Þjóðviljinn - 29.09.1989, Side 9

Þjóðviljinn - 29.09.1989, Side 9
- Að sjálfsögðu vonast ég til að sem flestir mæti í Laugarda- linn um helgina til að berja þessa kappa augum því þarna verða samankomnir sterkustu menn heimsins um þessar mundir. Ég reikna með að kostnaður við mótshaldið verði um ein og hálf miljón króna og þessvegna er nauðsynlegt að sem flestir mæti til að hægt verði að halda svona keppni aftur," sagði Hjalti Úrsus Árnason kraftlyftingamaður. Sex sterkustu menn heimsins taka þátt í kraftakeppninni „Kraftur 89“ sem hefst á morgun laugardag klukkan 14 og verður síðan fram haldið á sunnudag. Á laugardaginn verður keppt í aflraunum utanhúss en seinni daginn leggja kappirnar undir sig Laugardalshöllina. Trúlega hafa aðrir eins kraftajötnar aldrei keppt innbyrðis hér á landi á seinni tímum en eins og menn eiga að vita voru þeir á hverju strái hérlendis hér á öldum fyrr samkvæmt rituðum heimildum, svo ekki sé minnst á aðrar heim- ildir sem varðveist hafa í munn- legri geymd um hetjudáðir for- feðranna. Hörku keppni Kapparnir sem hér um ræðir eru þeir Hjalti Úrsus Árnason, Jón Páll Sigmarsson, Magnús Ver Magnússon, O. D. Wilson „Mar- tröðin frá Kaiiforníu,“ Jamie Re- eves frá Sheffield í Englandi og Tom Magee frá Kanada. Allt eru þetta valinkunnir menn á sínu sviði sem hafa að baki glæsilegan feril í kraftlyftingakeppnum sem og í öðrum íþróttum. Búast má við hörku keppni á milli kappanna og þá kannski sér- staklega á milli Jóns Páls og Jam- ie Reeves sem bar sigurorð af Jóni í keppni á Spáni nýverið, þó svo að þeir hinir ætli sér einnig að gera góða hluti, enda hafa þeir æft af kappi undir átökin. - Sjálf- ur er ég í hörku formi og hef æft stíft fyrir mótið og ætla mér að Helmingur keppenda á Kraftur ‘89 var mættur til hádegisverðar á heimili Hjalta Ursusar Arnasonar ígær. Þeireruf.v. O. D. Wilson, Hjalti og Tom Magee frá Kanada. Mynd: Kristinn. Kraftajötnar í Laugardal Sex sterkustu menn heimsins samankomnir í Laugardal um helgina. Meðal keppnisgreina eru trukkadráttur, að jafnhatta trjádrumba, hlaða lýsistunnum uppá pall og hlaupa 200 metra með 90 kílóa sekk á bakinu sjálfsögðu aðgera betur en allir hinir,“ sagði Hjalti Úrsus Árna- son. Á morgun verður keppt í því að draga trukka, jafnhatta trjá- drumba og henda 25 kílóa lóðum yfir rá. Á sunnudag reyna kapp- arnir með sér við að henda 25 kílóa steinum eins langt og þeir geta, halda á rafgeymi með út- rétta arma, keppa í steinatökum þe. að lyfta mismunandi þungum steinum uppá palla, kéyra hjól- börur með hlassi, hlaða lýsis- tunnum uppá pall og hlaupa 200 metra með 90 kílóa sekk á bak- inu. Skipuleggjandi mótsins og sá sem heldur það er Hjalti Úrsus Árnason. Aðspurður hvað réði val hans á keppendum sagði hann að þeir væru þeir sterkustu í heiminum í dag og hefðu allir unnið til heimsverðlauna í kraft- lyftingum, og öðrum lyftingum. Hjalti sagði að nú væri kominn tími til að aðrir en Jón Páll fengu að sýna hvaða í þeim býr í keppni sem þessari hér heima en eins og flestum er kunnugt um hefur Jón Páll verið næsta ósigrandi í álíka keppnum erlendis undanfarin ár. En hvaða þýðingu hefur mót sem þetta fyrir æsku landsins og aðra sem áhuga hafa á lík- amsrækt og kraftlyftingum að mati Hjalta. - Það er engin spurning að svona keppni er ómetanleg lyftistöng fyrir allt íþróttafólk hér heima en þó sér í lagi fyrir þann mikla fjölda sem æfir í líkamsræktarstöðvunum og tekur í lóð sér til heilsubótar á degi hverjum. Þá er ég ekki í neinum vafa um að svona mót mun hvetja viðkomandi til frek- ari dáða og það sem meira er um vert að þeir sem ekki hafa sýnt kraftlyftingum áhuga en eru veikir fyrir íþróttinni munu trú- lega vakna til dáða þegar þeir sjá þessa kraftakarla með eigin augum,“ sagði Hjalti. Eins og gefur að skilja er mat- aræði kappa sem þessara á allt öðru plani en gengur og gerist hjá venjulegu fólki. Að sögn Hjalta er matarreíkningur hans á mán- uði aldrei undir 40 þúsund krón- um og æði oft mun meiri. _grh Föstudagur 29. september 1989INYTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.