275 og 11275
Martröð
Ijósmyndara
Sagt er að Ijósmyndarar eigi
nú við alvarlegt faglegt
vandamál að stríða. ( þeirra
röðum hefur lengi tíðkast að
hafa uppi alls kyns fleðulæti
og flím til aðfáfyrirsæturnartil
að brosa en árangurinn er oft
æði misjafn. Hafa Ijósmynd-
arar á hraðbergi margar hryll-
ingssögur af kollegum sem
enduðu inni á geðdeildum
eftir að hafa lagt fyrir sig
fjölskyldu- og barnaljósmynd-
un. Og nú hefur enn eitt orðið
til að hrjá þessa stétt. Sagan
segir að Ijósmyndari einn hafi
verið fenginn til að taka mynd
af starfsfólki kaupfélags á
landsbyggðinni. Hann stillti
öllum upp með samvinnu-
merkið í bakgrunni og beitti
svo þeim brögðum sem vana-
lega duga til að fá fólk til að
brosa, eða allavega að svo líti
út sem það brosi. En hann
hafði vart sleppt töfraorðinu
þegar allur hópurinn, allt frá
kaupfélagsstjóra niður í
aumustu búðarloku, brast í
sáran og háværan grát. Og
hvert var þá þetta úr sér
gengna töfraorð? Jú, Ijós-
myndarinn hafði beðið fólkið
að segja SÍS en það getur
enginn nefnt ógrátandi eins
og ástandið er þar á bæ.B
Ingólfsdropar
Ráðherrabrennivín hefur öl-
kærum löngum þótt betra en
allt annað vín. Eins og öll börn
sem fólk elskar á þessi sér-
stæði drykkur sér mörg nöfn.
Og nú hefur enn eitt bæst við:
Ingólfsdropar þykja nú mestur
eðaldrykkur sem völ er á í
landinu.B
Atvinnutryggingasjóður,
útflutningsgreina
Rauðarárstíg 25, 105 Reykjavík
Orðsending
Loka skilafrestur umsókna um lán hjá sjóðnum
er 31. desember 1989.
Umsóknir sem berast eftir 30. september 1989
fá ekki afgreiðslu á þessu ári.
Þá vill sjóðurinn benda þeim á sem hafa fengið
lánsloforð frá sjóðnum að þau falla úr gildi
þremur mánuðum frá samþykkt hafi nauðsyn-
leg gögn ekki borist sjóðnum fyrir þann tíma.
Stjórn sjóðsins
HUUTABRÉF
í traustu fýrirtæki
er arðbær fjárfesting
og veitir skattafríðindi
Vænlegt sparnaðarfbrm
Lækkar tekjuskatt
Eignaskattsfrjáls
Almenningi gefst nú kostur á aö kaupa hlut í
Alþýðubankanum, traustu og arðbæru fyrirtæki.
Eigendur Alþýðubankans eru launþegar, félög
þeirra og stofnanir, um 900 talsins. Hlutabréf í
Alþýðubankanum eru góð fjárfesting. Þau halda
verðgildi sínu, gefa arð og njóta skattfríðinda.
Frá skattskyldum tekjum má draga kaupverð hluta-
bréfa og lækka þannig tekjuskatt (á síðasta ári um
72 þúsund kr. fyrir einstakling - tvöfalt fyrir hjón).
Hlutabréf eru einnig eignaskattsfrjáls að tilteknu
marki.
Notaðu tækifærið og kynntu þér þennan kost til
ávöxtunar á sparifé þínu. Hægt er að skrifa sig fyrir
hlut í öllum afgreiðslum bankans.
Nánari upplýsingar veitir aðalbókari, í síma
91-62 11 88-253.
Alþýöubankinn hf
Reykjavík, Akranesi, Akureyri, Blönduósi og Húsavík.
ARGUS/SlA