Þjóðviljinn - 29.09.1989, Síða 10
Um snúning
Ef ferðalangur í ævintýraleit
skyldi slæðast til borgarinnar
Konya á Anatólíuskaganum
miðjum einhvern tíma árla
vetrar, má búast við að undarleg
sjónhverfing mæti augum hans:
hvarvetna eru á ferli menn í
snjóhvítum, síðum ullarkuflum
með glampandi augu og upphafin
andlit, þeir koma í röðum og
mynda hringi, og undir örvandi
bumbuslætti og alls kyns hljóð-
færaleik snúast þeir kringum
sjálfa sig með alveg ótrúlegum
hraða, eins og fjárhundar í elting-
arleik við eigið skott, svo varla
verður greint.
f beinu
sambandi
Það er ekki nema von, þótt
menn spyrji í forundran hvað hér
sé á seyði og hvaða þambara
vambara þeysingssprettir þetta
séu eiginlega á hund-tyrkjans
grund. En frá því er löng saga, og
verður nú að fara rúmlega þús-
und ár aftur í aldir. Á þeim tíma
var svo komið að trú Spámanns-
ins teygði sig yfir öll menningar-
ríki heims (en engum heilvita
manni hefði þá dottið í hug að
telja Vestur-Evrópu meðal
þeirra), og stóðu vísindi og,
heimspeki þar í meiri blóma en
dæmi höfðu verið til um langt
skeið: alls staðar unnu menn af
miklu kappi við að leggja
grundvöllinn að nýrri ljósfræði,
stjörnuspeki, algebru og
gullgerðarlist, og sigurvinningum
mannsandans virtust engin tak-
mörk sett. En samt voru ekki allir
ánægðir með þetta athæfi: þeir
töldu að þessi fræði gervöll sner-
ust ekki um annað en hjóm og
hégóma og hefðu það eitt í för
með sér en villa mönnum sýn. Því
höfnuðu þeir vitsmunastefnu af
hvaða tagi sem var, sem hlyti að
þeirra áliti að leiða menn afvega
frá réttri trú, og leituðu í staðinn
að annarri leið til að nálgast það
eitt sem skipti máli: með
meinlætalifnaði, vökum, hug-
leiðslu og uppljómun reyndu þeir
þannig að komast í beint, per-
sónulegt samband við leyndar-
dóma Allah.
Sú hreyfing sem hófst á þenn-
an hátt var nefnd „súfismi“ - en
það er talið dregið af arabíska
HUGVEKJA
orðinu „suf“ sem þýðir ull - og
var róttæk uppreisn gegn þeirri
skynsemishyggju sem þá var út-
breidd meðal Múhameðstrúar-
manna. í stað þess að fara út í
einhverjar guðfræðilegar bolla-
leggingar til að ráða rúnir tilver-
unnar héldu fylgismenn hennar,
hinir svonefndu „dervisjar“, sínu
striki, og reyndu sífellt að finna æ
fullkomnari aðferðir til að nálg-
ast almættið. Fyrir áhrif frá hin-
um mikla spekingi Al-Ghazzali
fóru þeir að nota söng og tónlist
til að komast í hugljómun, og hef-
ur það mjög einkennt siði þeirra
upp frá því. En síðan tóku þeir
einnig að leggja stund á trúar-
legan og dulrænan skáldskap, og
risu þá upp meðal þeirra trúarleg
skáld, sem vísuðu veginn í enda-
lausum bálkum, þar sem dulræn
ljóð og skýringar í lausu máli
skiptust á. Eitt af þeim var
persneska skáldið Abu Hamid
Muhammad ibn-Ibrahim, sem
orti undir nafninu Farid ud-din
Attar, og er eitt helsta verk hans
„Dæmisagan um fuglana“, sem
segir frá því þegar fuglamir vildu
kjósa sér konung og síðan frá
langri ferð þeirra, undir leiðsögn
herfuglsins (af ættkvíslinni upup-
idae) til fjallsins Kaf, þar sem
hinn guðlegi fugl Simurgh hefur
aðsetur sitt. En eins og hvert barn
getur skilið, er þetta allt saman
táknrænt um leit mannssálarinn-
ar að leyndardómum Allah,
undir leiðsögn dulspekikennar-
ans, og síðan samlögun sálarinn-
ar að guðdóminum.
