Þjóðviljinn - 29.09.1989, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 29.09.1989, Blaðsíða 6
AFMÆLI Anna Pálsdóttir Reyðarfirði Hjartahlýjar kveðjur og heilla- óskir með örfáum orðum er nú það allra minnsta sem ég get fært fram á þessum merkisdegi í lífi míns mæta félaga. Traust og viljaföst myndaði hún sér ein- dregna lífsskoðun, sem engir sviptivindar tilviljana né tízku- strauma hafa megnað að hrekja hana frá. Pólitískt raunsæi henn- ar hefur ævinlega verið henni óbrigðult og því hefur löngum verið gott að leita álits hennar á hlutunum, því fjarri er hún því að segja aðeins já og amen, þegar eftir afstöu hennar er leitað. Hún hefur verið ötull og ódeigur liðs- maður og farið í forystu í félagi okkar, heima á Reyðarfirði, þeg- ar félagsleg þörf hefur kallað. Kær og ljúf og mikilsverð hefur liðsemd hennar verið og það skal þakkað hér og nú um leið og ég vona að löng verði samfylgdin enn á vettvangi. En samfylgdin var ekki síður verðmæt þeim sem áttu hana að einstaklega lið- tækum félaga í Leikfélagi Reyðarfjarðar, og ég var einn þeirra, þar sem hún fór með mörg hlutverk og veigamikil og skilaði með miklum ágætum. Það var mikið og erfitt sjálfboðaliðsstarf þar sem Anna lagði sitt ljúfa lið með léttu geði sínu og eignaðist allra vináttu að verkalaunum ásamt ánægjunni yfir þakklátum viðtökum þeirra sem á hlýddu og horfðu. Hún hefur víðar við kom- ið og alls staðar verið hinn virki þátttakandi. Hörmuleg lífs- reynsla, er eiginmaður hennar dó af slysförum á bezta aldri, setti ugglaust svip sinn á svo ótalmargt á æviferli, en bugast lét hún ekki né brotnaði og horfði áfram vonglöð tii lífsins þrátt fyrir allt. I því kom hún fram sem hetjan, sem hvergi lætur hugfallast, hversu þungt högg sem lífið nær að ljósta. Ég veit hún Anna vill ekki að ég segi þetta allt, enn síður meira. Eg hlýt því aðeins að færa henni hjartans þakkir fyrir samfylgd- ina, fyrir uppörvun alla og að- stoð. Hanna biður fyrir beztu kveðjur og einlægar óskir. Gangi þér allt á gæfunnar veg, kæra vinkona. Helgi Seljan Anna átti afmæli í gær, 28. sept. Vatnsveita Reykjavíkur 80 ára í tilefni af afmæli veitunnar mun verða haft „opið hús” í dælustöðvunum í Heiðmörk, sunnu- daginn 1. október n.k. í því tilefni munu Strætis- vagnar Reykjavíkur halda uppi ferðum frá Lækjartorgi að Gvendarbrunnum. Vagnarnir verða merktir „Vatnsveita Reykja- víkur 80 ára” og er tímatafla vagnanna sem hér segir: Tímatafla Mín. yfir heila klst. Frá Lækjartorgi 15 Hlemmur 20 Grensás 28 Stengur 32 Rofabær 35 Rauðhólar 43 og síðan að Gvendarbrunnahúsi Ekið er á klukkustundarfresti FyrstaferðfráLækjartorgi Kl. 13.15 Síðasta ferð frá Lækjartorgi Kl. 17.15 Þar sem umferð einkabíla er ekki leyfð innan verndarsvæðanna, er þeim sem í einkabílum koma, bent á að geyma bílana í Rauðhólum nálægt afleggjaranum inn á verndarsvæðið. Strætisvagn mun verða í ferðum frá Rauðhólum til Gvendarbrunna. Frá Listasafni Sigurjóns Ólafssonar Sýningu Kristjáns Davíðssonar lýkur um helg- ina. Safnið verður lokað frá 2. til 21. október n.k. vegna undirbúningsvinnu fyrir sýningu vetrar- ins á verkum eftir Sigurjón Ólafsson. Bílaleigubílar Tilboð óskast í leigu á bílaleigubílum til afnota fyrir ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki árin 1989- 1990. Útboðslýsing er afhent á skrifstofu vorri, Borg- artúni 7, Reykjavík. Opnun tilboða fer fram á skrifstofu vorri föstu- daginn 20. október 1989 