Háttlaus
snúningur
Á þennan hátt urðu aðferðirn-
ar við að komast í beint samband
við leyndardóma Allah sífellt
fjölbreyttari og fullkomnari, og
komu upp ýmsar greinar „der-
visjanna“ sem lögðu áherslu á
mismunandi brautir. Má nefna
meðal þeirra hina svonefndu kal-
andariyah eða „flökku-dervisja“
og rufaiyah, eða „öskur-der-
visja“, sem komust í hugljómun
með ópum og óhljóðum. En það
var þó að lokum skáldið Mevlana
Celaleddin Rumi, samtímamað-
ur Sturlu Þórðarsonar, sem fann
fullkomnustu leiðina. Á hans
dögum hafði landið umhverfis
borg hans Konya um langt skeið
verið bardagavöllur múhameðs-
trúarmanna og herja Býsanz,.
sem háðu þrotlausa baráttu
öldum saman um yfirráð í þessum
heimshluta, og var þar allt í rúst-
um, en almenningur hafði víða
tekið þann kostinn að grafa sig
niður í holur til að sleppa undan
hetjudáðum hinna stríðandi
kappa. Um leið og Mevlana Cel-
aleddin Rumi orti lausavísur þús-
undum saman í svo löngum bálk-
um, að það eitt var nóg til aö
upphefja hvaða þverhaus sem var
í glampandi hugljómun, fann
hann það út, að besta aðferðin til
að nálgast Allah var samt sú að
snúast stanslaust í kringum sjálf-
an sig með eins miklum hraða og
unnt var, látlaust og þrotlaust
undir þvingandi bumbuslætti,
eins og þarna væri á ferðinni ein-
hver mann-skopparakringla, og
láta engan svima aftra sér, uns
svo kom að rústir og sviðið land
runnu saman í eitt, upp sneri nið-
ur og niður upp og hægri og
vinstri féllust slagandi í faðma: þá
lukust upp allir dýpstu leyndar-
dómar almættisins í gegnum ein-
hverja dulræna móðu í þessu
herjaða landi. Þannig varð til
regla hinna svonefndu mawlawi-
yah, eða „snúnings-dervisja", og
hefur hún haldið áfram að snúast
í Konya, þar sem Mevlana Celal-
eddin Rumi liggur grafinn, allar
götur síðan, en einnig dreifst
víðar um lönd múhameðstrúar-
manna. Á vissum hátíðisdögum
eiga menn því kost á að virða fyrir
sér snúninginn og sjá með eigin
augum þau áhrif sem hann hefur,
a.m.k. á aðra.
Þótt þessum stríðandi herjum
Býsanzmanna og áhangenda spá-
mannsins hafi í aldalöngum
skinndrætti sínum tekist að leggja
héruðin kringum Konya í rústir
virðast stríðstól þeirra og bram-
bolt harla léttvæg við hliðina á
öllu því sem fundið hefur verið
upp síðan. Og má til sanns vegar
færa, að síðast þegar stórstyrjöld
geisaði í Evrópu hafi ekki tekið
nema fáar klukkustundir að
E.M.J.
valda ámóta eyðileggingu og
áður þurfti vikur og mánuði til að
koma í verk. Stöðugt eru fundnar
upp nýjar leiðir, og nú fyrir
skömmu opnaði Karl Filippusson
laxveiðimaður af Wales augu
manna fyrir einni þeirra, sem
ýmsum hafði sést yfir: hélt hann
því fram að húsameistarar og
gatnahönnuðir í Lundúnum
hefðu valdið meiri spjöllum á
borginni eftir stríð en þýska hern-
um hefði tekist í samanlögðum
loftárásum sínum á stríðsárunum
sjálfum, og benti m.a. á skýja-
kljúfahverfin umhverfis Páls-
kirkjuna.
Þýski herinn
óþarfur
Vera má, að þessi samanburð-
ur komi Reykvíkingum nokkuð á
óvart, þar sem þeir þekkja fyrri
hlutann sem betur fer ekki af
eigin raun. En undir stjórn þess
ötula borgarstjóra, sem einna
helst mætti líkja við grískan guð,
en það er Póseidon sem bar
viðurnefnið „borgarbrjótur",
hafa þeir hins vegar fengið þeim
mun betur að kynnast því hvernig
arkitektar og skipuleggjendur
nútímans geta leikið borgar-
landslag. Og segja má að hér sé
dugnaðurinn jafnvel ennþá
meiri: í Reykjavík þurfti nefni-
lega engan þýskan lofther til að
eyðileggja sögulegar byggingar
og tæta upp gömul og dýrmæt
hverfi þannig að byggingameist-
arar gætu síðan leikið lausum
hala, - borgaryfirvöldin ruddust
sjálf fram í eyðileggingunni eins
og risaeðla með tannpínu.
Þótt þróunin hafi hér stefnt í
sömu átt og á heimaslóðum Karls
Filipussonar er ástæðan því ekki
að öllu leyti sú sama, og kannske
er það einmitt þess vegna sem
árangurinn er ennþá hrikalegri.
Á íslandi er eins og stjórnmála-
menn og aðrir athafnamenn þurfi
að eyðileggja einhver mikilvæg
menningarverðmæti til að sýna
að þeir séu menn með mönnum
og vera teknir alvarlega, og til að
firra öllum misskilningi verði þeir
að réttlæta það með einhverjum
rökum sem jafngilda á mæltu
máli „afþví bara“: ef einhvers
staðar í þessu strjálbýla landi er
að finna gamalt og vel varðveitt
hús með mikið menningarsögu-
legt gildi, verða alltaf einhverjir
stórkarlar in spe til að uppgötva
að á þessum stað og hvergi annars
10 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 29. september 1989
staðar þurfi alveg nauðsynlega að
byggja HúS verslunarinnar, Höll
verslunarinnar, Hof verslunar-
innar, Slot verslunarinnar, Dom-
us mercatorum, Leikvang versl-
unarinnar, Bæ verslunarinnar,
Skýjakljúf verslunarinnar eða
eitthvert annað monthús í þeim
dúr. Þegar áformað var að breyta
blaði í Hólabiskupsdæmi í fyrsta
dagblað landsbyggðarinnar,
þurftu aðstandendur þess að
undirstrika það með því að finna
fallegt gamalt hús og sérlega vel
varðveitt og brjóta það niður
með stálkúlu. Og borgmeistarinn
í bæ Ingólfs, sem virðist setja
markið hátt, lét sig ekki muna um
minna en eyðileggja Fjalakött-
inn, eitt allramerkasta hús sem
nokkurn tíma hefur risið í þessari
borg, og var það slíkt meistara-
verk eyðileggingarinnar, að þess
vegna gæti hann hér eftir sofið
rólegur á lárviðarsveignum: eng-
inn efast um kjark hans og stór-
mennsku og nafn hans verður ör-
ugglega letrað glæstu letri á bók
sögunnar.
Síbería í Árbæ
Þegar gamalt hús er rifið gerist
tvennt: eljuverk fyrri tíðar er
máð burtu og jafnframt kemur
einhver skelfing í staðinn, -
kannske einhver afskræmislegur
kubbur eða þá einfaldlega útþan-
in grámygla blikkbeljuhagans. Á
þessu sviði er eins og þau álög
hvíli á skipulags- og bygginga-
meisturum á skerinu, að þeir
þurfi að apa eftir öll þau mistök
sem hafa verið gerð annars stað-
ar, eða jafnvel þau mistök sem
menn í öðrum löndum hafa haft
vit á að gera ekki. Ef einhver
skyldi halda, að svo lærðir menn
hljóti að vita hvað þeir eru að
gera, og því sé eitthvert dulið
system í galskapnum, geta þeir
sest niður og hugleitt það að á
þessu úruga útskeri skuli nánast
heilli kynslóð húsameistara hafa
þótt það snjallræði mikið að
byggja hús með flötum þökum,
rétt eins og þeir hefðu fengið
menntun sína í Kúvait og ekki
komist yfir það.
Síðan er ekki annað eftir en
opna augun, horfa á skörðin sem
urðu eftir þegar gömul hús voru
rifin eða flutt í einhverja Síberíu-
vist, líta á kumbaldana sem eru
að rísa upp hingað og þangað
með alls kyns útskotum úr stáli,
gleri og steinsteypu, hver í mót-
sögn við annan í furðulegri sam-
blöndun stfltegundanna, og
fylgja eftir hraðbrautunum sem
liggja inn í borgina með alls kyns
akreinum, brúm og skiptingum,
og veita inn í gömlu hverfin ein-
hverju syndaflóði af bifreiðum,
þannig að fótgangendur verða
eins og einhverjar furðuskepnur
fornaldarinnar og allt venjulegt
mannlíf er að drukkna. Naumast
er hægt að þekkja ýmsa gamal-
kunna staði lengur, - þeir eru
orðnir eins vinalegir og áningar-
staðir þar sem hraðbrautir mæt-
ast í miðvestrinu.
En fyrir hugvit borgarstjórans
má vera að þessi sundurlausa sýn
verði að einhverju æðra innsæi.
Á einum hæsta stað borgarinnar,
hitaveitutönkunum á Öskjuhlíð,
er nú verið að reisa hálfkúlulaga
útsýnishús, sem er ýmsum dular-
fullum eiginleikum búið. Þarna
uppi geta Reykvíkingar tekið sér
stöðu eins og dervisj arnir í Kony a
og þurfa ekki einu sinni að hafa
fyrir því á þessari tækniöld að
snúa sér sjálfir í hring: það er út-
sýnishúsið sjálft sem þyrlast af
stað með þá eins og risavaxin
skopparakringla, og hvaða sjón-
hverfingum skyldi nú bregða upp
þegar þeir þeytast þarna með
ofsahraða hring eftir hring eftir
hring umvafðir alls kyns ullhvít-
um gufustrókum? Ef þeir snúast
nógu lengi þangað til allt fer að
renna saman í eitt, er kannske
von til þess að í öllum óskapnað-
inum reki þeir að lokum glyrn-
urnar í eitthvert glimt af leyndar-
dómum almættisins.
e.m.j.