kl. 11.00 fh. í viðurvist viðstaddra bjóðenda. INIMKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK Sjóminjasafn íslands Sýningunni „Fundur Ameríku” lýkur um helg- ina. Frá og með 1. október verður safnið opið laugardagaog sunnudagafrá kl. 14-18. Skóla- fólk og hópar geta pantað tíma virka daga. Tökum á móti sjóminjum alla daga. Hafið sam- band í síma 52502. Borgarskipulag - 'I' Borgarverkfræðingur Reitur 1.171.0 markast af Laugavegi, Ingólfs- stræti, Hverfisgötu og Smiðjustíg. Deiliskipulag reitsins var auglýst frá 6. janúar til 17. febrúar 1988. Fram er komin tillaga að bílageymsluhúsi á lóðinni Hverfisgötu 20 en skipulagstillagan er að öðru leyti óbreytt. Tillagan er til kynningar á Borgarskipulagi Borgartúni 3 og hjá Borgar- verkfræðingi Skúlatúni 2 næstu 4 vikur eða til og með 27. okt. n.k. Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir ágústmánuð 1989, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 2. október. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftireindaga uns þau eru orðin 20%, en síðast reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. október. Fjármáiaráðuneytið LANDSPITALINN Fulltrúi óskast á kvennadeild Landspítala, félags- ráðgjöf nú þegar. Um framtíðarstarf er að ræða eftir reynslutíma. Starfið er 50%, vinnutími er eftir samkomulagi. í starfinu fellst m.a. umsjón með móttöku fé- lagsráðgjafa, skráningar- og vélritunarstörf, skjalavarsla, meðferð og frágangur trúnaðar- gagna. Æskilegt er að umsækjandi hafi stúdentspróf eða framhaldsskólamenntun af heilsugæslu- eða félagssviði eða reynslu af ritara- og mót- tökustarfi í heilbrigðisþjónustu. Upplýsingar gefur Svava Stefánsdóttir, yfirfé- lagráðgjafi í síma 601166 og 601165. Umsóknir sendist yfirfélagsráðgjafa, kvenna- deild Landspítalans. RIKISSPITALAR Auglýsið í Nýju Helgarblaði Gerðuberg: Mánudagur: ENSKAI ENSKAII SAUMAR Þriðjudagur:ENSKA I ENSKAIV Miðvikudagur: ENSKAII ENSKAIII Fimmtudagur: ÞÝSKAI ÞÝSKAII SPÆNSKAII SPÆNSKAI Árbæjarskóli: Mánudagur: ENSKAII ENSKAI Miðvikudagur: ÞÝSKAIV ÞÝSKAIII ÞÝSKAII Laugalækjarskóli: Mánudagur: SÆNSKAI SÆNSKAII Þriðjudagur: SÆNSKAIII SÆNSKAIV VÉLRITUN Miðvikudagur: ENSKAI ENSKAII BÓKFÆRSLA kl. 18.40-20.05 kl. 20.10-21.40 kl. 18.40-21.40 fullt kl. 18.40-20.05 kl. 20.10-21.40 kl. 18.40-20.05 kl. 20.10-21.40 kl. 19.25-20.50 kl. 20.00-22.20 kl. 18.40-20.05 kl. 20.10-21.40 kl. 18.00-19.20 kl. 19.25-20.50 kl.18.00-19.20 kl. 19.20-20.50 kl. 21.00-22.20 kl. 19.20-20.50 kl. 21.00-22.20 kl. 19.25-20.50 kl. 21.00-22.20 kl. 20.10-22.20 kl. 19.25-20.50 kl. 21.00-22.20 kl. 19.30-21.40 VERÐ: 24 st. flokkar kr. 3.800, 33 st. flokkar kr. 5.700,48 st. flokkar kr. 7.600, kennslugögn ekki innifalin. INNRITUN á skrifstofu Námsflokka Reykja- víkur, Fríkirkjuvegi 1, kl. 13-21. Sími 12992 og 14106. Kennsla hefst 2. okt. n.k. Frá Borgarskipulagi (/ Reykjavíkur Reitir 1.130.2 og 1.131 markast af Mýrargötu að norðan, Seljavegi að vestan, Nýlendugötu að sunnan og Ægisgötu að austn. I samræmi við samþykkt skipulagsnefndar 14. ágúst s.l. er að hefjast deiliskipulagsvinna á þessum reitum. Þeir sem vilja leita sér upplýsinga eða koma á framfæri ábendingum hafi samband við Ólaf Halldórsson deildarstjóra á Borgarskipulagi Borgartúni 3 eða Guðmund Gunnarsson hjá Arkitektaþjónustunni sf. Hellusndi 3 Reykjavík. 6 SÍOA — NYTT HELGARBLAb Föstudagur 29. september 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.